Morgunblaðið - 03.03.2002, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. MARS 2002 B 5
LEYFIÐ þeim að hata mig – að-eins ef þeir óttast mig,“ þessi
orð heyrði ég einhvern tíma lögð í
munn rómverska
hershöfðingjanum
og stjórnmála-
manninum Júlíusi
Sesar. Sjálfur skrif-
aði hann „Sagan
sýnir að sá, sem
beitir grimmd,
uppsker ekkert
annað en hatur“.
Það ríkir óvenjulega mikill titring-
ur í íslensku þjóðarsálinni núna, það
er hrollur í henni eftir ískalt steypi-
bað hins efnahagslega samdráttar og
ekki síður vegna spillingarmála
þeirra sem upp hafa komið að und-
anförnu.
Efnahagssamdrátturinn hefur haft
þær uggvænlegu afleiðingar að fyr-
irtæki hafa sum hver þurft að segja
upp starfsfólki í því skyni að hagræða
í rekstrinum.
Aðall traustra og góðra fyrirtækja
hefur löngum verið að að veita sínu
fólki starfsöryggi og umhyggju – sem
aftur hefur verið endurgoldið með
tryggð og trúnaði þeirra sömu starfs-
manna gagnvart fyrirtæki sínu. Fyr-
irtæki af þessu tagi segja ekki upp
starfsfólki fyrr en í síðustu lög og
sauma ekki að því á annan hátt nema
í algerri neyð. Þetta vita starfsmenn
og það mótar afstöðu þeirra til fyr-
irtækisins, viðheldur trúnaðartrausti
þeirra þótt á móti blási.
Á hinn bóginn hefur viss „ótta-
stjórnun“ í anda Júlíusar Sesars rutt
sér til rúms í vaxandi mæli innan
sumra fyrirtækja og leitt til þess að
þau segja óhikað upp ágætu starfs-
fólki þótt ekki beri brýna efnahags-
lega nauðsyn til, jafnvel fyrir eins
konar geðþóttaákvörðun. Hinir sem
eftir verða búa þá á stundum við
kvíðablandna óvissu.
En er „óttastjórnun“ af þessu tagi
eins árangursrík og sumir vilja vera
láta?
Óttastjórnun er ekki ný af nálinni
en reynslan sýnir að slík stjórnun, af
hvaða tagi sem hún er hefur tilhneig-
ingu til að koma í bakið á þeim sem
henni beitir.
Eitt hið mikilvægasta í mannleg-
um samskiptum er heiðarleiki og
traust, slíkt er undirstaða góðs geng-
is í lífi fólks og einnig í stjórnun fyr-
irtækja.
Svik, baktjaldamakk, rógur og lít-
ilsvirðandi framkoma kemur að lok-
um í einu eða öðru formi meira niður
á þeim sem slíku beitir en hinum sem
fyrir verða.
Það að leyna ófögrum sannleika og
sviksamlegu atferli hefur líka eyði-
leggjandi áhrif til lengdar. Um það
hafa verið skrifuð mýmörg ritverk.
Undanfarið höfum við orðið vitni
að ýmsu undarlegu í stjórnsýslu.
Vegna þeirra atburða allra hafa
vaknað í huga manna áleitnar spurn-
ingar, t.d. hvað snertir trúnað og
uppljóstranir – þýlyndi og hollustu.
Hvar eru mörkin? Hverjum á að sýna
trúnað? – Og er ekki trúnaður við
sjálfan sig og sína réttlætiskennd
mikilvægastur þegar upp er staðið?
Menn eru ekki á eitt sáttir um
þessi efni.
Getur heimilisfaðir sem beitir konu
og börn ofbeldi átt heimtingu á trún-
aði þeirra?
Eiga fyrirtæki sem hafa eitt og
annað á samviskunni hvað snertir
stjórnarhætti og afstöðu til starfs-
manna einhverja heimtingu á tryggð
og trúmennsku?
Það er ekki hægt að fá allt í þess-
um heimi. Ef fyrirtæki láta gróða-
sjónarmið hafa algjöran forgang,
sýna starfsfólki sínu miskunnarleysi
og/eða beita óheiðarleika í starfsemi
sinni eiga þau varla möguleika á
trúnaðartrausti fólks. Vilji menn
njóta drengskapar frá öðrum er væn-
legast að auðsýna hann sjálfur.
Það er ekki langt síðan umræða
opnaðist hvað snertir andlegt og lík-
amlegt ofbeldi innan fjölskyldna og á
heimilum. Kannski næsta verkefni á
þessum nótum verði að opna fyrir
umræðu um óttastjórnun innan fyr-
irtækja og stofnanna. Ýmislegt bend-
ir til að hún sé á stundum fyrir hendi
og varla er betra að beita fólk and-
legu ofbeldi á vinnustöðum en inni á
heimilum.
Barátta gegn hvers konar ótt-
astjórnun er verðugt verkefni en get-
ur orðið skeinuhætt og jafnvel háska-
leg.
Í þessu sambandi ber að hafa í
huga að það fór t.d. ekki vel fyrir Júl-
íusi Sesar – sbr. síðustu orð hans er
hann féll fyrir morðingjahendi: „Þú
líka, barnið mitt - Brútus?“
ÞJÓÐLÍFSÞANKAR/Er allt í lagi ef
menn aðeins óttast?
Óttastjórnun
eftir Guðrúnu
Guðlaugsdóttur
BIODROGA
Bankastræti 3, sími 551 3635.Snyrtist. Lilju, Stillholti 16, Akranesi.
Hjá Laufeyju, Hjarðarlundi 1, Akureyri.
Jurta - snyrtivörur
Nýr farði
Silkimjúk,
semi-mött áferð.
4 litir.
Póstkröfusendum