Morgunblaðið - 03.03.2002, Síða 8

Morgunblaðið - 03.03.2002, Síða 8
8 B SUNNUDAGUR 3. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ ferðalög BORGIN sem áður fyrr hét Bright- helmstone, var gamalt fiskimanna- þorp og hefur með tímanum orðið að konunglegu afdrepi og alþjóð- legri sumardvalarparadís fyrir fólk hér í Bretlandi sem ekki vill fara til útlanda á sólarströnd. Við ákváðum að fara snemma morguns frá London en þaðan er um tveggja tíma akstur til Bright- on. Læknir og prins Það fyrsta sem við tókum eftir þegar við ókum inn í Brighton var Royal Pavillion sem er ægifögur höll eins og úr 1001 nótt. Það voru tveir menn sem gerðu Brighton þekkta um allt England. Læknir og prins. Læknirinn hét Richard Russ- ell, fæddur í Lewis 1687. Þegar hann var sextíu og þriggja ára gaf hann út bókina „The Oceanic fluid“ þar sem hann sagði að sjórinn væri ekki aðeins kjörinn til baða heldur mætti lækna margan krankleikann með því að drekka hann. Russel byggði sér hús við ströndina í Brighthelmstone þar sem Royal Albion Hotel stendur núna. Sjáv- arböðin urðu afar vinsæl og voru eftirsótt af aðalsfólki sem kom alls staðar að sér til heilsubótar. Það lá á gulri tinnugrjótsströndinni í ang- andi sjávarilminum og lét þjóna færa sér hressingu í sólarhitanum. Prinsinn Georg, seinna Georg lV kom 21 árs gamall í heimsókn til Brighthelmstone í september 1783. Hann varð svo hugfanginn af þorp- inu að hann lét reisa sér þar hús. Árið 1787 ákvað hann að byggja sér höll og byrjaði Henry Holland, sem var húsameistari hirðarinnar, á því að hanna Royal Pavillion. Höllin var byggð í klassískum stíl með kín- verskum goðsagnaskreytingum inn- andyra eins og var í tísku á þessum árum. Árin 1815–22 var höllin end- urbyggð eftir teikningum John Nash sem hannaði allt utandyra í indverskum mogúlastíl. Spírur og fallegir næpulaga turnar risu úti en innandyra var haldið í kínversku skreytinguna sem er undurfögur. Lofthvelfingarnar eru allar út- skornar og í einni þeirra eru fimm drekar sem halda stórfenglegum ljósakrónum uppi. Úr risastóru eld- húsinu var hægt að panta af mat- seðli 550 rétti sem voru hver öðrum girnilegri. Eldhúsið er risavaxið. Þar voru vinnuborð í metratali og eldstæði sem grillað gat nokkra nautaskrokka í einu enda ekki van- þörf á miðað við fjölbreyttan mat- seðilinn og fjölda gesta. Það var æv- intýri líkast að ganga um stóra sali hlaðna ómetanlegum húsgögnum og ímynda sér samkvæmin sem haldin voru áður fyrr. Og eins og höllin stækkaði, þá þandist þorpið út að sama skapi og Brighton varð til. Göngugötur og markaðir Það er ekki að ástæðulausu að Brighton er oft kölluð litla London við sjóinn. Allir geta fundið eitthvað við hæfi og gleymt sér við að skoða litlu verslunargöturnar sem kallað- ar eru The Lanes eða Traðirnar uppá íslensku. Þetta eru fjölmargar göngugötur í allar áttir út frá einni miðju, rétt hestvagnsbreiðar. Sums staðar eru traðirnar svo mjóar að hægt að heilsast með handabandi yfir götuna. Traðirnar eru elsti hluti borgarinnar og ber þess glöggt merki í húsa- og gatnagerð. Núna hafa framsæknir athafnamenn lagt undir sig gömlu, þröngu smáhýsin sem áður