Morgunblaðið - 03.03.2002, Síða 7

Morgunblaðið - 03.03.2002, Síða 7
Bílaleigubílar Sumarhús í Danmörku og Mið-Evrópu Ódýrari bílaleigubílar fyrir Íslendinga. Bílar frá dkr. 1.845 vikan. Innifalið í verði: Ótakmarkaður akstur, allar tryggingar. (Allt nema bensín og afgr.gjöld á flugvöllum.) Aðrir litlir og stórir bílar, smá-rútur og rútur. Sumarhús og íbúðir. Norðurlönd og Mið-Evrópa. Hótel. Heimagisting. Bændagisting. Fjölbreyttar upplýsingar. Nýjustu verðlistarnir komnir. Hringið og fáið sendan. Fylkir Ágústsson, Fylkir — Bílaleiga ehf., sími 456 3745. fylkirag@snerpa.is www.fylkir.is Ef aka á um Evrópu í sum- ar er sniðugt að kíkja á slóðina www.mappy.com.  Stærsti skemmtigarðurinn í Þýskalandi, Europa- Park, tók nýlega í notkun stærsta rússíbana Evrópu. Mesta fallhæð brautarinnar er 73 metrar og há- markshraðinn er 130 km. Rússíbaninn er byggður í samstarfi við bílaframleiðandann Mercedes Benz. Þessi þemagarður er stór eða um 62.000 hektarar og garðinum er skipt upp í fjölda svæða sem flest tengjast sögu og menningu lands eða svæðis í Evr- ópu. Skemmtigarðurinn er innan landamæra Þýska- lands en liggur nærri landamærum Frakklands. Í vor fær hann nýja tengingu við hraðbrautakerfið í Þýska- landi. Maður ekur hraðbrautina BAB5 og á milli borg- anna Ettenheim og Herbolzheim tekur maður afleggj- arann Rust 57b. Boðið er upp á gistingu á nokkrum hótelum innan svæðisins og hægt er að panta her- bergi á vefsíðu EuropaPark. Þá er fjöldi gististaða í nágrannabæjum. Vefslóðin er www.europapark.de. Stærsti rússíbani Evrópu Aðgangur að skemmtigarðinum kostar lið- lega 2.000 krónur eða 24 evrur fyrir full- orðna og 22 evrur fyrir börn.  Salamanca á Spáni er ein af menningarborgum Evrópu árið 2002. Nú er unnið að því að skipuleggja ýmsar uppákomur í bænum, tónleika, sýningar, upp- lestur, bíódaga, leikhússýningar og fleira. Þeir sem lesa spænsku geta aflað sér frekari upplýsinga á slóð- inni www.salamanca2002.org. Salamanca er menningar- borg Evrópu FRÁ miðjum marsmánuði mun sama skíðakortið gilda á skíða- svæðin í Oddsskarði og Stafdal á Austurlandi. Ferðamenn geta þá valið milli svæða eða heim- sótt þau til skiptis enda ekki nema ríflega klukkustundar akstur milli svæðanna tveggja. Páskafjör í Fjarðabyggð er árviss dagskrá skíðasvæðisins í Oddskarði, í samvinnu við stofn- anir, ferðaþjónustuaðila, öldur- hús og verslanir í Fjarðabyggð. Jóhanna Gísladóttir fram- kvæmdastjóri Markaðsstofu Austurlands segir að í Odd- skarði séu 3 diskalyftur sem flytja um 2.000 manns á klukku- stund. Lyfturnar eru lægst í 500 metra hæð en hæst í 840 metra hæð. Lyfturnar eru sam- tals um 1.300 metra langar. Svæðið er flóðlýst og hægt að skíða fram eftir kvöldi. Barna- lyftan er í aflíðandi brekku og um páskana verður haldið páskaeggjamót þar sem öllum börnum er heimil þátttaka. Eina risasvigmótið á Íslandi er orðið árvisst í Oddskarði um páskana. Þá er leikjadagur, þar sem verðlaun verða veitt fyrir frum- legasta farartækið, og einnig er furðufatadagur í skíðabrekkun- um einn af páskadögunum. Jóhanna segir að í Stafdal sé 1 km löng diskalyfta, brekkur við allra hæfi og flóðlýsing. Um páskana verður boðið upp á troðaraferðir upp á hæstu tinda, með ægifögru útsýni og skíðaferð niður brekkurnar. Jafnan hefur verið boðið upp á skíðakennslu fyrir byrjendur í Stafdal um páskana og margir hafa nýtt sér það, heimamenn og gestkomandi. Mikið um að vera á skíðasvæðunum í Oddsskarði og Stafdal um páskana Sama skíðakortið mun gilda á bæði skíðasvæðin Ljósmynd/Katrín Oddsdóttir Þrjár diskalyftur eru í Oddsskarði.  