Vísir - 26.06.1980, Blaðsíða 9

Vísir - 26.06.1980, Blaðsíða 9
Fimmtudagur 26. júni 1980. 9 ,,A þaö hefur veriö bent, aö toltkrít getur sparaö miiljaröa króna og sá sparnaöur kemur aö sjálfsögöu almenningi til góöa fyrst og fremst.” i iok nýafstaöins þings fluttu fimm þingmenn Sjálfstæöis- flokksins og Alþýöuflokksins þrjú frumvörp til breytinga á lögum um tollheimtu og toll- eftirlit og tollskrárlögum. Þess- ir þingmenn voru Matthias Á Matthiesen, Árni Gunnarsson, Albert Guömundsson og Sverrir Hermannsson auk greinarhöf- undar. Eitt þessara frumvarpa var um heimild toilstjóra til aö veita greiöslufrest á aöflutn- ingsgjöldum eöa TOLLKRÍT eins og þaö er venjulega nefnt. Hin tvö eru tillögur til nauösyn- legra og æskilegra breytinga á tollalögum vegna toliskrárinn- ar. Frumvörpin voru ekki út- rædd á þingi, en fengu góöar undirtektir þeirra, sem til máls tóku. Hagsmunamál al- mennings Tollkrlt hefur um árabil veriö heimiluö I viöskipta- og ná- grannalöndum okkar og gefist vel aö flestra áliti. Þess vegna hefur tollkritarmáliö um nokk- urt skeiö veriö áhugamál is- lenskra innflytjenda, sem hafa reynt aö vekja áhuga yfirvalda og almennings á málinu. Þrátt fyrir skolningsskort á gildi verslunarinnar og greiöari vörudreifingu, viröist eitthvaö hafa rofaö til I þessum efnum. Á þaö hefur veriö bent, aö tollkrit getursparaö milljaröa króna og sá sparnaöur kemur aö sjálf- sögöu almenningi til góöa fyrst og fremst. Tollkrit er þess vegna ekki siöur hagsmunamál neytenda en innflytjenda. Góðar undirtektir vekja bjartsýni Þótt flutningsmenn frum- varpanna þriggja væru aöeins úr hópi stjórnarandstööuþing- manna voru undirtektir á Alþingi meö þeim hætti aö ætla má, aö máliöeigi visan stuöning meirihluta þingmanna. Sumir þingmenn Framsóknarflokks- ins hafa ldtiö I ljós áhuga á mál- inu, en vilja skoöa tillögurnar betur. Ragnar Arnalds sagöi frá þvl, aö athugun I málinu ætti sér nú staö hjá fjármálaráöuneyt- inu og yröi unniö aö þeirri at- hugun I samvinnu viö fjárhags- og viöskiptanefndir þingsins. Dr. Gunnar Thoroddsen for- sætisráöherra tók einnig til máls um tollkritarmáliö og lýsti stuöningi viö máliö og boöaöi stjórnarfrumvarp um máliö næsta haust. Ályktanir aðila viðskiptalífsins. Haustiö 1976 hélt Félag Isl. stórkaupmanna ráöstefnu, sem fjallaöi aö megínefni til um toll- krit. Þangaö var boöiö fjár- málaráöherra Matthiasi Á. Mathiesen. Hann hefur sagt mér, aö þáverandi formaöur FIS, Jón Magnússon, hafi stungiö aö sér aö vinna aö mál- inu. Matthias skipaöi voriö 1977 nefnd, sem skilaöi itarlegu áliti eins og oftlega hefur veriö vitn- aö til. Lagafrumvarpiö um toll- krit er aö meginefni til byggt á niöurstööum nefndarinnar, en hún skilaöi af sér sumariö 1978. Þá var skammt til stjórnar- skipta og siöan hefur ekkert veriö gert af hálfu þings né rikisstjórnar fyrr en á þessu vori. Samtök atvinnulifsins héldu málinu þó allan timann vakandi og á viöskiptaþingi Verslunar- ráös Islands, sem haldiö var i april 1979 voru tollamál sérstak- ur