Morgunblaðið - 15.11.2001, Side 64

Morgunblaðið - 15.11.2001, Side 64
DAGBÓK 64 FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT- STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Hver er höfundurinn? SKÚLI Helgason hafði samband við Velvakanda og er hann að leita eftir upplýsingum um hver sé höfundur eftirfarandi ljóðs. Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Sá sem getur gefið Skúla einhverjar upplýsingar vin- samlega hringi í síma 551 5746. Orðsending til Hafliða HINN 1. jan. 01 sóttir þú til okkar þrjár filmur úr fram- köllun. Í einu umslaginu eru myndir af fólki og myndir úr Þórsmörk sem því miður voru rangt af- greiddar. Hjá okkur eru þínar myndir, meðal ann- ars af miklum snjó við hús með jólaljósum, jöklum, fossum í Borgarfirði, kúm, kálfum, öndum og kanín- um. Hún Kristbjörg á myndirnar sem þú ert með og þeirra er sárt saknað. Vinsamlega hafðu sam- band við Myndval í Mjódd, sími 557 4070. Tapað/fundið Skinnhúfa týndist BRÚN dömuskinnhúfa týndist í sl. viku. Finnandi hringi í síma 565 7666. Nokia-farsími týndist NOKIA 450 farsími týndist 7. nóv. sl. Finnandi hafi samband í síma 587-4414. GSM-sími týndist DÖKKBLÁR Siemens GSM-sími týndist laugar- daginn 10. nóv. sl. Síminn glataðist annaðhvort í leið 5 hjá SVR síðdegis, eða í grennd við Langholtsveg. Strætisvagnaskýli við Suð- urlandsbraut kemur einnig til greina. Ríflegum fundar- launum heitið. Sími: 699 2047. Sjóngleraugu týndust LÍTIL kvengleraugu, sem skipta lit eftir birtu, týnd- ust í síðustu viku. Þeir sem gætu gefið uppl. hafi sam- band í síma 587 5016. Hjól í óskilum GULT Mongoose-hjól er í óskilum. Uppl. í síma 567- 6333 eftir kl. 18. GSM-sími í óskilum GSM-sími er í óskilum hjá miðaafgreiðslu á Hlemmi. Dýrahald Kettlingur fannst í Vaðnesi HVÍTUR og svartur kettl- ingur, mjög ungur, fannst við félagsbústað í Vaðnesi. Eigandi hafi samband í síma 555 4003 eða 698 1452. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15. Netfang velvakandi@mbl.is Víkverji skrifar... VÍKVERJI gat með engu mótifengið af sér að horfa á afhend- ingu Eddu-verðlaunanna á sunnu- dagskvöld. Honum finnst þessi til- raun til að búa til glamúr og flottheit í kringum þessa keppni heldur kjánaleg. Víkverji reyndi að horfa, en fór eitthvað svo hjá sér yfir inni- haldsleysinu og vandræðaganginum að hann gat ekki setið kyrr. Kannski er þetta fullharður dómur yfir sjón- varpsþætti sem Víkverji sá ekki nema að mjög litlu leyti. Reyndar kom fram í sjónvarpinu að fáir sjón- varpsþættir hefðu fengið eins mikið áhorf á síðasta ári og afhending Eddu-verðlaunanna. Það er því greinilegt að margir hafa allt annað mat á þessu sjónvarpsefni en Vík- verji. x x x Á SAMA tíma og sjónvarpið sýndiafhendingu Eddu-verð- launanna sýndi Stöð tvö spurninga- þáttinn „Viltu vinna milljón?“ sem Þorsteinn J. stjórnar. Þetta er um margt ágætt sjónvarpsefni eins og spurningaþættir eru oft. Því fylgir spenna að sjá hvort þátttakendur ná að svara rétt og eins geta áhorfendur að nokkru leyti tekið þátt í leiknum með því að spreyta sig á spurning- unum. Þessar vikurnar er hægt að fylgj- ast með ágætum spurningaþáttum á sjónvarpsstöðinni BBC Prime, en þeir nefnast „Veikasti hlekkurinn“. Þættirnir ganga út á að níu kepp- endur skiptast á að svara spurning- um undir tímapressu. Fyrir hvert rétt svar geta þeir unnið sér inn pen- ingaupphæð sem hækkar eftir því sem fleiri rétt svör bætast við. Ef keppandi svarar hins vegar rangt tapast öll