Morgunblaðið - 16.06.2002, Page 1
MORGUNBLAÐIÐ 16. JÚNÍ 2002
140. TBL. 90. ÁRG. SUNNUDAGUR 16. JÚNÍ 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
Sunnudagur
16. júní 2002
Tók bolta
alltaf fram
yfir dúkkur
Morgunblaðið/RAX
Olga Færseth hefur gert 177 mörk í 128
leikjum í efstu deild Íslandsmótsins í
knattspyrnu. Hún er ein „stelpnanna okk-
ar“, landsliðsins í knattspyrnu sem náði
þeim glæsilega árangri að ná 2. sæti í
undanriðli heimsmeistaramóts, fyrst ís-
lenskra liða. Skapti Hallgrímsson ræddi við
Olgu sem er tvímælalaust ein besta
íþróttakona landsins og eini Íslendingurinn
sem kjörinn hefur verið besti leikmaður
Íslandsmóts í tveimur íþróttagreinum.
Prentsmiðja
Morgunblaðsins
B
Viðskiptavinirnir
hafa ávallt forgang
26
Fyrstu tískumyndir
landsmanna
18
Eitt stöðugildi fyrir
hvert hjúkrunarrými
10
Sádi-Arabar, Egyptar og fleiri
arabaþjóðir hafa með stuðningi
Arababandalagsins hvatt ákaft til
þess að samtímis verði gerðar ráð-
stafanir til að auka öryggi á her-
numdu svæðunum og stofna annað
hvort endanlegt Palestínuríki eða
ríki til bráðabirgða. Fullvíst er talið
að Bandaríkjaforseti muni setja það
skilyrði fyrir stuðningi við stofnun
bráðabirgðaríkis að bundinn verði
endi á árásir hryðjuverkamanna í
Ísrael. Fyrirhugað ríki á aðeins að
ná yfir þau svæði sem stjórn Yassers
Arafats hefur að nafninu til umráð
yfir núna, það er um 40% af Vest-
GERT er ráð fyrir að George W.
Bush Bandaríkjaforseti muni í vik-
unni leggja til að stofnað verði
bráðabirgðaríki Palestínumanna
með það að markmiði að þannig
verði vonir þeirra um betri framtíð
efldar, að sögn The Los Angeles
Times. Er Bush hefur gefið út yf-
irlýsingu sína, sem gæti orðið á
þriðjudag, er búist við að Colin Po-
well utanríkisráðherra fari til Mið-
Austurlanda og ráðfæri sig við leið-
toga Ísraela, Palestínumanna og
hófsamra arabaríkja um alþjóðlega
friðarráðstefnu sem rætt er um að
halda í júlí, ef til vill í Tyrklandi.
urbakkanum og tvo þriðju hluta
Gaza-spildunnar. Endanleg landa-
mæri ríkisins yrðu ekki ákveðin
strax og lausn á ágreiningi um stöðu
Jerúsalem og rétt palestínskra
flóttamanna og afkomenda þeirra til
að snúa heim yrði frestað.
Andstaða við bráðabirgðalausn
meðal Palestínumanna
Shimon Peres, utanríkisráðherra
Ísraels, lýsti á fimmtudag yfir stuðn-
ingi sínum við hugmyndina um
bráðabirgðaríki og Ariel Sharon for-
sætisráðherra hefur ekki hafnað
henni. Einn af nánustu ráðgjöfum
hans, Reuven Rivlin, benti þó á að
hugmyndir Bandaríkjamanna gætu
mætt harðri andstöðu í Ísrael vegna
þess að leggja yrði niður sumar af
landnemabyggðum gyðinga á svæð-
um Palestínumanna.
Talsmenn Palestínumanna lýstu
andstöðu við tillögurnar. „Við getum
ekki sætt okkur við fleiri tímabundn-
ar lausnir. Við verðum að finna end-
anlega lausn,“ sagði Saeb Erekat,
ráðherra í stjórn Arafats og áður
einn helsti samningamaður Palest-
ínumanna í friðarviðræðunum við
Ísraela, í viðtali við dagblaðið Al
Quds á föstudag.