liöur á dagskrá. Var þar samþykkt aö vinna aö fram- gangi tillagna um breytingu á lögum um tollheimtu og toll- eftirlit, þar sem aö þvi væri stefnt aö: 1. Aöskilja vöruskoöun, tollaf- greiöslu og meöferö tollskjala annars vegar og flutning vör- unnar hins vegar, þannig að vöru megi flytja beint frá skipi I vörugeymslu innflytj- anda. 2. Gera tollyfirvöldum mögu- legt aö taka upp reikningsviö- skipti viö innflytjendur aö þvi er varöar innheimtu aöflutn- ingsgjalda. 3. Kostnaður viö tollheimtu og tolleftirlit sé borinn af rikis- !■■■■■■■» neöanmóls Friðrik Sophusson, alþingismaður, fjaiiar hér um hugmyndir, sem fram hafa komið um að veita greiðslufrest á að- f lutningsgjöldum, eða tollkrít, eins og það hefur verið nefnt. Slíkt segir hann ekki síður hags- munamál neytenda en innf lytjenda. sjóöi eins og viö aöra lög- gæslu, enda nýtur hann tekn- anna, auk þess sem stjórn- völd ákveöa umfang eftirlits- ins. Með þvl er stefnt aö auk- inni hagræöingu i störfum tollgæslunnar. Tollkrlt leiðir til lægra vöruverðs Segja má, aö sjálft tollkritar- frumvarpiö svari til þeirrar stefnu, sem fram kemur I tölulið nr. 2 hér aö framan. 1 nefndar- áliti tillanefndarinnar og I greinargerö frumvarpsins er bent á, aö tollkrlt örvi innflytj- endur til lægra vöruverös vegna magnafsláttar. Nefndin bendir á, aö hafnir nýtist betur. Fljót- ari afgreiðsla lækki vöruverö en hér á landi liggi vörur a.m.k. fimm sinnum lengur i vöru- geymslum skipafélaganna og veldup miklum kostnaöi. Meö minnkandi heildarbirgöum vegna greiöari verslunar fæst sparnaöur vegna minni vaxta- 'kostnaöar. Sérfræðingar telja, aö sparnaöur geti numiö 1700- 1800 milljónum króna vegna lægri vaxta og minni tjóna- hættu, ef varan stöövast einni viku skemur i jafnaskemmum en nú gerist. Er þá ótalinn ann- ar augljós sparnaöur. Meginefni fylgifrumvarpanna Eins og áöur hefur komið fram fylgdu tollkritarfrum- varpinu tvö önnur frumvörp um tollamál. 1 örstuttu máli má segja, aö efni þeirra sé eftirfar- andi: 1. Greiöari innflutningur til fleiri staöa. meö fjölgun toll- hafna og liprari starfsreglum fyrir innflytjendur. 2. Innflutningsleiöin er fram- lengd alla leiö i geymslu inn- flytjanda ns i staö þess aö enda á hafnarbakkanum. Þetta þýöir m.a., aö ýmsar reglur um farm- flutning, tolla og tjón gilda frá skipshliö til geymslusvæöis inn- flytjenda. 3. Gert er ráö fyrir aö afnema ýmis úrelt lagaákvæöi um farmflytjendur, sér i lagi vegna nýrrar flutningatækni, sem rutt hefur sér til rúms. 4. Starf svokallaöra flutnings- miölara er auöveldaö, en slikt getur leitt til samvinnu margra smærri innflytjenda. 