Morgunblaðið - 26.04.2002, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 26.04.2002, Blaðsíða 37
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. APRÍL 2002 37 Friðriks Jónssonar, og þegar þú komst heim til mín þá spilaði ég það meðal annara oft fyrir þig í flutn- ingi Björgvins Halldórssonar og Karlakórs Fóstbræðra: Undir háu hamrabelti Höfði drúpir lítil rós. Þráir lífsins vængja víddir Vorsins yl og sólarljós. Ég held ég skynji hug þinn allan Hjartasláttinn rósin mín. Er kristallstærir daggardropar Drjúpa milt á blöðin þín. Finna hjá þér ást og unað Yndislega rósin mín. Eitt er það sem aldrei gleymist. Aldrei það er minning þín. Ég sendi þér líka hér með þessa bæn, sem þú hélst mjög upp á: Heimsins þegar hjaðnar rós og hjartað klökknar. Jesús gef mér eilíft ljós, Sem aldrei slökknar. Þú varst ekki aðeins frábær móð- ir og amma barnanna okkar, heldur einnig besta vinkona mín, til þín var hægt að leita til með alla hluti og oft sagðir þú mér að finna út hvaða leið mig langaði til að ganga og taka svo ákvörðun, sem sagt svörin átti ég að finna sjálf við lífsgátunni og hún hlustaði oft á vangaveltur mínar í gegn um lífið og lagði orð í belg þegar henni fannst þörf á. Minningin um mjúku strokurnar um vanga okkar „krakkanna“ á öll- um aldri geymast í hjörtum okkar allra. Ég reyndi oft að fá bollaspádóm á yngri árum mínum en ég fékk aldrei svör við lífsgátunni í gegnum bollaspádóm hennar þó oft hafði ég heyrt að hún hefði þótt góð í þeim málum. Þú varst kletturinn í mínu lífi, mín fyrirmynd og barnabörnin voru heppin að fá að njóta samvista við þig. Þú kenndir þeim m.a. að hamingja fæst ekki með peningum heldur að leggja á sig og uppskera; að rækta fjölskylduna sína væri númer eitt í forgangsröðinni. Fórn- fýsi þín fyrir aðra gekk stundum út fyrir öll takmörk að mínu mati en þú máttir ekkert aumt sjá hvorki hjá dýrum né mönnum. Mér fannst þú persónulega oft gleyma sjálfri sér og því sem þig langaði að gera. Sumir bogna, aðrir bresta, þú bognaðir eins og góð tré gera en þú náðir að rétta úr og sjá lífið í nýju ljósi og sagðir þú mér oft að þegar yngsta barn okkar Ingi- björg Íris hefði fæðst hefði vaknað ný von hjá þér, þú sást mikið ljós í henni og fylgdist náið með henni til dauðadags eins og þér einni var lagið. Hér áður fyrr koms þú oft í sum- arbústaðinn og margar góðar minn- ingar eigum við þaðan með henni, er mér sérstaklega minnisstæð ein heimsóknin en þá komst þú með rútu sem Ólafur Ketilsson ók til Laugarvatns þar sem þú hafði verið að vinna á laugardeginum og við fórum austur deginum áður. Við biðum nokkur við kaupfélagið eftir ferðalanginum og héldum að eitt- hvað hefði komið fyrir rútuna, en loksins komst þú og steigst út úr rútunni öll rykfallin og þá varst þú mjög reið og vissum við ekki hvort við ættum að hlæja eða gráta fyrir hennar hönd. Þér var ekki hlátur í huga þá, en oft síðar á ævinni skemmtir þú þér við minninguna á meðan þú mundir hana. Við yljum okkur öll í fjölskyldunni við minn- ingarnar um þig um leið og við þökkum þér samfylgdina og sam- gleðjumst þér innilega að vera laus úr þeim fjötrum sem þú varst í síð- ustu árin þín hér. Við vitum einnig, elsku vinan okkar, að nú getur þú ferðast út um allar jarðir og geim en oft þurftir þú að horfa á eftir okkur að heimsækja ættingjana er- lendis, sem voru þínir nánustu ætt- ingjar líka. Sjáumst síðar. Margrét Oddsdóttir og fjölskyldan.  