Morgunblaðið - 15.11.2001, Síða 28
ERLENT
28 FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
HERSVEITIR Norðurbandalags-
ins sóttu hart fram á öllum víg-
stöðvum í gær, eftir að hafa náð
valdi á höfuðborginni Kabúl á
þriðjudagsmorgun. Lýstu háttsett-
ir menn innan bandalagsins því yf-
ir í gær að aðeins um fimmtungur
landsvæðis í Afganistan væri enn í
höndum talibana.
Misvísandi fregnir bárust fram
eftir degi af vígstöðunni í Kandah-
ar, höfuðvígi talibana. Í gærmorg-
un bárust óstaðfestar fregnir af
því að Norðurbandalagið hefði náð
flugvellinum í Kandahar á sitt vald
og að talibanar hefðu flúið borg-
ina, en talsmaður talibanastjórn-
arinnar vísaði því á bug um miðjan
dag í viðtali við Al-Jazeera-sjón-
varpsstöðina.
Síðdegis virtist þó sem fregnir
um töku flugvallarins ættu við rök
að styðjast og fréttir bárust af
bardögum inni í borginni sjálfri og
að flótti væri brostinn á í liði talib-
ana. Þá tilkynnti fyrrverandi hér-
aðsstjóri í Kandahar-héraði, Gul
Agha Sherzai, að hann hefði sent
200 vopnaða menn yfir landamær-
in til Pakistans til að semja við tal-
ibana um að láta Kandahar-borg af
hendi.
Talibanastjórnin hafði aðsetur
sitt í Kandahar, þar á meðal leið-
togi hennar, múllinn Mohammed
Omar. AP-fréttastofan hafði í gær
eftir háttsettum manni úr röðum
talibana að Omar og „gestur“
hans, Osama bin Laden, væru
„heilir á húfi.“
Talibanar hörfa
Herlið talibana hörfaði á flestum
vígstöðvum í gær og bandarískar
herþotur gerðu loftárásir á sveitir
þeirra á undanhaldinu.
Í norðurhluta landsins hafa tal-
ibanar dregið lið sitt að borginni
Kunduz, þar sem það er umkringt.
Norðurbandalagið fullyrðir að
komið hafi til uppreisnar gegn tal-
ibönum í fjórum héruðum í norð-
austurhluta Afganistans – Laghm-
an, Logar, Kunar og Nangahar –
og að talibanar hafi ennfremur yf-
irgefið héraðið Uruzgan í miðhluta
landsins. Þá hefur Norðurbanda-
lagið náð borginni Herat í vest-
urhlutanum á sitt vald, en hún
þykir hafa mikið hernaðargildi.
Hermt er að héraðsleiðtogar hafi
samið við talibana um að þeir
hefðu lið sitt á brott frá borginni
Jalalabad í austurhlutanum, gegnt
því að mönnum þeirra yrði tryggð
örugg brottför.
Að sögn fréttamanns BBC í
borginni Bamiyan í miðhluta Afg-
anistans frömdu talibanar mikil
grimmdarverk áður en þeir hörf-
uðu þaðan. Þeir eru sagðir hafa
lagt borgina í rúst og tekið hundr-
uð karlkyns íbúa af lífi.
Innanríkisráðherra Norður-
bandalagsins, Yunis Qanuni, full-
yrti í gær að eftir stórsókn banda-
lagsins síðustu daga réðu talibanar
einungis yfir 20% landsvæðis í
Afganistan.
Norðurbandalagið sækir hart fram eftir að hafa náð Kabúl á sitt vald
Aðeins 20% Afgan-
istans sögð enn í
höndum talibana
Reuters
Ungir Afganar hlusta á tónlist í fyrsta sinn í fimm ár í miðborg Kabúl í gær, eftir brotthvarf talibana þaðan.
Þeir hafa einnig skert skegg sitt, en talibanar skipuðu karlmönnum að bera a.m.k. hnefasítt skegg.
!
"
!
"
# $ "
!
% &
'
"
) $
"
!
"
"
!
#
!
* +
(-
. !/ + !
01
21#3
2.3 4'0
56! 6 (
76
8!6
! 6 (
!
*9
: ;< (
=
!
6 (
!
!6 >>
7
=
!
!(
Kabúl. AFP, AP.
RANNSÓKNIN á flugslysinu í New York
sl. mánudag beinist nú að því, hvort stél-
hluti þotunnar er fórst hafi af óútskýrðum
ástæðum brotnað af á flugi. Rúmlega 260
manns fórust í slysinu.
Rannsóknarfulltrúar frá Bandaríska sam-
gönguöryggisráðinu (NTSB) eru að reyna
að átta sig á því hvers vegna hlutar af vél-
inni, þ.á m. hliðarstýrið, komu niður tæpan
kílómetra frá þeim stað sem meginhluti vél-
arinnar lenti. Þá fundust báðir hreyflar vél-
arinnar mörg hundruð metra frá stærsta
hluta braksins.
Þotan fórst tveim eða þrem mínútum eft-
ir flugtak frá Kennedy-flugvelli upp úr
klukkan níu á mánudagsmorgun að stað-
artíma (upp úr kl. 14 að íslenskum tíma).
