Morgunblaðið - 05.02.2002, Qupperneq 20
20 C ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐHeimiliFasteignir
Sími 575 8500 • Fax 575 8505
Síðumúla 11 • 2. hæð • 108 Reykjavík
OPIÐ VIRKA DAGA FRÁ KL. 9-18
Veffang: www.fasteignamidlun.is
Netfang: brynjar@fasteignamidlun.is
VANTAR ALLAR TEGUNDIR
HÚSNÆÐIS Á SÖLUSKRÁ - SKOÐUM
SAMDÆGURS - EKKERT SKOÐUNARGJALD
Sverrir Kristjánsson, lögg. fasteignasali
ENGIHJALLI - KÓP. 4ra herb. 98 fm íbúð á 8.
hæð í lyftuhúsi. Íbúðin er m.a. Stofa, borðstofa,
þrjú svefnherb., rúmgott eldhús, nýlegt flísalagt
baðherb. o.fl. Parket og flísar á gólfum. Þvottaherb.
á 8. hæð. Tvennar svalir. Mikið útsýni. Áhv. 4,9 m.
húsbréf og byggsj. Verð 11,8 m.
EYJABAKKI
Góð 95 fm íbúða á fyrstu hæð í vel útlýtandi fjölbýli.
Þrjú svefnherb., rúmgóð stofa með suður svölum
út af, þvottaherbergi og búr í íbúð. Búið að klæða
húsið að mestu leiti að utan og verður því verki lok-
ið sumar 2002. Áhv. 6,0 m. V. 11,3 m.
FÍFUSEL 103 fm 4ra herb.íbúð á tveimur hæðum.
Húsið er klætt að utan, sameign er nýlega tekin í
gegn. Íbúðin er m.a. stofa, 3 rúmgóð svefnherb.,
eldhús, flísalagt baðherb. o.fl. Áhv. 5,0 m. húsbréf
og byggsj. Verð 11,3 m.
LAUTASMÁRI - SÉRGARÐUR Glæsilega innrétt-
uð 4ra herb. íbúð, 118,3 fm² á 1. hæð með sérgarði
og stórum sólpall. Á 1. hæð er stórt flísalagt eldhús
með fallegri innréttingu, baðherbergi flísalagt í hólf
og gólf, baðkar og sturta, sér flísalagt þvottahús, 2
rúmgóð parketlögð svefnherbergi og stór parket-
lögð stofa. Á neðri hæð er stórt herbergi með loft-
glugga. Gengið er út á stóran sólpall frá stofu.
stutt á alla þjónustu. Sjáið nánar 25 myndir á vefn-
um.
HRAUNBÆR - HÁTT BRUNABÓTAMAT Góð
3ja herb. 90 fm íbúð á annari hæð. Tvö rúmgóð
svefnherb., flísalagt baðherb., eldhús með snyrti-
legri innréttingu og góðum tækjum og rúmgóð
stofa með suður-svölum út af. Áhv. 4,2 m. V.
10,8 m. ATH-HÁTT BRUNABÓTAMAT !
BREIÐAVÍK Stórglæsileg og óvenju vönduð 3ja
herb. 95 fm íbúð á 2. hæð í nýlegu fjölbýli. Íbúðin
er m.a. stofa með rúmgóðum suðursv. (svalir
16.2 fm²) tvö rúmgóð svefnherb. glæsilegt eldhús
með sérsmíðaðri kirsuberjainnr., afar vandað flí-
salagt bað í hólf og gólf. Flísalagt þvottaherb. í
íbúð. Parket (hlynur) og flísar á gólfum. Áhv. 8,3
m. húsbréf. Verð 13,6 m. Vönduð íbúð fyrir róm-
antíska fagurkera sem þið megið ekki missa af.
Myndir á netinu.
BERGÞÓRUGATA 3ja herb. 71 fm íbúð á 3.
hæð á þessum vinsæla stað í gamla bænum.
Íbúðin er stofa, tvö svefnherb., eldhús og endur-
nýjað baðherb. Parket og flísar á gólfum. Áhv. 3,0
m. Verð 8,7 m.
KAMBASEL - BÍLSKÚR Góð 93 fm 3-4ra herb.
