Morgunblaðið - 30.05.2002, Qupperneq 40
UMRÆÐAN
40 FIMMTUDAGUR 30. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
HÉR á landi er boð-
ið upp á margskonar
nám á háskólastigi
undir nafninu fjarnám
og er mismundi hvern-
ig námið er skipulagt
og hvernig framsetn-
ing er á námsefninu.
Sumir skólar ætlast til
þess að nemendur séu
þó nokkuð bundnir
stað og stund, t.d. fyrir
framan fjarfundabúnað
eða í vinnulotum, en
aðrir setja eingöngu
tímaramma um upphaf
og lok náms. Flestir
skóla bjóða upp á sama
nám í fjarnámi og í staðbundnu námi
þó að nokkrar undantekningar séu á
því. Nemendur þurfa að kynna sér
vel það fyirrkomulag sem boðið er
upp á hverju sinni til að meta hvort
það hentar væntingum þeirra til
fjarnámsins. Hér ætla ég að kynna
fjarnám og fjalla síðan um fjarnám
við Háskólann í Reykjavík.
Í fjarnámi eru nemandi og kenn-
ari aðskildir í tíma og rúmi að miklu
eða jafnvel öllu leyti. Það kallar á
ýmsar breytingar á vinnuháttum og
skipulagi sem hefur mikil áhrif á
framsetningu á námsefni og
kennsluaðferðir. Kennarar og nem-
endur þurfa að vera meðvitaðir um
að fjarnám er með talsvert öðrum
hætti en staðbundið nám og að sam-
skipti kennara og nemenda eru ólík
því sem flestir eiga að venjast úr
hefðbundnu námi.
Í fjarnámi er nemandinn ekki eins
bundinn stað og stund, hann hefur
meira sjálfstæði varðandi ástundun
námsins þar sem hann þarf ekki að
mæta á ákveðnum tímum til að
sinna því. Reyndar er fjarnemand-
inn ekki alveg frjáls því hann verður
að sinna náminu innan þess tíma-
ramma sem kennarinn (skólinn) set-
ur.
Það er algengur misskilningur að
fjarnám taki minni tíma en stað-
bundið nám. Þó að nemandi þurfi lít-
ið sem ekkert að sækja tíma þá þarf
hann að tileinka sér námsefnið eftir
öðrum leiðum sem þurfa alls ekki að
vera fljótlegri en hefðbundnar leiðir.
Og ekki má gleyma að
það tekur tíma að nýta
sér tölvutækt efni,
langur tími getur farið
í að tengjast Netinu og
hlaða niður fyrirlestr-
um og verkefnum frá
kennara, leita að efni
eða taka þátt í um-
ræðum. Því þarf alltaf
að gera ráð fyrir að
svipaður tími fari í
fjarnám og í nám með
öðru formi.
Fjarkennarinn getur
verið óháður stað og
stund en skuldbinding-
ar hans tengjast fram-
setningu á námsefninu og samskipt-
um við nemendur. Hann getur því
verið háður tímasetningum, t.d. að
senda frá sér efni á ákveðnum tím-
um, svara nemendum innan ákveð-
ins tíma og vera með viðtalstíma á
ýmsu formi. Kennarinn flytur sína
hefðbundnu kennslu yfir á Netið
með þeim aðferðurm sem þar bjóð-
ast, s.s. tölvupósti, vefráðstefnum,
umræðuþráðum, vefsíðum, hljóð-
glærum, glærusýningum og fjar-
fundabúnaði. Undirbúningur kenn-
arans getur verið mun meiri en í
hefðbundinni kennslu, sérstaklega
þar sem ekki er til námsefni við
hæfi, og reynir oft á hugmyndaauðgi
kennara við framsetningu efnis í
fjarnámi. Miklu skiptir að efnið sé
skýrt fram sett og það sé ljóst til
hvers er ætlast af nemendum hverju
sinni.
Samskipti nemanda og kennara
og samskipti nemanda við samnem-
endur skipa stóran sess í fjarnámi
og kennarinn þarf að vera virkur í
að styðja við nemendur og gefa þeim
uppbyggileg svör og leiðbeiningar.
Nemendur þurfa að vera duglegir að
nýta sér þjónustu kennarans en ekki
síður að vinna með samnemendum
sínum. Stuðningur kennara og sam-
nemenda getur skipt sköpum varð-
andi úthald nemenda í fjarnámi.
Nemandi sem ætlar að stunda
fjarnám með vinnu og fjölskyldulífi
þarf að skipuleggja vel tíma sinn og
vera ósmeykur við að nota nýja
tækni við námið. Hann þarf að hafa
brennandi áhuga á náminu og oft að
sýna mikla sjálfstjórn til að halda
sér við efnið. Mörgum hentar vel
þetta form þar sem þeir geta unnið
sjálfstætt og sakna þess ekki að
hitta ekki kennara og samnemendur
daglega.
Fjarnám við HR
Við Háskólann í Reykjavík (HR)
býður tölvunarfræðideild námsefni
fyrstu þriggja anna (45 einingar) í
fjarnámi og er um að ræða námsefni
af kjörsviði notendahugbúnaðar.
Nemendur innritast í kerfisfræði en
til að ljúka kerfisfræðiprófi (60 ein-
ingar) þurfa nemendur að koma í
hefðbundið staðarnám á fjórðu og
síðustu önn. Nemendur geta síðan
ákveðið að ljúka BS gráðu (90 ein-
ingar) í staðarnámi með því að bæta
við sig einu ári.
Fjarnámið er tekið á hálfum
hraða miðað við hefðbundið nám í
skólanum, tvö námskeið á haustönn
og tvö á vorönn, ásamt verklegu
námskeiði á vorönn sem gerir ráð
fyrir að nemendur vinni verkefni í
skólanum í þrjár vikur. Námsefni og
námskröfur í fjarnámi eru nákvæm-
lega þær sömu og í staðarnámi.
Fjarnámið við HR byggir á mark-
vissri netnotkun og eru allir fyrir-
lestrar á formi sem kallast hljóð-
glærur, þar sem fyrirlestrar
kennara eru teknir upp með viðeig-
andi glærum. Nemandinn sækir síð-
an glærurnar og spilar á sinni tölvu.
Einnig er boðið upp á staðbundnar
tveggja daga lotur, tvisvar á önn,
þar sem nemendur hitta kennara og
aðra fjarnemendur, hlýða á fyrir-
lestra og fá aðstoð við lausn verk-
efna. Í kennslukerfið á innri vef
skólans er settur upp vefur fyrir
hvert námskeið með fréttum, pósti,
fyrirlestum, umræðuþráðum, verk-
efnum og margskonar efni frá kenn-
urum og nemendum.
Kerfisfræði gefur möguleika á
fjölbreyttum störfum sem henta
ekki síður konum en körlum. Ef þú
hefur áhuga á fjarnámi við Háskól-
ann í Reykjavík skaltu skoða vef
skólans www.ru.is en þar er hægt að
sækja um skólavist. Og að sjálfsögðu
er hægt að hringja í 510 6200 til að
fá nánari upplýsingar.
Fjarnám
á háskólastigi
Ásrún
Matthíasdóttir
Nám
Kerfisfræði, segir
Ásrún Matthíasdóttir,
gefur möguleika á fjöl-
breyttum störfum sem
henta ekki síður konum
en körlum.
Höfundur er lektor og
verkefnastjóri fjarnáms/HMV
við Tölvunarfræðideild HR.
SAMSKIPTI í rafrænu formi eru
orðin ríkur þáttur í okkar lífi. Sam-
skipti manna í milli, við opinbera að-
ila eða einkafyrirtæki eru sífellt
meira að færast yfir í að senda tölvu-
póst eða fylla út form á netinu, eins
og mörg þúsund lands-
manna munu brátt
gera þegar þeir skila
inn skattskýrslu sinni.
Viðskipti á internet-
inu eru einnig að fær-
ast í vöxt og þeir sem
nota internetið að stað-
aldri hafa nær allir
hlaðið til sín forritum
og gögnum yfir netið.
Þrátt fyrir þessa miklu
notkun hefur ekki mik-
ið borið á þörf þessara
sömu notenda að verða
sér úti um rafræn skil-
ríki sem kannski skýr-
ist af því hve fáir vita
hvað fyrirbrigðið er.
Rafræn skilríki eru
eins og vegabréf eða ökuskírteini,
leið til að sanna hver maður er á int-
ernetinu. Ef notuð er samlíking varð-
andi vegabréf sérstaklega gera þau
handhafa kleift að ferðast milli landa
og að sanna persónukenni sitt gagn-
vart erlendum aðilum. Ástæða þess
að þessir erlendu aðilar taka mark á
íslenskum vegabréfum er sú að þeir
treysta því að íslensk stjórnvöld hafi
vottað að handhafi þessa vegabréfs
er sá sem hann segist vera.
Á sama hátt má segja að rafræn
skilríki virki gagnvart þriðja aðila á
internetinu hvort sem er vegna
tölvupóstsamskipta eða viðskipta á
netinu. Þar eru svokallaðir vottunar-
aðilar í hlutverki þess sem staðfestir
kenni umsækjanda og þeir gefa svo
út „vegabréf“ fyrir viðkomandi.
Þessum skilríkjum er síðan framvís-
að á netinu þegar notendur netsins
senda tölvupóst, eiga í viðskiptum
sín á milli eða í öðrum þeim tilfellum
sem netnotendur þurfa að framvísa
persónuskilríkjum. Í dag eru til
nokkrar tegundir rafrænna skilríkja
og þau eru gefin út til mismunandi
nota.
Tegundir skilríkja
Hverjar eru þá helstu tegundir
rafrænna skilríkja? Þeim má gróf-
lega skipta í þrjá flokka. Einstak-
lingsskilríki til notkunar í tölvupósti,
vefþjónsskilríki til notkunar á vef-
þjónum og svo forritsskilríki til að
sanna uppruna forrita sem notendur
geta tekið til sín yfir internetið.
Einstaklingskilríki eru ætluð til að
geta átt í öruggum samskiptum á int-
ernetinu. Þau gera það að verkum að
notendur geti undirritað sinn eigin
tölvupóst alveg eins og þegar maður
skrifar undir bréf, umsókn eða sam-
inga á pappír með eigin hendi. Þar að
auki gefa rafræn skilríki þann mögu-
leika að allur tölvupóstur milli aðila
með slík skilríki er dulkóðaður og
þetta er vissulega eiginleiki sem vert
er að hafa í huga. Þegar fólk sendir
tölvupóst gera sér fæstir grein fyrir
því að fjöldi manns fyrir utan viðtak-
anda hafa aðgang að og geta lesið
þennan sama tölvupóst. Þetta gætu
verið þeir sem hafa aðgang að póst-
þjónum viðkomandi fyrirtækja eða
vefsetra án þess að sé verið að gera
því í skóna að slíkt eigi sér stað. Dul-
kóðun með þessum hætti tryggir
ekki aðeins að einungis viðtakandi
geti lesið póstinn heldur líka að ein-
ungis réttur viðtakandi geti lesið
póstinn.
Nú hafa komið upp
nokkur mál upp á síð-
kastið þar sem lagt hef-
ur verið hald á tölvu-
póst starfsmanna í
tengslum við opinberar
rannsóknir á högum
fyrirtækja. Það er ljóst
að ef fyrir liggur dóms-
úrskurður um heimild
til að skoða allan tölvu-
póst ber augljóslega að
verða við því en hins
vegar er það einnig
ljóst að sé einkapóstur
starfsmanna dulkóðað-
ur er ekki hægt að opna
þann póst nema við-
komandi starfsmaður
láti í té aðgangsorð til þess. Honum
ber að verða við lögmætum kröfum
en hins vegar hefur hann þá vitund
um hvers konar póstur er opnaður og
frá hverjum. Besta leiðin er náttúru-
lega að halda einkapósti aðgreindum
frá starfstengdum pósti með því að fá
sér annað netfang, t.d hjá Hotmail
eða Yahoo.
Veflyklar eru notaðir þegar stofna
á svokölluð örugg vefsvæði. Þetta
eru til dæmis vefsvæði hjá bönkun-
um þar sem notendur geta skoðað
bankayfirlit sín, þetta eru vefsvæði
þar sem notendur geta verslað á net-
inu og viðkvæmar upplýsingar eins
og kreditkortanúmer eru gefin upp,
þetta eru vefsvæði þar sem starfs-
menn geta sótt póstinn sinn yfir vef-
gáttir hjá sínum vinnuveitendum.
Öryggið felst í því að öll samskipti yf-
ir netið eru dulkóðuð milli vefþjóns
(t.d hjá bankanum þínum) og vefbiðl-
ara (á tölvunni þinni) þannig að allt
sem þú slærð inn á þessa vefsíðu er
ólæsilegt öllum nema þeim vefþjóni
sem þú átt í samskiptum við.
Forritsskilríki eru gefin út handa
framleiðanda á hugbúnaði eða öðrum
rafrænum gögnum. Ástæða þessa er
að það er sífellt algengara að forrit
og gögn séu send um netið og skiptir
þá engu hvort um er að ræða við-
skipti gegn greiðslu eða ekki. Þegar
viðtakandi slíkra gagna er að hlaða
slíkum gögnum til sín vill hann vera
viss um að þetta komi frá þeim aðila
sem hann telur sig vera í viðskiptum
við en ekki einhverjum öðrum. Það
má því segja að forritskilríki gegni
sama tilgangi og upprunavottorð
vöru sem margir kannast við sem
hafa átt í viðskiptum við erlenda að-
ila.
Framtíð rafrænna skilríkja
Þess verður ekki langt að bíða að
rafræn skilríki verði snar þáttur í
okkar daglega lífi. Flest bendir til að
svokölluð snjallkort verði komin í
hvers manns vörslu og fólk muni
nota þau jöfnum höndum til að borga
fyrir vörur og þjónustu hvort sem er
í næsta stórmarkaði eða á internet-
inu. Þar að auki munu þau líklega
gegna ýmsum öðrum tilgangi að
auki, aðgangstýringar að húsakynn-
um atvinnuveitenda, ökuskírteini og
vegabréf svo eitthvað sé nefnt. Þetta
verður hins vegar ekki alveg á næst-
unni en þau vandamál sem fólk
stendur frammi fyrir í dag við það
eitt að vera inni á internetinu þola
tæpast nokkra bið. Við það að verða
sér úti um rafræn skilríki í dag geta
fyrirtæki og einstaklingar verndað
sig fyrir alls kynnst svikastarfsemi í
viðskiptum og tryggt sín samskipti í
tölvupósti með afgerandi hætti.
Hvað eru
rafræn
skilríki?
Guðjón Viðar
Valdimarsson
Höfundur er framkvæmdastjóri
Dulkóðun Islandia.
Tölvur
Með rafrænum skilríkj-
um, segir Guðjón Viðar
Valdimarsson, geta fyr-
irtæki og einstaklingar
verndað sig fyrir svika-
starfsemi í viðskiptum.
Ryðfríar
Blómagrindur
y fríar
Blómagrindur
með hengi
Tilboðsverð
kr. 2.995
áður kr. 3,595
Klapparstíg 44
Sími 562 3614
S
U
N
D
F
Ö
T
undirfataverslun
Síðumúla 3-5