Fleiri minningargreinar um Ingi- björgu Sólveigu Sigurðardóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. ✝ Friðrik JensGuðmundsson fæddist í Reykjavík 9. nóvember 1925. Hann andaðist á Landspítalanum við Hringbaut 16. apríl síðastliðinn. Foreldr- ar hans voru Sólveig Jóhannsdóttir, hús- móðir, f. 1897, d. 1979, og Guðmundur Halldór Guðmunds- son, sjómaður, f. 1887, d. 1982. Bræð- ur Friðriks eru: Ósk- ar, f. 1922, látinn. Guðmundur Jóhann, f. 1927, látinn. Jóhann, f. 1930. Árið 1945 kvæntist Friðrik Sig- ríði Sigurjónsdóttur, sérkennara, f. 1925. Foreldrar hennar voru Sig- urjón Sigurðsson, verslunarmaður, f. 1891, og Rannveig Vídalín Guð- mundsdóttir, húsmóðir, f. 1897. Friðrik og Sigríður eignuðust sex börn. Þau eru: 1) Katrín, f. 1946. Dætur hennar með Friðriki Guð- jónssyni eru: a) Berglind Sigur- veig, f. 1969, maki Roman Schröd- er. Dætur þeirra eru Elisabet Berglind, f. 1995, og Lóa Marie, f. 1971. Kona hans Sif Ásmundsdótt- ir, f. 1972. Sonur þeirra er Óðinn Örn, f. 2000. b) Höskuldur Goði, f. 1975. Unnusta hans Kristín Sif Óm- arsdóttir, f. 1979. c) Friðrik Þór, f. 1984. Börn Gunnars frá fyrra hjónabandi eru Eva, f. 1975, og Snorri, f. 1971, í sambúð með Ísól, f. 1972. Sonur þeirra er Óskar Jós- úa, f. 1999. 4) Sigríður, f. 1957. Börn hennar og Pálma Kristins- sonar, f. 1957, eru: a) Hjalti Þór, f. 1981. Unnusta hans Ingunn Agnes Kro, f. 1982. b) Elísabet, f. 1986. 5) Sigrún, f. 1959, maki Jóngeir Þór- isson, f. 1957. Dóttir þeirra er Irma Gná, f. 1997. Sonur Sigrúnar er Gunnþór Jens, f. 1976. Börn hans og Auðar Aspar Jónsdóttur, f. 1976, eru Bjarki Már, f. 1997, og Patrekur Máni, f. 2001. 6) Guð- mundur, f. 1961, maki Helga Ósk- arsdóttir, f. 1962. Börn þeirra eru: a) Sigrún Áslaug, f. 1980. Unnusti hennar Friðrik Sölvi Gylfason, f. 1973. b) Rannveig, f. 1986. c) Frið- rik Jens, f. 1998. Friðrik ólst upp í Vesturbænum, lauk Samvinnuskólaprófi árið 1945 og starfaði lengi hjá Olíuverslun Ís- lands. Síðan vann hann hjá Skatt- stofu Reykjavíkur þar til hann lét af störfum. Friðrik var KR-ingur og stundaði glímu og frjálsar íþróttir um árabil. Útför Friðriks fer fram frá Foss- vogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. 1997. Þau eru búsett í Lúxemborg. b) Katrín Elísabet, f. 1974, bú- sett í París. Dóttir hennar, Kaja Port- mann, andvana fædd 2000. Sonur Katrínar með Jean Pierre F. er Jean Pierre Fannar, f. 1981. 2) Sólveig, f. 1949, maki Guðmund- ur Hjartarson, f. 1948. Börn þeirra eru: a) Friðrik, f. 1968. Börn Friðriks með Helenu Jónsdóttur, f. 1964, eru Karítas, f. 1993, og Davíð, f. 1995. Friðrik er í sambúð með Ragnhildi Ragnarsdóttur, f. 1964, og hennar sonur er Ragnar Dagur Ágústsson, f. 1991. b) Hjört- ur, f. 1970. Sonur Hjartar með Stellu Monique Samúelsdóttur, f. 1970, er Samúel, f. 1997. c) Sigríð- ur Alma, f. 1971. Dóttir Sigríðar Ölmu með Henrik Andersen, f. 1972, er Freyja, f. 2000. Þau eru búsett í Danmörku. 