Morgunblaðið - 26.04.2002, Page 38

Morgunblaðið - 26.04.2002, Page 38
FRÉTTIR 38 FÖSTUDAGUR 26. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ hefur mikilvægu hlutverki að gegna við að laða að eftirsóknarverð fyrir- tæki með því að kynna svæðið innan lands og utan. III. Nýsköpun í ferðaþjónustu Ferðaþjónusta er einn helsti vaxt- arbroddurinn í atvinnulífi Reykvík- inga. Styðja á við uppbyggingu henn- ar í skipulagi og atvinnu- og menningarstefnu borgarinnar. Átak þarf að gera í að kynna náttúru og útivistarmöguleika í heilsuborginni Reykjavík. Menningarborgina Reykjavík á að styrkja enn frekar með kynningu menningarviðburða og stuðningi borgaryfirvalda við sjálfstæða listhópa, listahátíðir af ýmsum toga og alþjóðleg íþróttamót. Tónlistar- og ráðstefnuhús við höfn- ina og sýningarhús í Laugardal sem stenst alþjóðlegar kröfur geta gert Reykjavík að alþjóðlegri sýninga- og ráðstefnuborg. IV. Þjónusta við atvinnulífið Framsækið atvinnulíf byggist ekki síst á frumkvæði einstaklinga, fyrir- tækja og háskóla- og rannsókna- stofnana þar sem hugmyndir kvikna. Mikilvægur hluti af þjónustuhlut- verki borgarinnar við atvinnulífið er að greiða götu þeirra sem leita upp- lýsinga, óska leiðbeininga eða stuðn- ings borgarinnar. Öll mál eiga að fá vandaða og sanngjarna meðferð, í samræmi við jafnræðis- og sam- keppnissjónarmið. Hið blómlega starfsumhverfi sem borgin hefur að bjóða fyrirtækjum á að kynna af krafti innan lands og utan. Alþjóðlegur borgarbragur – áherslur og framtíðarsýn  Listahátíð verði árleg. Menning- arnótt, Vetrarhátíð og Hátíð hafs- ins setji í vaxandi mæli svip á borgarlífið.  Stuðningur við alþjóðlega menn- ingarviðburði og íþróttamót.  Bakland miðborgarinnar verði styrkt með nýrri íbúðarbyggð í Skuggahverfi, í Vatnsmýri og á uppfyllingu í Ánanaustum.  Endurskipulagning og uppbygg- ing á vannýttum svæðum í mið- bænum, við höfnina, Laugaveg, í Kvosinni og við Hverfisgötu.  Bílastæðahús á Laugavegssvæð- inu. I. Iðandi mannlíf Í Reykjavík á að skapa umhverfi og aðstæður þar sem borgarbúar og gestir þeirra geta notið lífsins hvort heldur er í iðandi mannlífi eða frið- sæld náttúrunnar. Listahátíð, Menn- ingarnótt, Vetrarhátíð og Hátíð hafs- II. Hæfileikar einstaklinga Skólinn á að gefa hverjum nemanda kost á að rækta hæfileika sína og auka styrk sinn með því að sérhver nemandi fái kennslu og við- fangsefni við hæfi. Námserf- iðleika og þroskafrávik nem- enda á að greina snemma á skólagöngu og bæta á að- búnað stuðningskennslu til að hæfileikar nemenda nýt- ist sem best. Afburðanem- endur á að styrkja með ögr- andi og spennandi verkefnum. III. Góður samfelldur skóladagur Með samvinnu skóla við íþróttafélög, tónlistarskóla, menningarstofnanir borgar- innar og frjáls félagasamtök í hverju hverfi verður tryggt að einsetning gefi fjölbreytta viðbót við skólastarfið. Skólar eiga að vera menningarmiðstöðvar í hverju hverfi og opnir fyrir margs konar starfsemi sem fer fram á vegum hverfisbúa. IV. Þátttaka foreldra auðvelduð – greiðar götur. Foreldrar hafa ríku hlutverki að gegna við að móta og fylgja eftir ein- staklingsmiðaðri námsskrá barna sinna í samvinnu við umsjónarkenn- ara. Foreldrar eiga að geta tekið milliliðalausan þátt í skólastarfi barna sinna og stefnumótun viðkom- andi skóla. Nýta á kosti sjálfstæðra skóla til að móta bestu leiðir á hverj- um stað til að virkja foreldra enn frekar í starfi skólans og stefnumót- un. Framsækið atvinnulíf – áherslur og framtíðarsýn  Tónleika- og ráðstefnuhús auk hótels rísi við Austurhöfnina.  Átak í heilsu- og menningar- tengdri ferðaþjónustu.  Skipulag og markaðssetning Þekkingarþorps í Vatnsmýri.  