Morgunblaðið - 26.04.2002, Blaðsíða 17
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. APRÍL 2002 17
Bíldshöfða
FJARÐARGÖTU 13–15 • HAFNAR FI RÐI • SÍM I 565 4533
Útsala
Síðustu dagarnir!
Stórkostleg útsala á golfvörum!
30% afsláttur
Nú er tækifærið til að gera góð kaup á golfkylfum,
-pokum, -kerrum, -fatnaði, -skóm o.fl.
SÖNGSVEITIN Fílharmónía ásamt
Selkórnum munu syngja á tón-
leikum með Fílharmóníusveit Pét-
ursborgar ytra 30. september næst-
komandi.
Að sögn Bernharðar Wilkinson,
stjórnanda Fílharmóníu, er þetta
mikill heiður fyrir kórana. „Fíl-
harmóníusveit Pétursborgar er ein
frægasta hljómsveit heims og saga
hússins sambærileg við sögu Mus-
ikverein í Vínarborg. Við höfum því
aldeilis dottið í lukkupottinn.“
Að sögn Bernharðar drýpur sag-
an af veggjum hússins en þar voru
á sínum tíma frumflutt verk eftir
Shostakovitsj og fleiri fræg rúss-
nesk tónskáld. Salurinn sem sungið
verður í er einmitt nefndur í höf-
uðið á Shostakovitsj. „Við verðum
þarna í Mekka rússneskrar tónlist-
ar.“
Efnisskráin verður tvískipt. Fyr-
ir hlé verður eingöngu sungin ís-
lensk a capella-tónlist, m.a. þjóð-
lagaútsetningar eftir Hafliða
Hallgrímsson, Jón Ásgeirsson,
Árna Harðarson, Jón Nordal og
fleiri. Eftir hlé verður svo flutt
Sálumessa Mozarts.
„Við erum byrjuð að æfa Sálu-
messuna fyrir tónleika hér heima
næsta haust, þannig að það lá beint
við að syngja hana þarna úti. Síðan
er þetta auðvitað frábært tækifæri
til að kynna íslenska tónlist líka,“
segir Lilja Árnadóttir, formaður
Söngsveitarinnar Fílharmóníu.
Að sögn Lilju ber þetta að með
skjótum hætti. „Upphaflega átti
annar kór að syngja á þessum tón-
leikum undir stjórn Bernharðar en
þegar hann gekk úr skaftinu gafst
okkur þetta tækifæri. Við kynntum
ferðina á æfingu um daginn og þá
þegar urðu undirtektir það góðar
að ljóst var að við myndum fara,“
segir Lilja en kostnaður við ferð af
þessu tagi er mikill.
„Þetta er gríðarlegt fyrirtæki og
undirbúningur stuttur. Við verðum
því að vinna hratt. Við munum á
næstu dögum leita hófanna um
samstarfsaðila en ljóst er að um-
talsverður kostnaður mun samt
sem áður koma í hlut kórfélaga,“
segir Lilja.
Bernharður segir söngfólkið hins
vegar hafa litlar áhyggjur af því.
„Bæði verður þetta dýrt og við
þurfum að æfa töluvert í sum-
arfríinu. En fólk er tilbúið að fórna
öllu. Það vill mikið til þess vinna að
komast til Pétursborgar.“
Kórarnir verða í fjóra daga í Pét-
ursborg og segja þau Bernharður
og Lilja að fólk muni án efa gefa sér
tíma til að skoða sig um í leiðinni.
Pétur Óli Pétursson, sem búsettur
er í Pétursborg, hefur milligöngu
um komu kóranna og verður leið-
sögumaður þeirra í borginni.
Fílharmóníusveit Pétursborgar á æfingu í húsakynnum sínum.
Syngja með Fílharm-
óníusveit Pétursborgar