Morgunblaðið - 26.04.2002, Blaðsíða 21
DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. APRÍL 2002 21
OKKUR finnst rosalegagaman að skríða eftirgöngunum til að njósna ogskoða alls konar skrítna
hluti. Venjulega skríður Arnar Logi á
undan með vasaljós til að lýsa upp
göngin. Hann segir mér síðan hvort
við erum að nálgast beygju, mottu og
svoleiðis. Einu sinni þegar ég fann
bút úr dagblaði varð hann ekkert
smáafbrýðisamur og leitaði alveg á
fullu þangað til hann fann heilt dag-
blað. Sjáðu, bara! Morgunblaðið
sunnudaginn 30. ágúst árið 1959.“
Ástrós Helga Hilmarsdóttir, 11
ára, bendir sigri hrósandi á gulnað og
morkið Morgunblað á eldhúsborðinu
í risíbúðinni í Blönduhlíð 27. Arnar
Logi Ólafsson, 9 ára, frændi hennar
tekur íhugull upp blaðið og útskýrir
að skömmu eftir að hann hafi flutt í
íbúðina ásamt mömmu sinni hafi hún
uppgötvað að hægt væri að skríða all-
an hringinn í íbúðinni eftir skáparöð
undir súðinni.
Heimilislegt leyniherbergi
Skömmu síðar fóru frændsystkin-
in að kanna göngin nánar. „Við skrið-
um inn í göngin og fundum alls konar
skrítið dót. Húsið er gamalt og dótið
er greinilega frá mismunandi tíma.
Íbúarnir virðast hreinlega hafa
gleymt að flytja allt með sér,“ segir
Arnar Logi og tekur fram að frænd-
systkinin hafi m.a. fundið tóma
myndaramma, stóra glerflösku með
reipi og gamlar bjórflöskur. „Ekki
gleyma vélinni,“ skýtur Ástrós inn í.
„Hérna bakvið þilið er mjög dularfull
svört vél. Við getum kannski fengið
vélvirkja til að segja okkur hvernig
hún virkar,“ spyr Arnar Logi og Ást-
rós kinkar áhugasöm kolli.
Ástrós og Arnar Logi eru góðir
leikfélagar og bralla ýmislegt saman
í Blönduhlíðinni, t.d. hafa þau komið
sér vel fyrir í stórum skáp inn af bað-
herberginu. „Leyniherbergið er hluti
af göngunum,“ segir Arnar Logi.
„Sem getur verið ágætt,“ bætir
frænka hans við. „Eins og þegar Arn-
ar Logi þurfti nauðsynlega að fara á
klósettið og mamma hans var í baði
með læst að sér. Þá fór hann bara inn
í göngin í öðru herbergi og og kom út
um skápinn á baðinu. Mamma hans
var náttúrulega rosalega hissa þegar
hann birtist allt í einu og spurði hvort
hann mætti fara á klósettið!“
Arnar Logi segir að leyniherberg-
ið hafi upphaflega verið geymsla.
„Við löguðum bara dálítið til í því og
komum okkur síðan vel fyrir með
teppi og kodda.“ Eruð þið ekki líka
með eitthvert skraut? „Jú, við erum
búin að skreyta með alls konar
myndum, t.d. af Ford og Ferrari.
Þarna eru líka myndir af mér frá því
að ég var lítill, litir og litabækur og
alls konar hlutir til að dunda sér við.“
„Við erum líka búin að stofna
leynifélag – Rauða drekann – og för-
um stundum í njósnaferðir í göng-
unum,“ segir Ástrós. „Við laumumst
inn í göngin í einu herbergi og njósn-
um um hvað er verið að tala í öðru
herbergi, t.d. stofunni. Þilið er svo
þunnt að við heyrum alveg inn í göng-
inn hvað er sagt. Mamma Arnars
Loga gaf okkur gamalt svona upp-
tökutæki eins og blaðamenn nota og
stundum tökum við allt upp og skrif-
um niður í leynibók Rauða drekans.
