Morgunblaðið - 15.11.2001, Side 68

Morgunblaðið - 15.11.2001, Side 68
FÓLK Í FRÉTTUM 68 FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ Stærðir: 2-10 Litir: Svartur, grænn, brúnn, blár Útsölustaðir: NANOQ ENGLABÖRNIN BASIC OZONE BORGARSPORT BLÓMSTURVELLIR HEIMAHORNIÐ SIGLÓSPORT PARIÐ SENTRUM LÆKURINN LÓNIÐ PRÍL K-SPORT LEGGUR OG SKEL RÓBERT BANGSI FLOTT JÓLAFÖT Á STRÁKA jakkaföt kr. 9.900 buxur kr. 4.900 skyrta kr. 2.900 bolur kr. 1.900 Afmælisveisla í Flash 20%afsláttur aföðrum vörum* Laugavegi 54 - sími 552 5201 Viðskiptavinir geta tekið þátt í afmælis- leik og unnið 15.000 króna úttekt. Nýtt kortatímabil *nema síðkjólum Peysur áður 3.990 nú 1.990 Flíspeysur áður 4.990 nú 2.990 Flauelisjakkar áður 7.990 nú 4.490 Hnésíðar ullarkápur áður 12.990 nú 9.990 INTERCOIFFURE eru alþjóðleg samtök hárgreiðslufólks sem stofnuð voru árið 1925. Höfuðstöðvar sam- takanna eru í tízkuborginni París en útibú eru svo víðs vegar um heiminn. Ísland hefur verið meðlimur síðan 1980 og gegnir Dúddi nú starfi for- seta Íslandsdeildar samtakanna. Á dögunum varð sá ánægjulegi við- burður að Dúdda var veitt viður- kenningin „Maður ársins“ og hlaut fyrir vikið forláta styttu sem sést hér á mynd á síðunni. Pólarnir tveir og hárið Dúddi tjáir mér að honum hafi verið afhent styttan í september úti í París. Fór athöfnin fram í Eiffel- turninum og er þetta í fyrsta skipti sem þessi viðurkenning er veitt. „Það er nýlunda hjá Intercoiffure að heiðra þá sem skara fram úr ein- hvers staðar; sérstaklega þá í sínu landi. Það urðu svo allir sammála um að ég ætti að fá þetta. Ég hef núna gegnt starfi forseta Íslandsdeildar- innar og var varaforseti þar á undan þannig að ég er búinn að vera lengi í þessu. Þeir sögðu við mig er þeir af- hentu mér þetta: „Maðurinn er bú- inn að brosa í tuttugu ár.““ Dúddi segir að nú sé undirbúning- ur fyrir Norðurlandaþing á fullu en það verður haldið hérlendis á næsta ári. Í alþjóðasamtökunum eru nú fjörutíu lönd og sífellt er að bætast við. Dúddi segir að t.d. hafi Kína og Rússland verið að ganga til liðs við samtökin og þá fjölgi fólki heldur betur. Í samtökunum eru valinkunnir hárgreiðslumeistarar. „Markmiðið er það að efla hár- greiðsluiðnina. Það er gert með alls konar uppá- komum. Um daginn vor- um við t.d. með sýningu hér á landi þar sem við vorum að sýna línur sem við fórum með út til Par- ísar fyrr í haust, þá í tengslum við ársfund Int- ercoiffure.“ Og línur eru lagðar, í orðsins fyllstu merkingu. „Það gerum við tvisvar á ári. Tízkan hér er t.a.m. gerólík því sem er að gerast í Ástralíu eða Ind- landi. Það er svolítið merkilegt að stutt hár er yfirleitt í norðurhluta heimsins. Eftir því sem við færumst svo nær miðbaug þá síkkar það og svo styttist það aftur þegar nær dregur suðurskauti! Það er eins og þetta hafi eitthvað með pólana að gera.“ Hálffeiminn Tízkan gengur í hringi í hár- greiðslufræðunum eins og öðru. Eða hvað? „Það sem er bæði þægilegt og óþægilegt í dag er að það er allt í tízku. Sumum finnst það rosalega þægilegt, þeim sem eru klárir í að finna út sinn eigin stíl. En þeir sem eru ekki klárir í því, þeir eiga svolítið erfitt. Þá vantar að láta leiða sig.“ Dúddi segir viðurkenninguna vissulega vera hvetjandi. „Mér fannst þetta voða gaman. Ég hef svo sem ekki verið mikið að flagga þessu … maður verður svona hálf feiminn við þetta. En þetta er auðvitað hvetjandi því nú veit fólk að ef það stendur sig vel þá getur það átt von á viðurkenningu.“ Hlutverk Norðurlandanna innan Intercoiffure fer sífellt stækkandi að mati Dúdda. „Þegar við stöndum saman getum við haft gífurleg áhrif í öllum ákvarð- anatökum. Þegar við Íslendingarnir komum inn í þetta fyrir tuttugu ár- um vorum við stundum kölluð börnin þar sem við vorum svo ung. En við þóttum bera með okkur ferskan blæ, þóttum óhrædd og féllum því fljót- lega vel inn í hópinn. Það hefur því verið mjög skemmtilegt fyrir okkar deild hvað við höfum náð langt.“ Dúddi hefur nú verið starfandi hárgreiðslumaður í um 33 ár og fagið er hans líf og yndi. „Það hefur verið mjög skemmti- legt að starfa innan þessara samtaka og þetta hefur sannarlega verið tímafrekt. En það er mjög gaman að hafa áhugamálið og vinnuna, allt í því sama. Þetta hefur mikið að gera með samskipti á milli þjóða, maður er að senda og svara bréfum og slíkt. Og síðan er auðvitað stöðug hugmynda- vinna í gangi.“ Hárgreiðslumeistarinn Dúddi fær heiðursverðlaun Búinn að brosa í tuttugu ár Morgunblaðið/Kristinn Styttan góða sem Dúdda var afhent á dög- unum úti í París. Í bakgrunni sinnir hár- greiðslumeistarinn starfinu af alkunnri elju. arnart@mbl.is Á dögunum voru Guðbirni Sævari, eða Dúdda, veitt heiðursverðlaun af alþjóða- hárgreiðslusamtökunum Intercoiffure. Arnar Eggert Thoroddsen settist í stólinn hjá meistaranum, spjallaði við hann og þáði góðgjörðir. VERSLUNIN Laugavegi 52, s. 562 4244. Brúðhjón A l l u r b o r ð b ú n a ð u r - G l æ s i l e g g j a f a v a r a - B r ú ð h j ó n a l i s t a r

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.