Morgunblaðið - 26.04.2002, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 26.04.2002, Blaðsíða 52
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FÖSTUDAGUR 26. APRÍL 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. ERLENDAR nektardansmeyjar, sem starfa í Reykjavík, virðast ekki hafa eðlilegan aðgang að heilsu- gæslu, t.d. í þeim tilgangi að fá getnaðarvarnir. Hins vegar er vitað að þær leita í auknum mæli til heil- brigðisþjónustunnar eftir fóstur- eyðingu. Þetta er meðal þess sem kom fram í máli Guðrúnar Agnars- dóttur, forstöðumanns Neyð- armóttöku vegna nauðgana, á ráð- stefnu Evrópskra borga gegn eiturlyfjum (ECAD) í gær. Slík borgarstjóraráðstefna Sam- taka evrópskra borga gegn fíkni- efnum er nú haldin í níunda sinn og hófst hún á Grand Hótel í Reykja- vík í gær. Um 150 manns frá 18 löndum í Evrópu sækja ráðstefnuna auk Bandaríkjamanna. Verndari ráðstefnunnar er Vigdís Finn- bogadóttir, fyrrverandi forseti Ís- lands. Guðrún Agnarsdóttir var meðal ræðumanna á seinni hluta ráðstefn- unnar og í erindi sínu ræddi hún um skipulagðan flutning kvenna til Vestur-Evrópulanda til starfa inn- an kynlífsiðnaðarins þar en kynlífs- þrælkun virðist haldast í hendur við eiturlyfjaiðnaðinn. Í máli sínu vék Guðrún tali sínu að erlendum stúlkum sem væru hluti af kynlífs- iðnaðinum í Reykjavík og sagði þær lifa einangruðu lífi þar sem þeirra væri vel gætt. Sagði hún margar þeirra staðhæfa að þær væru neyddar til að selja sig í svoköll- uðum einkadansi samhliða því að dansa fyrir stærri hópa. Sömuleiðis væru þær sagðar þéna lítið nema þær stunduðu vændi. „Það lítur ekki út fyrir að þær hafi eðlilegan aðgang að heilsu- gæslu, t.d. í þeim tilgangi að fá getnaðarvarnir, en það er vitað að þær sækja í auknum mæli eftir læknisþjónustu til að óska eftir fóstureyðingu. Meðhöndlunin á þessum stúlkum er eins og á varn- ingi og vanhelgar virðingu allra kvenna,“ sagði Guðrún í ræðu sinni. Erlendar dansmeyjar sem eru starfandi á nektardansstöðum í Reykjavík Óska eftir fóstureyðingu í auknum mæli  Samvinna mikilvæg/26 FJÖLBREYTT dagskrá var í Fjöl- skyldu- og húsdýragarðinum í Laugardal í gær í tilefni af sum- ardeginum fyrsta og fylgdust börn- in af áhuga með því sem þar bar fyrir augu, eins og myndin ber með sér. Um allt land var sumarkom- unni fagnað þótt veður hafi verið misjafnt og mörg sýnishorn á ferð- inni. Morgunblaðið/Jim Smart Sumar- gleði ÍSLAND skipar sér í fremstu röð þjóða á alþjóðavísu hvað varðar stofnunar- og rekstrarkostnað at- vinnurekstrar í greinum eins og hugbúnaðargerð, lyfja-, efna- og heilbrigðisiðnaði, líftæknirann- sóknum, gagnavistun og þorskeldi samkvæmt samanburðarrannsókn í þessum efnum sem tekur til 115 borga í Evrópu, Ameríku og Jap- an. KPMG í Kanada hefur yfirum- sjón með rannsókninni og benda bráðabirgðaniðurstöður til þess að Ísland sé í einu af fimm efstu sæt- unum. Rannsóknin er unnin að frumkvæði almenns sviðs Fjárfest- ingarstofu, sem er arftaki Mark- aðsskrifstofu iðnaðarráðuneytisins og Landsvirkjunar og tekur til samkeppnishæfni íslensks rekstr- arumhverfis. Borinn er saman stofn- og rekstrarkostnaður í fjór- tán ólíkum atvinnugreinum í 115 borgum á svæðum í Evrópu, Am- eríku og Japan. Valgerður Sverrisdóttir iðnaðar- ráðherra