Skíðakort yfir páskadag- ana kosta 3.000 kr. fyrir fullorðna og 1.500 kr. fyrir börn og gilda frá mið- vikudegi til mánudags að báðum dögum meðtöldum. Dagskrá páska í Stafdal verður nánar auglýst síðar t.d. á www. sfk.is. Upplýs- ingar um skíðasvæðið í Stafdal fást í símsvara 8781160. Upplýsingar um skíðasvæð- ið í Oddsdal eru veittar í símsvara 8781474 og dag- skráin verður m.a. á slóð- inni www.fjardabyggd.is. Frekari upplýsingar um skíðaiðkun, vetrargöngu- ferðir og aðra afþreyingu á Austurlandi eru veittar hjá Markaðsstofu Austurlands, sími 4721750, og Upplýs- ingamiðstöð Austurlands, sími 4712320, netfang east@east.is. Skrá yfir við- burði á Austurlandi má finna á vefslóðinni www.east.is.  Í vikunni höfðu lesendur samband sem vildu benda Ítalíuförum á vefslóðina www.tuscanynow.com. Þarna er t.d. hægt að panta húsnæði ef ferðast er á eigin vegum. Þeir sem höfðu samband prófuðu í fyrra að panta gistingu með þessum hætti og allt stóð eins og stafur á bók. Vefslóð fyrir Ítalíufara AKRANESKAUPSTAÐUR hefur gert samkomulag við Steinaríki Íslands í Safna- skálanum að Görðum um að veita þjónustu og hafa um- sjón með almennri upplýs- ingagjöf til ferðamanna sem heimsækja Akranes. Í Safn- askálanum eru auk upplýs- ingamiðstöðvarinnar Steina- ríki Íslands og Hvalfjarðar- gangasafn, og einnig vísir að Kortasafni Landmælinga Ís- lands og Íþróttasafni en fyr- irhugað er að þessar sýning- ar verði tilbúnar í byrjun sumars. Í safnaskálanum er einnig Maríukaffi þar sem boðið er upp á kaffi og kökur og einnig er hægt að kaupa þar minjagripi ýmiskonar, m.a. sýnishorn af þeim stein- tegundum sem er að finna í Steinaríkinu. Á Safnasvæðinu er einnig Byggðasafn Akraness og nærsveita. Upplýsingamiðstöð ferða- manna opnuð á Akranesi Morgunblaðið/Sigurður Elvar Steinaríki Íslands í Safnaskálanum á Görðum mun hafa umsjón með al- mennri upplýsingagjöf til ferðamanna sem heimsækja Akranes.  Opnunartími upplýsingamiðstöðvar er sá sami og opn- unartími Steinaríkis Íslands og annarra safna í Safnaskálanum að Görðum. Opið er alla daga vikunnar nema mánudaga frá kl. 13:00-18:00. Sími upplýsingamiðstöðvar er 431 5566, faxnúmer 431 5567. Netfang er info@simnet.is  Skoska ferða- málaráðið hefur nú kynnt til sögunnar sér- stakt gæðakerfi fyrir veitinga- hús. Það eru þekktir mat- reiðslumeist- arar í Skotlandi sem hafa að- stoðað við gerð kerfisins sem verður ein- hverskonar ein- kunnagjöf. Markmiðið er að kynna góða matargerð á allt frá einföldustu kaffihúsum og upp í dýrustu veitingahús. Skoska ferðamálaráðið býst við að um þúsund veitingahús muni nýta sér gæðakerfið fyrir árslok. Innan skamms munu ferðamenn geta skoðað slóð- ina www.visitscotland.com til að sjá hvar í kerfinu veitingahús eru. Morgunblaðið/Árni Sæberg Gæðakerfi fyrir skosk veitingahús

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.