Vísir


Vísir - 14.10.1980, Qupperneq 8

Vísir - 14.10.1980, Qupperneq 8
8 Þriðjudagur 14. október 1980. vtsm Utgelandi: Reykjaprent h.l. Framkvsmdastjóri: Davló Guómundsson. Ritstjórar: Úlalur Ragnarsson og Ellert B. Schram. Ritstjórnarlulltrúar: Bragi Guömundsson, Elias Snæland Jónsson. Fréttastjóri er- lendra Irétta: Guömundur G. Pétursson. Blaóamenn: Axel Ammendrup, Arni Sig- tússon, Frlöa Astvaldsdóttir, Gyltl Krlstjánsson, lllugl Jökulsson, Kristln Þor- steinsdóttir, Páll Magnússon, Svelnn Guðjónsson, Sæmundur Guðvinsson, Þórunn Gestsdóttir. Blaóamaöur á Akureyri: Glsli Sigurgeirsson. Iþróttir: Kjartan L. Pálsson, Sigmundur O. Stelnarsson. Ljósmyndir: Bragi Guömundsson, Elln Ell- ertsdóttir, Gunnar V. Andrésson, Kristján Ari Einarsson. Utlitsteiknun: Gunnar Trausti Guðbjörnsson, AAagnús Olalsson. Auglýsingastjóri: Páll Stelánsson. Dreilingarstjóri: Siguróur R. Pétursson. Ritstjórn: Slðumúll 14, slmi 86611 7 linur. Auglýsingar og skrilstolur: Siðumúla 8, slmar 86611 og 82260. Aigreiösla: Stakkholtl 2—4, slmi 86611. Askriltargjald er kr. 5.500.- á mánuöi innanlandsog verö I lausasölu 300 krónur ein- takiö. Vlsirer prentaöuri Blaöaprenti h.i. Slöumúla 14. Flóttinn er áminning Slöasta áratuginn hafa um 5700 manns flutt héðan af landi brott umfram þá, sem hingað hafa komið til búsetu. Þessi landflótti er stjórnmálamönnum áminning um að fólk er orðiö þreytt á „landlægri óstjórn á mörgum sviðum” svo vitnað sé til orða eins sér- fræöings kerfisins. Yfirleitt hafa ráðamenn kerfisins ekki viljað viðurkenna, að brottf lutningur fólks af land- inu umfram heimflutta eigi ræt- ur að rekja til þess vandræða- ástands, sem hér hefur verið landlægt varðandi stjórn efna- hagsmála síðustu árin. Það kom því talsvert á óvart, þegar einn af sérfræðingum kerfisins, Sig- fús Jónsson, hjá byggðadeild Framkvæmdastofnunar ríkisins kvað uppúr með skoðanir sínar varðandi þetta atriði í erindi, sem hann flutti fyrir helgina á ráðstefnu Stjórnunarfélags (s- lands um þróun mála hér á landi fram til ársins 2000. Sigf ús sagði að um 5700 manns hefðu flust úr landi umfram þá sem fluttu til landsins síðasta áratuginn. Þetta væri mikil blóð- taka fyrir ekki stærri þjóð og væri hún vitnisburður þess, að sumum þætti lífsstíll og lífskjör þjóðarinnar standa að baki því, sem gerðist hjá nágrannaþjóðum okkar. Síðan sagði Sigfús: Orsakir þessa flótta eru þvi miður alveg órannsakaðar en fólksflóttinn er engu að síður alvarleg áminning þeim sem stjórna landinu. Ekki er vafi á því, að lág laun fyrir dagvinnu, hrikalegur skortur á lánum til íbúðarhúsabygginga, slæm rekstrarskilyrði atvinnuveganna og landlæg óstjórn á mörgum sviðum valda miklu um þennan flótta. Hér gildir að mestu leyti það sama og í flutningum innan- lands, að það er mest fólk á aldrinum frá 20 til 35 ára sem flyst brott. Vísir getur tekið undir þessi orð Sigfúsar, enda hefur blaðið áður bent á ýmsar ástæður þess að fólk á besta aldri f losnar hér upp og flyst búferlum til nágranna- landanna. Engu að siður mun trúlega þurfa að gera visinda- lega könnun á ástæðum hinna brottfluttu fyrir ákvörðun sinni til þess að stjórnmálamennirnir, sem nú ráða ferðinni sannfærist um að ekki er hér al It eins og best yrði á kosið. Þeir hinna brottfluttu, sem tjáð hafa sig opinberlega um þessi mál, hafa meðal annars bent á, að í ýmsum þeirra landa, sem menn leggja helst leið sína til, geti ungt f ólk til dæmis f engið lán til nokkurra áratuga fyrir allt að 80% húsverðsins, þegar það stofnar heimili,og kostnaðurinn við að greiða niður lánin sé lítið meiri en hæfilegur leigukostnað- ur. Hér þekkja allir dæmi þess, hvernig ungt fólk eyðir bestu ár- um ævi sinnar í puð við húsbygg- ingar, vinnur myrkranna á milli í mörg ár og gengur oft á tiðum allt of nærri sjálfu sér heilsu- farslega vegna