Morgunblaðið - 15.11.2001, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 15.11.2001, Blaðsíða 30
ERLENT 30 FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ ÞRÁTT fyrir ágreining um þær áætlanir Bandaríkjamanna að koma sér upp eldflaugavarnakerfi voru þeir George W. Bush Banda- ríkjaforseti og Vladímír Pútín Rússlandsforseti sammála um það á fundi sínum í Washington í fyrra- kvöld að alger þáttaskil hefðu orðið í samskiptum ríkjanna. Lýstu báðir vilja sínum til að tryggja að breyt- ingarnar væru varanlegar og fram kom að ákvörðun þeirra um að boða hvor fyrir sig einhliða fækkun kjarnaodda væri til marks um að þeir vildu sýna vilja sinn í verki. Bush reið á vaðið og tilkynnti að Bandaríkin hygðust fækka í kjarn- orkuvopnabúri sínu um tvo þriðju á næsta áratug og svaraði Pútín í sömu mynt. Yfirlýsingar leiðtog- anna þýða að sá fjöldi kjarnorku- vopna, sem ríkin beina hvort gegn öðru, hefur ekki verið minni síðan á sjöunda áratugnum. Yfirlýsing- arnar þóttu merkilegar því fram að þessu hafa ákvarðanir um fækk- un kjarnorkuvopna nánast ein- göngu verið teknar að afloknum löngum og ströngum samninga- viðræðum landanna. Nú komu þær að afloknum þriggja klukkustunda löngum fundi Pútíns og Bush og lýstu forsetarnir því yfir við lok fundarins að tíðindin mörkuðu nýja tíma í samskiptum Rússlands og Bandaríkjanna. Samskipti land- anna yrðu hér eftir byggð á tryggð við gildi lýðræðisins, hinn frjálsa markað og lög og reglu. „Bandarík- in og Rússland hafa hrist af sér arf- leifð kalda stríðsins. Hvorugt lítur nú á hitt sem óvin eða ógnun,“ sagði í sameiginlegri yfirlýsingu þeirra. Mátti þó greina að Pútín var öllu áfjáðari í að festa samkomulag um fækkun kjarnavopna á blað. Bush lét hins vegar í ljós þá skoðun að „endalausar“ viðræður um þau mál væru óþarfar í ljósi þess trausts sem nú ríkti milli forsetanna. Árásin á Bandaríkin olli stakkaskiptum á sambandinu Engum blandast hugur um að árásirnar á Bandaríkin 11. sept- ember sl. hafa haft mikil áhrif á samskipti Bush og Pútíns. Þeir hafa snúið bökum saman í barátt- unni gegn hryðjuverkamönnum og fram kom í máli Bush nú að hvor tveggja styddi þá tillögu Samein- uðu þjóðanna að samsteypustjórn ýmissa afla tæki við völdum í Afg- anistan eftir að talibönum hefur þar verið bolað frá. Bush sagði á fréttamannafundi sem hann hélt með Pútín að sú ver- öld sem nú blasti við leiðtogum Bandaríkjanna og Rússlands væri gjörólík þeirri sem forverar þeirra í starfi vöndust. Sagði Bush að þeir Pútín legðu áherslu á náið samstarf til að bregðast við þeim nýju ógn- um sem 21. öldin færði mönnum, á sama tíma og þeir væru að reyna að binda endahnútinn á deilur 20. aldarinnar í eitt skipti fyrir öll. Snerust viðræður þeirra Bush og Pútíns á þriðjudag fyrst og fremst um þau tíðindi sem borist höfðu frá Afganistan, um að talibanar hefðu flúið höfuðborgina Kabúl. Báðir lýstu áhyggjum sínum vegna frétta um mannréttindabrot hermanna Norðurbandalagsins í borginni Mazar-e-Sharif og víðar gagnvart grunuðum stuðnings- mönnum talibanastjórnarinnar. Meðal annarra mála, sem forset- arnir settu á blað til að færa sönn- ur á hið nýja vináttusamband, má nefna yfirlýsingu þeirra um að „all- nokkur áhersla“ yrði lögð á að hraða inngöngu Rússa í Heims- viðskiptastofnunina, WTO. Ennfremur hétu þeir því að leggja áherslu á að koma í veg fyr- ir útbreiðslu eiturefna- og sýkla- vopna. Loks lýstu þeir vilja sínum til að auka viðskiptaleg tengsl Rússlands og Bandaríkjanna. Vel fór á með forsetum Bandaríkjanna og Rússlands á fundi þeirra í Hvíta húsinu í Washington Þáttaskil í samskiptum þjóðanna Reuters Vladímír Pútín Rússlandsforseti og George W. Bush Bandaríkjaforseti ræðast við í forsetaskrifstofunni í Hvíta húsinu í Washington á þriðjudag. Washington. AFP, The Washington Post. YFIRLÝSING George W. Bush, forseta Bandaríkjanna, um mikla, einhliða fækkun kjarnorkuvopna hefur