Vísir - 26.08.1980, Blaðsíða 14

Vísir - 26.08.1980, Blaðsíða 14
vísm Þriöjudagur 26. ágúst 1980 Leiðrétting 1 lesendadálki Visis á þriöju- daginn var talaö um danska rit- höfundinn og spekinginn Martinus. Meö greininni birtist röng mynd, af Martinus Simson, sem bjó mörg ár á tsafiröi. Er beðist velviröingar á þessum mistökum. ísiandi allt! Ég vil færa Arna Helgasyni sérstakt þakklæti fyrir erindi er hann flutti i útvarpið mánudag- inn 18. ágúst ,,Um daginn og veginn”. Þar var sýnilega maö- ur á ferö sem minnti mig á hinn merka útvarpsmann, Helga heitinn Hjörvar. Hann flutti erindi ,,Um daginn og veginn” meö slikri snilld og festu, sem leitun er á. Ég held að bæöi ég og aðrir, gætum lært af oröum Arna: aö viö eigum að lifa sem einn maö- ur — fyrir land og þjóö. Hvar sem viö störfum, hvar sem viö erum i flokki. — tslandi allt! Arni Helgason, simstöövar- stjóri á Stykkishólmi, hafi þakk- ir fyrir. Markús B. Þorgilsson. Arni Helgason, simstöövarstjóri Stykkishólmi. tslenska landsliöiö I kröppum dansi. (Mynd úr landsleik) HættlO að Ijúga til um gang leikja” Spældur hringdi: Nú er búiö aö sýna myndir af landsleikjum tslendinga viö Norömenn og Svia i sjónvarp- inu. Fjölmiölamir voru á sínum tima uppfullir af lýsingum á frábærri frammistöðu islenska liösins og þvi haldiö blákalt fram, aö þeir hefðu veriö óhepp- nir aö vinna ekki báöa leikina og þaö helst meö nokkrum mun. „Besti landsleikur Islendinga fyrr og siöar” var einhvers staöar haft eftir einhverjum. Hvað kom svo I ljós, þegar maöur fékk loks tækifæri til aö sjáleikina? Þeirvoru hræöilega leiöinlegir og íslendingar slak- ari aöilinn i þeim báöum! Nú er ég ekki aö hneikslast á þvi aö íslendingar tapi lands- leikjum i knattspyrnu, og aö ná jafntefli viö Svía i Sviþjóö er frábær frammistaða. Ég er bara hræöilega þreyttur á þess- um hástemmdu lýsingaroröum um stórkostlega frammistöðu, þegar liöiö leikur á erlendri grund. Menn veröa aö muna þegar þeir gefa yfirlýsingarnar, aö sjónvarpið sýnir yfirleitt landsleikina, þó ekki sé það samdægurs. Þaö gengur þvi ekki lengur aö ýkja eöa hrein- lega ljúga til um gang leikja. Ókryddaðar staðreyndir eru yfirleitt haldbestar. Þaö gæti nefnilega fariö þannig, aö þegar islenska landsliöiö veröur ein- hvem tima verulega óheppiö i leik erlendis, þá trúir þvi ekki nokkur maöur hér heima. Samkeppnin um Ibúðabyggð í Astúnshverfi: „ÓVERÐSKULDAÐUR DÓMUR” Varöandi dóm dómnefndar á tillögu minni nr. 14 kennitala 41571, vil ég undirritaöur leyfa mér, aö gefa eftirfarandi svör viö, aö minu áliti, óveröskuld- uðum dómi. 1. Nýting lands er i minnna lagi, skipulag er reglubundiö og umhverfisleg gæöi I lágmarki. Þó gefa stórar einkalóöir ýmsa möguleika. Svar: Nýting lands er sam- kvæmt þvi sem beöiö var um. Þóer i útboösgögnum ekki gerö góö grein fyrir bilastæöum viö sparkvöll, og dagvistunarstofn- un.enþarleyfiég mér, aö koma fyrir 50 bilastæðum, sem ef- laust koma eitthvaö niöur á heildarnýtingunni. Skipulagið er ekki reglubundnara en þaö, aö engar lóöir eru eins aö lögun, og ættu aö gefa góöa möguleika á umhverfislegum gæöum I samvinnu viö góöan garöarki- tekt, eins og ég reyndar tók fram I tillögu minni. 