Vísir - 30.06.1980, Síða 1
f"Tvísýn 7aÍni"ng"atkvæöa“rförsetaKÖsnTngunum í alla nótt:
I vigdfs sigraðl Guölaug
! með 1906 atkvæða munl
Vigdis Finnbogadóttir hefur verið
kjörin forseti tslands næsta kjörtima-
bil. Hún hlaut samtals 33.6% greiddra
atkvæða i forsetakosningunum i gær, en
skæðasti keppinautur hennar, Guð-
laugur Þorvaldsson, fékk 32.2% at-
kvæðanna. Þegar talningu lauk i
morgun skildu 1906 atkvæði þau að.
Aðrir frambjóðendur fengu mun minna
fyigi-
Talning atkvæöa gekk vel fyrir sig um allt land, og
endanleg úrslit lágu fyrir um kl. átta i morgun.
Allnokkru áöur, eöa siöla nætur, varö þó oröiö ljóst, aö
Vigdis næöi kjöri.
Mjög mjótt var á mununum hjá Vigdlsi og Guölaugi
fram eftir nóttu, og stundum skildu innan viö eitt
hundraö atkvæöi á milli þeirra. Þegar endanlegar
tölur komu úr Reykjavik, eftir talningu utankjör-
fundaratkvæöa þar, varö hins vegar ljóst, aö Vigdis
færi meö sigur af hólmi, og biliö breikkáöi siöan smátt
og smátt.
Endanleg úrslit.
Endanleg úrslit fyrir landiö allt eru sem hér segir:
Vigdis Finnbogadóttir
Guölaugur Þorvaldsson
Albert Guömundsson
Pétur J. Thorsteinsson
Auöir og ógildir
43.530 atkvæöi, 33.6%
41.624 atkvæöi, 32.2%
25.567 atkvæöi, 19.8%
18.124 atkvæöi, 14.0%
540 atkvæöi, 0.4%
Samtals voru á kjörskrá 143.078, en þar af greiddu
129.385 atkvæöi eöa 90.4%.
Athygli skal vakin á þvi, aö viö forsetakjör 1952
munaöiaöeins I879atkvæöum á Asgeiri Asgeirssyni og
séra Bjarna Jónssyni, en þaö jafngilti 2.6%. Munurinn
nú er hins vegar 1906 atkvæöi, sem jafngilda 1.4%.
iVigdis efst i 6 kjördæmum.
' Vigdis Finnbogadóttir varö efst i sex kjördæmum, en
Guölaugur i hinum tveimur.
Kjördæmin, þar sem Vigdis varö efst, eru Reykja-
vik, Vesturland, Vestfiröir, Noröurland vestra,
Austurland og Suöurland, en Guölaugur varö efstur i
Reykjanesi og Noröurlandi eystra.
úrslitin i einstökum kjördæmum eru birt á bis. 6, en
auk þess er skýrt frá forsetakosningunum á bls. 23, 30
og 32.
—ESJ.
stuðnings-
menn fögn-
uðu Vigdísi
í morgun
Um sjöleytið i morgun
fjölmenntu stuðnings-
menn Vigdisar Finn-
bogadóttur að heimili
hennar við Aragötu i
Reykjavik til að fagna
sigri hennar i forseta-
kosningunum.
Myndin hér til hliðar
var tekin þegar Vigdís
kom til heimilis sins úr
sjónvarpshúsinu og var
vel fagnað af stuðn-
ingsmönnum. Hún sést
hér faðma að sér kosn-
ingastjóra sinn, Svan-
hildi Halldórsdóttur.
Vísismynd: Þ.G.
..Þetta er söoulea stund
„Ég er hreykin og mér finnst
þetta vera einstök framsýni hjá
okkur tslendingum aö veröa
fyrstir til aö kjósa konu til for-
seta” sagöi Vigdis Finnboga-
dóttir, nýkjörin forseti tslands,
þegar Vlsir ræddi viö hana
snemma I morgun aö heimiii
hennar aö Aragötu 2. Þegar úr-
slit voru kunn safnaöist mikill
fjöldi fólks aö heimili hennar og
var Vigdisi innilega fagnaö.
„Ég hef undanfarnar vikur
haft þá bjargföstu trú aö þetta
kjör gæti gert talsvert mikiö
gagnfyrir ísland og þjóðina, þvi
þaö vekur svo mikla athygli á
landinu. Heimurinn fer aö skoöa
þessa þjóö og átta sigá aö þarna
býr þjóö sem hefur þol og svo
rika verkmenningu aö hún hefur
á tæpri öld náð þvi að lifa viö
sömu kjör og stórþjóöir sem
eiga langa sögu iönvæöingar aö
baki.”
— Er þetta sigur fyrir þig eða
sigur I jafnréttisbaráttunni?
„Hvort tveggja. Auövitaö er
þetta sigur fyrir mig þvi mér
var teflt fram sem persónu. Ég
taldi mig hafa ráö á aö ganga til
leiks, þvl ég dró engan til
ábyrgöar nema sjálfa mig. Aö
visu varö ég aö taka mina nán-
ustu meö mér, en ég vissi aö
þeir hafa til aö bera þroska og
skilning til aö láta ekki á sig fá
ef aö mér yröi gengiö.
Aö því er snertir sigur I jafn-
réttisbaráttu þá er þess aö geta
aöiþeirri baráttu hefur sigur
þegar veriö unninn en sá sigur
hefur hins vegar ekki veriö
notaöur sem skyldi fyrr en nú.
Þaö heföi aldrei veriö lagst á
einu konuna sem var I framboöi
aö þessu sinni, meö sérkenni-
legum ritsmiöum og duttlunga-
fullum fullyröingum, nema af
þvi aö hún hlýtur að hafa veriö
talin jafnvig karlmönnum.”
— Hy ggstu hitta þaö fólk sem
nú hefur stutt þig til forseta?
„Jahá, — það geri ég. Ég hef
heimsótt fólk um allt land og
skiliö viö hundruö manna sem
héöan i frá eru ævivinir minir.”
— Teluröu þaö ekki vera
sögulega stund aö kona skuli nú
hafa veriö kjörin forseti hér á
landi?
„Mér finnst þetta vera sögu-
leg stund i lifi þjóöarinnar, en
ekki bara þessarar þjóöar held-
ur i mannkynssögunni. t
kvennasögu heimsins er þetta
stór stund ekki einasta fyrir
okkur heldur fyrir allan heim-
inn. Arsins 1980 veröur minnst
sem ársins þegar kona varö
fyrst forseti þjóöar sinnar, lýö-
ræðiskjörin. Kannski er þetta
hægt á tsiandi vegna þess aö
þjóöin er litil, en þetta er ekki
slöur merki um þab aö i þessu
landi býr upplýst þjóö.”
— Hver er boöskapur þinn til
þjóöarinnar nú þegar þú hefur
verið kjörin forseti?
„Sá boöskapur sem ég hef
viljað koma á framfæri viö
þjóöina er aukin meövitund um
þjóörækni og menningu. Ég
mun aldrei þreytast á aö minna
á, aö viö veröum aö gæta þessa
fjöreggs okkar sem er frelsiö.
Frelsiö er þaö dýrmætasta sem
viö eigum. En þaö er meö frelsiö
eins og valdiö, aö þaö veröur aö
vera agaö en ekki óbeislaö.—HR
J