3) Rannveig, f. 1953, maki Gunnar S. Snorrason. Dóttir þeirra er Sólveig, f. 1992. Synir Rannveigar og Óla Arnar Andreassen eru: a) Sigurjón Örn, f. Elsku pabbi, minningarnar hrann- ast upp, allar ferðirnar okkar á völl- inn, í Laugardalinn, veiðiferðirnar o.fl. o.fl. Takk fyrir allt. Ég skal vaka og vera góð vininum mínum smáa, meðan óttan rennur rjóð, roðar kambinn bláa, og Harpa sýngur hörpuljóð á hörpulaufið gráa. Stundum var í vetur leið veðrasamt á glugga; var ekki einsog væri um skeið vofa í hverjum skugga? Fáir vissu að vorið beið og vorið kemur að hugga. (Halldór Laxness.) Kveðja. Rannveig, Sigrún og Guðmundur. Þegar ég minnist tengdaföður míns, Friðriks Guðmundssonar, er mér efst í huga þakklæti til þessa mikla manns sem ávallt reyndist mér, dóttur sinni og börnum okkar ein- staklega vel. Finnst mér orðið mann- vinur eiga vel við þegar hans er minnst. Friðrik var húmoristi af guðs náð og einnig mikill keppnismaður. Hann byrjaði snemma að stunda íþróttir hjá KR og varð einn af okkar fremstu frjálsíþróttamönnum. Hann var fulltrúi hjá Skattstofu Reykjavíkur í allmörg ár og hafði mikla þekkingu á því sviði. Þeir voru ófáir sem komu með gögn sín til hans, auðvitað á síðustu stundu, og voru í daufara lagi. En það brást ekki að þegar minn maður hafði brett upp ermarnar, farið höndum um bókhald- ið og skýrslan var tilbúin, fóru menn frá honum léttari í spori og bjart- sýnni á lífið og tilveruna. Þannig mað- ur var tengdafaðir minn, tilbúinn til aðstoðar og hjálpar, sama hvað á bjátaði. Friðrik hafði mörg áhugamál og var hafsjór af fróðleik um ólíkustu málefni. Hann hafði mikla ánægju af veiði og minnist ég margra veiðiferða í Stóru-Laxá og víðar þar sem ég og börn mín nutum tilsagnar hans og sérlega skemmtilegra stunda. Þau hafa síðan tekið upp merki afa síns um háttvísi og góða umgengni við veiðiár landsins og á þar við máltæk- ið: „Hvað ungur nemur, gamall tem- ur.“ Megi minningin um Friðrik lifa í hjarta okkar allra um ókomna tíð. Guðmundur Hjartarson. Ég hafði þekkt Friðrik tengdaföð- ur minn í 21 ár eða síðan ég kynntist syni hans og eiginmanni mínum. Friðrik hefur verið mér afskaplega góður alla tíð og heimili þeirra Sigríð- ar ávallt staðið opið fyrir mér. Friðrik var mjög barngóður og sýndi börnum okkar mikla hlýju. Friðrik átti það til þegar dóttir okkar var yngri að hringja til hennar og spyrja hvort þau ættu að skreppa niður í bæ og fá sér ís. Slík atvik lýsa hlýju Friðriks til barnanna vel. Við höfum tvívegis búið hjá þeim Sigríði tímabundið og þótti þeim allt- af sjálfsagður hlutur að rýma til fyrir okkur hvort sem það var að lána okk- ur stássstofuna eða eitthvert her- bergið. Það var aldrei spurning hvort við kæmumst fyrir eða ekki, við vor- um alltaf velkomin inn á heimili þeirra. Við fórum tvisvar saman í sumarfrí og eru það virkilega góðar minningar sem við eigum um þá daga. Við keyrðum um Arnarfjörð og Hjall- kárseyri þar sem Friðrik átti ættir að rekja og gladdi það hann að sjá þess- ar slóðir aftur. Friðriks er sárt saknað og þykir okkur mikill missir að börnin okkar skuli ekki fá að njóta hlýju hans áfram í uppvexti sínum. Helga Óskarsdóttir. Minn elskulegi mágur, Friðrik Guðmundsson, er látinn. Það var á vori lífs míns sem ég kynntist Friðriki. Frjálsar íþróttir voru þá líf hans og yndi og náði hann afburðaárangri, sem KR-ingur að sjálfsögðu. En KR átti ekki hug hans allan því Friðrik kvæntist eftirlifandi eiginkonu sinni, Sigríði Sigurjóns- dóttur, á 18 ára afmælisdegi mínum. Ég var þá ekki formlega komin inn í