Bókina geymum við í svartri möppu
með fleiri gögnum úr göngunum,“
bætir hún við. „Við nennum samt
ekki að njósna um allt, t.d. alls ekki ef
fólk er bara að tala um stjórnmál.“
Óskað eftir leiguíbúð
Krakkarnir eru sammála um að
Morgunblaðið úr göngunum líti alls
ekki út eins og Morgunblaðið í dag.
„Sjáðu! Hérna stendur að blaðið sé
bara 20 síður. Núna er Mogginn
venjulega um 60 síður. Letrið er oft
skrítið og þarna stendur að einhver
Björn hafi skrifað fréttina,“ segir
Ástrós og handfjatlar blaðið varlega.
„Aðalfréttin á forsíðunni er að Kín-
verjar ógni Indverjum og aftan á er
verið að tala um mýs hafi nagað org-
elið í Hóladómkirkju,“ bætir hún við
og rýnir í letrið á baksíðunni. „Hérna
niðri er líka einhver að auglýsa eftir
íbúð til leigu,“ segir Arnar Logi.
„Eigum við að prófa að hringja í
18658,“ segir hann og frændsystkinin
skellihlæja.
Þau Ástrós og Arnar Logi segjast
talsvert hafa velt því fyrir sér hvern-
ig best væri að geyma blaðið. „Við er-
um auðvitað með
fjársjóð í höndun-
um og verðum að
gæta hans vel,“
segir Arnar Logi
alvarlegur í bragði.
„Mér finnst að við
ættum að setja
blaðið í glerkassa,“
segir Ástrós og
horfir spyrjandi á
Arnar Loga. Hann
er greinilega ekki
jafnviss. „Ég held
að glerkassi væri
alltof dýr. Er ekki
bara nóg að setja
það í ramma?“ spyr
hann og frænd-
systkinin halda
áfram að velta því
fyrir sér hvernig
best sé að varðveita
Morgunblaðið
góða.
Þau eru þó bæði
sammála um að
Arnar Logi verði
að skilja eftir eitt
nýtt eintak af Morgunblaðinu þegar
hann og mamma hans flytja úr íbúð-
inni eftir nákvæmlega 36 daga. „Ég
ætla að setja blaðið í plastpoka og
skilja hann síðan eftir í göngunum.
Þá getur verið að einhver annar
krakki finni hann eftir mörg, mörg
ár. Mig langar líka til að láta fylgja
með stutt skilaboð um hver við erum
og hvers vegna við ákváðum að skilja
blaðið eftir.“
F R Æ N D S Y S T K I N I F I N N A M O R G U N B L A Ð F R Á 1 9 5 9
Gulnuð
blöð
í dimmum göngum
Gömul hús hafa oft að
geyma forvitnileg
skúmaskot og um-
merki um forna tíð.
Anna G. Ólafsdóttir
leit inn í höfuðstöðvar
leynifélagsins Rauða
drekans og fékk upp í
hendurnar Morgun-
blað frá árinu 1959.
Morgunblaðið/Sverrir
Frændsystkinin Ástrós og Arnar Logi í leyniherberginu.
ago@mbl.is
meistar inn. is
HÖNNUN LIST
N
ÝJ
A
R
VÖ
RU
R
•
K
O
M
D
U
O
G
K
ÍK
TU
Á
Ú
RV
A
LI
Ð
AU
Ð
VELT
AÐ
PAN
TA
•
VÖ
RU
RN
AR
KEYRÐ
AR
H
EIM
AÐ
D
YRU
M
Pöntunarlínan opin til 22 alla daga Sími: 565 3900
Freemans • Bæjarhrauni 14 • 220 Hafnarfjörður
N
ÝR
LISTI
K
O
M I N N
Ú
T
www.freemans.is
Glæsileg gjöf
fylgir öllum pöntunum