íbúð ásamt 26 fm bílskúr. Þrjú svefnherb., rúm-
gott eldhús, parketlögð stofa með suð/vestur-
svölum út af, nýlega endurnýjað baðherb. og
þvottaherb. í íbúð. Bílskúr með geymslulofti.
Áhv. 5,8 m. V. 13,4 m.
HRÍSMÓAR - LYFTUHÚS Mjög góð 92 fm íbúð á
fimmtu hæð. Íbúðin er öll lögð fallegum flísum, tvö
rúmgóð svefnherb., tvennar svalir með frábæru út-
sýni, björt stofa, rúmgott sjónvarpshol og þvotta-
herbergi í íbúð. V. 12,9 m.
MARÍUBAKKI
Góð 3ja herb.78,1 fm íbúð á þriðju hæð. Tvö rúm-
góð svefnherb, eldhús með góðu borðplássi, stofa
með vestur-svölum út af og þvottaherb. í íbúð. Hús
og sameign í góðu ástandi. Afhending í júní 2002.
V. 9,7 m.
GLÓSALIR 7 Í KÓPAVOGI
Til sölu vandaðar og rúmgóðar 2ja, 3ja og 4ra her-
bergja íbúðir með sérþvottherbergi, í 8 hæða ál-
klæddu 29 íbúða fjölbýlishúsi ásamt stæði í bíl-
geymsluhúsi. Í húsinu verða tvær lyftur. Stórar suð-
ur- og vestursvalir. Glæsilegt útsýni. Góð staðsetn-
ing og stutt í alla þjónustu. Verð á 2ja herb. frá kr.
9,9 m. á 3ja herb. frá kr. 12,6 m. og 4ra herb. frá kr.
14,5 m. Verð á stæði í bílgeymsluhúsi er kr. 1,4 m.
Innangengt er úr bílgeymsluhúsi. Afhending í maí
2002. Byggingaraðili er Bygging ehf.
HJALTABAKKI 2ja herb. íbúð á jarðhæð á
þessum vinsæla stað í Bökkunum. Íbúðin er
stofa, rúmgott eldhús, svefnherb., baðherb. o.fl.
Stutt í skóla og alla þjónustu. Verð 7,9 m.
SÓLARSALIR 4 Í KÓP. 4ra til 5 herb. íbúðir í
þessu glæsilega fimm íbúða húsi með tveimur inn-
byggðum bílskúrum. Í húsinu er ein 4ra herb.
125,10 fm íbúð og fjórar 137,20 fm íbúðir með 4
svefnherbergjum. Verð á 4ra herb. íbúðinni er kr.
15,5 m., en verð á 5 herb. íbúðunum er frá kr. 16,6
m. Afhending í marz 2002. Teikn. og skilalýsing á
skrifstofu.
EINBÝLISHÚS - NORÐURLAND VESTRA
Stórglæsilegt 156,6 fm, 8 herb. einbýli m/innbyggð-
um bílskúr á fögrum stað í litlum byggðarkjarna
mitt á milli Akureyrar og Reykjavíkur. Húsið sem er
teiknað af Kjartani Sveinssyni býður upp á ýmsa
möguleika. Áhv. 5,4 m. húsbréf. Verð 9.1 m. Nánari
upplýsingar veittar í síma á skrifstofu okkar, sjá
einnig myndir á vefsíðu okkar.
MÚLAKOT - LUNDAREYKJARDAL
Til sölu er jörðin Múlakot í Lundareykjardal. Jörðin
er í um klukkustundar akstursleið frá Reykjavík.
Landið er 330 hektarar og eru 43 hektarar af rækt-
uðum túnum. Grímsá sker landið til suðurs (bakka-
lengt 3 km.) og eru af henni góðar veiðitekjur.
Íbúðarhús er byggt 1997 og er um 150 fm Útihús
eru rúmlega 1.000 fm og eru þau almennt í góðu
ástandi. Jörðinni fylgir 2,27% hlutur í jörðinni Gull-
berastaðir. Þarna eru miklir möguleikar fyrir rétta
aðila. Áhvílandi hagstæð lán. Allar nánari upplýs-
ingar á skrifstofu
FOSVOGUR Mjög fallegt og vel viðhaldið 185 fm
einbýlishús á einni hæð með innbyggðum bílskúr
sem stendur neðst í Fossvogsdalnum. 3-4 svefn-
herb., tvær stofur með arni, yfirbyggð sundlaug og
fallegur garður. Toppeign á vinsælum stað. Nánari
upplýsingar á skrifstofu.