2. Umferö akandi tækja hefurforgang og gegnumakstur um hverfiö er ókostur .auk þess sem óhóflega mikiö landrými er notað undir götur. Gangbrautir eru sýndar á hefðbundinn hátt meöfram akbrautum. Tvö- faldur bilskúr er i hverju húsi. Svar: Varöandi gegnumakst- ur, þá sýni ég hvernig auðveld- lega má gera tvær húsagötur aö botnlangagötum. Landrými undir hvert hús u.þ.b. 850 ferm., i hver ju húsi er gert ráö fyrir ca. 155ferm. aöalibúð auk ca. 95 ferm., aukalbúðar og ca. 60 ferm. bilskúr. 1 einu vinsælasta einbýlishúsahverfi á Islandi, Fossvogshverfi gegnt Astúns- hverfi, eru einbýlishúsalóöir ca. 1000 ferm., ein ibúö og yfirleitt einfaldur bilskúr. Alika mikiö landrými er þar notaö undir götur, gangstiga, botnlanga og bílastæði, sem einnig er afar- vinsælt leiksvæöi barna á hjól- um, hjólaskautum o.s.f. Hvaö er óhóf I þessum efnum? Ennfrem- ur vil ég benda á möguleika á matjurtagarösgróöurhúsa- möguleikum innan lóöarmarka. 3. Fjölbreytni i ibúöarvali er ekki mikil. Séö er fyrir þörfum hreyfihamlaöra i kjallara- ibúöum, sem viöa samrýmist ákvæöum bygg.rg. Svar: tbúöarval er sam- kvæmt þvi, sem beöiö var um, þ.e. ekki stökkpallur (viökomu- staöur) i betra húsnæöi. 4. Lega húsa I landi er viöun- andi.en tengsl ibúöa viö garö er viöa ófullnægjandi. Svar: Láöst hefur aö sýna tengsl ibúöa viö garö af stiga- pöllum, en þar gætu skapast góö tengsl. Auk þess aö ekki var lokið viö aö samræma hvert ein- stakt hús hverri einstakri lóö, taldi ég þaö framtföarstarf. sem auövelt væri aö leysa. 5. Innra skipulag mætti leysa betur, (ekki mín orö) en nokkrir möguleikar eru til breytinga. Svar: Innra skipulag hæða er „frábært” og ér ég tilbúinn að sanna þaö hvenær sem er. Nokkrir möguleikar eru til breytinga; fer eftir óskum húseigenda! 6. Ýmsir valkostir eru sýndir viö útlit húsa, sem allir eru i heföb. stil. Svar: Varla er hefðbundinn still meö flöt né lek þök? 7. Sorpgeymslur eru sýndar. í lokaoröum dómnefndar segir. Tillagan byggir á landfreku gatnakerfi, og stakstæöum húsum á stórum lóöum. Heild- aryfirbragö er ófrumlegt, þar sem byggt er á húsagerðum, sem vænta má aö hafi runnið sitt skeiö. Svar: Varöandi landnýtingu hef ég fært min rök. Ófrumlegt yfirbragö, ef svo er. þá held ég svo megi segja um flestallt skipulagá Islandi eöa eru reglu- strikubeinar götur frumlegri? Húsageröir eru einfaldar og auöveldar f byggingu, sem láöistaö geta i dómi um mfn hús, þótt þess sé yfirleitt getið um önnur hús i samkeppninni. Planlausnir eru meö þvi besta er gerist hvað varðar hús, sem eru innan ramma húsnæöis- málastórnarlána 129ferm. nettó eöa minni, þ.e. góö stofa, 4 svefnherbergi, þvottur, baö, eldhúskrókur eöa matbar og gestaklósett. Sameina má einn- ig