Friðarviðleitni í Mið-Austurlöndum og væntanlegt ríki Palestínumanna
Bush forseti talinn ætla að
leggja til bráðabirgðaríki
SÍÐUSTU skoðanakannanir í
Frakklandi fyrir síðari umferð kosn-
inganna í dag gefa til kynna að
hægriflokkabandalag sem styður
Jacques Chirac forseta muni vinna
mikinn sigur og fá allt að 440 sæti af
alls 577 í neðri deild þingsins. Sósíal-
istar, sem fóru með ríkisstjórnar-
völdin þar til í maí, er Lionel Jospin
forsætisráðherra sagði af sér, gætu
orðið fyrir áfalli og misst helminginn
af um 200 sætum sínum. Hægrimenn
eru þegar með meirihluta í öldunga-
deildinni en ekki er kosið til hennar
að þessu sinni.
Hægriflokkar sem styðja Chirac
fengu samanlagt um 44% í fyrri um-
ferðinni en sósíalistar um 36%. Í dag
verður kosið í 519 kjördæmum þar
sem enginn frambjóðandi hlaut
hreinan meirihluta í fyrri umferð-
inni. Vinstriflokkarnir hafa í vikunni
lagt hart að stuðningsmönnum sín-
um að mæta á kjörstað í dag en kjör-
sókn sl. sunnudag var lélegri en
dæmi eru um. Segja stjórnmálaskýr-
endur BBC að vinstrimennn hafi
þegar gefið upp á bátinn allar vonir
um sigur en reyni nú að tryggja að
þeir verði nógu öflugir til að geta
a.m.k. veitt væntanlegri hægristjórn
nauðsynlegt aðhald. Kommúnistar
áttu aðild að stjórn Jospins en eiga á
hættu að þurrkast út af þingi. Flokk-
ur þeirra var áratugum saman einn
af öflugustu kommúnistaflokkum
Vestur-Evrópu.
Þjóðernisöfgamenn í Þjóðarfylk-
ingu Jean-Marie Le Pens eru sagðir
geta gert sér vonir um að fá tvö þing-
sæti. Yrðu það mikil vonbrigði fyrir
flokkinn en Le Pen tókst óvænt að fá
næstflest atkvæði í fyrri umferð for-
setakjörsins í maí. Í seinni umferð-
inni sigraði Chirac hins vegar með
yfirburðum, fékk um 82% atkvæða.
Hægriflokkum
spáð stórsigri
í Frakklandi
París. AFP.
STJÓRNARFLOKKUR jafnaðar-
manna í Tékklandi er með 30% at-
kvæða og hægrimenn með 26% ef
marka má útgönguspár í þingkosn-
ingunum sem lauk í gær.
Bandalag miðjumanna var með
17% og gæti því myndað stjórn með
hvorri fylkingunni sem væri. Komm-
únistar voru með 13% fylgi í spánni.
Milos Zeman, leiðtogi jafnaðar-
manna og forsætisráðherra, hefur
farið fyrir minnihlutastjórn frá 1998
en notið hjálpar hins hægrisinnaða
flokks Vaclavs Klaus, fyrrverandi
forsætisráðherra, á þingi.
Jafnaðar-
menn
sterkastir
Prag. AFP.
ENGLENDINGAR sigruðu Dani í 16-liða úrslitum í
heimsmeistarakeppninni í knattspyrnu í gær með
þremur mörkum gegn engu og eru vonir Dana þar
með úr sögunni. Rio Ferdinand skoraði þegar á
fjórðu mínútu eftir hornspyrnu frá David Beckham
og sést hér skalla boltann að markinu. Síðar bættu
þeir Michael Owen og Emile Heskey tveimur mörk-
um við. Öll mörkin voru skoruð í fyrri hálfleik.
Reuters
Brostnar vonir Dana á HM
Draumur/16
MIKILL og almennur áhugi var á
knattspyrnuleik Englendinga og
Dana í heimsmeistarakeppninni í
gær. Starfsmenn í Weymouth-
sædýragarðinum í suðurhluta Eng-
lands komu að sögn AP-fréttastof-
unnar fyrir sjónvarpstæki til þess
að þrír selir í garðinum, Starburst,
Edgeley og Webb, gætu fylgst með
leikjunum í keppninni.
„Þeir virðast vera áhugasamari
en ella þegar Englendingar eru að
leika – en það getur verið að rauðu
peysurnar valdi mestu um það,“
sagði Steve Townsend, forstjóri
garðsins. Þegar selirnir eru ekki að
horfa á fótbolta finnst þeim gaman
að spila sjálfir og starfsmennirnir
vona að þeir læri eitthvað af ensku
hetjunum í sjónvarpinu.
Óverjandi
vinstri-
hreifaskot
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