REYKJAVÍKURVEGUR
Fallegt járnklætt steinhús 136 fm sem er kjallari,
hæð og ris. Hús í góðu viðhaldi að innan sem utan,
þrjú svefnherb., þrjár stofur, fallegt eldhús, flísalagt
baðherb., sólpallur með yfirbyggðri grillaðstöðu og
gróinn sér garður. V. 13,9 m.
GILJALAND Mjög gott 210 fm raðhús á tveimur
hæðum ásamt 26 fm bílskúr. Húsið er í góðu við-
haldi bæði að innan og utan. Stofan er rúmgóð
með parketi á gólfi og fallegu útsýni,suður-svalir,
borðstofa, 6-7 svefnherb., tvö baðherb., gott eld-
hús og fallegur suður-garður. Suður hlið húsins
ásamt bílskúr tekin í geng og máluð í sumar.
Toppeign á vinsælum stað. V.23,5 m
RÉTTARHOLTSVEGUR
Gott 130 fm raðhús á þremur hæðum. Á 1.h. er
forstofa, eldhús og stofa. Á 2.h. eru þrjú parket-
lögð herbergi og baðherb. og í kjallara er mjög
stórt herbergi, rúmgott þvottaherb. og geymsla.
Þak er nýlegt ásamt rafmagnstöflu og vatns og raf-
magnsintak er nýtt. Áhv. 6,9 m. V. 12,9 m.
LOGAFOLD 227 fm einbýlishús á tveim hæðum
með innbyggðum bílskúr, ásamt ca 90 fm fok-
heldu rými á jarðhæð. Íbúðin er m.a. stofa, sjón-
varpsstofa, 4 svefnherb. mjög rúmgott nýlegt eld-
hús, baðherbergi, þvottaherbergi o.fl. Mjög stutt í
skóla og alla þjónustu. Verð 23,5 m.
ÁSBÚÐ GB - MEÐ AUKAÍBÚÐ 125 einbýli
með 28 fm aukaíbúð ásamt 46 fm tvöföldum bíl-
skúr eða samtals ca 199 fm Aðalíbúðin er rúm-
góð stofa og borðstofa, rúmgott eldhús, 3 svefn-
herb., vinnuherbergi, o.fl. Húsið stendur innst í
botnlanga á 1.100 fm lóð við óbyggt svæði. Áhv.
8,3 m. húsbréf. Verð 24,9 m.
Skoðið heimasíðu okkar
www.fasteignamidlun.is
Fjöldi eigna á skrá allar með ljósmyndum.
TUNGUVEGUR Raðhús sem er kjallari og tvær
hæðir. Íbúðin er m.a. stofa, eldhús, 3 svefnherb.,
baðherb. o.fl. Suðurgarður. Sólpallur. Verð 12,7 m.
SAFAMÝRI
5 herb. 130 fm efri sérhæð í þríbýlishúsi ásamt 26
fm bílskúr á þessum vinsæla stað í austurbænum.
Íbúðin er stofa, 4 svefnherb., rúmgott nýlegt eld-
hús, baðherb., o.fl. Parket. Suðursvalir. Hús nývið-
gert að utan. Nýtt gler í gluggum. Nýjar skólplagnir
o.fl. Stutt í skóla og alla þjónustu. Áhv. 3,4 m. hús-
bréf. Verð 19,1 m.
ÁLFHEIMAR - FJÓRBÝLI Glæsileg 107,3 fm², 5
herb. efsta hæð í velbyggðu fjórbýli. Parketlagður
gangur, rúmgóð teppalögð borðstofa með útgangi
út á svalir, 2 parketlagðar stofur með útgangi út á
40 fm² vestur svalir, 2 góð herbergi annað með
skápum,fallegt eldhús með góðri upprunalegri inn-
réttingu og bað. Einnig er góð geymsla á hæðinni.
Sameign í kjallara nýmáluð, húsið nýlega viðgert og
málað . Hagstætt lán áhvílandi. Skoðið nánar
myndir á vefsíðu okkar.
