Morgunblaðið - 03.03.2002, Page 21

Morgunblaðið - 03.03.2002, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. MARS 2002 B 21 bíó LENGI vel var útlit fyrir að Luriefetaði hvorki braut gagnrýn-andans né kvikmyndagerð- armannsins. Hann ákvað að fara í framhaldsskóla hjá bandaríska hernum í West Point og útskrifaðist þaðan árið 1984. Í fjögur ár eftir það gegndi hann herþjónustu en undir lok 9. áratugarins hafði hann gert upp við sig að betur lægi fyrir hon- um að gagnrýna kvikmyndir en þjóna heraganum. Eftir að hafa ver- ið blaðamaður hjá Daily News í New York með skemmtanaiðnaðinn sem sérgrein fluttist hann til Los Angeles. Þar hóf hann að skrifa um kvikmyndir fyrir Los Angeles Magazine, sendi frá sér eina bók og gerðist gagnrýnandi hjá KABC- útvarpsstöðinni árið 1995. Þar vann hann sér það m.a. til frægðar að spá því með margra mánaða fyrirvara að Titanic yrði einhver stærsti smellur í sögu Hollywood. Honum tókst einnig að gera sína fyrstu kvikmynd á þessum tíma, lágverðs- myndina Deterrence (2000), sem fór að öllu leyti lágt en var, hvað efn- isval varðaði, til marks um það sem koma skyldi. Myndin er sögð eins konar kammertryllir um fyrsta for- seta Bandaríkjanna af gyðinga- ættum og hugsanlega kjarnorku- árás á Írak. Á meðan hann vann við útvarps- stöðina hitti hann leikkonuna Joan Allen á einhverri verðlaunahátíð og tilkynnti henni snarlega að hann ætlaði sjálfur að semja kvikmynda- handrit, sem yrði klæðskerasniðið fyrir hæfileika hennar, sem honum þótti vannýttir. Lurie stóð við stóru orðin. Hann skrifaði handrit um kvenkyns varaforsetaefni, sem þarf að glíma við hneykslisherferð gegn sér af hálfu óprúttinna keppinauta og annarra stjórnmálamanna og fjölmiðla í Washington. Þegar Lurie tókst að koma handritinu í fram- leiðslu sagði hann stöðu sinni sem gagnrýnandi lausri vegna yfirvof- andi hagsmunaáreksturs og sneri sér að kvikmyndagerð alfarið. Myndin, The Contender, tókst af- bragðs vel, handritið greindarlegt og útsjónarsamt og enginn viðvan- ingsbragur á leikstjórninni. Joan All- en í aðalhlutverkinu blómstraði sem aldrei fyrr og hreppti Óskarstilnefn- ingu, rétt eins og Jeff Bridges í hlut- verki forsetans. DreamWorks, fyrirtæki Spielbergs, Geffens og Katzenbergs, hafði keypt dreifingarréttinn að The Contender og bauð Lurie að leikstýra næsta verkefni sínu fyrir það, The Last Castle, sem nú er sýnd hérlendis og skartar Robert Redford og James Gandolfini í aðalhlutverkum fang- elsaðs herforingja og spillts fang- elsisstjóra. Handritið skrifaði Lurie ekki að þessu sinni sjálfur, en hefur þó fengið nægilega mikinn áhuga á fangelsislífinu til að semja ásamt fleirum handrit að næstu mynd sinni, þar sem segir frá verð- bréfabraskara sem dæmdur er í fangelsi og fer að vinna að betra lífi innan múranna. Myndin heitir Clink Inc. og er í smíðum. Pólitík í Washington og öðrum fangelsum Þeir eru nokkrir kvikmyndagagnrýnendurnir, sem rýnt hafa í kvikmyndir sér til svo mikils gagns að þeir hafa farið að gera þær sjálfir. Eitt þekktasta dæmið er Peter Bogdanovich, sem reyndar hefur ekki náð sér á strik í seinni tíð. Það hefur hins vegar gert kollegi hans úr krítíkerastétt, Rod Lurie, en þriðja bíómynd hans, The Last Castle, er frumsýnd hérlendis um helgina. Árni Þórarinsson SVIPMYND Rod Lurie er fertugur að aldri. Áhuga sinn á banda- rískum stjórnmálum og gagn- rýna afstöðu til þeirra hefur hann tekið í arf frá föður sín- um, hinum heimsþekkta skopteiknara Ranan Lurie. Kvikmynda- gerðarmenn ræða stafrænu myndirnar FÉLAG kvikmyndagerðarmanna heldur annað kvöld fund um stafrænu tæknina í kvikmyndagerð og fram- leiðsluferli þeirra íslensku kvikmynda sem gerðar hafa verið með henni að undanförnu. Böðvar Bjarki Péturs- son mun fjalla um gerð Gæsapartís, Sigvaldi Kárason um Gemsa og Júl- íus Kemp um Íslenska drauminn og Maður eins og ég, auk þess sem sýnt verður úr nýrri mynd um Eldborg- arhátíðina. Síðan verða umræður um kosti og galla tækninnar en fund- arstjóri er Jón Karl Helgason. Fund- urinn hefst kl. 20:30 á efri hæð Húss málarans í Bankastræti. TAÍLENSKA kvik- myndin Suriyothai hefur hlotið geysiað- sókn í heimalandinu og vakið athygli um heim allan. Þetta er epísk stórmynd uppá rúm- lega þrjár klukkustund- ir en nú hefur Zoetr- ope, fyrirtæki Francis Fords Coppola keypt heimsdreifingarréttinn. Coppola hefur ákveðið að hafa sjálfur yf- irstjórn með endurklippingu myndarinnar en ætlunin er að stytta hana um hálfa til heila klukkustund. Coppola og leikstjóri myndarinnar, Chatrichalerm Yukolprins, funda um breytingarnar í Bangkok. Coppola endurklippir taílenskan smell Francis Ford Coppola: Tekur fram skærin. X Y Z E T A / S ÍA www.fr jals i . Dæmi um mánaðarlega greiðslubyrði af 1.000.000 kr.* Vextir % 7,5% 8,5% 9,5% 10,5% 11,5% 5 ár 20.000 20.500 21.000 21.500 22.000 10 ár 11.900 12.400 12.900 13.500 14.100 15 ár 9.300 9.800 10.400 11.000 11.700 *Lán með jafngreiðsluaðferð án verðbóta. Kláraðu dæmið -með hagstæðu láni Ertu að byggja eða breyta? Þú getur á auðveldan hátt samið um framkvæmdalán hjá Frjálsa fjárfestingarbankanum. Um er að ræða hagstætt lán, sem veitt er til allt að 15 ára gegn veði í fasteign. Ráðgjafar okkar veita allar nánari upplýsingar. Þú getur litið við í Sóltúni 26, hringt í síma 540 5000 eða sent tölvupóst á frjalsi@frjalsi.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.