Sýningarhús í Laugardal sem stenst alþjóðlegar kröfur.  Hagkvæm virkjun undirbúin á Hellisheiði.  Endurskipulagning og uppbygg- ing hafnarsvæða. I. Traust umgjörð er uppspretta hugmynda Reykjavík á að búa framsæknu at- vinnulífi og frumkvæði borgarbúa umgjörð þar sem hug- myndir verða að veru- leika, sprotafyrirtæki geta vaxið og atvinnulíf dafnað. Lykilatriði í stefnu borgarinnar er að treysta innviði atvinnulífsins með lágu orkuverði, samkeppni á ljósleið- aramarkaði með öflugri upplýsinga- hraðbraut, skipulagningu nýrra og öflugra vaxtarsvæða í Vatnsmýri, á hafnarsvæðum og í tengslum við ný íbúðarsvæði í útjaðri borgarinnar. Mikilvæg þjónustufyrirtæki eins og Orkuveitan og Reykjavíkurhöfn eiga að vera áfram í eigu borgarinnar og þjóna atvinnulífinu. II. Þekkingarþorp í Vatnsmýri Þekkingarþorp á að rísa í Vatns- mýri. Þar sem háskólasamfélagið og framsækið atvinnulíf mætast á að skapa miðstöð vísinda, nýsköpunar-, frumkvöðla- og þekkingarfyrirtækja. Heildarsvipur svæðisins og skipulag eiga að stuðla að blómlegu mannlífi og íbúðarbyggð sem verður í lifandi sambýli við miðbæjarsvæðið. Borgin REYKJAVÍKURLISTINN kynnti í gær stefnuskrá listans vegna borg- arstjórnarkosninganna í vor. Ein- kunnarorð kosningabaráttunnar eru Það gerist í Reykjavík. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri fylgir stefnuskránni úr hlaði með ávarpi til Reykvíkinga. Ávarpið og stefnuskrá- in eru birt hér í heild, fyrst ávarp Ingibjargar Sólrúnar: „Ég geng glöð og stolt til komandi kosninga og þakka fyrir það endur- tekna traust sem mér hefur verið sýnt sem oddviti Reykjavíkurlistans. Stefnuskrá Reykjavíkurlistans er ábyrg, sókndjörf og stórhuga. Hún snýst um lífsgæði borgarbúa og hvernig Reykjavík býr sig undir vax- andi samkeppni um fólk og fyrirtæki. Reykvíkingar og landsmenn allir eiga mikið undir því að tækifærin sem blasa við verði nýtt. Reykjavík á að vera borg þar sem fólki finnst gott að búa. Heimsborg og heimabær í senn þar sem við vinnum öll saman að mótun framtíð- arinnar. Framtíðarsýn og áherslurReykja- víkurlistans, Það gerist í Reykjavík, skiptast í sex meginþætti sem skipta munu sköpum að mínu mati:  Öflugt skólastarf.  Framsækið atvinnulíf.  Umhverfi og útivist.  Alþjóðlegur borgarbragur.  Samstaða og samhjálp.  Nútímalegir stjórnarhættir. Reykjavíkurlistinn hefur unnið að því að umbreyta borginni úr valda- stofnun í þjónustufyrirtæki í þágu borgarbúa. Bygging og stækkun skólahúsnæðis jafngildir því að átta Ráðhús hafi verið reist á ferli okkar. Fjárfesting okkar í leikskólamálum jafngildir einum jarðgöngum. Ný orkuver skapa auð hvern einasta dag og nýtt borgarskipulag opnar sýn á gjörbreytta og betri borg. Stoltust erum við þó af því að vera hluti af þeim borgarbrag og mannlífi sem Reykjavík hefur upp á að bjóða. Þessari uppbyggingu viljum við halda áfram í samstarfi við Reykvík- inga. Framtíðarsýn okkar og áherslur liggja fyrir. Það er von mín að kjós- endur kynni sér þær vel. Við vitum hvað áform okkar kosta og höfum gert ráð fyrir þeim innan marka fjárhagsáætlunar. Við höfum tímasett verkefni og gert áætlun um aðgerðir. Í starfi mínu sem borgar- stjóri hef ég alltaf haft heilindi að leiðarljósi. Stefna okkar er lögð fram í þeim anda. Ég hlakka til að ræða við ykkur í kosningabaráttunni, kynna sterkan og samhentan lista og stefnu sem færir Reykjavík inn í nýja öld. Sumardaginn fyrsta, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir.“ Öflugt skólastarf – áherslur og framtíðarsýn Stefnuskrá Reykjavíkurlistans fer hér á eftir:  „Öll börn eldri en átján mánaða eigi kost á leikskólaþjónustu. Öll- um börnum verði tryggð niður- greidd dagvist.  