Vísir - 11.06.1980, Blaðsíða 4
Miðvikudagur 11. júni 1980.
Nauðungaruppboð annað og siðasta á hluta Klapparstig 17, þingl. eign Jóns Samúelssonar fer fram á eigninni sjálfri föstudag 13. júni 1980 kl. 10.30. Borgarfógetaembættið i Reykjavik.
-
Nauðungaruppboð annað og siðasta á hluta i Unufelli 33, þingl. eign Guð- mundar Fr. Halldórssonar fer fram á eigninni sjálfri föstudag 13. júni 1980 kl. 14.00. Borgarfógetaembættið i Reykjavik.
Nauðungaruppboð sem auglýst var í 22., 24. og 27. tbl. Lögbirtingablaðs 1980 á hluta i Rauðarárstig 24, þingl. eign Finnboga G. Kristins- sonar o.fl. fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar I Reykja- vik á eigninni sjálfir föstudag 13. júni 1980 kl. 15.45. Borgarfógetaembættið i Reykjavik.
Nauðungaruppboð sem auglýst var 1110. tbl. Lögbirtingabiaðs 1979 og 4. og 8. tbl. þess 1980 á Vonarstræti 4 B, þingl. eign Magnúsar Th. S. Blöndahl h.f. fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar I , Reykjavik á eigninni sjálfri föstudag 13. júni 1980 kl. 11.00. Borgarfógetaembættið i Reykjavik.
Blaðburöa rfó Ik óskast^^S Lindargata ^ Lindargata Klapparstígur W
wmsufiM
Frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík Umsóknarfrestur um skólavist fyrir nýja nemendur er til 1. ágúst. Inntökuskilyrði í 1. bekk eru: 1. Gagnfræðapróf, grunnskólapróf eða hlið- stætt próf. 2. 24 mánaða hásetatimi. Þá þurfa umsækj- endur að leggja fram augnvottorð frá augn- lækni, heilbrigðisvottorð og sakavottorð. Fyrir þá, sem fullnægja ekki skilyrði 1) er haldin undirbúningsdeild við skólann, ef næg þátttaka verður. Inntökuskilyrði i þá deild eru 17 mán. hásetatími auk annarra vottorða undir 2). Þá er heimilt að reyna við inntökupróf í 1. bekk í haust.. Prófgreinar eru: Stærðfræði, eðlisfræði, islenska, enska og danska. Haldin verða námskeið frá 12. sept. fyrir þá sem reyna vilja inntökupróf. 1. bekkjardeildir verða haldnar á Akureyri, Isafirði og i Neskaupstað, ef næg þátttaka fæst. Skólinn verður settur 1. október. Skólastjóri.
Rosalynn tekur I hönd aðdáanda og sendir honum bros i leiöinni. Lifvörðurinn, sem stendur að baka for-
setafrúarinnar er ekki eins brosmildur og fylgist meö allt fari vel fram. Vfsismynd:ÞG.
ep Rosaiynn vin-
sæm en Jimmy?
- Garter vírkjar alla fjolskylúuna i kosningabaráttunni
Rosalynn Carter hefur tekið
virkan þátt i kosningabaráttu
manns sfns, Jimmy Carter. Er
ekki örgrannt um að hún sé enn
vinsælli en bóndi hennar.
Þórir Guðmundsson, blaða-
maður Visis, fylgdist með er
Rosalynn kom til Rhode Island,
og viðtökunum sem hún fékk.
Hér kemur frásögn Þóris:
Rosalynn Carter steig út úr
flugvélinni „United States” og
mikill fjöldi blaöljósmyndara
hóf myndatöku.
Ferðalög hennar þykja ef til
vill ekki lengur neinar heims-
fréttir, en hvar sem hún kemur
safnast bæjarbúar saman til að
Ilita þessa frægu konu augum og
fá ef til vill að taka i höndina á
henni.
„Hún er svo yndisleg”, sagöi
hrifin frú i áhorfendaskaranum.
Rosalynn tekst að láta lita svo
út sem hún sé áhugasöm um bæ-
inn og fólkið sem hún talar við,
jafnvel þó þetta sé þúsundasti
staðurinn sem hún heimsækir i
þessari kosningabaráttu.
Leyniþjónustumennirnir, sem
fylgja henni hvert fótmál eru
hrifnir af Rosalynn: „Hún dá-
ist að eiginmanni sinum”, sagði
einn þeirra viö blaöamann Vis-
is”, og hún tekur ekki annað til
greina en að hann sigri”.
Náinn vinur Carter hjónanna
sagði mér nýlega, að forseta-
hjónin væru mjög samrýnd.
„Þau eru virt og dáð um allt
Georgiu riki”, bætti hann við, en
Georgla er sem kunnugt er
heimariki Carters.
„The first lady”, eins og
Bandarikjamenn kalla forseta-
frúna tekur virkan þátt i störf-
um eiginmannsins. Hún hefur
ferðast milli fjarlægra heims-
álfa og heilsað upp á ýmsa þjóð-
höföingja fyrir hönd manns
sins, þá segjast þau taka flestar
ákvarðanir i sameiningu.
Það er enginn vafi á þvi, að
Jimmy Carter getur þakkað
konu sinni mörg væntanleg at-
kvæði, hugsanlega atkvæðin
sem koma honum yfir Ronald
Reagan I forsetakosningunum i
nóvember. Kosningastjórn
Carters hefur lika notað að-
dráttarafl frúarinnar til hins
itrasta.
Þeir senda Rosalynn gjarnan
til rikja, þar sem skoðanakann-
anir sina að vinsældir forsetans
eru ekki upp á marga fiska, og
gefa fólki þannig tækifæri til aö
sjá hina brosmildu og kjark-
miklu forsetafrú.
Þetta hefur yfirleitt borið
þann árangur, að nú þykist
Rosalynn Carter geta sagt meö
nokkurri sannfæringu: „Ég veit
að við vinnum”.
Jimmy Carter nýtir fleiri fjölskyldumeölimi f kosningabaráttunni en konu sina. Hér er sonur hans,
Chip, á tali viö fréttamenn. Vfsismynd: ÞG.