Morgunblaðið - 15.11.2001, Blaðsíða 62

Morgunblaðið - 15.11.2001, Blaðsíða 62
62 FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329  Netfang bref@mbl.is Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. Æ FLEIRUM finnst þetta undarleg barátta gegn hryðjuverkum sem háð er með því að varpa sprengjum á Afganistan. Í einhvers konar upp- gjöf eftir voðaverkin í Bandaríkjun- um 11. september réttlættu margir þessar aðgerðir í upphafi með því að eitthvað hafi þurft að gera. En þegar það kom í ljós, sem var þó fyrirsjáan- legt, að sprengjur lenda ekki bara á hernaðarlegum skotmörkum heldur líka íbúðarhúsum, skrifstofubygg- ingum og sjúkrahúsum og óbreyttir borgarar, fullorðnir og börn farast og fólk hrekst á vergang, hafa marg- ir farið að efast um að tilgangurinn helgi meðalið. Það er erfitt að rétt- læta þessar fórnir og ómögulegt þegar litið er til þess að þessar dýru fórnfreku aðgerðir munu auðvitað ekki koma í veg fyrir hryðjuverk. Það þarf ekki öflug samtök og skjól einhvers ríkis til að senda bréf með bakteríum. ETA-skæruliðarnir, sem búa heima hjá sér í NATO-ríkinu Spáni, halda áfram hryðjuverkum og þeim linnir ekki í Palestínu bæði af hálfu Ísraelsstjórnar og palestínskra hryðjuverkasamtaka. Og hverju eig- um við að trúa í fjölmiðlastríðinu þegar Bandaríkjastjórn segir að Osma bin Laden búi yfir kjarnorku- vopnum? Er eitthvað hæft í því eða er það bara útspil til að endurvekja röksemdina: Eitthvað verður að gera. Og veltir enginn fyrir sér í þessu samhengi hvenær líklegast er að menn beiti sínu öflugasta vopni? Það er sama hvernig á málið er lit- ið: Þetta stríð verður að stöðva. Á hverjum einasta degi safnast fólk saman úti um allan heim til að mót- mæla þessum stríðsrekstri. Í Reykjavík var gengin friðarganga 22. september, áður en loftárásirnar hófust. 19. október safnaðist fólk saman til að mótmæla stríði og of- beldi. Og næstkomandi laugardag, 17. nóvember, verður stríðsrekstrin- um gegn Afganistan mótmælt með því að ganga frá Hallgrímskirkju kl. 14 niður Skólavörðustíg og niður á Lækjartorg. EINAR ÓLAFSSON, bókavörður, Trönuhjalla 13, Kópavogi. Stöðvum stríðið Frá Einari Ólafssyni: HVAÐ er tónlistarnám? Hljóðfall, laglína, samhljómur, þessi þrjú atriði mynda þrenningu eða samhverfu sem er undirstaða allrar tónlistar. Þessi samhverfa fell- ur að eðli manna, jafnt í atferli, tilfinn- ingu, skynjun og skilningi. Góðar kennsluaðferðir í tónlistarkennslu miða að því að nýta þessa þætti sem mest og best og þjálfa þá og efla á sem jákvæðastan hátt, því margt má ráða af eðlislægum viðbrögðum ungra nemenda, og það sýnir sig að þessir áðurnefndu grundvallarþættir tónlistar búa innra með einstakling- um, svo sem tilfinning fyrir takti, heyrnarskynjun og fleira. Tónlistin kemur innan frá og er því ákveðið tjáningarform. Því má ljóst vera að gott tónlistaruppeldi stuðlar að al- hliða þroska nemandans og veitir ákveðna tilfinningaútrás. Öll viljum við gera sem mest og best fyrir börn- in okkar og viljum að þau séu frjáls og sjálfstæð. En foreldrar eru fyrst og fremst ábyrgir fyrir uppeldi barna sinna og að þau læri að umgangast aðra og beri virðingu fyrir öðru fólki og foreldrar mega ekki velta þeirri ábyrgð yfir á aðra. Því miður eru alltof margir grunn- skólanemendur (þó frjálsir séu og sjálfstæðir) bæði stressaðir og aga- lausir og ekki of vel undir það búnir að lifa í nútímaþjóðfélagi árekstra- laust og virða gildandi reglur. Börn og unglinga verður markvisst að gera meðvituð um að agi, regla, jákvæð hegðun og heiðarleiki séu einu leið- irnar til að ná árangri í lífi og starfi. Samningafólk sveitarfélaganna ætti að gera sér ljóst að tónlistar- kennarar eru að vinna afar mikilvægt forvarnarstarf og tónlistarnám er gulli betra, hneigist barn á annað borð til tónlistar. Markmið flestra tónlistarkennara, hversu lengi sem nemandi stundar nám, er að koma hverjum og einum þeirra til einhvers músikþroska og fá þá til að upplifa og túlka tónlist sér og öðrum til ánægju, og að nemandi fái næga tónmálsþekkingu til að geta haldið áfram að námi loknu. Hljóðfæranám er langtímanám ef góð færni á að nást og það felur í sér samræmda virkni margra þátta, sem hvern um sig þarf að þjálfa sérstak- lega til að fallega sé spilað og túlkað. Góður tónlistarnemandi þroskar og þjálfar marga mikilvæga þætti, eins og sköpunargáfuna (túlkun) sem eyk- ur mjög sjálfsöryggi og losar um ýms- ar hömlur. Upplifun og sköpunarþörfin er það sem gefur tónlistariðkun svo mikla gleði og ánægju. Ekki má gleyma einbeitingarþætt- inum, sem er afar mikilvægt þjálfun- aratriði í allri tónlistariðkun, kannski það mikilvægasta því margsannað er að tónlistarnemendur standa sig yf- irleitt mjög vel í öðrum námsgreinum. Árangur tónlistarnáms er einnig háð- ur því að nemandi læri að skipuleggja æfingatíma sinn og vinna markvisst og stöðugt, því námið er krefjandi og oft á brattann að sækja, þótt við reyn- um ávallt að miða verkefnin við þroska og getu nemandans og námið verði bæði ögrandi og skemmtilegt, jafnt hjá ungum sem lengra komnum. En nemendur þurfa stöðuga leið- sögn kennara og því getur frekari röskun en orðin er á starfsemi skól- anna haft mjög alvarlegar afleiðingar og afdrifaríkar, bæði fyrir nemendur og kennara, en þeir síðar nefndu munu margir leita í önnur störf ef launum verður ekki lyft upp til jafns við aðra kennara. STEFÁN JÓNASSON, píanókennari, Skúlabraut 23, Blönduósi. Til launanefndar sveitarfélaganna Frá Stefáni Jónassyni:
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.