tvö og tvö svefnh. og fá færri stofur. Hafi dómnefndin betri jafn- stórum planlausnum á aö skipa, væri ég tilbúinn aö veita þeim milljón króna verölaun. Svo ég noti óbein orö Mikaels Jóns- sonar. múrarameistara á Seyöisfirði, sem kvaöst i ára- raðir hafa veriö aö leita aö teikningu aö einbýlishúsi, en engin lfkaö fyrr en hann fann AB gerö frá mér; DAS-hús Set- bergslandi viö Hafnafjörö, C gerö. Bæjastjórabústaöur Seyöisfiröi E gerö. öll þessi hús veit ég ekki betur en aö liki mjög vel, svo lái mér þaö nokkur, aö ég sé hissa þegar mér er tjáö og þau hafi lfklega runniö sitt skeiö. Þvi miður viröist mér innstilling dóm- nefndar hafa veriö mér fyrir- fram neikvæö, þ.e. a.m.k. þeir meðlimir hennar. er læröastir munu vera á sviöi húsageröar- listar, Hafa þeir eflaust af ofan- greindu getaö þekkt húsageröir minar og þarmeö fyrirfram lagt sinn dóm á. Meö viröingu og vinsemd og von um aö málsaðilar taki ekki þessi skrif min illa upp. Kristinn Sveinbjörnsson. sandkorn Umsjón: Óskar Magnússon Hræðsla? Þaö hefur vakiö furöu blaöamanna, aö á fundi meö forráöamönnum Flug- leiöa á föstudaginn, var þess aö engu getiö, aö Björn Theódórsson heföi veriö ráöinn i starf framkvæmda- stjóra markaössviös félagsins. né heldur var drepiö á stööu- hækkun Siguröar Helgasonar yngri. Um þetta voru sendar út fréttatilkynningar til blaö- anna en hins vegar ekki fyrr en blaöamannafundurinn var hafinn. Þannig höföu blaöa- menn enga vitneskju um máliö á fundinum og gátu ekki spurt þeirra spurninga sem óneitaniega hijóta aö vakna af þessu tilefni. Þaö iæöist auö- vitaö aö manni sú hugsun, aö þetta hafi veriö meö ráöi gert eða til hvers var veriö aö senda út fréttatilkynningu þegar fulitrúar allra fjölmiðla voru staddir augliti til auglitis viö forráöamenn Flugleiöa? Matarblað Matarást tslendings riöur ekki viö einteyming nú siöustu misseri. Varla er gefinn út pappirssnepill f fleiri en þremur eintökum, aö ekki sé getið um mataruppskriftir. Húsmæöur fá nú ekki friö i is- skápum slnum fyrir ágengum heimilisfeörum sem vilja nú sem gerst vita um hvaö sé til, ef þaö skyldi detta i þá aö kokka eitthvert kvöldið. Nýjustu tiöindi af matar- máium er svo þær, aö nú mun á leiöinni nýtt blaö, sem sér- hæfir sig I matargerö og ýmsu stússi þar I kringum. Blaöiö mun eiga aö heita „Gestgjaf- inn” og er útgefandi þess sagöur vera Hilmar Jónsson, veitingastjóri á Hótel Loft- leiðum. Er Lenfn helma? Tvær konur i strætisvagni ræddu um bókmenntir og listir á leiöinni frá Hlemmi og niður á Lækjargötu. Þær geröu þessum viöamiklu málum góö skil á stuttri leiö og ekki sist ieikritinu „Stalin er ekki hér” sem einmitt var verið aö sýna þegar sagan geröist. Um- fjöllun kvennanna var greindarleg um allt, þar til kom aö nafni verksins, en þá haföi eitthvaö skolast til. 1 meöförum þeirra hét þaö ekki lengur „Stalin er ekki hér” heldur „Lenin er ekki heima”!

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.