VOGARNIR 5 HERB. SÉRGARÐUR Snotur 5
herb. íbúð skv. FM sögð vera 69,8fm² en er mun
stærri þar sem risið að stærð ca 25 fm² að sögn
eiganda er ekki inni í fermetratölu íbúðar. Á neðri
hæð eru 2 parketlögð svefnherbergi annað með
góðum fataskápum, rúmgóð björt stofa með
parketi á gólfi og útgangi út á suðursvalir, eldhús
með upprunalegri innréttingu, flísalagt baðher-
bergi með tengi fyrir þvottavél og parketlögð for-
stofa með fatahengi. Í risi eru 2 nýlega innréttuð
unglingaherbergi, teppi á gólfum. Góðar geymsl-
ur fylgja íbúðinni, stór sér garður í suður svo og
bílastæði. Gæludýr hafa verið velkomin hér. Verð
11.9 m, áhv. ca 3,7 m. Skipti ódýrara.
TÓMASARHAGI - BÍLSKÚR Falleg 118 fm sér-
hæð ásamt 22,5 fm bílskúr í þríbýlishúsi. Íbúðin
er á fyrstu hæð og er með sérinngang, fjögur
svefnherb., tvær parketlagðar stofur sem eru við-
arklæddar upp á miðja veggi, rúmgott eldhús,
fallegt flísalagt baðherbergi og bílskúr með hurð-
aoppnara. V. 18,8 m.
LANGAMÝRI - GB. 4ra herb. 109 fm sérhæð
ásamt 25 fm bílskúr á þessum vinsæla stað í
Garðabænum. Íbúðin er m.a. stofa, rúmgott sjón-
varpshol, eldhús, baðherb. þrjú svefnherb. o.fl.
Þvottaherb. í íbúð. Suðv.svalir. Verð 15,9 m.
HRAUNTUNGA - AUKAÍBÚÐ Gott og mikið
endurnýjað 214 fm raðhús á tveimur hæðum. Í
húsinu eru tvær aukaíbúðir, ein tveggja herb. og
ein studeoíbúð. Í aðalíbúð eru þrjú svefnherb.
baððherb., nýtt eldhús með fallegri innréttingu og
falleg og björt stofa með útgangi út á mjög stórar
suður-svalir. Áhv. 10,3 m. V.22,5 m.
ÞAÐ hefur verið áhyggjuefnimargra húseigenda á landihér að útveggir taka aðbila. Komið hefur í ljós, að
hús hér á landi þurfa ekki að vera
margra ára gömul þegar athugull
eigandi kemur auga á galla er benda
til sprungu eða raka á útvegg inn-
anverðum.
Um langt árabil hefur verið starf-
andi merk stofnun á Keldnaholti sem
nefnist Rannsóknarstofnun bygging-
ariðnaðarins. Fyrir starf hennar hef-
ur okkur hlotnast margskonar fróð-
leikur um steinsteypuna, um efni
sem notuð eru til steypugerðar hvað
ber að varast við val efnis og hvernig
megi fá steypuna betri og varanlegri.
Þetta starf ber að þakka og margir
meta það mikils.
Einnig hefur náðst allgóður árang-
ur hjá sumum fyrirtækjum sem hafa
sérhæft sig í viðgerðum á útveggjum
steyptra húsa. Það eru nokkur verk-
takafyrirtæki er unnið hafa á þeim
vettvangi. Sú þekking sem náðst hef-
ur er góð og skapar möguleika á við-
gerðum.
Vikursteinn
Aðrar efnistegundir hafa verið
notaðar í útveggi húsa og þess vegna
er rétt að leiða hugann að þeim efn-
um líka. Um nokkuð langt árabil var
vinsælt að nota vikursteypu til húsa-
gerðar. Voru veggir oft steyptir úr
þess konar efni en einnig var algengt
að hlaða hús úr holsteinum sem gerð-
ir voru til þessara nota.
Þessi vikursteypa hafði góða kosti.
Hún er létt í eðli sínu og hefur auk
þess einangrunargildi. Við að nota
vikurholsteina í útveggi töldu menn
að spara mætti vinnu og kaup á ann-
arri einangrun í útveggi.