Hluti af skólastarfi fimm ára leik- skólabarna verði ókeypis.  Samvinna við íþrótta- félög, tónlistarskóla og frjáls félagasamtök um fjölbreytta viðbót við skóladag grunnskóla eftir að kennslu lýkur.  Skólamáltíðir í öllum grunnskól- um borgarinnar.  Skólar verði menningarmiðstöðv- ar í hverju hverfi og opnir fyrir fjölbreyttri starfsemi sem fram fer á vegum hverfisbúa. I. Jafnrétti til náms – sjálfstæðir skólar Kjarninn í skólastefnu Reykjavík- urlistans er jafnrétti til náms, skóli án aðgreiningar og sjálfstæðir skólar þar sem tilraunastarf, framþróun í kennsluháttum og sköpunarkraftur nemenda, kennara og skólastjórn- enda fá svigrúm til að blómstra. Góð- an árangur á að launa að verðleikum. Fyrir atbeina Fræðslumiðstöðvar og Leikskóla Reykjavíkur á að miðla nýjungum inn í skólakerfið þannig að öll börn í Reykjavík geti notið þess sem vel reynist. ins eiga að verða árlegir viðburðir sem skipulagðir eru í samvinnu við fólkið og fyr- irtækin í borginni. Menningu og listum á að flétta saman við skólastarf, atvinnulíf og starfsemi stofnana og fyrir- tækja borgarinnar því hug- myndaauðgi á alls staðar heima. Uppbyggilegar hug- myndir sem krydda borgar- lífið á að styðja. II. Lifandi borg Reykjavík á að vera lifandi borg sem býður upp á lífs- gæði eins og þau gerast best. Lykilþættir í nýju aðalskipu- lagi stefna allir að þessu marki: Byggð verður þétt, at- vinnulíf eflt og miðborgin endurnýjuð. Áhugaverð at- vinnutækifæri og fjölskyldu- líf á að tengja með því að blanda saman íbúðum og atvinnu- starfsemi í nýjum borgarhlutum. Íþróttamannvirki, bókasöfn, skólar, leikvellir og félagsmiðstöðvar eru miðpunktar mannlífs sem áfram verða byggðir markvisst upp. Nátt- úrusvæði á að vernda og auðvelda á aðgang íbúa, fatlaðra jafnt sem ófatl- aðra, að útivistarsvæðum. Efna á til umræðu um hlutverk og markmið náttúruverndar í borgarlandinu. III. Blómstrandi miðbær Iðandi mannlíf og blómlegt listalíf eru úrslitaatriði í borg þar sem er gott að búa. Tónlistar- og ráðstefnu- hús á að rísa á hafnarsvæðinu til merkis um stórhug í menningar- og atvinnumálum. Metnaður á að ein- kenna endurgerð og uppbyggingu á vannýttum svæðum í miðbænum, við höfnina og Laugaveg. Bakland mið- borgarstarfsemi verður einnig styrkt með nýrri íbúðabyggð í Skugga- hverfi, í Vatnsmýri og á uppfyllingu í Ánanaustum. Ekki verða veitt leyfi fyrir nýjum nektarstöðum í borginni. IV. Samstarf innan hverfa Borgarhverfin eiga að fá svigrúm til að nýta sérstöðu sína og styrk. Al- menna þjónustu borgarstofnana á að veita í hverfamiðstöðvum í sem best- um tengslum við íbúa. Stuðla á að samvinnu íþróttafélaga, skóla, fé- lagsmiðstöðva, foreldrafélaga og annarrar starfsemi hverfanna til að mynda lifandi heild þar sem frum- kvæði og kraftur fólks á öllum aldri fá notið sín. Stofnun hverfaráða er leið til að borgarstjórn geti átt samráð og sam- vinnu við íbúa um þróun hverfanna og þjónustu borgarinnar. Nútímalegir stjórnarhættir – áherslur og framtíðarsýn  Traust fjármálastjórn. Sjálfstæð Borgarendurskoðun sem sjái um virkt innra eftirlit í borgarkerfinu.  Hverfamiðstöðvar í öll hverfi.  Hverfaráð sem annist gerð þróun- aráætlunar fyrir einstök hverfi og ráðstafi fjárveitingum fyrir grenndarverkefni.  