fyrr voru heimili sjó- manna og opnað þar fjölbreytta verslun og þjónustu. Þar er fullt af skrýtnum búðum og má þar helst nefna skartgripaverslanirnar sem eru alveg ótrúlega margar, fjöl- margar antikbúðir, tískuverslanir, skóbúðir, veitingastaðir, kaffihús og gamlar krár. Fjölbreyttir matsölustaðir Á hæðinni fyrir ofan litlu trað- irnar er einstaklega skemmtilegt hverfi. Þar eru enn fleiri antikbúðir, Litla-London við ströndina Sumardvalarparadís Breta sem ekki fara til útlanda á sólarströnd Brighton er ein þekktasta og vinsælasta borgin á suður- strönd Englands. Hellen Linda Drake fór þangað í dagsferð. Í bænum eru fjölmargar göngugötur í allar áttir út frá einni miðju og göt- urnar eru rétt hestvagnsbreiðar. Í FYRRASUMAR var Farfuglaheim- ilið við Sundlaugaveg stækkað um rúmlega helming og öll aðstaða tekin í gegn og bætt verulega. meðal annars er nú boðið upp á 28 herbergi með sér snyrtingum. Undanfarið hafa staðið yfir loka- framkvæmdir og nú er búið að taka í notkun fundar- og ráðstefnusal sem tekur um 50 manns í sæti, tvær nettengdar tölvur er búið að setja upp og taka í gagnið þvotta- hús fyrir gesti heimilisins. Útlend- ingar eru í miklum meirihluta en Markús Einarsson framkvæmda- stjóri segir að þau vilji gjarnan fá fleiri íslenska gesti. „Yfir vetrartímann getum við líka boðið hagstæð kjör, fjögurra manna fjölskylda getur fengið her- bergi útaf fyrir sig með snyrtingu og aðgangi að eldhúsi á 1.700 krónur á manninn, helming fyrir börn á aldrinum 5-12 ára og ókeyp- is fyrir yngri börn en 5 ára. Ef hjón eru með tvö lítil börn þau borga 3.400 krónur fyrir nóttina.“ Mark- ús segir að það sama gildi um hópa eins og íþróttafélög, kóra og saumaklúbba. „Þessum hópum getum við boðið að gista fyrir allt frá 900 krónum á manninn.“ Alls geta nú um 170 manns gist á farfuglaheimilinu en það er hluti af stærstu gisthúsakeðju í heimi sem í eru um 4.400 farfuglaheimili í rúmlega 60 löndum. Markús segir að hafi fólk áhuga á frekari upplýs- ingum um farfuglaheimili víða um heim þá liggi frammi upplýsingar á Farfuglaheimilinu við Sundlaugaveg. Farfuglaheimilið tekur í notkun nýjan ráðstefnusal Bjóða Íslendingum sérkjör á veturna Gestir fá afnot af eldhúsi. Nýlega var tekinn í notkun ráðstefnu- og fundarsalur sem rúmar 50-60 gesti.  Farfuglaheimlið í Reykjavík Sundlaugavegur 34 sími 5538110. Netfang info@hostel.is Veffang: www.hostel.is Noregur Hjólaferð Íslenska fjallahjóla- klúbbsins Íslenski fjallahjólaklúbburinn, í samstarfi við ÍT-ferðir, verður með hjólaferð til Stavanger í Noregi dagana 12.–18. júní. Farið verður með leiguflugi beint til Stavanger, sem er bær á vest- urströnd Noregs. Í útjaðri Stav- anger er Sandnes, sem er þekktur hjólabær í Noregi. Ætlunin er að upplifa þetta fallega svæði á hjóla- stígum og veg- um eftir því sem best hentar. Til stendur að skoða Prekestol- en, sem er snar- brattur kletta- veggur sem hefur verið vin- sæll fallhlíf- arstökkpallur, og einnig sigla inn Lysefjorden og skoða Kjerag, sem er stórbrotið svæði í um 1000 metra hæð. – Þar er meðal annars risastór steinn í klettasprungu. Báðir þessir staðir eru meðal þekktustu ferðamannastaða í Nor- egi. Verið er að athuga með svefnpokagistingu í litlum húsum eða á farfuglaheimilum. Áætlað er að hjóla 30 til 80 km á dag og fer vegalengdin eftir því hvað verður skoðað. Fólk getur tekið með sín hjól eða leigt sér hjól. Boðið verð- ur upp á skipulagða fjögurra daga hjólaferð með hópstjóra og fylgd- arbíl en tekið skal fram að fólk er á eigin ábyrgð í ferðinni. Síðasti dagurinn er frjáls dagur.