5. Meö breytingartillögum á tollskrárlögum er stefnt að toll- frelsi framhaldsflutnings (transit). Slikt fyrirkomulag opnar möguleika á innflutningi héöan til nágrannaþjóöa. Hugs- anlegt væri aö setja á stofn toll- frjálst iönaöarsvæöi i þessu sambandi eins og Karl St. Guðnason og fleiri alþingis- menn hafa lagt til. 6. Loks eru 1 frumvörpunum nokkrar minni háttar breyt- ingartillögur. Ein er þó þeirra veigamest, en hún gerir ráð fyrir afnámi bankastimplunar á tollskjöl. Hver á að greiða tollkostnaðinn? Eins og fyrr var sagt íagöi viöskiptaþingiö 1979 áherslu á, aö kostnaöur viö tollheimtu og tolleftirlit væri borinn af rfkis- sjóði eins og kostnaöur viö aöra löggæslu. Flutningsmenn frum- varpsins töldu rétt aö þessi viö- horf yrðu athuguö betur, enda þarf aö kanna þann iðgjalda- auka, sem slikt skapaöi fyrir rikissjóö. Enn fremur er ástæöa til aö rannsaka fyrirkomulag þessarar starfsemi erlendis. Aöalatriöiö er, aö tollkostnaöur veröi sem minnstur án þess aö árangurinn af toílgæslunni veröi lakan. Um þessi atriöi er nánar fjallaö i greinargerö meö einu frumvarpanna og væntanlega veröur máliö athugaö hjá rlkis- stjórn og fjárhags- og viöskipta- nefnd Alþingis I sumar. Hagræðing hjá tollstjóra Innan tollstjóraembættisins rlkir skilningur á nauðsyn greiöari millirikjaverslunar. Tollstjórinn I Reykjavik, Björn Hermansson, fyrrum deildar- stjóri fjármálaráöuneytisins, var einn af nefndarmönnunum, sem geröu tillögur um tollkrlt. Um þessar mundir fer fram á vegum innanhússnefndar em- bættisins alvarleg skoöun á nýj- um aöferðum vi meöferö toll- skjala. Markmiöiö er aö tækni- væöa kerfiömeönotkun tölva og koma I veg fyrir tviverknaö opinberra stofnana. Upplýsing- ar Ur tollskjölum fara um hend- ur Hagstofunnar, Rikisendur- skoöunar, verölagsstjóra og bankanna auk skrifstofu toll- stjóra. Þaö er þvl mikilvægt, aö heildaryfirlit sé á einum staö. Meö skilvirkari vinnubrögðum I tollskjalakerfinu er enn rennt stoöum undir greiöari og ódýr- ari verslun. Tollkrit — Fyrir hverja? En er ekki tollrkitin aöeins fyrir heildsalana til aö þeir græöi meira? Svariö er nei. Auövitaö veröa innflutnings- fyrirtækin aö græöa til aö geta staöiö undir þeirri þjónustu, sem þau veita, en neytendurnir græöa fyrst og fremst meö lægra vöruveröi. Skv. tollkritarfrumvarpinu geta tollstjórar veitt greiöslu- frest hjá fyrirtækjum, sem stunda innflutningsverslun aö aðalatvinnu, þar á meöal flutn- ingsmiölurum og umboösmönn- um innlfutningsfyrirtækja. 1 bæklingi sem samtökin ,,Viö- skipti og verslun” gáfu út, kem- ur I ljós aö 200 innflytjendur flytja inn 2/3 af verömæti alls innflutningsins. Þess vegna má imynda sér aö um þaö bil 300 innflytendur myndu nýta sér heimild tollstjóra miðaö viö nú- verandi aöstæöur. Tilgangur flutningsmanna þeirra þriggja frumvarpa, sem sagt hefur veriö frá I þessari grein, er aö flýta fyrir þvi, aö verslunin geti skilaö betri árangri og lægra vöruverði meö þvi aö liöka fyrir I innflutnings- kerfinu. Undirtektir rikisstjórn- arinnar og stjórnmálamanna úr öllum flokkum ásamt skilningi embættismanna benda til þess aö tollkrft veröi heimiluö innan skamms. Þá kemur vonandi I ljós, aö tollkritin leiöir til lækk- unar á vöruveröi og þar meö til betri lifskjara. Þess vegna er tollkrit hagsmunamál allra neytenda. Friörik Sophusson alþm. Slðndum sameinuð um hæfasta frambjóðandann Þeir sem hafa fylgst meö for- setaframbjóöendum undanfariö hafa