Morgunblaðið - 12.03.2002, Síða 26
26 C ÞRIÐJUDAGUR 12. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐHeimiliFasteignir
H
vernig mótaðist
funkis-stefnan og
hvenær barst hún
hingað til lands?
Funkis er í
raun sama stefn-
an og kölluð er
módernismi á alþjóðlega vísu, eða nú-
tímastefna. Orðið funksjónalismi má
þýða sem notagildisstefna í bygging-
arlist, en orðið funkis er stytting á
orðinu funktionalismi og er eins kon-
ar gæluorð eða viðurnefni úr sænsku
sem notað var af almenningi þar yfir
þessa stílstefnu og breytingu sem
varð í húsastíl eftir 1930. Margþætt
áhrif mótuðu breytingarnar sem
urðu á byggingarlist upp úr 1930.
Þetta var ný stílhugsun sem birtist í
því að klassískri hefð í mótun forma
var kastað fyrir róða. Öllu því sem
kallast gat skraut var ýtt til hliðar og
því var þetta róttæk endurhugsun á
öllum þáttum húsbygginga, t.d. í ljósi
iðnbyltingarinnar og samfélagshug-
mynda þess tíma. Arkitektúrinn átti
ekki bara að vera skraut í híbýlum
hinna efnameiri, heldur ætti alþýðan
einnig rétt á því að búa í heilsusam-
legu, einföldu og góðu húsnæði, og
njóta sömu grunngæða í húsnæði
sínu og þeir sem betur máttu sín.
Þessi nýja sýn á samfélagið, sem
tengdist stjórnmálahreyfingu þess
tíma, var einn þáttur í mótun funkis-
stefnunnar.
Þessi fagurfræði einfaldleikans
sótti fyrirmyndir sínar mjög mikið í
hin nýju samgöngutæki sem voru að
koma fram á þeim tíma. Menn trúðu
því að iðnbyltingin – tækni og þekk-
ing mannsins – mundi skapa nýjan og
betri heim. Þetta var því liður í því að
brjóta tenginguna við fortíðina og
skapa eitthvað nýtt frá grunni. Þá
litu menn helst til forms þessara nýju
tæknilegu hluta, svo sem bíla, flug-
véla, loftskipa, þar sem formið og
gerð hlutarins mótaðist algjörlega af
því sem var tæknileg nauðsyn, en öllu
skrauti var sleppt. Þ.e. þar sem nota-
gildið mótaði form hlutarins, en sem
dæmi um slíka hluti má t.d. nefna
tennisspaðann. Að einhverju leyti var
leitast við að ná þessu sama í bygg-
ingarlist. Menn komu fram með skil-
greiningar eins og „húsið er vél til að
búa í“, en þegar maður skoðar þessi
hús minnir útlit þeirra mjög mikið á
vélræn form í yfirbyggingum skipa;
verandirnar á þakinu með stálpípu-
handriðunum minna á þilför o.s.frv.
Þetta er ekki fráleit samlíking. Menn
voru mjög uppteknir af þessum nýja
heimi tækninnar og möguleikum á að
nýta hana mannkyninu til góðs. Í
raun var þetta fremur allsherjar hug-
sjón um að endurhugsa byggingarlist
frá grunni heldur en nýr stíll. Það
sama átti sér stað í myndlist og tón-
list. Þessi formbylting fór í ákveðinn
farveg og þessi hús hafa vissulega
ákveðin útlitseinkenni. Margir þeir
sem voru að teikna hús hér á landi á
þessum tíma tóku í raun upp ytri
formeinkennin og gerðu að einskonar
stíl þótt það hafi aldrei verið hugsun
þeirra frumherja sem mótuðu þessa
stefnu í upphafi.
Hvenær berast funkis-áhrifin til
Íslands?
Þessir nýju straumar í húsagerð-
arlist berast hingað til lands um og
eftir 1930. Fyrsta húsið sem teiknað
var með skýrum útlitseinkennum
þessarar nýju stefnu, er hús Ólafs
Thors við Garðastræti 41 í Reykja-
vík. Þessu húsi er þó búið að breyta
mikið þannig funkis-stíleinkennin
eru ekki jafnaugljós og þau voru í
upphafi. Það sem vekur athygli á því
húsi eins og það leit út í upphafi eru
t.d. horngluggarnir, sem eru eitt auð-
þekkjanlegasta útlitseinkenni þess-
arar stefnu, en það var einnig með
flötu þaki og á þakinu voru svalir.
Það var hægt að ganga út á þakið úr
litlu þakhýsi og stálpípuhandrið var á
svölunum. Í staðinn fyrir skreytingu
utan á húsunum, sem hafði verið ein-
kennandi í húsagerðarlist fyrir þenn-
an tíma, var allt slétt skorið og
hreint. Formin eru mjög hreinskorin
en eru jafnframt ákveðinn leikur með
grunnform, s.s. sívalning, ferning,
tening. Það var svo ákveðin fagur-
fræði eða formtilfinning falin í því
hvernig menn settu þessi form sam-
an. Hugsunin snerist þó mikið um
rökrétt innra skipulag, svo sem að
herbergjum væri raðað niður með til-
liti til notagildis þeirra og hlutverks,
og einnig að innbyrðis afstaða þeirra
væri skýr og niðurröðun þeirra tæki
tillit til sólarljóssins. Rýmishugsun
var svo einnig þáttur í þessari nýju
stefnu, eða að ytra og innra rými
hússins gætu tengst og opnast. Er-
lendis gengu menn töluvert langt í
þessum efnum, húsin voru með
stórum samfelldum glerveggjum
með opið út í garð eða á svalir, svo
ytra og innra rými rann saman í eina
heild. Hér á landi kom sú hugsun í
húsagerð ekki fyrr en nokkru seinna,
eða eftir stríð. Samt má segja sem
svo að t.d. horngluggarnir frá þess-
um tíma sé ákveðið skref í þessa átt.