minntist stuttlega á rannsóknina í eldhúsdagsumræð- um á Alþingi í fyrrakvöld. Hún sagði í samtali við Morgunblaðið að rannsókninni væri ekki lokið en þó væri komið í ljós að Ísland stæði mjög vel að þessu leyti. Rannsóknin tæki til allra helstu þátta sem skiptu máli fyrir fyr- irtækjarekstur. Aðspurð hvort þetta sýndi ekki að við værum fyllilega samkeppn- isfær að þessu leyti sagði hún svo vera. Þetta sýndi að við stæðum mjög framarlega í þessum efnum og það væri ánægjuefni. Páll Magnússon, stjórnarfor- maður Fjárfestingarstofu, sagði í samtali við Morgunblaðið að bráðabirgðaniðurstöður bentu til þess að við værum í einu af fimm efstu sætunum í þessari saman- burðarrannsókn, en fyrirhugað væri að kynna endanlegar niður- stöður í þessum efnum um mán- aðamótin. Aðild Íslands að samanburðar- rannsókninni er að frumkvæði al- menns sviðs Fjárfestingarstofu. Rannsóknin er unnin á vegum KPMG í Kanada, en KPMG á Ís- landi sér um að útbúa og miðla upplýsingunum um Ísland. Ísland í einu af fimm efstu sætunum Rannsókn á stofnunar- og rekstrarkostnaði í fjórtán atvinnugreinum í 115 borgum BRESKA blaðið Guardian skýrði frá því í gær að kona, sem ferðaðist und- ir íslensku nafni, hefði verið hand- tekin í Kólombíu í fyrra grunuð um að tengjast Írska lýðveldishernum, IRA. Konunni hefði verið sleppt vegna skorts á sönnunargögnum. Þetta kom fram í málflutningi sem nú fer fram í Washington í Banda- ríkjunum þar sem þingnefnd rann- sakar tengsl IRA við hryðjuverka- hópa m.a. FARC-skæruliða- hreyfinguna í Kólombíu. Í frétt Guardian segir að Fern- ando Tapias, yfirhershöfðingi kól- ombíska stjórnarhersins, hafi sagt er hann kom fyrir þingnefndina í Washington á miðvikudag að minnst sjö félagar í Írska lýðveldishernum hefðu verið á ferð í Kólombíu. Þrír hefðu verið handteknir í fyrra en þeir biðu enn dóms. Fjórir til við- bótar hefðu verið handteknir í apríl í fyrra en þeim hefði verið sleppt vegna skorts á sönnunargögnum. Á meðal þeirra hefði verið kona sem ferðast hefði undir íslensku nafni. Hershöfðinginn sagði IRA hafa veitt FARC-hreyfingunni aðstoð en viðurkenndi að hann hefði engin sönnunargögn handbær sem sönn- uðu að þeir sjö sem hann nefndi hefðu verið í landinu á vegum lýð- veldishersins. Kona með íslenskt nafn bendl- uð við IRA HÚSASKÓLI í Grafarvogi skemmd- ist töluvert í eldi í gærkvöldi eftir að eldur komst í klæðningu hússins. Samkvæmt upplýsingum frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins er augljóst að um íkveikju hafi verið að ræða. Slökkviliðinu barst tilkynning um eldinn um klukkan 21.45 í gærkvöld en upptök eldsins voru utandyra, við aðalinngang skólans. Voru menn frá tveimur stöðvum sendir strax á stað- inn og þegar þangað var komið hafði eldurinn náð að berast í klæðningu hússins og logaði glatt í henni. Slökkviliðsmenn höfðu áhyggjur af því að eldurinn bærist í þak húss- ins. Töluverður reykur myndaðist innandyra og kvað svo rammt að honum að reykkafarar voru sendir inn í húsið til reyklosunar. Valgerður Selma Guðnadóttir, skólastjóri Húsaskóla, átti ekki von á því í gærkvöld að skólahald í dag myndi raskast af völdum eldsins. Talsverðar skemmdir eft- ir íkveikju í Húsaskóla ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.