Morgunblaðið - 07.04.2002, Blaðsíða 16
Geislavarnir!
Er verið að mæla þig út?
Öflugir radarvarar frá
ESCORT og FUZZBUSTER
Citroën C3 – nýstárlegur
kostur í smábílum
NÝR MINI Cooper verður bíll söguhetjunnar
Austins Powers í þriðju myndinni sem verður frum-
sýnd í júlí. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Mini
kemst í kvikmyndirnar því fyrsta gerð bílsins var
notuð í The Italian Job þar sem Michael Caine fór
með aðalhlutverkið. Caine leikur einnig í nýju Austin
Powers-myndinni og hefur það hlutverk að telja
söguhetjunni trú um að Mini sé góður bíll með því
að segja: „Það er ekki stærðin sem skiptir máli
heldur hvernig hann er notaður.“ Sala á Mini gengur
vel í Bandaríkjunum þar sem hann kom á markað
fyrir tveimur vikum. Á þessu ári ráðgerir móðurfyr-
irtækið, BMW, að selja þar 20 þúsund bíla.
Austin Powers á Mini
FORD hefur samið við söngkonuna Kylie Min-
ogue um að hún auglýsi Ford StreetKa, litla sport-
bílinn. Ford er styrktaraðili tónleikaferðalags Min-
ogue um Evrópu sem stendur yfir í 39 daga í
sumar. Bíllinn kemur ekki á markað fyrr en snemma
á næsta ári og þangað til verða áhugasamir að láta
sér nægja veggspjöld og annars konar auglýsingar
af bílnum með sönggyðjunni.
StreetKa og Minogue
SAMDRÁTTUR í sölu á nýjum bílum heldur áfram. Alls seldust 409 bílar í
marsmánuði en 657 bílar í mars 2001, sem er 37% samdráttur. Það sem af er
árinu hafa selst 1.250 bílar en 1.832 bílar fyrstu þrjá mánuðina í fyrra, sem er
31,8% samdráttur. Fyrstu tvo mánuðina nam samdrátturinn 28,3%. Sala hefur
aukist á ódýrari gerðum bíla. Söluaukning á Skoda er t.a.m. tæpt 71% fyrstu þrjá
mánuðina og Hyundai eykur við sig um 23% og er orðinn þriðji söluhæsti bíllinn.
) 38
9 -
-
'':
*
;+
-< # =
7
>
-2')2-
#
" # ! $%%$
*
&%
&"
! $%%(
$%%$
&%
/
$%%$$%%(
')(*+,
Enn frekari samdráttur
LAND Rover hefur kynnt nýj-
an og breyttan Discovery-jeppa
sem kemur á markað hérlendis
í júní. Mestu breytingarnar eru
á framenda bílsins sem er far-
inn að líkjast Range Rover
meira en áður með öðruvísi
stuðara og lugtum. Breyting
hefur líka verið gerð á aftur-
endanum með nýrri gerð ljósa
með hástæðari stefnuljósum
sem auðvelda bílnum fyrir aftan
að greina stefnubreytingu bíls-
ins. Þá verður bíllinn að nýju
með mismunadriflæsingu sem
ekki hefur verið í boði síðan nú-
verandi gerð kom á markað
1998. Annar staðalbúnaður
verður HDC-kerfi, sem stjórnar
hægingu bílsins þegar honum
er ekið niður brekkur, spólvörn
á öllum fjórum hjólum og að
auki ACE-kerfi sem eykur stöð-
ugleika bílsins í beygjum. Þá
verður fjöðrunarbúnaðurinn
með hleðslujafnara.
Sömu vélar verða í boði og
áður, þ.e. fimm strokka, 2,5
lítra dísilvél með forþjöppu og
4,0 lítra V8 bensínvél. Meiri
áhersla hefur hins vegar verið
lögð á hljóðeinangrun frá vél.
Búist er við að verðið á bílnum
verði óbreytt. Þess má þó geta
að nú stendur yfir innköllun á
30.000 Discovery vegna galla í
ABS-hemlakerfi. Innköllunin
nær yfir bíla sem smíðaðir eru
á tímabilinu júlí 1998 til og með
febrúar á þessu ári.
Breyttur Discovery í júní
Wieck
Breytingarnar eru ekki róttækar á nýjum Land Rover Discovery.
Wieck
Nýjar framlugtir og stuðari er meðal nýjunga.
TÍU Volvo V70 Cross Country-bílar
hafa verið fluttir hingað til lands á
sænskum skráningarnúmerum og
verða þeir notaðir í fimm daga ferð
um sveitir og óbyggðir Vestur- og
Suðurlands. Volvo í Svíþjóð stóð
fyrir leik sem fólst í því að nöfn
þeirra sem reynsluóku V70 Cross
Country lentu í potti. Síðan var
dregið úr pottinum og 20 heppnir
fengu í verðlaun ævintýraferð til
Íslands. Bílarnir eru fjórhjóladrifnir
og með 2,4 lítra, 205 hestafla vél-
um. Þeir verða fluttir út aftur til
Svíþjóðar að ferðinni lokinni og þar
verða þeir m.a. notaðir í tengslum
við Ocean Arctic-siglingakeppnina í
Gautaborg.
Á 10 Cross Country um óbyggðirnar
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Tíu Volvo V70 Cross Country fyrir utan höfuðstöðvar Brimborgar.