Morgunblaðið - 30.05.2002, Side 20
LANDIÐ
20 FIMMTUDAGUR 30. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Í VETUR var kannaður áhugi með-
al bæjarbúa á að koma saman til að
lesa Eyrbyggju. Kom strax í ljós að
mikill áhugi var fyrir hendi og var
farið af stað með leshóp. Þátt tóku
um 26 manns og var komið saman
einu sinni í viku alls í tíu skipti.
Sögusvið Eyrbyggju liggur að
miklu leyti í næsta nágrenni Stykk-
ishólms og hafði lengi blundað
áhugi hjá þátttakendum á að lesa
Eyrbyggju og fræðast um efni
hennar. Það voru þau Eyþór Bene-
diktsson kennari og Sigurlín Svein-
bjarnardóttir safnvörður sem
leiddu leshópinn. Miklar umræður
urðu í hvert skipti um efni sögunn-
ar þegar hópurinn hittist og las
saman kaflana. Í sögunni sem og
öðrum Íslendingasögum er rauði
þráðurinn í gegnum söguna barátta
um völd og virðingu. Þessari bar-
áttu fylgdi mikil heift sem leiddi til
átaka með ófyrirséðum afleiðing-
um. Í Eyrbyggju er Snorri goði að-
alpersónan og höfðinginn sem
tryggir sér völd á Helgafelli. Þar er
sagt frá sænsku berserkjunum sem
ruddu Berserkjagötu og Fróðár-
undrum.
Þegar voraði kom hópurinn sam-
an aftur og heimsótti sögustaði í
Helgafellssveit. Gengin var Ber-
serkjagata og komið við á Bólstað,
Helgafelli og Þingvöllum. Þetta
framtak var kærkomið tækifæri
fyrir þátttakendur að kynnast bet-
ur sínu nánasta umhverfi.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
Eyrbyggjuhópurinn staddur að Bólstað í Álftafirði, en þar bjó Arnkell
goði. Í baksýn er Borgardalur þar sem Geirríður lét setja skála á þjóð-
braut þvera, og skyldu allir menn ríða þar í gegnum, þar stóð jafnan
borð og matur á, gefinn hverjum er hafa vildi.
Á Eyrbyggjuslóð-
um í Helgafellssveit
Stykkishólmur
Á AÐALFUNDI Sjálfsbjargar, fé-
lags fatlaðra á Suðurlandi, var einn
félagi heiðraður. Þessi félagi er Ei-
ríkur Harðarson, sem á unga aldri
lenti í slysi og er mikið hreyfihaml-
aður. Eiríkur vann það afrek síðasta
haust að hjóla, á sérsmíðuðu hjóli
sínu, frá Selfossi til Reykjavíkur.
Að sögn Eiríks gekk ferðin vel og
var hann 4 klukkutíma og 15 mínútur
á leiðinni. Þessi ferð var áheitaferð
og rann allt fé sem safnaðist til
Sjálfsbjargar á Suðurlandi. Það var
formaður Sjálfsbjargar, Svanur
Ingvarsson, sem afhenti Eiríki áletr-
aðan bikar, sem þakklætisvott fé-
lagsins fyrir þessa frækilegu ferð.
Svanur hældi Eiríki mikið fyrir
dugnað og kraft og sagði að það hefði
verið mjög gaman að fylgja honum
þessa leið. Það hefðu margir, sem
voru á leið yfir Heiðina, stoppað og
styrkt Eirík og hrósað honum fyrir
hversu mikið hann legði á sig til að
vekja athygli á hreyfihömluðum og
baráttu þeirra.
Sjálfsbjörg
heiðrar Eirík
Harðarson
Hveragerði
Morgunblaðið/Margret Ísaksdóttir
Eiríkur Harðarson og Svanur
Ingvarsson, formaður Sjálfs-
bjargar, með bikarinn.
HÚNAVAKA, rit Ungmennasam-
bands Austur-Húnvetninga
(USAH), er komið út í fertugasta og
annað sinn. Ritið hefur að geyma
fréttir og fróðleik úr Austur-Húna-
vatnssýslu árið 2001 svo og viðtöl,
smásögur, frásagnir og ljóð.
Stjórn og ritnefnd USAH brydd-
aði upp á þeirri nýjung að efna til
samkeppni um forsíðumynd á Húna-
vökuritið. Hlutskörpust í þessari
fyrstu forsíðusamkeppni Húnavöku-
ritsins var Fanney Magnúsdóttir á
Eyvindarstöðum í Blöndudal.
Stefán Á. Jónsson á Kagaðarhóli
hefur verið ritstjóri Húnavökuritsins
frá upphafi.
Samkeppni
um forsíðu-
mynd í
fyrsta sinn
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Fanney Magnúsdóttir á Eyvind-
arstöðum átti forsíðumyndina á
Húnavöku 2002.
Blönduós
42. árgangur Húnavöku kominn út