Morgunblaðið - 15.11.2001, Blaðsíða 65
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 2001 65
DAGBÓK
Opið laugardag
frá kl. 10 - 16
Opið virka daga frá kl. 10-18,
laugardaga frá kl. 10-14
LAGERÚTSALA
Buxur, pils og peysur
Mikil
verðlækkun
Mörkinni 6, 108 Reykjavík, sími 588 5518
Ný sending
Úlpur - heilsárskápur
vattfóðraðar vínilkápur
Opið laugardaga frá kl. 10-15
Útsölumarkaður
á Langholtsvegi 130
Opið mánudaga til föstudaga frá kl. 12.00-18.00
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
SPORÐDREKI
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert djarfur og dugmikill
og sinnir skyldum þínum
eins og þér er frekast kostur.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þótt til ágreinings komi um
fjárhagsstöðu þína máttu ekki
setja upp hundshaus heldur
verður þú að setjast niður með
viðkomandi og komast til
botns í málunum.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Mundu að töluð orð verða ekki
aftur tekin. Sýndu því bæði
þolinmæði og tillitssemi í sam-
tölum við samstarfsmenn þína
því þeir eiga ekkert nema gott
skilið.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Það er ekki eins og himinn og
jörð sé að farast þótt þú kom-
ist ekki að samkomulagi við
vini þína. Þið eruð þá sammála
um að vera ósammála.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Sýndu börnum sérstaka aðgát
því þau læra ekki aðeins af því
sem þú segir heldur líka af því
hvernig þú kemur fram við
þau. Börnin eru framtíðin.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Láttu þér ekki bregða þótt
gamall vinur verði þér til ein-
hverra leiðinda. Taktu því
bara eins og hverju öðru
hundsbiti og láttu ekki slettast
upp á vinskapinn.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Láttu ekki lítilfjörlegar deilur
reita þig til reiði því reiðin ger-
ir bara illt verra. Haltu þig
bara við jákvæða hugsun og
þá fer allt vel.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Gerðu ekkert að óathuguðu
máli því þótt mörg skemmti-
leg tilboð séu í gangi er gagn-
semi hlutanna oft lítil miðað
við það verð sem upp er sett.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þótt aðrir taki tillögum þínum
fálega skaltu ekki láta deigan
síga heldur halda þeim ítrekað
fram því tíminn vinnur með
þér og þínum hugðarefnum.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Það er ódrengilegt af þér að
láta leiðindi yfir gömlum mis-
tökum bitna á samstarfs-
mönnum þínum. Vertu maður
til þess að taka afleiðingum
gjörða þinna.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Ekkert er eins bráðdrepandi
fyrir vináttuna og peningamál.
Hugsaðu þig því vel um áður
en þú deilir um þau við vin
þinn og vertu viðbúinn að
missa hann.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú verður að læra að sitja á
strák þínum og hætta að vera
með stöðugan uppsteit gegn
vinnufélögum. Það gerir þig
bara óvinsælan og einmana.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Taktu öllum upplýsingum
með fyrirvara og veltu málun-
um fyrir þér áður en þú segir
af eða á um afstöðu þína. Það
er mikilvægt að móta afstöðu
sína sjálfur.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Með morgunkaffinu
40 ÁRA afmæli. Í gær,miðvikudaginn 14.
nóvember, varð fertugur
Hafþór Sveinjónsson,
Brúnastöðum 25, Reykja-
vík, markaðsfulltrúi á út-
varpssviði Norðurljósa.
Eiginkona hans er Elsa
Jensdóttir. Hafþór heldur
upp á afmæli sitt laugardag-
inn 24. nóvember.
70 ÁRA afmæli. Í dag,fimmtudaginn 15.
nóvember, er sjötugur Arn-
ar Sigurðsson frá Hellis-
sandi, Háaleitisbraut 25,
Reykjavík. Eiginkona hans
er Helena Guðmundsdóttir
frá Vestmannaeyjum. Þau
dvelja á Kanaríeyjum.
FJÖGUR hjörtu unnin
með yfirslag var algeng
niðurstaða í eftirfarandi
spili úr næstsíðustu um-
ferð Íslandsmótsins í tví-
menningi:
Suður gefur; allir á
hættu. Áttum snúið.