Ferðinni var heitið til höfuðborgar Dóm-
iníska lýðveldisins. Þotan var af gerðinni
Airbus A-300-600R og var í eigu American
Airlines.
Hliðarstýri vélarinnar fannst í sjónum í
Jamaica-flóa, og svo virtist sem það hefði
hreinlega brotnað af búk vélarinnar. Án
hliðarstýrisins hefði verið lítill vegur fyrir
flugmennina að hafa nokkra stjórn á vél-
inni. Rannsóknarfulltrúar segja að bráða-
birgðaathugun bendi til að sprunga hafi
verið í hliðarstýrinu sjálfu, en ekki skrúf-
boltunum sem halda því föstu við búkinn.
Þá eru fulltrúar NTSB ennfremur að
rannsaka hvort ókyrrð í kjölfar Boeing 747-
þotu Japan Airlines, sem fór í loftið næst á
undan Airbus-vélinni, kunni að hafa átt þátt
í því hvernig fór. Boeing-þotan, sem er mun
stærri en Airbus-vélin, fór á loft tveim mín-
útum og 20 sekúndum á undan, og var í
rúmlega 11 km fjarlægð. Hefði tímamun-
urinn og fjarlægðin átt að vera meira en
nóg til að engin vandræði sköpuðust vegna
ókyrrðar, en á segulbandsupptöku úr
stjórnklefa þotunnar sem fórst má heyra
orð sem benda til að vélin hafi lent í ókyrrð.
Við rannsókn flugslysa er fylgt útilok-
unaraðferð. Allar hugsanlegar orsakir eru
útilokaðar uns aðeins er einn möguleiki eft-
ir. Engu skiptir hversu ólíklega hann
hljómar, hann er svarið. Þessari aðferð er
fylgt við leitina að orsökum slyssins er varð
sl. mánudag.
Eitt það fyrsta sem talið var koma helst
til greina var að bilun eða sprenging í
hreyfli hefði valdið því að vélin fórst. Hún
var knúin tveim General Electric CF6-
80C2-hreyflum. Fram hefur komið ein vís-
bending um að áhöfnin hafi talið að hægri
hreyfillinn hefði misst afl. Hliðarstýrið var
stillt á tíu gráður til vinstri, sem bendir til
að flugmennirnir hafi reynt að nota það til
að spyrna á móti.
Samt virðist sem vinstri hreyfillinn hafi
brotnað af fyrst. Og suma rannsóknarfull-
trúa er farið að gruna að hliðarstýrið hafi
dottið af vélinni áður en hreyflarnir brotn-
uðu af. Festingarnar á hliðarstýrinu reynd-
ust óskemmdar, en svo virðist sem gallans
kunni að vera að leita neðst í hliðarstýrinu,
sem er smíðað úr samsettu efni. Framleið-
endur segja þetta samsetta efni vera sterk-
ara en málma, og er það mikið notað við
smíði á farþegaflugvélum og herflugvélum
þar eð það er mun léttara en málmur.
George Black, rannsóknarfulltrúi hjá
NTSB, sagði þó, að ekkert hefði komið
fram sem benti til stórfelldrar bilunar í
hreyfli. Vangaveltur voru um fyrri bilanir
og slys er orðið hafi þar sem um hafi verið
að ræða þessa tilteknu hreyfilgerð. Black
taldi ennfremur ólíklegt að fugl hefði lent í
hreyfli þotunnar í flugtakinu. Engar vís-
bendingar hefðu fundist um slíkt. Hann
ítrekaði þó, að engar endanlegar niðurstöð-
ur væru komnar fram.
Þá greindi Black frá því á þriðjudaginn
að flugriti vélarinnar, sem skráir tækni-
legar upplýsingar um flugið, væri kominn í
leitirnar. Hinn flugritinn, segulbandsupp-
taka úr stjórnklefanum, fannst á mánudag-
inn. Black tjáði fréttamönnum að á seg-
ulbandsupptökunni mætti heyra að vélin
hefði tekið að nötra einni mínútu og 47 sek-
úndum eftir flugtak. Fram að því hafði ekk-
ert óeðlilegt komið fram. Um það bil sjö
sekúndum eftir að fyrst mátti heyra vélina
nötra lét flugstjórinn, Edward States, orð
falla um að vélin hefði lent í ókyrrð í kjölfar
vélarinnar á undan.
Öðrum sjö sekúndum síðar heyrðist vélin
aftur nötra. Strax á eftir heyrist flugmað-
urinn, Sten Molin, sem stjórnaði vélinni í
flugtakinu, segja að auka þyrfti þrýstikraft
hreyflanna. Síðan má ráða af orðum flug-
mannanna að þeir séu að missa stjórn á vél-
inni. Það var tveim mínútum og sautján
sekúndum eftir að vélin hóf flugtak. Upp-
tökunni lýkur 17 sekúndum síðar.
Vísbending um að
hliðarstýrið hafi
brotnað af á flugi
AP
Stórum hluta hliðarstýris Airbus A300-þotunnar sem fórst á mánudaginn sést hér lyft á
land eftir að það fannst á botni Jamaica-flóa við New York.
New York. Los Angeles Times, Washington Post.