þess, hve lítinn hluta heildarkostnaðarins er hægt að fá lánaðan til langs tíma. Þannig mætti lengi telja atriði, sem leggjast þungt á þá aldurs- hópa Islendinga, sem fjölmenn- astireru meðal hinna brottfluttu, en það verður ekki gert að sinni. í þess stað er rétt að minna ráðamenn þjóðarinnar á, að þótt vandamál og vonleysi hafi ekki leitt til þess að fleiri hafi horfið f rá föðurlandinu til grænni skóga annars staðar, er ekki þar með sagt, að þeir, sem enn halda tryggð við gamla landið séu ánægðir með lífskjörin og stefnu stjórnvalda um þessar mundir. Það er öðru nær. Sjaldan hefur rikt hér jafn al- mennt vonleysi og nú um að úr vandamálunum rætist og jafn mikil vantrú á, að stjórnmála- mönnunum takist að leiða þjóð- ina út úr þeim ógöngum, sem hún hefur lent í og síðustu misserin. Ástæðan er einfaldlega sú, að þeir, sem tekið hafa að sér að stýra þjóðarskútunni milli blind- skerja efnahagslífsins hafa enn ekki sýnt að þeir hafi hæfileika eða þekkingu til að koma henni á ný út á sléttan sjó. Nú siðustu árin hefur hlutfall endurinnlagöra sjúklinga á Kleppsspltalanum aukist meir en hlutfall nýrra sjúklinga. anna þoldu ekki þær félagslegu kröfur eða aðbúnað er beið þeirra utan spitalans. Athugun á orsökum lengri dvalartíma sjúklinga á spitalanum er fram fór i april sl. leiddi i ljós, að um 30 sjúklingar gátu ekki útskrif- ast vegna skorts á hentugum aðbúnaði utan stofnunarinnar. Báðir þessir sjúklingahópar og reyndar mun fleiri njóta sin betur og jafnvel fá fullnægjandi bata, ef unnt væri að veita þeim heimili eöa áningarstað, þar sem þeir fengju áframhaldandi félagslegan og tilfinningalegan stuöning auk starfsþjálfunar til undirbúnings sjálfstæös lifs. Meölimir Kiwanishreyfinganna hafa sýnt málefnum geðsjúkra mikinn skilning. Þeir lögðu grundvöll að verksmiðju við spitalann er framleiðir bygg- ingareiningar, með þvi að gefa fé til kaupa á vélum og öörum útbúnaði. Þar starfa nú ýmist að hluta til eöa i fullu starfi um 20 manns. Undanfarin ár hafa 50 til 60 einstaklingar notið þar Gleymum ekkl geðsjúkum Aningarstaðir virkur Dátt- ur í meðhðndlun geðsjúkra Ariö 1979 vistuöust 1063 ein- staklingar á Kleppsspitalanum. Rúmlega helmingur þeirra dvöldu þar skemur en 15 daga, aðrir lengur og sumir jafnvel allt áriö. Margir ná góöum bata og lifa eöiilegu lifi eftir útskrift ■■»■■■■■■■■■■■■ Aðrir eru hins vegar ekki eins lánsamir og þurfa aftur að leita til spitalans. Nú siöari árin hefur hlutfall endurinnlagöra sjúklinga aukist mun meir en nýrra sjúklinga. Ariö 1951 höfðu 56% innlagðra sjuklinga legiö þar áöur, en 78,5% árið 1978. At- hugun á tiðni innlagðra sjúk- linga annarra en drykkjusjúk- linga sýndi fram á aö alls lögð- ust 87 sjúklingar inn aö minnsta kosti einu sinni á ári 5 ár I röö (1974-1978). Flestir einstakling- starfsþjálfunar ár hvert, oft með góöum árangri. Kiwanis- menn fylgjast vel með málefn- um geösjúkra. Þeirhafa gefið fé til byggingar endurhæfingar- heimilis eða áningarstaðar fyrir geösjúka. Þetta framtak þeirra neöanmóls Lárus Helgason læknir segirhér frá möguleikum geðsjúklinga til að ná fullum bata eftir með- ferð á sjúkrahúsi og segir að þýðingarmikið sé að hægt sé að veita sjúkling- um heimili eða áningar stað eftir meðferð, þar sem þeir fengju meðal annars áframhaldandi félagslegan og tilfinn- ingalegan stuðning. mun stuðla að þvi að fjöldi ein- staklinga nái þvl takmarki aö geta orðið sjálfstæðir. Kiwanis- menn hafa ákveðiö að ágóðinn af sölu lykilsins á K-daginn þann 18. okt. nk. muni einnig ganga til byggingar þessa heim- ilis. Þær ágætu viðtökur er Kiwanismenn hafa fengið sýna einnig hug almennings til geö- sjúkra. Slikur hugur er ómetan- legur fyrir geösjúka og þá sem standa að meðhöndlun þeirra. Lárus Helgason, læknir.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.