fjölskylduna á Ásvallagötu 65. Þar bjuggu hjónin Guðmundur H. Guð- mundsson, kona hans Sólveig Jó- hannsdóttir og fjórir synir þeirra, Jó- hannes Óskar, Friðrik, Guðmundur J. og Jóhann. Friðrik var alla tíð kær- leiksríkur sonur tengdaforeldra minna og var þeim innan handar og hjálplegur. Þau Friðrik og Sigríður eignuðust sex vænleg börn. Fimm dætur og son. Kynni mín af mági mínum voru mikil og góð frá byrjun. Eins var vor lífs míns gæfuríkt í nánu vinfengi við tengdafólk mitt. Við Guðmundur vorum ung og sumarið varð hörð lífsbarátta en við tókum þátt í lífi í borginni því okkur varðaði um hana og íbúa hennar. Borgarmál- in tóku hug okkar allan og oft var lítill tími til heimsókna. En sem betur fer þurfti alltaf að gera skattskýrslur og þá var Friðrik bjargvætturin. En Friðrik var líka önnum kafinn og byggði fjölskyldu sinni góða íbúð við Kleppsveg 34. Lengstum starfaði Friðrik á Skattstofu Reykjavíkur og á þessum árum, einnig um nætur, þrælaði hann í Loðnubræðslunni við Kleppsveg og vann myrkranna á milli og sýndi ótrúlegt starfsþrek. Svona unnu sumir duglegir menn á þessum árum. Sigríður tók þátt í dugnaði Friðriks og fór aftur til náms og lauk kennaranámi og kenndi lengstum við Langholtsskóla við frábæran orðstír. Þá var yngsta barn þeirra, Guðmund- ur, hjá mér í Tjarnarborg en sumt vildi lítill drengur ekki gera nema heima hjá sér, og þrátt fyrir áhyggjur mínar get ég enn hlegið að því hvað Friðrik var ánægður með „staðfestu“ sonar síns. Friðrik skipaði sérstakan heiðurs- sess í fjölskyldu minni. Hann var tíð- ur gestur á heimili okkar Guðmundar og það var alltaf ánægjulegt að fá Friðrik í heimsókn. Kímni hans og skopskyn var einstakt og áttum við ógleymanlegar stundir sem seint líða úr minni. Ég get ekki fullþakkað mági mín- um allt sem hann var mínu fólki og er fyrir löngu orðin sátt við að hann valdi minn afmælisdag til að giftast sinni ágætu konu. Ég sendi fjöl- skyldu hans mínar innilegustu sam- úðarkveðjur. Ég kveð þig, Friðrik, með söknuði. Elín Torfadóttir. Kynni mín af Friðriki Guðmunds- syni hófust árið 1947. Hann var þá nýlega kvæntur Siggu og bjuggu þau á efri hæð á Laufásvegi 38. Ég var þá að draga mig eftir systur Siggu, Katrínu, og eftir að við gengum í hjónaband nokkru síðar, og við Frið- rik þar með orðnir svilar, hófst vin- skapur okkar fyrir alvöru. Hugur Friðriks hneigðist snemma til íþróttaiðkana. Hann gekk í KR eins og sönnum Vesturbæingi sæmdi, og með því félagi æfði hann alla tíð og vann sína íþróttasigra. Friðrik vann um tíma í skrifstofu Olíuverslunar Ís- lands hf. og seinna sem fulltrúi í Skattstofu Reykjavíkur. Að loknum vinnudegi var farið suður á völl að æfa. Friðrik var glæsilegur maður á velli, kraftalega vaxinn og sterkur. Hann var í fremstu röð íslenskra íþróttamanna á árunum eftir seinna stríð. Aðalkeppnisgreinar hans voru kúluvarp og kringlukast, og þar var hann í hópi þeirra bestu. Friðrik var afar hugþekkur maður, ljúfur í um- gengni og drengskaparmaður í hví- vetna, og kom það fram jafnt á íþróttavelli sem í einkalífi, enda var hann hvers manns hugljúfi og vin- margur. Hann var í landsliði Íslands í frjálsíþróttum árum saman og auk ótal kappmóta hér heima keppti hann á frjálsíþróttamótum á Norðurlönd- um, í Danmörku, Þýskalandi og víðar við góðan orðstír. Það