Þetta var rökrétt ályktun ef vik-
ursteinninn blotnaði ekki og því
þurfti að verja hann með góðri vatns-
heldri kápu að utanverðu. Það reynd-
ist því ekki nóg að húða vegginn að
utanverðu með venjulegri múrhúð-
un. Veðrátta veldur því að raki kemst
í gegnum múrhúðunina og frost
sprengir múrhúðunina af vikrinum.
Allir skilja líka að rakanum fylgir
einangrunarmissir. Hitinn leiðist út
og kuldinn inn.
Timburhús
Um margra ára bil hefur fjölgað
mikið íbúðarhúsum byggðum úr
timbri. Þó nokkur fyrirtæki fram-
leiddu þess konar einingahús sem
voru eftirsótt um tíma og þóttu góð
úrlausn í húsnæðisskorti í sjáv-
arbyggðum þar sem vöntun var á
íbúðarhúsnæði.
Samfara þessari þróun í timb-
urhúsagerð varð það algengast að
klæða húsin að utanverðu með borð-
um úr furu eða greni annaðhvort
með standandi (lóðréttri) eða liggj-
andi (láréttri) klæðningu. Báðar
þessar aðferðir eru fallegar á að líta
og fara vel í umhverfinu. Helsti galli
þessarar klæðningar er sá að timbrið
veðrast á einu til tveimur árum svo
að æskilegt er að olíubera viðinn oft
eða mála hann. Nú eru mis-
munandi aðstæður hjá eig-
endum slíkra húsa er lýsa sér
á þann veg að því er ekki sinnt
að bera á viðinn eða að mála
hann og af þeim sökum er
viðbúið að borðaklæðningin
endist skemmri tíma en ætlað
var í fyrstu. Mjög auðvelt er
að skipta um fáein borð utan á
húsi en ef mikill hluti utan-
hússklæðningar fer að fúna
þá eykst sá kostnaður að
miklum mun.
Val annars efnis
Í Smiðjugrein sem ég ritaði fyrir
viku nefndi ég svokallaðar steníplöt-
ur til notkunar í kápu utan á húsi.
Hægt er að velja á milli fleiri teg-
unda efna í ystu kápu utan á hús. Eitt
best þekkta efni hérlendis er þakjárn
eða bárujárn. Það hefur reynst af-
burðavel á landi okkar. Bárujárn er
hægt að leika sér dálítið með þannig
að til fegurðarauka verði. Við eigum
kost á vel menntuðum mönnum í
blikksmíði, mönnum sem geta leikið
sér með efnið svo að árangur af smíði
þeirra verði til mikillar húsprýði.
Séu nútímatimburhús klædd að
utanverðu með bárujárni getur til
dæmis farið vel á því að undir glugg-
um sé klætt með liggjandi bárum, á
milli glugganna með lóðréttum bár-
um og yfir gluggum með láréttum
bárunum, eins og undir gluggunum.
Þetta er lítið og einfalt dæmi um
hvernig nota má bárujárn með til-
breytingu og myndrænt. Á húsi sem
þannig er klætt má einnig láta vatns-
bretti úr blikki ná eftir allri húshlið-
inni yfir láréttu bárujárnsplötunum.
Spyrjið um fleiri gerðir efnis í ytri
kápu, ef endurnýjunar er þörf eða ef
nýtt er byggt.
Hvernig sem úr þessu máli verður
leyst þá verður hver og einn húseig-
andi að gera við hús sitt eins og nauð-
syn krefur og grannt verður að fylgj-
ast með að láta ekki fúa í klæðningu
ná að skemma útlit og gildi klæðn-
ingarinnar.
Það er vissulega leitt til þess að
vita að tjóni mátti afstýra ef betur
hefði verið hugsað um að olíubera
húsið. Látið ekki líða nema þrjú til
fjögur ár á milli þess að borið sé á
viðinn.
Falleg aðkoma
Allir vilja hafa hús sitt fallegt og
vel hirt þegar að því er komið, hvort
heldur er heimafólk sem að húsinu
gengur eða ef gest ber að garði, þá er
sómi að góðri umhirðu.
Þegar útveggir taka að bila
Smiðjan
eftir Bjarna Ólafsson,
bjarnol@isl.is
Timburhúsum hefur fjölgað, ekki hvað sízt í
sjávarþorpum úti á landi.