upphæðin. Keppendur geta hins vegar tryggt sér upphæð- ina með því að setja hana í banka áð- ur en þeir svara, en það þýðir jafn- framt að keppendur verða að byrja að safna aftur frá núlli. Eftir hverja lotu kjósa keppendur veikasta hlekkinn, þ.e. þann sem hefur staðið sig verst allra, og er honum vísað úr keppninni. Að lokum er aðeins einn keppandi eftir sem hirðir um leið all- an bankann. Þessir sjónvarpsþættir fengu mik- ið áhorf á Bretlandseyjum þegar þeir voru sýndir þar á síðasta ári. Á skömmum tíma hafa þeir náð svo miklum vinsældum á heimili Vík- verja að allt annað verður að víkja þegar þeir eru á dagskrá. Ástæðan er sú að þættirnir eru spennandi og vel gerðir. Stjórnandi þáttanna, Ann Robinson, á líka stóran þátt í því hvað þeir eru velheppnaðir, en hún á það til að skamma keppendur ef þeir standa sig illa. Hins vegar hefur Vík- verji sjaldan heyrt hana hæla kepp- endum fyrir góða frammistöðu þó að oft hafi verið ástæða til að gera það. x x x Í NÝJU tölublaði Bændablaðsinser greint frá rannsókn dr. Gunn- ars Guðmundssonar lungnasérfræð- ings á heysótt eða heymæði. Áratug- um saman máttu margir bændur þola mikil óþægindi vegna þessa sjúkdóms, en hann orsakast af hita- kærum bakteríum sem vaxa í illa þurrkuðu heyi. Þegar farið er að gefa heyið þyrlast bakteríurnar upp í loftið og fólk andaði þeim að sér sem orsakaði bólgusvörun í lungum. Í fréttinni í Bændablaðinu segir að með tilkomu rúllutækninnar við hey- skap hafi heymæði verið útrýmt því að bakteríurnar myndast ekki í rúll- unum. Þetta eru fróðlegar og gleði- legar upplýsingar að mati Víkverja. 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 LÁRÉTT: 1 gerðarlegt, 8 hörku- frosts, 9 lágfótan, 10 hamingjusöm, 11 minnka, 13 korns, 15 mikið, 18 ólæti, 21 heið- ur, 22 þræta, 23 hvikul- leiki, 24 gegnblautur. LÓÐRÉTT: 2 lýkur, 3 þagga niður í, 4 smáa, 5 látin af hendi, 6 guð, 7 vendir, 12 ferskur, 14 mánuður, 15 sæti, 16 hugaða, 17 knappan, 18 karldýr, 19 hvöss, 20 beint. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Lárétt: 1 freta, 4 bugar, 7 ræddi, 8 tusku, 9 nía, 11 iðna, 13 græt, 14 sekur, 15 verk, 17 ásar, 20 þró, 22 kápur, 23 merki, 24 renna, 25 rimma. Lóðrétt: 2 ferli, 2 Eddan, 3 alin, 4 búta, 5 gæsir, 6 raust, 10 ískur, 12 ask, 13 grá, 15 vakur, 16 ræpan, 18 særum, 19 reika, 20 þróa, 21 ómur. K r o s s g á t a ÉG tek það fram að ég er ekki starfsmaður Línu.- Nets, ég á ekki hlut í fyr- irtækinu. Mér blöskrar fréttaflutningur Ríkissjón- varpsins af fjárhagslegri stöðu Línu.Nets. Það var algjör óþarfi að taka þetta mál, sem átti upphaf sitt á Alþingi, því að það voru mörg, mörg önnur mál á dagskrá Alþingis sem skipta þjóðina mun meira máli heldur en þetta. Póli- tískt er útvarpsráð á móti Línu.Neti vegna þess að ríkisvaldið sem eigandi Landssímans eigi í sam- keppni við Línu.Net. Fréttaflutningur Ríkissjón- varpsins er stórlega ýktur og látið að því liggja að fyr- irtækið sé jafnvel að fara á hausinn. Fyrirtækið hefur þurft, eins og önnur stór- fyrirtæki, að fara út í gríð- arlegar fjárfestingar en er hins vegar öllum á óvart að rétta úr kútnum fjárhags- lega nú þegar. Svona fréttaflutningur er ekki til neins annars fallinn en að koma höggi á Línu.Net og veikja þeirra samkeppn- isaðstöðu. Ekki nóg með það heldur erum við þjóð- félagsþegnar skyldugir að borga fyrir svona ósann- indi sem nauðungaráskrif- endur að Ríkissjónvarpinu. Ég sem þjóðfélagsþegn og viðskiptavinur Línu.Nets krefst þess að fréttastofa