Vísir - 28.07.1980, Blaðsíða 6

Vísir - 28.07.1980, Blaðsíða 6
KTiSZIZiMánudagur 28. júll 1980 r---------------------- ,v Vl'Y’^W m OXjkC iV X. 6 Saia verkamannabústaða í Hafnarflrði: Bæiarráö nalnaðl tillðau um OÐinöera rannsókn Ýmsar spurningar hafa vaknaö varðandi kaup og sölu á íbúðum sem byggðar voru á sínum tíma af Byggingarfélagi alþýðu í Hafnarfirði og Vísir hefur greint frá í fréttum að undanförnu. Angar þessa máls teygja sig víða og erógjörningur að gera öllum hliðum þess viðunandi skil þótt hér verði reynt í stuttu máli að varpa Ijósi á atburðarásinaT En málið snýst um það, að ibúðir í verkamannabústöðum hafa verið seldar á hærra verði en leyfilegt er samkvæmt lögum um verkamannabústaði. Lagabókstafurinn Um sölu á verkamanna- bústööum gilda ákveðin lög og reglan sem gilt hefur um sölu Ibúöa eins og hér um ræöir er aö finna 126. grein 1, nr. 30 frá 1970 og 16. grein reglugeröar nr. 272 frá 1970, og er þannig: „Sölu- verö slikrar Ibúöar má ekki vera hærra en kaupverö hennar, aö viöbættri veröhækkun, sem samkvæmt visitölu byggingar- kostnaöar hefur oröiö á kostnaöarveröi Ibúöarinnar, nema þess hlutar er svarar til láns úr Byggingarsjóöi verka- manna og eftir stendur, þeg- ar forkaupsréttar er neytt. Enn fremur skal bæta viö viröingar- veröi þeirra endurbóta, sem á sama tlma hafa veriö geröar, og draga frá hæfilega fyrningu, hvort tveggja samkvæmt mati dómkvaddra manna.” Nú kann einfaldara mál en þetta aö vefjast fyrir leikmönn- um og skal ekki fariö nánar út I lagabókstafiinn hér. En I ein- földu máli eru staöreyndirnar þessar. Um sölu á verkamanna- bústööum gilda ákveöin lög sem mæla fyrir um aö þær megi ekki selja á frjálsum markaöi heldur eigi aö selja ibúöina á þvl veröi sem mat segir til um. Þess vegna skal viö sölu þeirra liggja fyrir mat dómkvaddra manna um rétt verö Ibúöarinnar sam- kvæmt lögunum. Einnig eru skýr ákvæöi um þaö, aö Byggingarfélag alþýöu á for- kaupsrétt á Ibúöum þessum og Hafnarfjaröarbær á forkaups- rétt á eftir byggingarfélaginu. Einn angi þessa máls er sá, aö viö sölu á þeim íbúöum sem hér um ræöir hafa hinir dómkvöddu matsmenn I Hafnarfiröi gert ráö fyrir fjórum möguleikum I hverju mati og veröur ekki I fljótu bragöi séö hvaöa tilgangi þaö þjónar nema ef vera skyldi til aö rugla væntanlegan viö- semjenda I rlminu eins og kem- ur I ljós af dæmi þvi sem hér skal tekiö. Hjónin fara svo meö þessi möt til formanns Byggingarfélags- ins og spyrja hvaö öll þessi möt eigi aö þýöa og hvert þeirra þau eigi aö taka til hliösjónar „Þaö er hagkvæmast aö taka hæsta matiö”, ersagtaö formaöurinn hafi svaraö. Hjónin selja svo Ibúöina meö aöstoö fasteignasala, sem auö- vitaö eiga aö tryggja, aö þessi viöskipti séu lögum samkvæmt. Söluverö var 12 milljónir króna. Þau kaupa sér svo aöra ibúö og byggja þau Ibúöarkaup á sölu- veröi hinnar Ibúöarinnar. Svo Höur nærri ár frá þvl aö umrædd sala fer fram til þess aö Hafnarfjaröarbæ er boöinn for- kaupsréttur aö Ibúöinni, eins og á aö gera lögum samkvæmt. Er þaö oröin viötekin venja, aö út- borgun Ibúöar fer fram á fyrsta ári og ekki gengiö frá forkaups- réttarboöi fyrr en afsal á aö fara fram. t þessu tilviki gerist þaö, aö bærinn neitar aö afgreiöa þetta forkaupsréttarboö, þar sem verö eöa sölusamningur ibúöar- innar stenst ekki lög, þar sem löglegt söluverö heföi veriö lægsta talan I fyrrnefndu mati. Tillaga bæjarráðs A fyrrgreindum fundi Bæjar- stjórnar Hafnarfjaröar, þar sem saga þessi var rakin, uröu miklar umræöur um eftirfar- andi tillögu frá bæjarráöi: „Bæjarstjórn samykkir aö fela bæjarstjóra aö óska eftir þvl viö bæjarfógeta, aö hann láti dómkveðja matsmenn til aö meta I samræmi viö lagaákvæöi um endursölu ibúöa I