Morgunblaðið - 15.11.2001, Side 61

Morgunblaðið - 15.11.2001, Side 61
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 2001 61 KVENNASÖGUSAFN Íslands opn- ar föstudaginn 16. nóvember, á degi íslenskrar tungu, sýningu á ævi og störfum Bjargar C. Þorláksson und- ir heitinu Maður, lærðu að skapa sjálfan þig. Sýningin rekur ævi og störf Bjargar í máli og myndum og einnig getur að líta nokkra muni úr eigu hennar. Samtímis kemur út hjá JPV Forlagi ævisaga Bjargar C. Þorláksson er dr. Sigríður Dúna Kristmundsdóttir hefur ritað og ber heitið Björg. Ævisaga Bjargar C. Þorláksson. Björg C. Þorláksson varð fyrst ís- lenskra kvenna til að ljúka doktors- prófi þann 17. júní 1926, og eru því liðin 74 ár frá þeim atburði. Sýning- unni er valinn opnunardagur á degi íslenskrar tungu til þess að heiðra þátt dr. Bjargar í varðveislu og við- reisn íslenskunnar, en hún vann mjög að íslensku–dönsku orðabók- inni með Sigfúsi Blöndal og stuðlaði að útgáfu hennar. Sýningin er í sýningarrými á 2. hæð í Þjóðarbókhlöðu og er opin á opnunartíma Landsbókasafns Ís- lands – Háskólabókasafns. Föstu- daga, 8.15–19, laugardaga, 9–17, sunnudaga 11–17. Sýning um ævi Bjargar C. Þorláksson MÁLÞING verður haldið um klínísk- ar leiðbeiningar, sem meðal annars hafa það að markmiði að stuðla að réttri notkun lyfja, í þingsal 1, Hótel Loftleiðum á föstudag kl. 14.30–17. Þingið er liður í samstarfi Landlækn- isembættisins og lyfjahóps Samtaka verslunarinnar um útgáfu og kynn- ingu klínískra leiðbeininga sem sett- ar eru fram af Landlæknisembætt- inu. Á þinginu tala Sigurður Guð- mundsson, Guðmundur Þorgeirsson og Hjörleifur Þórarinsson. Klínískar leiðbeiningar eru skilgreindar sem kerfisbundnar leiðbeiningar um ákvarðanir sem lúta að klínískum vandamálum í læknisfræði. Þær taka mið af bestu þekkingu á hverjum tíma og eru lagðar fram í því skyni að veita sem besta meðferð með sem minnstri áhættu án óhóflegs kostn- aðar. Talsvert hefur verið unnið að því að efla klínískar leiðbeiningar hérlendis á undanförnum áratug. Gefnar hafa verið út leiðbeiningar um meðferð sýkinga á sjúkrahúsum og landlækn- ir hefur gefið út leiðbeiningar um háa blóðfitu og meðferð eyrnabólgu svo dæmi sé nefnd. Fagráð Læknafélags Íslands hefur undanfarin tvö ár unnið að hugmyndum sem lúta að gerð klín- ískra leiðbeininga og hefur lagt til að Landlæknisembættið yrði miðstöð þeirra, segir í fréttatilkynningu. Stuðlað að réttri notkun lyfja Málþing um klínískar leiðbeiningar VERKALÝÐSFÉLAG Raufar- hafnar mótmælir þeirri ákvörðun forráðamanna Landsbanka Ís- lands á Norðurlandi að draga úr þjónustu þeirri sem Landsbank- inn hefur á Kópaskeri og Rauf- arhöfn. „Verkalýðsfélagið telur að þetta komi til með að draga úr kjarki fólks til að búa áfram á þessu svæði,“ segir í fréttatil- kynningu. „Verkalýðsfélagið vill benda á að LÍ hefur ekki einu sinni haft uppi tilburði á öld tæknivæðingar að koma upp hraðbanka í þessum útibúum sín- um. Er því lágmark að bankinn sé áfram opinn þessa þrjá og hálfan tíma á dag líkt og verið hefur undanfarið og má ekki minna vera. Skorar Verkalýðsfélag Raufar- hafnar hér með á forráðamenn Landsbanka Íslands að finna aðr- ar leiðir til hagræðingar en skerðingu á þjónustu við íbúa Raufarhafnar og Kópaskers,“ segir í frétt frá verkalýðsfélaginu. Mótmæla skertri þjón- ustu Landsbankans SPOEX – Samtök psoriasis- og ex- emsjúklinga hafa um árabil gefið út jólakort og hafa þau verið þeirra að- altekjulind. Myndlistarkonan Auður Ólafsdóttir hefur gefið SPOEX tvær mynda sinna til prentunar á jólakort samtakanna. SPOEX vinnur að hagsmunamál- um félagsmanna sinna m.a. með fræðslu og þjónustu, ásamt rekstri göngudeildar í húsnæði sínu að Bol- holti 6 í Reykjavík. Jólakortin eru til sölu á skrifstof- unni að Bolholti 6 og geta sölubörn og kaupendur haft samband þangað. Tölvupóstur er spoex@psoriasis.is. Jólakort SPOEX komin út

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.