Alþýðublaðið - 22.08.1972, Page 2
Skrifstofustúlkur
óskast til almennra skrifstofustarfa. Laun
skv. kjarasamningi rikissfarfsmanna.
Upplýsingar i sima 83200.
KANNSÓKNARSTOFNUN
I5YGGINGARIDNAÐARINS.
KELDNAHOLTI.
Laus staða
Staða fangavarðar við fangageymsluna i
nýju lögreglustöðinni við Hverfisgötu er
laus til umsóknar. Laun samkvæmt launa
kerfi opinberra starfsmanna. Umsóknir
um starfið sendist til lögreglustjórans i
Reykjavik, fyrir 15. september n.k.
Nánari upplýsingar gefa yfirlögreglu-
þjónar.
Reykjavik, 18. ágúst 1972,
Lögreglustjórinn i Reykjavik.
Húsbyggjendur — Verktakar
Kambstál: X. 1(1, 12. 1 (>. 20, 22, 25 ni/m. Klippum og
lic.vgjum stál og járn oftir óskuin viíiskiptavina.
Stálborg h.f.
Smifljuvcgi 13, Kópavogi. Simi 424X0.
KANNSKIFÁ SUM
BREIÐHOLTSBORN
r r
Kannski fá sum börnin i efra-
Hreiöboltinu. öftru nafni Breið-
holti 3, fri frá skólagöngu i heil-
an mánub i haust. Alla vega er
Ijóst, að skólinn, sem þeim er
ætlaður, Fellaskólinn, verður
ekki tilbúinn fyrr en i fyrsta lagi
i byrjun október, en skólar eiga
að tiefjast I. september eins og
kunnugt cr.
Blaðið hefur hcyrt að til mála
komi. að börnunum verði ekið i
aðra skóia i borginni, þannig að
þau missi ekki langan tima úr
lögboðinni kennslu, en um þetta
mun ekki hafa verið tekinn end-
anleg ákvörðun cnn.
Fellaskólinn á samkvæmt
áætlun að vera tilbúinn til notk-
unar 1. október að sögn Kagnars
Georgssonar hjá Fræösluskrif-
stofu Keykjavikur, en hann
kvaðst ckki vita, hvort verktak-
ar myndu standast fullkomlega
áætlun.
i vetur verður kennt i öllum
bekkjardeildum barnaskóla-
stigsins, (> ára til 12 ára, við
Fellaskólann og ennfremur
verða þar i vetur tvær bekkjar-
deildir gagnfræðastigs.
Um 230 til 240 börn úr efra
Breiöhoiti voru i fyrra i skólan-
um i Breiðholti 2. Alþýðublaðiö
hafði i gær tal af skóíastjóran-
um þar, Guðmundi Magnússyni,
og spurði hann, hvort hægt væri
að leysa timabundin vandkvæði
barnanna úr efra Breiðholti
með þvi, að láta þau setjast i
skólann i Breiöholti 2 þar til
„þeirra” skóli væri fullbúinn.
Guðmundur kvað það með öllu
útilokað.
,,t>að var ákveöiö s.l. vor, að
skóli sá, sem ég veiti forstöðu,
skilaöi þeim börnum af sér, sem
hann hafði i fyrra úr efra hverf-
inu," sagði Guömundur. „Hefur
öllum gögnum um þessi börn
þcgar verið skilað.”
„Vegna mikilla þrengsla hjá
mér er með öllu útilokaö, að
hægt sé aö leysa timabundin
vandkvæði barnanna úr efra
Breiðholti með þvi að veita
þeim aðgang að skólanum hér.
l>að er einfaldlega alls ekki
hægt”, sagði Guðmundur
Magnússon.
Það hefur komiö fram i sam-
bandi við þrengsiin i skólanum i
Breiðhoiti 2, að byggja þarf sér-
stakar lausar kennslustofur —
flekahús — úti á skólalóðinni. Er
nú verið að Ijúka byggingu
tveggja slikra stofa, sem notað-
ar vcrða sem bráðabirgðahús-
næði i vetur.
Barna og unglingaskólinn i
neðra Breiðholti, Breiöholti 2,
mun vera stærsti skóli landsins
á þessu skólastigi. í vetur munu
verða i skólanum rösklega 1300
nemendur.
STgÁICAS!
Piltur á vélhjóli óskast strax til starfa
fyrir Alþýðublaðið, helzt ekki siðar en 1.
september.
Talið við afgreiðsluna, simi 86666.
FRAMHÖLD
Sölumet_____________________3
verið i sérflokki, og væntan-
lega hefur báturinn verið með
demantssild.
Meðalverðið i siðustu viku
var 13,70 krónur kilóiö, sem er
eins og fyrr segir lágt vcrð.
Alls fengu 23 skip cinhvern
afla. Mestan afla höfðu Gisli
Arni KE, Súlan EA, isieifur IV
biA, Helga Guðmundsdóttir
BA, og örfirisey RE.
Keyrið________________________1
til muna. Er ráðgert að hafa tvö
aöstoðarskip á miðunum viö
island 1. september, og væntan-
lega verða þau bæði mjög vel
útbúin ölluin nauðsynjum.
Varla er þó við þvi að búast að
ekki komi til slikrar bilunar aö
nauðsynlegt sé að draga togara til
hafnar. Er þá um tvennt að velja,
draga togarann til islands eða þá
til brezkrar hafnar. Má telja fuli-
víst aö Bretar neyðist til þess að
gripa til siðari kostsins, þvi mót-
tökurnar i islenzkum höfnum
yrðu varla höfðinglegar.