Lýðræðisverkefnið Greiðar götur sem styrkir stöðu almennings til að móta nánasta umhverfi sitt. I. Traust fjármálastjórn Ábyrg og traust fjármálastjórn er forsenda þess að unnt sé að ná sett- um markmiðum. Þá kröfu verður að gera til áætlana að þær standist. Innra eftirlit á að efla með sjálf- stæðri Borgarendurskoðun sem fær breytt hlutverk til að veita virkt að- hald í borgarkerfinu. Upplýsingar um borgarreksturinn eiga að vera öllum aðgengilegar til að skapa traust, eðlilegt aðhald og eftirlit. Hagtölur Reykjavíkur á að gefa út á Netinu með helstu kennitölum úr rekstri borgarinnar, efnahagsum- hverfi og atvinnulífi Reykjavíkur. II. Góð og skilvirk þjónusta Sett verða ný og metnaðarfull þjónustumarkmið stofnana og fyrir- tækja borgarinnar þar sem þær væntingar og kröfur sem borgarbúar geta gert til borgarinnar koma fram. Þar verður meðal annars kveðið á um hversu langur tími er eðlilegt að líði frá því að sótt er um leikskólapláss þar til svör eru fengin. Jafnframt verða markmið þjónustunnar skil- greind. Þjónustumarkmið fela í sér að Reykvíkingar eigi rétt á faglegri þjónustu, skilvirkni og góðri nýtingu fjármuna. Borgin á að taka upp stöð- ugt árangursmat á sem flestum svið- um til að veita stofnunum og starfs- mönnum hvetjandi aðhald. III. Opin stjórnsýsla – greiðar götur Reykjavíkurlistinn vill auka íbúa- lýðræði og efna til sérstaks verkefnis í því skyni. Greiðar götur er heiti á fjölþættu lýðræðisverkefni sem felst í því að skýra það hvernig almennir borgarar geta tekið þátt í ákvörðun- um og stefnumótun í borginni. Með því að greiða götur íbúanna að ákvörðunum er viðurkenndur réttur einstaklinga til að taka þátt í að móta nánasta umhverfi sitt. Sjónum verð- ur sérstaklega beint að rétti til upp- lýsinga, þátttöku og réttlátrar máls- meðferðar. IV. Tilraunasamfélag nýrrar tækni Í Reykjavík á að vera greiður að- gangur að upplýsingahraðbrautinni. Með nýrri tækni má skapa umræðu- vettvang og efla samráð borgarbúa og borgarstjórnar. Leitað verður samstarfs við erlendar borgir og há- skólastofnanir innan lands og utan í því skyni að kanna kosti og galla mis- munandi samráðsaðferða. Umhverfi og útivist – áherslur og framtíðarsýn  Forgangur strætisvagna á megin- leiðum og ferðum fjölgað á álags- tímum.  Lífríki Elliðaánna og hreinsun strandlengjunnar.  100 kílómetrar af nýjum og end- urbættum göngu-, hjóla- og reið- stígum.  Flokkunarstöðvum fjölgað og end- urvinnsla aukin.  Lokafrágangur Ylstrandar í Naut- hólsvík.  Uppbygging sundlauga, vatnapa- radís byggð í Laugardal.  Fleiri og endurbættir sparkvellir fyrir almenning. I. Umhverfisborgin Reykjavík Reykjavík á að byggja tilveru sína á hugmyndafræði sjálfbærrar þróun- ar. Staðardagskrá 21 á að vera und- irstaða í allri stefnumörkun borgar- innar, þar sem efnahagslegir, félagslegir og umhverfislegir þættir eru samofnir. Umhverfisfræðsla á að vera sjálfsagður hluti skólastarfs. Í samstarfi við borgarbúa skal keppt að því að Reykjavík verði meðal hreinustu höfuðborga heims. Stefnt er að hag- kvæmri virkjun hreinnar orku á Hellisheiði. Ljúka á hreinsun strandlengj- unnar og hefja endurbæt- ur á eldri skólplögnum. Stefna á að því að draga úr sorpi. Endurskipu- leggja á sorphirðu, fjölga flokkunar- stöðvum þannig að þær séu í göngu- færi frá flestum heimilum og efla endurvinnslu. II. Íþróttir og heilsurækt Íþróttir og heilbrigð hreyfing eiga að vera snar þáttur í borgarlífinu. Uppbygging og endurbætur á sund- laugum og íþróttamannvirkjum eiga að halda áfram. Félagasamtök gegna mikilvægu hlutverki innan borgar- hverfanna og þeim á að tryggja skil- yrði til að vaxa í takt við íbúaþróun, þjónustuhlutverk sitt og ný verkefni. Borgaryfirvöld eiga að hvetja til og styðja við samstarf skóla, menning- arstofnana, félagsmiðstöðva, íþrótta- félaga, eldri borgara, fatlaðra og frjálsra félagasamtaka. Reykjavíkurlistinn kynnir stefnuskrá fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor Borg þar sem fólki finnst gott að búa Tímasett verk- efni og áætlun um aðgerðir Greiða götur íbúanna að ákvörðunum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.