Með því að opna upp horn herberg-
isins í stað þess að hafa gluggann
sem afmarkaðan reit á miðjum vegg
þá skapaði það öðruvísi og opnari
tengsl út á við heldur en hefðbundnir
gluggar.
Hvernig reyndust þessi hús við ís-
lenskar aðstæður?
Það kom í ljós að tæknilegir ágall-
ar voru á þessum fyrstu fulltrúum
funkis-húsa sem byggð voru hér á
milli 1930 og 1935. Á þeim tíma réðu
menn ekki alveg við það að gera flöt
eða lítið hallandi þök og því reyndust
þökin á sumum þessara húsa ekki
nógu vel. Lekavandamál skutu upp
kollinum, svo fljótlega hurfu menn
frá því að byggja marflöt þök, og
þessi nýja húsagerð gekk í gegnum
um aðlögun að íslenskum aðstæðum.
Þessa aðlögun má t.d. sjá á húsum við
Hávallagötu í Reykjavík, þar eru
komin valmaþök sem halla í fjórar
áttir, og koma þau í staðinn fyrir flötu
þökin. En grunnhugsunin í húsunum,
áherslan á einfaldleika og notagildi
breyttist ekki þrátt fyrir þessa aðlög-
un. Ákveðnir byggingarhættir hér á
landi ýttu undir útbreiðslu þessarar
stefnu. Steinsteypa sem byggingar-
efni í almennum íbúðarhúsabygging-
um var notuð í meira mæli hér en er-
lendis og þessi nýi stíll féll vel að
efniseiginleikum steinsteypunnar. Á
síðari hluta 4. áratugarins byggðust
því upp stór og heildstæð hverfi, eins
og t.d. Norðurmýri og Melarnir, og
svo Hlíðarnar og Laugarneshverfi á
styrjaldarárunum. Funkis-stefnan
hefur haft mótandi áhrif á þessi
hverfi og þó svo einstök hús séu
kannski ekki meistaraverk í sjálfu
sér, þá varð til sterk heildarmynd.
Er hægt að breyta þessum húsum
án þess að skemma stílinn?
Búið er að breyta flestum þökum
fyrstu húsanna sem hér voru byggð
og var það vegna tæknilegra vanda-
mála, s.s. leka. Það er hins mjög erfitt
að byggja við eða breyta þessum hús-
um svo vel fari. Þau eru svo hrein-
skorin og samspil formanna er mótað
af mikilli næmni, og í raun eru þau
eins konar höggmyndir. Ef reynt er
að breyta þessum formum þá riðlast
öll hlutföll hússins. Einnig hefur mik-
ilvægum deililausnum verið breytt,
s.s. gluggum. Í mörgum tilvikum
voru mjög fínlegir gluggar í þessum
húsum, oft voru gluggapóstar úr
málmi. Opnanlegu fögin voru líka fín-
leg og nánast ósýnileg. Þessum
gluggum hefur í flestum tilfellum
verið skipt út og í staðinn hafa komið
gluggar sem hafa ekki sama léttleika
og upprunalegu gluggarnir. Í sumum
tilfellum hefur verið málað yfir upp-
runalega múrinn í stað þess að gera
við hann með upphaflegum aðferð-
um, sem vel er hægt enn í dag. Það er
auðvitað ekkert óeðlilegt að hálfrar
aldar gömul hús þurfi sitt viðhald.
Þessi hús sem byggð voru með hefð-
bundnu funkislagi sem mótaðist hér
á landi, s.s. valmaþakshúsin, hafa
mörg hver reynst afskaplega vel. Svo
það má segja að það hafi eingöngu
verið frumherjahúsin sem var breytt
að einhverju ráði. En það er eftirsjá í
því að við skulum ekki eiga fleiri full-
trúa þessa tímabils í sinni rétt út-
færðu, upphaflegu mynd.
Garðastræti 37, teiknað árið 1939 af Gunnlaugi Halldórssyni arkitekt fyrir Magnús Víglundsson, er gott dæmi um fyrstu
gerð funkis-húsa sem byggð voru hér á landi, þótt það sé byggt í lok 4. áratugarins. Þessu húsi hefur verið breytt í tím-
ans rás með viðbyggingum.
Melahverfi í Reykjavík er dæmi um áhrif funkis-stefnunnar.
Morgunblaðið/Ásdís
Kanon-arkitektar ehf. hönnuðu þessi nýju fjölbýlishús við Kristnibraut undir áhrifum funkis-stefnunnar.
Funkis er stefna í bygg-
ingarlist sem hófst upp
úr 1930. Hún á sér hlið-
stæðu bæði í myndlist og
tónlist, en þetta hugtak
er yfirleitt notað um
byggingarlist módern-
ismans fram að seinni
heimsstyrjöld. Guðlaug
Sigurðardóttir ræddi við
Pétur H. Ármannsson,
deildarstjóra byggingar-
listardeildar Reykjavíkur,
um funkis-stefnuna og
þau áhrif sem hún hafði á
byggingarlist hér á landi.
F U N K I S
Fagurfræði einfaldleika og nytsemi