AUGLÝSINGASÍMINN
OKKAR ER 8-66-60
Kidde handslökkvitækið er dýrmætasta
eignin á heimilinu, þegar eldsvoða ber að
höndum. Kauptu Kidde strax í dag.
I.Pálmason hf.
VESTURGÖTU 3. SÍMI: 22235
UR OG SKARTGRIPIR
VI kcrneuus
. JONSSON.
^ SKÚLAVÖRÐUSTIG8
BANKASTRÆTI6
18588-18600
ALLT í LAGI MEÐ ERINDIÐ
- SEGIR BLAÐAFULLTRÚINN
Alþýðublaðinu barst i gær
svohljóðandi yfirlýsing frá
Hannesi Jónssyni, blaðafulltrúa
rikisst jórnarinnar:
„Vegna fréttagreinar i Al-
þýðublaðinu 19. þ.m. um frétta-
mannafund blaðafulltrúa ríkis-
stjórnarinnar um landhelgis-
málið i London 16. þ.m„ er eftir-
larandi leiöréttingum hér með
koinið á framfæri:
1. Fréttamannafundurinn var
boöaður sem kynningarfundur
uin landhelgismáliö, en ekki
takmarkaður við sýningu á
iandhelgiskvikmyndinni, ,,THE
LIVING SEA”.
2. Fundurinn var boðaður með
svofelldri dagskrá, sem blaða-
fulltrúi áréttaði i upphafi fund-
arins: Fyrst, erindi um sjónar-
mið islenzku rikisstjórnarinnar
i landhelgismálinuý annað,
spurningar og svör um málið>
þriðja, sýning á sjónvarps-
myndinni „THE LIVING SEA”.
3. Fundurinn fór fram með
miklum ágætum og skilaöi
miklum árangri. Fyrir hans til-
stilli komst sjónarmið íslend-
inga í málinu í allt brezka
fréttanetið, stórblöðin birtu
greinar um málið og sjónvarps-
og útvarpsstöðvar birtu fréttir
byggðar á þvi, sem fram kom á
fundinum.
í framhaldi af fundinum kom
blaðafulltrúi einnig fram i sjón-
varpsþáttum BBC-TV-NEWS og
BBC-TV-Leeds, „Look North”,
svo og I sjónvarpsþætti ITN og
kynnti sjónarmiö islendinga.
Einnig skýröi hann sjónarmið
island i BBC útvarpinu.
Svo sem framangreindar
staðreyndir bera meö sér, tókst
fundurinn með miklum ágætum
og skilaöi mikium og góðum ár-
angri vegna þeirrar alhliða
kynningar, sem þar fór fram
um landhelgismáliö.
Ranghermt er, að fréttaerind-
ið, sem tók um 20 mínútur i
flutningi, hafi komið frétta-
mönnum á óvart, þar sem að
fundurinn var boðaður með það
sem fyrsta dagskráratriöi fund-
arins. Hins vegar foru nokkrir
fréttamenn af fundi til þess að
sima inn efni erindisins, þegar
þvi hafði verið dreift i fjölrituöu
formi, svo sem algengt er á slík-
um fundum.”
í sambandi við mál þetta vill
Alþýðublaðið aðeins taka það
fram, aö það fékk i gær aðra
staðfestingu til á þvi, að það hafi
farið með rétt mál aö þvi er
varöar viðbrögö brezkra blaöa-
manna viö umræddum kynning-
arfundi. Fullyrti sá heimildar-
maður einnig, að fjölmargir er-
lendir blaöamenn hafi gengiö út
af umræddum fundi og þá ekki i
þeim tilgangi, að „sima inn efni
erindisins”, sem blaöafulltrúinn
flutti.
Þá kemur það fram i frétt
Sunday Times, að togarasjómenn
i Hull eru hræddir við vetrar-
veðrin viö tsland, og einkum þó
að geta ekki Leitað til islenzkrar
liafnar ef eitthvað dynur á.
Skákin___________________J2
upp, er „fræðilegt” jafntefli,
og útilokað að vinna fyrir
svartan, þó að hann hafi peði
meira, nema hvitur leiki gróf-
lega af sér. Spasski gerði heið-
arlegar tilraunir en allt kom
fyrir ekki.
34. ... Hd2
35. Ha7+ Kf6
36. Ha6+ Ke7
37. Ha7+ Hd7
Hvitur má að sjálfsögðu
ekki fara i hrókakaup.
38. Ha2 Ke6
39. Kg2 He7
40. Kh3 Kf6
41. Ha6+ He6
42. Ha5 h6
43. Ha2 Kf5
44. Hf2+ Kg5
45. Hf7 g6
46. Hf4 h5
47. Hf3 Hf6
48. Ha3 He6
49. Hf3 He4
50. Ha3 Kh6
51. Ha6 He5
52. Kh4 He4+
53. Kh3 He7
54. Kh4 He5
55. Hb6 Kg7
56. Hb4 Kh6
57. Hb6 Hel
58. Kh3 Hhl +
59. Kg2 Hal
60. Kh3 Ha4
og hér bauð Spasski jafntefli er Fischer aö sjálfsögðu þáði.
Staðan eftir 16 skákir: Fischer
9 1/2, Spasski 6 1/2.
Jón Pálsson.
Þriðjudagur 22. ágúst 1972