sjónvarps leiðrétti sinn fréttaflutning af Línu.Neti og útskýri fyrir áhorf- endum að það kostar offjár í fjárfestingum að koma stórfyrirtækjum af stað. Ef það verður ekki gert mun ég sem viðskiptavinur og njótandi góðrar þjónustu Línu.Nets höfða mál gegn fréttastofu Ríkissjónvarps- ins. Jón Guðmundsson, kt: 050565-4329. Fréttaflutningur RÚV af Línu.Neti Skipin Reykjavíkurhöfn: Mánafoss og Jo Elm koma í dag. Goðafoss og Arnarfell fara í dag. Hafnarfjarðarhöfn: Sel- foss fór í gær. China Prospect kemur í dag. Mannamót Aflagrandi 40. Kl 9 vinnustofa, kl. 10 boccia, kl. 13 vinnustofa, mynd- mennt og bað. Árskógar 4. Kl. 9-12 baðþjónusta, opin handavinnustofan, bók- band og öskjugerð, kl. 9.45-10 helgistund, kl. 10.15 leikfimi, kl. 11 boccia, kl. 13-16.30 opin smíðastofan, kl. 10-16 púttvöllur opinn. Allar upplýsingar í s. 535- 2700. Harmónikkuball verður 16. nóv. kl. 20.30. félagar úr Félagi harm- ónikku unnenda spila. Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8- 16 hárgreiðsla, kl. 8.30- 14.30 böðun, kl. 9-9.45 leikfimi, kl. 9-12 mynd- list, kl. 9-16 handavinna, kl. 9-17 fótaaðgerð. Á morgun, föstudag, fé- lagsvist kl. 13.30. Eldri borgarar í Mos- fellsbæ, Kjalarnesi og Kjós. Félagsstarfið Hlaðhömrum er á þriðju- og fimmtudögum kl. 13-16.30, spil og föndur. Jóga á föstudög- um kl. 13.30. Kóræfing- ar hjá Vorboðum, kór eldri borgara í Mos- fellsbæ á Hlaðhömrum fimmtudaga kl. 17-19. Uppl. hjá Svanhildi í s. 586-8014 kl. 13-16. Uppl. um fót-, hand- og and- litssnyrtingu, hár- greiðslu og fótanudd, s. 566-8060 kl. 8-16. Félagsstarf aldraðra Dalbraut 18-20. Kl. 9-12 aðstoð við böðun, kl. 9- 16.45 hárgreiðslustofan opin, kl. 9-13 handa- vinnustofan opin, kl. 9.30 danskennsla, kl. 14.30 söngstund. Félagsstarf aldraðra, Lönguhlíð 3. Kl. 8 böð- un, kl. 9 fótaaðgerð, kl. 10 hársnyrting, kl. 11 leikfimi, kl. 13 föndur og handavinna. Bingó kl. 15. Félagsstarf aldraðra Garðabæ. Spilað í Holtsbúð 15. nóv. kl. 13.30, Leikhúsferð 15. nóv. rúta frá Kirkjuhvoli kl. 19.15. Danstími 16. nóv kl. 19.15. Félagsvist í Álftanesi 22. nóv kl. 19.30. Stundaskrá í hópastarfi er auglýst á töflu í kjallaranum í Kirkjuhvoli og á www.fag.is Félag eldri borgara í Hafnarfirði, Hraunseli, Reykjavíkurvegi 50. Pútt í Bæjarútgerðinni kl. 10, glerskurður kl. 13. Á morgun er mynd- list, brids og tréút- skurður í Lækjarskóla. Félag eldri borgara, Kópavogi. Bingó verður spilað í Gullsmára 13, föstudaginn 16. nóv. kl. 14. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði Glæsibæ. Kaffistofan opin virka daga frá kl. 10-13. Kaffi, blöðin og matur í hádegi. Fimmtudag brids kl. 13. Framsögn kl. 16.15. Silfurlínan er opin á mánu- og mið- vikudögum kl. 10-12. Skrifstofan er flutt að Faxafeni 12, sama símanúmer og áður. Fé- lagsstarfið er áfram í Ásgarði Glæsibæ. Uppl. á skrifstofu FEB. kl. 10-16 s.588-2111. Félagsstarfið, Hæð- argarði 31. Kl. 9-16.30 glerskurður, kl. 9-13 hárgreiðsla, kl. 9-16 böðun, kl. 10 leikfimi, kl. 15.15 dans. Opið alla sunnudaga frá kl. 14-16 blöðin og kaffi. Félagsstarfið Furu- gerði 1. Kl. 9 aðstoð við böðun, smíðar og út- skurður, leirmunagerð og glerskurð- arnámskeið, kl. 9.45 verslunarferð í Aust- urver, kl. 13.30 boccia. Á morgun, föstudag, verður messa kl. 14, prestur sr. Ólafur Jó- hannsson, Furugerð- iskórinn syngur undir stjórn Ingunnar Guð- mundsdóttur. Kaffiveit- ingar eftir messu. Gerðuberg, félagsstarf. Sund- og leikfimiæf- ingar í Breiðholtslaug kl. 9.30, kl.10.30 