eflaust gert upp hug sinn. Flestir eru sammála um aö allir séu þeir hæfir. En þá vaknar spurningin, hver er hæfastur, hver hefur besta framkomu og yröi íslandi til vegs og viröingar á alþjóðavettvangi? Þeirri spurningu get ég svaraö meö sannfæringu eftir aö hafa fylgst á hlutlausan hátt meö fram- bjóöendum. Ég fullyröi aö þaö er tvimælalaust Vigdis Finn- bogadóttir. En hvers vegna? Mig langar meö nokkrum oröum aö færa rök fyrir máli mlnu. Vigdis hefur mjög lit- rikan persónuleika, og mikla hæfileika til aö umgangast og ná til fólks. Málflutningur hennar hefur veriö mjög jákvæöur og rökfastur, hún kemur fyrir sig oröi á skemmtilegan hátt og hefur sýnt góöa ræöumennsku. Þrátt fyrir ýmis óþægindi, sem óhjákvæmilega fylgja þvi aö vera I framboöi til forseta, þá hefur Vigdis alltaf sýnt létt- leika, og aldrei svaraö meö nei- kvæöu viömóti til náungans. Auk þessa er annaö mjög mikilvægt: Sigur Vigdisar yröi sigur jafnréttisins. Ekki aöeins hér á Islandi heldur liöur i stærri sigri kvenna um allan heim. Aö vel hugsuöu máli undanfariö þá hef ég sannfærst um þaö, aö sigur Vigdisar myndi vekja mikla athygli viða um lönd og veröa hvatning i jafnéttisbaráttu kvenna. Nú þegar hefur framtak hennar aö bjóöa sig fram til forseta vakið mikla athygli erlendis. Mjög at- hyglisvert er aö konur hafa nú tækifæri til aö hafa úrslitaáhrif á útkomuna. Ég trúi þvi aö sem flestir sameinist um Vigdisi. Þeirri spurningu hefur oft veriö varpaö fram I fjölmiölum undanfariö hvaöa eiginleikum forsetinn þarf aö vera gæddur. Hvaöa skilyröi þarf aö uppfylla til aö veröa forseti lslands? Mig langar til aö svara þessari spurningu á minn persónulega hátt. Ég tel aö forseti Islands þurfi aö vera opin og litrik per- sðna sem nær til fólksins, aö öörum kosti gæti myndast djúp gjá þar á milli. Sllkt er mjög óæskilegt og óheillavænlegt, þ.e.a.s. ef þjóöhöföinginn er I engum tengslum viö sitt fólk. Forsetinn þarf aö vera vel menntaöur, hafa góöa og lát- lausa framkomu, vera vel aö sér i sögu, menningu og stjórnarfari landsins, og þekkja sögu og tungumál annarra þjóöa. Hann má ekki tengjast neinum hagsmunasamtökum, peningavaldi eöa ööru sliku, þvi forsetinn er imynd þjóöarinnar og eigin hagsmunir mega þar hvergi koma nærri. Sumir munu eflaust telja þetta of mikla upp- talningu um valdalausan for- seta. En þeim mönnum skal bent á aö hér er ekki um völd aö ræöa, heldur um þjóöhöföingja lýöveldisins Islands. Persóna - forseta tengist ósjálfrátt flest- um lslendingum og er imynd þjóöarinnar út á viö. Þaö þarf þvi aö vanda valiö vel. Ég er sannfæröur um aö Vigdis Finn- bogadóttir uppfyllir öll þessi skilyröi og eiginleika, sem góöur forseti Islands þarf aö vera gæddur. Grein þessa skrifa ég ekki neðanmóls Björgvin Björgvinsson fjallar hér um forseta- kosningarnar og segir aö sigur Vigdísar Finnboga- dóttur yrði sigur jafn- réttisins. vegna þrýstings frá einhverjum heldur vegna eigin sann- færingar. Björgvin Björgvinsson

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.