verka- mannabústööum, söluverö þeirra verkamannabústaöa- ibúöa I Hafnarfiröi sem seldar hafa veriö aö undanförnu á hærra veröi en lög mæla fyrir um. Leitaö veröi til Byggingar- félags alþýðu um gögn og upp- lýsingar varöandi sölu þessara ibúöa sl. 3 ár. Þegar möt liggja fyrir mun bæjarstjórn taka af- stöðu til forkaupsréttar aö þess- um Ibúöum.” Tillaga þessi var samþykkt aö viöhöföu nafnkalli meö 9 at- kvæöum en tveir bæjarfulltrúar greiddu ekki atkvæöi. Höröur Zophaniasson, bæjar- fulltrúi, lét bóka greinargerö fyrir atkvæöi sinu þar sem fram kemur aö hann átelur þau mis- tök og lögbrot sem oröiö hafa I sambandi viö sölur þessara ibúöa auk þess sem hann gerir grein fyrir tilganginum meö byggingu þeirra —þ.e. á hverj- um tlma séu ódýrar íbúöir til ráöstöfunar fyrir láglaunafólk. 1 greinargerö Haröar kemur fram, aö hann telur hæpiö aö Bæjarstjórn Hafnarfjaröar setjist i dómarasæti I þessu máli eöa hafi meö höndum rannsókn þeirra. Litur hann svo á, aö bæjarstjórn eigi annaö hvort aö óska eftir þvl aö saksóknari rlkisins taki mál þetta til meö- feröar eöa aö þess sé krafist af félagsmálaráöuneytinu, aö þaö Rannsaka ættl Datt embættismanna - seglr fasteignasali Einn af þeim fasteignasölum sem haföi viöskipti þessi mei höndum sagöi I samtali viö VIs aö ýmsar fleiri hliöar væru 1 máli þessu en fram heföu komit I fréttum blaösins. Hann nefndi dæmi af Ibúð viö Sléttahraun sem hann átti þátt I aö selja og var kaupsamningur undirritaöur I ágúst 1978. I þvi tilfelli var formaöur byggingar- félagsins látinn vita af þessari sölu og Ibúöin var auglýst en enginn kaupandi kom fram svo aö gengiðvarfrá kaupsamningi samkvæmt mati sem þá lá fyrir en þaö haföi veriö gert af þar til kvöddum matsmönnum. lbúöin var metin á rúmar 12 milliónir og aö sögn fasteignasalans var ekki um annaö aö ræöa en aö selja IbUöina samkvæmt þvl enda var hUn seld á 12 milljónir. Þá lá fyrir undirskrift formanns byggingarfélagsins þar sem forkaupsrétti er hafnaö. I þessu tilfelli var kaupanda kunnugt um aö IbUöin væri háö reglum um verkamanna- bUstaöi, enda var þaö tekiö fram í kaupsamningi. Þegar veöbókarvottoröiö kom svo var seljandi skráöur eigandi IbUöarinnar en ekki byggingar- félagiö og þaö stóö hvergi á veðbókarvottoröinu aö eignin væri háö ákvæöum laga um verkamannabUstaöi. Þaö stóö heldur ekkert um það I veöbók- arvottorðinu aö Hafnarfjarðar- bærætti forkaupsrétt, en hér er um aö ræöa kvaöir sem eiga að koma fram á veðbókarvott- oröi.aö sögn fasteignasalans. Svo þegar veöbókarvottoröiö er tekiö aftur tæpu ári siöar þegar afsal á aö fara fram, þá er byggingarfélagiö all I einu oröiö þinglýstur eigandi. Hér væri þvi um aö ræöa lýsandi dæmi um klUöur og vitleysu frá upphafi til enda og væri þvl ekki slður þörf á aö rannsaka þátt embættismanna bæjarins I þessum málum, aö dómi fasteignasalans. — Sv.G. Þannig gerðist það. Saga þessi var rakin á fundi Bæjarstjórnar Hafnarfjaröar, þriöjudaginn 25. september 1979 og eru heimildir fyrir henni aö finna m.a. I Alþýöublaöi Hafnarfjaröar frá þvl I nóvember sama ár: Ung hjón seldu Ibúö sina i verkamannabústööum á miöju ári 1978. tbúöin hentaöi' þeim ekki lengur og þau höföu hug á aö selja og fá sér aöra og hentugri ibúö. Þau fóru til þáverandi for- manns Byggingarfélags alþýöu I Hafnarfiröi og spuröu hvernig þau ættu aö snúa sér I þessum málum. Hann sagöi þeim aö þau ættu aö fá ibúöina metna af mönnum til þess kvöddum af bæjarfógeta. Þetta geröu þau. Svo kom matiö og voru I þvl þrjár matstölur eftir mismun- andi forsendum, ein á tæpar 7 milljónir króna, önnur á rúm- lega 11 milljónir króna og þriöja á rúmleea 12 milljónir króna. Núverandi lormaður Byggingaféiagslns: SELDAR ÁN VITUNDAR STJÓRNAR FÉLAGSINS Helgi