helgi- stund, frá hádegi spila- salur og vinnustofur op- in, á morgun kl. 16 opnun á myndlistarsýn- ingu Bryndísar Björns- dóttur, m. a.a syngur Gerðubergskórinn und- ir stjórn Kára Friðriks- sonar, félagar úr Tón- horninu leika létt lög, allir velkomnir. Sunnu- daginn 18. nóv. kl. 14. syngur Gerðubergskór- inn við guðsþjónustu í Kópavogskirkju, m.a. fjölbreytt söngdagskrá. Veitingar í veitingabúð. Upplýsingar um starfs- semina á staðnum og í síma 575-7720. Gjábakki, Fannborg 8. Handavinnnustofan op- in, leiðbeinandi á staðn- um, kl. 9.30 klippimynd- ir og taumálun, kl. 9, kl. 9.05 og 9.50 leikfimi, kl. 13 gler- og postulíns- málun, kl. 16.20 og kl. 17.15 kínversk leikfimi. Gullsmári, Gullsmára 13. Postulínsmálun kl. 9.15, jóga, kl. 9.05 brids, kl. 13 handavinnn- ustofan opin, leiðbein- andi á staðnum, línu- dans kl. 17. Fjölskyldudagur verður í Gullsmára laugardag- inn 17. nóv. og hefst með fjölbreyttri dag- skrá kl. 14. Ágústa S. Ágústsdóttir syngur dægurlög, kór Hjalla- skóla syngur vináttulög, dansarar frá Dansskóla Sigurðar Há- konarsonar. Hláturinn lengir lífið, samstarfs- verkefni Smáraskóla og Hana-nú. Í barnahorni verða litir, leir o.fl. Vöffluhlaðborð. Hraunbær 105. Kl. 9 op- in vinnustofa, búta- saumur, kortagerð og perlusaumur, kl. 9.45 boccia, kl. 14 félagsvist. Hvassaleiti 56–58. Kl. 9 böðun og bútasaumur, kl. 10 boccia, kl. 13 handavinna, kl. 14 fé- lagsvist. Hársnyrting og fótsnyrting. Norðurbrún 1. Kl. 9 tré- skurður og opin vinnu- stofa, kl. 10-11 ganga, kl. 10-15 leirmun- anámskeið. Vesturgata 7. Kl. 9 fóta- aðgerðir og hárgreiðsla, kl. 9.15-12 aðstoð við böðun, kl. 9.15-15.30 handavinna, kl. 10 boccia, kl. 13-14 leikfimi, kl. 13-16 kóræfing, kl. 17-20 leirmótun. Í dag, 15. nóvember, verður fyrirbænastund í um- sjón séra Hjálmars Jónssonar dóm- kirkjuprests, allir vel- komnir. Föstudaginn 16. nóv. dansað í kaffitímanum við lagaval Halldóru, gott með kaffinu, allir velkomnir. Jólafagnaður verður fimmtudaginn 6. desember, jólahlaðborð, söngur, hljóðfæraleikur, danssýning og fleira, nánar auglýst síðar. Vitatorg. Kl. 9 smíði og hárgreiðsla, kl. 9.30 glerskurður og morg- unstund, kl. 10 fótaað- gerðir og boccia, kl. 13 handmennt og frjálst spil, kl. 14. leikfimi. ÍAK, Íþróttafélag aldr- aðra í Kópavogi. Leik- fimi kl. 11.15 í Digra- neskirkju. Gullsmárabrids. Eldri borgarar spila brids í Gullsmára 13 mánu- og fimmtudaga. Skráning kl. 12,45. Spil hefst kl. 13. Ga-fundir spilafíkla mánudaga kl. 18.15 í Seltjarnarneskirkju (kjallara) fimmtudaga kl. 20.30 í fræðsludeild SÁÁ, Síðumúla 3-5, laugardaga í Kirkju Óháða safnaðarins við Háteigsveg kl. 10.30. Sjálfboðamiðstöð Rauða krossins, Hverf- isgötu 105. Kl. 13-16 prjónað fyrir hjálp- arþurfi erlendis. Efni á staðnum. Allir velkomn- ir. Félag áhugafólks um íþróttir aldraðara, leik- fimi kl. 11 í Bláa saln- um. Kívanísklúbburinn Geysir, Mosfellsbæ. Fé- lagsvist spiluð í kvöld kl. 20.30, stundvíslega, í Kívanishúsinu Mos- fellsbæ. Kvenfélag Kópavogs. Fundur í kvöld 15. nóv kl. 20.30 í Hamraborg 10. Sýning á trévörum frá Föndurhorni Evu. Kristniboðsfélag kvenna, Kristniboðs- salnum, Háaleitisbraut 58-60. Fundur. Gestur okkar er Kristín Bjarnadóttir kristniboði. Fundurinn hefst kl. 17 Í dag er fimmtudagur 15. nóvember 319. dagur ársins 2001. Orð dagsins: Þegar sál mín örmagnaðist í mér, þá minntist ég Drottins, og bæn mín kom til þín, í þitt heilaga musteri. (Jónas 2, 8.)

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.