Vísir - 21.07.1980, Blaðsíða 30

Vísir - 21.07.1980, Blaðsíða 30
vism Mánudagur 21. júli 1980 30 Framtak stofnenda nýja fer&afélagsins á Höfn f Hornafiröi hefur hlotiö góöar undirtektir. Rúmlega sextiu manns munu hafa veriö meö í feröinni til Papeyjar. Ætlunin er aö fara sem oftast 1 stuttar helgarferöir á borö viö þessa. Illugi siglir inn f Attæringsvog á leiöinni til eyjarinnar. Niöri viö voginn eru leifar af bátaskýli, enda var einhver útgerö stunduö I Papey áöur fyrr. Meðlimir nýstofnaðs ferðafélags á Höfn í Hornafirði fjölmenntu til Papeyjar nýlega, röltu þar um daglangt í blíð- skaparveðri og skoðuðu landslagið og byggðina, sem samanstendur af tveimur uppistandandi húsum, auk mannvirkja- leifa frá gamalli tið. Djáknadys vottuð virðing með griótkasti Ingibjörg Einarsdóttir sagöi, aö sér litist einstaklega vel á Papey. „Mig langar næstum þvi til aö vera hér kyrr enn um sinn — ekki vegna þess aö ég sé smeyk viöheimferöina. Ég varö nefnilega ekkert sjóveik, eins og ég bjóst þó viö” sagöi Ingibjörg. Valgeir Vilhjálmsson, leiö- sögumaöur útbýtir fróöleiks- kornum úr sögu Papeyjar. Mál og myndir: Elfar Unn- steinsson, fréttaritari Vísis á Höfn. Guömundur Illugasona, skip- stjóri, flutti fólkiö út I námunda viö eyna á farkostinum Illuga frá Djúpavogi. Bátur Gústafs Gislasonar, heimamanns i Papey, var haföur i eftirdragi á leiöinni, og siöan notaöur til aö flytja fólkiö siöasta spölinn. Þegar komiö var út i eyna, heimsóttu feröafélagar kirkj- una þar, en komust þó færri aö en vildu þvi aö hún er agnar- smá. Valgeir Vilhjálmsson, leiö- sögumaöur, notaöi þá tækifæriö til aö veita mönnum dálitinn fróöleik um sögu eyjarinnar. Elstu heimildir um búsetu i Papey eru frá lokum fimm- tándu aldar, en mannlif hefur þó veriö þar viöloöandi allt frá Landnámsöld, eins og öllum er sjálfsagt kunnugt um. Kirkjan er komin vel til ára sinna, en enginn veit hvenær hún var byggö. Einvígi djákna og prests Gústaf Gislason er fæddur og uppalinn i Papey, og bjó i eynni áriö um kring til skamms tima. ,,Nú bý ég þar einungis yfir sumartimann, en skrepp I hver jum mánuöi á veturna til aö sjá mig um og athuga hvort nokkur sofandaháttur sé á vit- anum” sagöi Gústaf. „A siunrin veiöi ég oft lunda I háf. Kunn- ingjarnir koma i heimsókn ár- lega, og er þá sigiö eftir eggjum. Algengt er, aö fjögur hundruö egg fáist I einni niöurferö. I eynni var æöarvarp áöur fyrr, og dúntekja var þá mikiö tiök- uö”. Niöri viö Attæringsvog eru leifar af bátaskýli, sem notaö var viö útgerö áöur fyrr. A leiö- inni til aö skoöa leifarnar, gekk feröafólkiö fram á Djáknadys I Hamarsfiröi og vogaöi ekki annaö en aö henda i hana stein- um, áöur en haldiö yröi áfram. Þar um slóöur ku hafa oröiö söguklegt einvlgi milli tveggja mektarmanna, djákna og prests. Geröu þeir ekki hlé á bardaganum fyrr en báöir lágu fallnir I valnum. Er aökomu- mönnum, sem ganga þar hjá i fyrsta sinn, ráölagt aö kasta steinum I dysina til þess aö ferö- in gangi vel þaöan i frá. „Nú bý ég einungis yfir sumartlmann I Papey, en skrepp I hverj- um mánuöi á veturna til aö sjá mig um og athuga, hvort nokkur sof- andaháttur sé á vitanum” segir Gústaf Gislason, sem bjó í eynni ár- iö um kring til skamms tima. Myndir og texti: Elvar Unnsteinsson fréttaritari Visis á Höfn. Mannlíf Kirkjan I Papey er litil vexti, og uröu þvi sumir aö standa úti. Feröafélagar stiga á skipsfjöl Iliuga frá Djúpavogi, sem notaöur var til aö flytja fólklö út f Papey. - í heimsókn nýstofnaðs ferðafélags Hafnar til Papeyjar

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.