Morgunblaðið - 30.05.2002, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 30.05.2002, Blaðsíða 45
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. MAÍ 2002 45 Útibú Eignast‡ring Eignafjármögnun Fyrirtækjasvi› Marka›svi›skipti www.isb.is Allt í einu númeri 440 4000 Me› flví a› hringja í eitt númer, 440 4000, getur›u fengi› samband vi› fljónustuver Íslandsbanka e›a hvern flann starfsmann bankans sem flú flarft a› ná tali af.  Vi› hlökkum til a› heyra í flér! EFTIR aðalfund Samtaka ferða- þjónustunnar fyrir nokkru átti sér stað talsverð fjölmiðlaumfjöllun um hættur í umferðinni samfara starfi ökuleiðsögumanna. Sú umfjöllun var öll á einn veg og jafnvel talað um „tifandi tímasprengj- ur“ í umferðinni. Til upplýsingar fyrir almenning á orðið „ökuleiðsögumaður“ við um leiðsögumann sem einnig er bílstjóri hópferðabifreiðar eða minni bifreiðar. Á ensku kallast þetta „driver-guide“. Síðasta áratug hefur aukist verulega að fólk kjósi að ferðast í litlum hóp- um. Gjarnan í sérhann- aðri ferð fyrir viðkom- andi kunningjahóp, faghóp eða fjölskyldu. Kostnaðar- aukningu samfara þessari þróun hef- ur verið mætt með fækkun í starfs- liði, þ.e. að í stað bílstjóra og leiðsögumanns sinnir nú aðeins einn ökuleiðsögumaður starfi beggja. Þar fyrir utan veitir slíkur ferðarmáti aukin þægindi og er í samræmi við lífsstíl fólks og kröfur þess um sveigjanleika og hærra þjónustustig. Hluti af því er að ökuleiðsögumað- urinn verði einn af hópnum og leggi þannig skerf til góðrar heildarmynd- ar og ánægjulegrar upplifunar hóps- ins. Vel megandi fólk velur gjarnan þessa útfærslu frekar en að ferðast í stórum sundurleitum hópi, en vissu- lega eru takmörk fyrir því hver kostnaðurinn megi vera. Íslenskar ferðaskrifstofur grípa einnig til þess- arar útfærslu til að þurfa ekki að fella niður ferð eða til að lágmarka tap sem af henni verður ef fækkað hefur verulega í hópi frá því sem gert var ráð fyrir. Það er ekki eins einfalt að breyta þessu fyrirkomulagi og ætla mætti af þeirri einhliða umfjöllun sem átt hefur sér stað. Því minni sem ferða- hópurinn er því þyngra vega allar kostnaðarhækkanir. Það er mikil kostnaðaraukning fólgin í því að greiða tveimur einstaklingum kaup í stað eins. Gistingu og uppihald að auki. Með slíkri kostn- aðarhækkun væri bein- línis verið að bægja þessum ferðamönnum frá því að koma til landsins. Nokkur fyrir- tæki sérhæfa sig einnig í útfærslu ferða fyrir litla hópa, eins og t.d. fyrirtæki undirritaðs sem hefur „Small Groups – Great Exp- erience“ að kjörorði (litlir hópar – leikandi ferð). Grundvelli fyrir starfsemi þessa fyrir- tækis og margra sem starfa í afþreyingar- ferðaþjónustu yrði kippt í burtu ef lögum og reglum yrði breytt í þá veru að starf ökuleiðsögumanna yrði bannað eða takmarkað við of litla hópa. Það myndi valda ferðaþjónustunni í heild miklum búsifjum samfara verulegu gjaldeyristapi fyrir þjóðarbúið. Hverjum yrði greiði gerður með því? Ef við skoðum tölfræðina í sam- bandi við ökuleiðsögumenn og um- ferðaröryggi kemur í ljós að ekki hafa orðið óhöpp eða slys undanfarin ár sem beinlínis má rekja til þessa samsetta starfs. Því er hins vegar öf- ugt farið um almennan akstur hóp- ferðabifreiða. Skýringarinnar á far- sælu starfi ökuleiðsögumanna má e.t.v. leita í því að það eru sérstak- lega hæfir einstaklingar sem veljast til þessa starfs, fólk sem veldur því sem það er að gera og tamið hefur sér ákveðna tækni sem gerir starfið auðveldara en ætla mætti. Engu að síður tel ég eðlilegt að settar verði reglur um takmarkanir í sambandi við ökuleiðsögn, eins og t.d. reglur um hámarks hópstærð og/eða bíl- stærð og skyldunotkun höfuðhljóð- nema í stað handhljóðnema. Ég held að flestir sem starfa við ferðaþjón- ustu og fólksflutninga myndu fagna skynsamlegum reglum í þessa veru. Um ökuleið- sögumenn og umferðaröryggi Jón Baldur Þorbjörnsson Höfundur er ökuleiðsögumaður, rekur ferðaþjónustuna Ísafold og hefur sem bíltækniráðgjafi starfað að umferðaröryggismálum. Ökuleiðsögn Tel ég eðlilegt, segir Jón Baldur Þorbjörnsson, að settar verði reglur um takmarkanir í sambandi við ökuleiðsögn. Síðumúla 34 - sími 568 6076 Antik er fjárfesting Antik er lífsstíll
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.