vakið verulega athygli en hann tilkynnti um hana á fundi sín- um með Vladímír Pútín, forseta Rússlands, í Washington í fyrradag. Pútín greindi svo frá því í gær, að rússneska stjórnin hygðist fækka sínum kjarnavopnum hlutfallslega jafn mikið. Bandarískir hernaðar- og afvopnunarsérfræðingar segja þó, að hér sé ekki allt sem sýnist. Talið er, að Bandaríkjamenn eigi um 7.000 langdræga kjarnaodda en samkvæmt yfirlýsingu Bush verður þeim fækkað um tvo þriðju á einum áratug þannig að eftir verði um 1.700 til 2.200. Rússar eiga í sínu vopnabúri um 6.000 langdræg kjarnavopn og þeim verður fækkað í 2.000. Þetta lítur vel út en bandarísku sérfræðingarnir segja, að búið hafi verið að ákveða að eyða mörgum þeirra 4.000 kjarnaodda, sem Bush hyggst fækka um á næsta áratug. Þá hafi hann einnig tekið fram, að fækkunin myndi aðeins ná til kjarn- orkueldflauga, sem nú er unnt að beita, en það þýðir, að þær, sem ver- ið er að vinna við, til dæmis vegna viðhalds og viðgerða, eru undan- skildar. Hvað sem þessu líður verður um að ræða verulega fækkun en Rússar hafa á síðustu mánuðum viðrað þær hugmyndir sínar, að stórveldin tvö láti sér nægja að eiga 1.000 til 1.500 langdræg kjarnavopn hvort. Gagnkvæmt traust „Það, sem gerst hefur, er, að Bandaríkjamenn og Rússar eru farnir að treysta hvorir öðrum,“ segir Peter Huessy, ráðgjafi Bush í varnarmálum, og maður, sem er mjög kunnugur flestu, sem lýtur að langdrægum kjarnavopnum. „Það má heita næstum útilokað, að það kreppuástand geti komið upp, að annað ríkið óttist fyrirvaralausa kjarnorkuárás frá hinu. Jafnvel þótt ágreiningur komi upp á milli ríkjanna, er engin hætta á, að við honum verði brugðist með kjarn- orkuvopnaviðbúnaði.“ Þeir, sem berjast fyrir enn meiri afvopnun, eru samt ekki ánægðir og segja, að yfirlýsing Bush geri ekkert til að eyða kaldastríðstortryggninni, sem enn lifi þrátt fyrir bætt sam- skipti. Þeir segja ennfremur, að Bush hafi ekki minnst á nokkur þús- und kjarnasprengna og kjarnaodda í geymslum víðs vegar um Banda- ríkin en þær megi taka aftur í notk- un. Clinton og Jeltsín sömdu um það sama Afvopnunarsérfræðingurinn Ro- bert S. Norris segir, að Bush hafi í raun engu breytt með yfirlýsingu sinni og í raun aðeins staðfest þann samning, sem forsetarnir fyrrver- andi, Bill Clinton og Borís Jeltsín, voru sammála um 1997 en sam- kvæmt honum skyldu ríkin fækka langdrægum kjarnaoddum sínum í 2.000 til 2.500. Þessi samningur var hins vegar aldrei undirritaður. Búist er við, að fækkað verði í öll- um vopnakerfum þannig að heildar- kerfið verði það sama og áður en ekki er vitað hvað gert verður við þau vopn, sem tekin verða úr notk- un, hvort þeim verður eytt eða sett í geymslu. Í fyrri samningum hefur alltaf verið tekið fram hvernig vopnin skuli tekin í sundur og hve lengi samningsaðilar geti sannreynt, að eftir því hafi verið farið. Á fundi Bush og Pútín í Washington nú hef- ur hins vegar ekkert verið talað um samninga og ekki einu sinni víst, að um verði að ræða einhverja form- lega undirskrift. Ekki vitað um fjölda „litlu“ kjarnorkusprengnanna Daryl Kimball, framkvæmda- stjóri samtakanna Arms Contol As- sociation, segir eins og áður er minnst á, að þeir Bush og Pútín hafi aðeins talað um að fækka þeim kjarnavopnum, sem nú eru virk eða tilbúin til notkunar, en það þýði, að undan séu skilin 4.000 til 15.000 rússnesk kjarnavopn, minni en þau langdrægu en samt mjög öflug. Um þessi vopn hafi ekki verið gerðir neinir samningar og því sé ekki vit- að hve mörg þau eru. Kimball segir, að það sé einmitt hætta á, að þessum vopnum sé stolið eða þau seld mönn- um á borð við Osama bin Laden. Ákvörðun George W. Bush og Vladímírs Pútíns um að fækka langdrægum kjarnaoddum Mikilvægt skref en ekki er allt sem sýnist AP Bandarísk Títan-eldflaug með kjarnaoddi sést hér í skotstöðu. Washington. Los Angeles Times.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.