var gaman að koma á „völlinn“ þegar okkar menn öttu þar kappi við afreksmenn ann- arra þjóða. Fólk kom í hópum til þess að horfa á spennandi keppni. Menn fylltust stolti og gleði þegar okkar menn höfðu sigur. Og Friðrik var eitt hjólið í því sigurverki. Þá var gaman að vera Íslendingur. Mikil gróska var í frjálsíþróttum á þessum árum og met voru sett. Enn halda íslenskir íþróttamenn merkinu hátt og met eru slegin. Friðrik var ekki aðeins áhuga- maður um íþróttir og góður íþrótta- maður. Hann hafði mikinn áhuga á flugi og flugvélum og þreyttist aldrei á að fræða menn um flugvélar og sýna myndir af ýmsum gerðum flug- véla og bera saman flugeiginleika þeirra og flughæfni. Sigga og Friðrik komu oft í heim- sóknir til Stykkishólms til þess að njóta kyrrðar og náttúrufegurðar Snæfellsness og Breiðafjarðar. Þá var það toppurinn að fara á lúðuveið- ar með Valdemar Stefánssyni á gamla Fönix. Og aldrei brást lúða hjá Valda. Friðrik átti við vanheilsu að stríða síðustu árin og naut þá hlýlegrar um- hyggju yndislegrar eiginkonu sinnar. Ég minnist Friðriks vinar míns sem góðs drengs og skemmtilegs manns og kveð hann með söknuði og virð- ingu. Jón Magnússon. Elskulegi afi minn. Ég mun aldrei gleyma þegar við sátum og tefldum saman í stofunni hjá ömmu. Ég mun aldrei gleyma þegar þú varst að lýsa veiðiferðum þínum og hve skemmtilegt var þegar sá stóri beit á krókinn eða þegar þú varst að sýna mér bækurnar þínar með gömlu flugvélunum. Ég mun aldrei gleyma því. Sunnanvindar fjöllum frá fönnum hrinda síðar, grænum linda girðast þá grundir, tindar, hlíðar. (Páll Ólafsson.) Jean-Pierre Fannar Jónsson. Sálin, hún líður í ljósvakaheiminn, en líkamans svipur í draumageiminn burt, – inn á dalalönd dularbleik. Þar dregur hann ást undir töfranna þak, sæt eins og ilmur af sólvermdu rjóðri sár eins og vorþrá í ungum gróðri og öflug sem fjallbrjóstsins andartak. (Einar Ben.) Elsku afi minn. Nú ertu horfinn á braut, en í huga mínum munt þú ávallt vera hjá mér. Er ég lít upp á stjörnubjartan him- in, þá sé ég að stjarna ein skín sem aldrei var. Er ég horfi á fossinn í allri sinni dýrð, þá er hann svo smávægilegur þar sem þú verður að sýn. Er ég hugsa um þig bæði í gleði og sorg, þá veit ég að sólin í mínu hjarta skín. Þú ert minn klettur. Þú ert mín birta. Þú ert minn styrkur. Þú ert mitt þrek. Þú ert minn afi, minn elsku afi. Höskuldur. Elsku besti afi minn. Ó hve sárt ég sakna bross þíns og hlýju þinnar, allra þeirra stunda sem ég átti með þér. Samt leynist hamingja innst inni í hjarta mínu, því nú hvílir þú í friði frá öllum veikindunum. Ég veit að nú ert þú með bræðrum þínum, foreldr- um og vinum að nýju og ert búinn að finna fegursta stað himnaríkis fyrir okkur öll, sem elskum þig svo heitt. Ég þakka Guði fyrir að hafa gert þig eins og þú varst, því að fyrir mér ertu fyrirmynd alls hins góða og fallega. Gráti því hér enginn göfugan föður, harmi því hér enginn höfðingja liðinn; fagur var hans lífsdagur, en fegri er upp runninn dýrðardagur hans hjá drottni lifanda. (Jónas Hallgr.) Ég bið um að vaka yfir okkur öllum á þessum sorgartíma og þá sérstak- lega henni ömmu . Guð geymi þig, elsku afi, Þín Elísabet. FRIÐRIK JENS GUÐMUNDSSON  Fleiri minningargreinar um Friðrik Jens Guðmundsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.