Áætlað verð fyrir klúbbfélaga, fyrir flug með sköttum og gistingu, er um 35–40.000 krónur. Einnig er boðið upp á bara flugferðina fyrir þá sem vilja fara á eigin vegum og er verðið 25.000 krónur með skött- um fyrir klúbbfélaga. Ungverjaland-Austurríki Búdapest og Vínarborg Dagana 23.–30. apríl og 1.–8. októ- ber býður Ferðaskrifstofa Guð- mundar Jónassonar vikuferðir til Búdapest og Vínarborgar. Flogið verður til Búdapest um Kaup- mannahöfn og gist þar sex nætur. Á öðrum degi er farið í skoð- unarferð um borgina, sem er inni- falin í verði ferðarinnar, og meðan á dvöl stendur verður boðið upp á frekari skoðunarferðir, sem bókast og greiðast hjá fararstjóra. Á næstsíðasta degi er svo ekið um morguninn til Vínarborgar. Farin verður skoðunarferð um borgina við komu, en síðan gefst frjáls tími fram á næsta dag að flogið verður heim frá Vín um Kaupmannahöfn. Í Búdapest verður gist á Hotel Novotel, sem er fjögurra stjarna hótel í Buda. Verð á mann er 89.900 krónur. Aukagjald fyrir eins manns her- bergi er 14.950 krónur. Innifalið í verði er flug, flugvallaskattar, akstur til og frá flugvelli, gisting í tveggja manna herbergi með morgunverði, akstur milli Búda- pest og Vínar, skoðunarferð um báðar borgirnar og íslensk far- arstjórn. Nýfundnaland Hvítasunnuferð Vest- fjarðaleiðar Ferðaskrifstofa Vestfjarðaleiðar hefur á haustin efnt til verslunar- og skemmtiferða til St. John’s, höfuðborgar Nýfundnalands í Kan- ada. Íbúar St. John’s eru ákaflega gestrisnir og þeir hafa haldið fast í arfleifð evrópskra forfeðra sinna. Fjögurra daga haustferð er farin í nóvember, en nýjung í ár er hvíta- sunnuferð 16.–20. maí þar sem gefst færi á að kynnast öllu sem borgin St. John’s hefur upp á að bjóða í verslun og menningu. Flogið er frá Keflavík með Boeing 757-200-þotu Flugleiða kl. 17.00 síðdegis fimmtudaginn 16. maí, en flugtími er 3–3½ klst., sem er svip- að og tímamismunurinn, þannig að komið er til St. John’s á sama tíma. Hægt er að velja um gistingu á tveimur góðum hótelum, Hótel Holiday Inn og Delta St. John’s, og býður Vestfjarðaleið pakkaferð með flugi og gistingu, en einnig verður hægt að kaupa ýmiss konar afþreyingu og skoðunarferðir aukalega. Einnig er ódýrt að leigja bíl. Skoðunarferðir verða um borg- ina og utan hennar. Af afþreying- armöguleikum má nefna golf, gönguferðir, veiði, fugla-, ísjaka- og hvalaskoðun og kajaksiglingar.  Nánari upplýsingar um Ný- fundnalandsferðirnar eru veitt- ar á skrifstofu Vestfjarðaleiðar, Skógarhlíð 10. Sími: 562 9950. Netfang: info@vesttravel.is. Heimasíða: www.vesttravel.is.  Upplýsingar um hjólaferðina eru gefnar hjá Íslenska fjalla- hjólaklúbbnum ifhk@mmedia.is.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.