Norður
♠ G
♥ K4
♦ D93
♣ÁD98642
Vestur Austur
♠ D109832 ♠ K4
♥ 86 ♥ G52
♦ 742 ♦ ÁKG1085
♣75 ♣K3
Suður
♠ Á765
♥ ÁD10973
♦ 6
♣G10
Þetta var algeng sagn-
röð:
Vestur Norður Austur Suður
– – – 1 hjarta
Pass 2 lauf 2 tíglar 2 hjörtu
2 spaðar 4 hjörtu Allir pass
Á flestum borðum kom
út tígull og austur spilaði
tígli áfram í öðrum slag,
sem suður trompaði. Þar
með var létt verk fyrir
sagnhafa að taka trompin
og svína í laufinu. Austur
fékk á laufkóng, en afgang-
urinn kom í hlut sagnhafa.
Spilið er um margt
áhugavert, ekki síst frá
sjónarhóli varnarinnar.
Eftir tígultvistinn út
(þriðja hæsta) ætti austur
að sjá að suður á einn tígul
og skipta yfir í spaðakóng.
Sagnhafi getur enn fengið
ellefu slagi með því að
trompa spaða smátt í
borði, taka trompin og
svína svo í laufinu. Austur
á ekki spaða til og þar með
verður hægt að henda
tveimur spöðum niður í
lauf.
Austur á annan kost á
góðri vörn. Hann gæti
dúkkað fyrsta laufslaginn!
Hver veit nema sagnhafi
svíni aftur og þá er blindur
laglega ónýtur.
Íslandsmeistararnir
Hermann Lárusson og Er-
lendur Jónsson voru í vörn
gegn sex hjörtum! Slemm-
an er ekki alvond og vinnst
ef hjartagosinn kemur og
laufkóngur liggur fyrir
svíningu. Þrátt fyrir tígul-
sögn Erlendar ákvað Her-
mann að koma út með
spaðatíu, sem sagnhafi
drap og svínaði strax lauf-
gosa. Erlendur svaraði því
með laufi um hæl og klippti
þar með á blindan í eitt
skipti fyrir öll. Slemman
fór þrjá niður og Hermann
og Erlendur fengu hreinan
topp fyrir.
BRIDS
Umsjón Guðmundur
Páll Arnarson
LJÓÐABROT
SPRETTUR
Ég berst á fáki fráum
fram um veg.
Mót fjallahlíðum háum
hleypi ég.
Og golan kyssir kinn.
Og á harða, harða spretti
hendist áfram klárinn minn.
Það er sem fjöllin fljúgi
móti mér,
sem kólfur loftið kljúfi
klárinn fer.
Og lund mín er svo létt,
eins og gæti eg gjörvallt lífið
geisað fram í einum sprett.
Hannes Hafstein.
1. d4 Rf6 2. c4 g6 3. Rc3 d5
4. cxd5 Rxd5 5. e4 Rxc3 6.
bxc3 Bg7 7. Rf3 O–O 8. Be2
c5 9. O–O b6 10. Bg5 Rd7
11. Dd2 f6 12. Bh4 Kh8 13.
Had1 De8 14. Bb5 a6 15.
Bc6 Ha7 16. Bg3 cxd4 17.
cxd4 Bb7 18. Bxb7 Hxb7
19. Hc1 e5 20. dxe5 Rxe5
21. Rxe5 fxe5 22. Dd5 Hd7
23. Dc6 Hd2 24. Dxb6 Hxa2
25. Hfd1 Db5 26. Dc7
Ha4 27. Hd7 Bf6.
Staðan kom upp í
minningarmóti Jó-
hanns Þóris Jónsson-
ar. Lars Schandorff
(2.551) hafði hvítt
gegn Friðriki Ólafs-
syni (2.460). Það er
ekki oft sem Friðrik
hefur telft Grunfelds-
vörn en hún er í mun
meiri tísku núorðið en
þegar hann var að
gera garðinn frægan.
Andstæðingur hans
er mikill sérfræðingur í
byrjunum og hleypti hann
Friðriki aldrei inn í skák-
ina. 28. Bh4! og svartur
gafst upp enda verður hann
mát eftir 28...Bxh4 29.
Hxh7 + Kg8 30. Dg7#.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
Ljósmynd/Sigríður Bachmann
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 11. ágúst sl. í Strand-
arkirkju af sr. Haraldi M.
Kristjánssyni Sigrún Birna
Þórarinsdóttir og Hreiðar
Jónsson. Heimili þeirra er í
Þóristúni 17, Selfossi.
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman í Bessastaðakirkju
21. janúar sl. af sr. Braga
Friðrikssyni Diljá Sigur-
sveinsdóttir og Kristinn
Benedikt Valdimarsson.
Heimili þeirra er á Birke-
dammevej 21, 3.t.h., 2400
Kaupmannahöfn NV, Dan-
mark.
Auðvitað er ég viss um
að við verðum fyrstir
á toppinn. Af hverju
spyrðu?
Teppi á stigaganga
Ármúla 23, sími 533 5060
Smælki