Morgunblaðið - 15.11.2001, Blaðsíða 63
BRÉF TIL BLAÐSINS
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 2001 63
Kringlunni, sími 588 1680
v/Nesveg, Seltjarnarnesi, sími 561 1680.
iðunn
tískuverslun
buxur (3 skálmalengdir)
ullarpeysur
Opið í kvöld
í Kringlunni
til kl. 21
LAGERSALAN TUNGUHÁLSI 7
HELDUR ÁFRAM
Opið föstud. frá kl. 11-18, laugard. og sunnud. 11-17.
Tökum bæði debet- og kreditkort.
Tunguháls 7 er fyrir aftan Sælgætisgerðina Kólus.
Sími okkar er 567 1210
HEILDVERSLUN MEÐ JÓLA- OG GJAFAVÖRUR Í 35 ÁR
Persónuleg og
fagleg ráðgjöf
Klipping innifalin
Útsala á eldri birgðum
Skólavörðustíg 10.
Tímapantanir í síma 511 2100
HÁRKOLLUR NÝ GERÐ
Dóróthea Magnúsdóttir og Hugrún Stefánsdóttir
hárkollu- og hársnyrtifræðingar
Ný sending af
jólafötum og
jólagjöfum.
Ítölsk barnafataverslun
Laugavegi 53, s. 552 3737
Nýtt kortatímabil
ÉG LÁ andvaka yfir efnahags-
ástandinu og mínu eigin atvinnu-
ástandi, hvert ég ætti að snúa mér
næst í leit minni að krefjandi starfi
þar sem hæfileikar mínir gætu nýst
mér og öðrum.
Í þessum hugleiðingum, þar sem
höfuðið spann fram og til baka, fók-
usinn var allur á eigin tilfinningum
og rúmfötin margsnúin eftir 60 bylt-
ur í rúminu þá fór ég að hugsa til at-
burðanna tengdum 11. september.
„Flugslys“ í gær, að minnsta kosti
vonum við að það hafi verið „slys“. Á
þessum hörmungum varðandi flug-
samgöngur og Bandaríkin aldrei að
linna?
En á meðan ég velti mér upp úr
þessu efnahagsástandi og hvað sé nú
tengt hverju í þessari niðursveiflu Ís-
lands og heimsins kemst ég ekki hjá
því að hugsa um niðursveifluna sem
hlýtur að vera í Afganistan. Sundur-
sprengt land, já það er fjalllent og
sennilega hálfóbyggilegt. En hvað er
sagt um Ísland, er það ekki talið hálf-
óbyggilegt helminginn af árinu?
Segjum sem svo að Osama Bin
Laden hafi nú ákveðið að flýja til Ís-
lands, vitum við yfirhöfuð nokkuð
hvar hann er hvort eð er.
Bandaríska alnetið fær strax af-
spurnir af því að maðurinn haldi til í
grennd við Mývatn. Nú, það er ekki
til setunnar boðið og nokkrir flug-
menn sprengjuvéla fá það verkefni
að vera í fimm tíma næturvinnu við
að reyna að sprengja manninn út úr
greninu við Mývatn. Þar eru t.d.
Dimmuborgir þar sem auðvelt er að
fela sig og best að fara eina til tvær
umferðir þar yfir og láta sprengjun-
um rigna yfir. Til að vera viss um að
hann gisti ekki á hótelinu þá er best
að fara einn rúnt þar yfir. Svo eru
það Skútustaðir, hann gæti líka verið
þar. Þetta er hvort eð er allt í kring-
um Mývatn.
Nóttin líður og dagur rennur en
ekki hefur tekist að granda mann-
inum. Þá berast fréttir um að hann
hafi bara ekki komist norður. Var
ekki flugfært, og hann ku vera ein-
hverstaðar á slóðinni sem gjarnan er
kölluð „The Golden Circle“ í ferða-
mannabæklingum.
Nýtt verkefni bíður orustuvéla
bandaríska hersins. Finnið manninn,
hann er einhvers staðar á leiðinni
Gullfoss, Geysir eða Þingvellir. Sama
sagan endurtekur sig, sprengjuregn-
ið yfir „The Golden Circle“ varir í
fimm næturvinnutíma og maðurinn
jafnsprelllifandi og áður.
Hvernig ætli okkur Íslendingum
liði yfir því að koma á okkar helstu
ferðamannaperlur þegar sprengi-
flugvélar hafa verið að störfum þar í
nokkra tíma?
Það er spurningin hvaðan sú fjár-
veiting ætti að koma til að steypa upp
Gullfoss eða Dimmuborgir eða reisa
nýja Almannagjá.
Ég velti þessu nú bara fyrir mér
því Afganistan er svo langt í burtu og
það gæti vel verið að þar hefðu einu
sinni verið náttúruperlur og jafnvel
að þar hefði verið ferðamannaiðnað-
ur þar sem ómældur fjöldi fólks hafði
atvinnu beina eða óbeina af þeirri
grein.
Það gæti hugsanlega bara verið
ágætt að heimfæra hlutina aðeins til
þess að gera sér einhverja hugmynd
um það sem á sér stað einhvers stað-
ar lengst út í heimi þar sem býr fólk
eins og ég og þú, bóndi við Mývatn
eða hóteleigandi við Geysi.
Íslendingar, næst þegar við tökum
afstöðu með því að styðja hernað þá
skulum við hugsa um hvernig landið
okkar liti út ef búið væri að fljúga yfir
það í mánuð stanslaust og varpa
sprengjum hist og her. Kannski
hugsum við okkur um tvisvar ef Perl-
an í Öskjuhlíðinni væri sprengjugíg-
ur á morgun, Laugardalslaugin
hreinlega gufuð upp eða Hvanna-
dalshnjúkur orðinn hóll.
Það þyrfti ekki nema viku vinnu
hjá herveldi til að gera Ísland að einu
flakandi sári við það eitt að reyna að
finna einn mann.
ARNA GARÐARSDÓTTIR,
Hörgshlíð 2,
Reykjavík.
Að spila með eða ekki
Frá Örnu Garðarsdóttur: