Morgunblaðið - 30.05.2002, Side 55
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. MAÍ 2002 55
Útsölumarkaður
GK REYKJAVÍK
Opið mánudaga til föstudaga kl. 12:00 - 18:00
og laugardaga kl. 12:00 - 16:00
Verðdæmi:
allar buxur nú 2.000 kr. • allar skyrtur nú 1.500 kr.
allir jakkar nú 4.000 kr. • allar peysur nú 2.000 kr.
allar yfirhafnir nú 5.000 kr.
Síðumúla 6
Mörkinni 6, sími 588 5518
Fyrir
sjómannadaginn
Fallegar yfirhafnir í úrvali
20—50% í dag,
föstudag og laugardag
Opnum kl. 9
virka daga
laugardaga
frá kl. 10-15
SJÓMANNABLAÐIÐ Víkingur
efnir nú til ljósmyndasamkeppni
sjómanna. Ljósmyndakeppnin verð-
ur tvíþætt, þ.e.a.s. landskeppni og
Norðurlandakeppni. Í landskeppn-
inni verður keppt til þriggja verð-
launa og þurfa myndir að hafa bor-
ist Víkingnum fyrir 15. nóvember
nk.
Úrslit verða birt í jólablaði Vík-
ings og mun þriggja manna dóm-
nefnd velja vinningsmyndirnar auk
tólf annarra mynda, sem síðan
halda áfram og taka þátt í nor-
rænni ljósmyndakeppni sjómanna.
Þar mun þriggja manna dómnefnd
velja bestu ljósmyndir norrænna
sjómanna í byrjun janúar á næsta
ári.
Í þeirri keppni taka þátt danskir,
sænskir, norskir, finnskir og ís-
lenskir sjómenn.
Reglur keppninnar eru svohljóð-
andi: Allir sjómenn á norrænum
skipum geta tekið þátt í keppninni.
Myndir íslenskra sjómanna keppa
fyrst í landskeppni þar sem keppt
er til þriggja verðlauna.
Hver keppandi má senda inn allt
að 10 ljósmyndir sem mega vera
svarthvítar, litmyndir eða lit-
skyggnur. Myndefnið verður að
tengjast sjó eða sjómennsku.
Myndir skal merkja með nafni og
heimilisfangi ljósmyndara og smá
upplýsingar á myndefninu; hvenær
myndin var tekin og á hvaða skipi
ljósmyndarinn var, segir í frétta-
tilkynningu.
Myndir skulu sendar til Sjó-
mannablaðsins Víkings, Ljós-
myndakeppni 2002.
Ljósmynda-
samkeppni
sjómanna ÁRLEGT söngkvöld á sjómanna-degi í Vestmannaeyjum verður hald-
ið í Akoges föstudagskvöldið 31. maí
kl. 22 og fram eftir nóttu.
Árni Johnsen stendur fyrir þessu
söngkvöldi að venju í samstarfi við
sjómannadagsráð Vestmannaeyja,
segir í fréttatilkynningu. Með Árna
spila Eyjamenn, Diddi fiðla og
Skapti Örn Ólafsson trompetleikari.
Söngkvöld
sjómannadags-
helgar í Eyjum
UTANRÍKISRÁÐUNEYTIÐ býð-
ur fyrirtækjum, samtökum, stofnun-
um og einstaklingum viðtalstíma við
sendiherra Íslands til þess að ræða
hagsmunamál sín erlendis, við-
skiptamöguleika og önnur málefni
þar sem utanríkisþjónustan getur
orðið að liði.
Eiður Guðnason, sendiherra, að-
alræðismaður Íslands í Winnipeg,
verður til viðtals í utanríkisráðu-
neytinu föstudaginn 31. maí kl. 10–
12, segir í fréttatilkynningu frá utan-
ríkisráðuneytinu.
Viðtalstími
aðalræðismanns
Íslands í Winnipeg
NOKKRIR skátar úr skátafélaginu
Skjöldungum í Reykjavík fóru á
dögunum í heimsókn til þjón-
ustudeildar Vegagerðarinnar. Til-
gangurinn var að fræðast um þá
starfsemi sem fer fram hjá deild-
inni, auk þess sem skátarnir leit-
uðu hjálpar við að leysa verkefni
fyrir landsmót skáta í júlí.
Landsmót skáta á 100 dögum
Einar Pálsson verkefnisstjóri tók
á móti skátunum og sýndi þeim
meðal annars hvernig upplýsingum
um færð og ástand vega er aflað og
síðan komið til skila í gegnum vef-
síðu, textavarp og símsvara.
Skátarnir taka þátt í leik sem
heitir Landsmót skáta á 100 dögum
og fer fram á heimasíðu mótsins.
Þar geta skátar nálgast nýtt verk-
efni í hverri viku sem þeir leysa og
komast þannig í verðlaunapott sem
dregið verður úr í sumar. Eitt
verkefnanna var að finna vega-
lengdina milli Ísafjarðar og Ak-
ureyrar. Með öðrum orðum að
komast að því hversu langt ísfirsk-
ir skátar þurfa að ferðast á lands-
mót, en það er haldið á Hömrum
við Akureyri, segir í fréttatilkynn-
ingu.
Skátar heimsækja
Vegagerðina
Einar Pálsson verkefnisstjóri skýrir fyrir skátunum hvernig upplýs-
ingum um færð á vegum er safnað.
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111