S. Guömundsson, niiverandi formaöur Bygginar- félags alþýöu, segir I samtali viö VIsi aö I mörgum tilfellum hafi veriö gengiö framhjá félag- inu hvaö varöa r forkaupsréttinn á þessum Ibiiöum og þær seldar á frjálsum markaöi án vitundar stjórnar félagsins. Nefndi Helgi ákveöiö dæmi um Ibúö I Alfa- skeiöi en I þvf tilfelli var Ibúöin boöin félaginu og þaö haföi ákveöiö aö neyta forkaupsrétt- arins. Seljandi hafi þá dregiö söluna til baka en stuttu seinna fréttu menn aö búiö væri aö selja Ibúöina á frjálsum mark- aöi, eöa svo gott sem. Matsverö á fbúöinni var á tlundu milljón en hún var seld á fimmtán milljönir aö sögn Helga. Þá sagii Helgi, aö I fundar- geröum fyrrverandi stjórnar, sæust engin merki þess aö Ibúöarsölur heföu veriö ræddar á fundum félagsins hvaö þá aö teknar hafi veriö ákvaröanir um aö krefjast forkaupsréttar. Helgi gat þess, aö núverandi stjórn félagsins væri staöráöin I aöfylgjalögumútiystu æsar og heföu þeir nú leitaö aöstoöar félagsmálaráöuneytisins viö aö koma þessum málum I rétt horf. — Sv.G. kanni þessi mál og geri ráöstaf- anir sem tryggi aö umrædd log séu I heiöri höfö. Meö bréfi til félagsmálaráö- herra, sem dagsett er daginn eftir, fer Höröur þess á leit viö ráöherra aö mál þessi veröi tek- in til athugunar. Félagsmála- ráöherra mun hins vegar hafa tekiö þann kost aö blöa átekta, þar sem samkvæmt fyrr- greindri tillögu bæjarráös kemur fram, aö eundurmat á Ibúöunum eigi aö fara fram. Þess má geta, aö á fyrrnefndum bæjarstjórnarfundi flutti Ægir Sigurgeirsson, bæjarfulltrúi, viöaukatillögu viö tillögu bæjar- ráös, þess efnis aö bæjarstjórn samþykkti aö fara fram á opin- bera rannsókn á þessum mál- um. Tillögu Ægis var frestaö og vísaö til bæjarráös. Endurmötin liggja nú fyrir. Endurmöt þau á Ibúöarverö- um I verkamannabústööum I Hafnarfiröi, og fyrrgreind til- laga frá bæjarráöi geröi ráö fyrir, liggja nú fyrir. Samkvæmt þeim hafa umrædd- ar íbúöir veriö seldar á hærra veröi en löglegt er og greint hefur veriö frá I frétt I VIsi. Vlsir haföi samband viö Sigurð Helgason, hrl. sem vann aö þessum mötum og sagöi hann, aö þeir heföu unniö samhliöa aö þessu verki, hann og Valgeir Kristinsson, bæjarlögmaöur I Hafnarfiröi. Siguröur sagöi, aö samkvæmt niöurstööum matsins væri nú gert ráö fyrir öörum mats- grundvelli en byggtheföi veriö á viö umræddar sölur á þessum Ibúöum. Siguröur kvaöst á þessu stigi ekki vilja ræöa þaö, hvaða stefnu máliö tæki enda væru framhaldsaögeröir I hönd- um bæjarstjórnarinnar. Hann kvaöst þó vilja benda á, aö fyrir hæstarétti væri nú gagnmerkt mál, sem væntanlega myndi veröa vlsbending um fram- kvæmd laga um verkamanna- bústaöi. Hér eru ekki tök á aö fara nánar út I þaö mál en þaö mun vera svipaös eölis og þau mál sem hér um ræöir og snúast um rétt bæjarins til aö krefjast forkaupsrettar. Mun bærinn hafa unnið málið I undirrétti. A fundi slnum hinn 1. júll sl. ákvaö bæjarstjórnin aö krefjast forkaupsréttar á umræddum Ibúöum og er sú krafa byggö á niðurstööum matanna sem nefnd eru hér að framan. Til- gangurinn meö þeirri kröfu er sá, aö koma I veg fyrir áfram- haldandi lögbrot af þessu tagi. i dag standa því málin þannig: Kaupendur ibúöanna fá ekki afsal fyrir þeim. Þeir hafa keypt Ibúöirnar á hærra veröi en löglegt var og nemur sú upp- hæö frá 3-5 milljónum króna. Þeir telja sig þvi eiga kröfur á hendur seljendum sem nemur þeirri upphæð og auk þess sem nemur dýrtlöaraukningu á þessum tíma. Seljendur, sem I sumum til- fellum a.m.k., seldu i góöri trú, byggja kaup á öörum Ibúöum I þvl f jármagni sem þeir töldu sig fá fyrir þessar. Þeir geta nú ekki staöið I skilum, þar sem þeir geta ekki gefiö afsal fyrir

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.