Morgunblaðið - 16.06.2002, Blaðsíða 4
Ný hringekja í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum
NÝ hringekja verður formlega tek-
in í notkun í Fjölskyldu- og hús-
dýragarðinum af Ingibjörgu Sól-
rúnu Gísladóttur borgarstjóra 20.
júní næstkomandi. Að sögn Tómas-
ar Óskars Guðjónssonar mun al-
menningi gefast þess kostur næstu
daga að prufukeyra hringekjuna,
sem er ítölsk smíð framleiðandans
Lamborghini. Tómas Óskar segir
hringekjuna prýða 42 þjóðlegar
myndir eftir myndlistarmanninn
Brian Pilkington. Um er að ræða
myndir úr íslenskri goðafræði,
myndir af Grýlu og íslensku jóla-
sveinunum og að lokum myndir úr
sögu Íslands. Ætlunin sé að hafa
hringekjuna opna á sumrin og einn-
ig í kringum jólaleytið og í skamm-
deginu verði hægt að kveikja á ótal
ljósum á þaki hennar sem lýsa upp
Grýlu og jólasveinana. Tómas segir
að um leið og hringekjan verði tek-
in í notkun í garðinum 20. júní,
muni menntamálaráðherra vígja
þar nýtt vísindatjald, en því er ætl-
að að koma raunvísindum til skila
til almennings á skemmtilegan hátt
og verður staður þar sem fjöl-
skyldan getur leyst alls konar gátur
og þrautir með ljósum, speglum og
fleiru.
Þá verður hafist handa í næstu
viku við samsetningu fallturns sem
verður viðbót við skemmtitæki í
garðinum.
Verð fyrir skemmtun í hringekj-
unni verður 1 miði, 2 miða mun
kosta í fallturninn, en frítt verður í
vísindatjaldið.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
FRÉTTIR
4 SUNNUDAGUR 16. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
SVISSNESKI fyrirtækja-
eigandinn og loftfarinn
Thomas Seiz er vænt-
anlegur hingað til lands
nk. mánudag ásamt þriggja
manna áhöfn og ráðgerir
að fljúga loftbelg yfir Ís-
landi í sex vikur. Seinna
bætast aðrir þrír við í hóp-
inn. Loftbelgurinn og ann-
ar búnaður leiðangursins
er nú um borð í Goðafossi,
alls 8,75 tonn, og skipið er
væntanlegt til landsins nk.
þriðjudag.
Seiz segir í samtali við
Morgunblaðið að tilgangur
ferðarinnar sé sá að
skemmta sér og taka
myndir af landinu úr lofti.
Myndirnar verða síðan not-
aðar í almanak sem gefið
verður út í 500 eintökum
og gefið helstu við-
skiptavinum Inserto AG,
upplýsingafyrirtækis í
Sviss í eigu Seiz og eig-
inkonu hans.
„Ég kem til Íslands á
hverju ári og tek jafnan
mikið af myndum en ég hef
aldrei haft tækifæri til að
mynda landið úr lofti. Mitt
helsta áhugamál er að
fljúga loftbelg og þannig næ ég að
samtvinna áhugamálið og ljós-
myndunina. Við gerum almanök á
hverju ári handa viðskiptavinum
okkar. Sumar af myndunum frá
Íslandi verða á almanakinu. Þetta
er í fimmta sinn sem við gerum
almanak með myndum frá Íslandi.
Í samanburði við Sviss er afar af-
slappað andrúmsloft á Íslandi.
Þetta er fámennt land og lands-
lagið er afar athyglisvert frá mínu
sjónarhorni. Auk þess kann ég vel
við Íslendinga sem eru víðsýnir í
samanburði við Svisslendinga og
ég hef alltaf haldið góðu sambandi
við vini á Íslandi,“ segir Seiz, sem
er félagi í Íslendingafélaginu í
Sviss.
Seiz segir að það sé áhættusamt
að fljúga loftbelg á Íslandi. „Loft-
belgurinn er mjög stór, 20 metrar
á hæð og þvermálið er 20
metrar. Sterkir vindar geta
leikið loftbelginn grátt.
Mesta hættan er samt
breyting á vindáttum og á
Íslandi er afar síbreytilegt
veður. Áhættan felst líka í
því ef við þurfum að lenda
nálægt hrauni, ám eða
mýrlendi. Þetta er þó ekki
stórhættulegt. Við verðum
með fallhlífar um borð í
loftbelgnum og sömuleiðis
björgunarvesti ásamt tal-
stöðvum og neyðarbúnaði
ef til þess kemur að við
þurfum að nauðlenda. Við
höfum líka samið við þyrlu-
þjónustu um að geta kvatt
út þyrlu ef í nauðirnar rek-
ur.“
Seiz vonast til þess að
loftbelgurinn fari í loftið í
lok næstu viku en það ráð-
ist þó af veðri. Ráðgert er
að flugtak verði í Reykholti
í Borgarfirði. Hámark
fimm manns komast fyrir í
körfunni og flugstjóri er
Thomas Seiz. Hann á að
baki 260 flugstundir í loft-
belg, sem er yfir meðaltali.
Hann á líka að baki yfir
200 lendingar og hefur
reynslu af flugi við hættulegar að-
stæður. Hann hefur flogið í sviss-
nesku Ölpunum, í Búrma, Frakk-
landi og á Ítalíu. Urs Mattle, 2.
flugstjóri, sem kenndi Seiz listina
að fljúga loftbelg, er enn reyndari
því hann á að baki 900 flugstundir.
„Þetta er annað af áhugamálum
mínum. Hitt er fyrirtækið,“ segir
Seiz, sem býr í bænum Zug nærri
Zürich.
Ferðast á loftbelg yfir
Íslandi í sex vikur
Loftbelgur Thomas Seiz er merktur fyrirtæki hans, Inserto.
Ráðgert er að hann verði á lofti yfir Íslandi í sex vikur.
REYKJAVÍKURBORG hefur rift
samningi sem gerður hafði verið við
Leikfélag Íslands um styrki til félags-
ins til uppfærslu á leiksýningum,
vegna breyttra forsendna. Sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins er
talið að þetta útiloki möguleika eig-
enda félagsins á að ná fram nauða-
samningum. Leigusamningur
Reykjavíkurborgar og Iðnó ehf., sem
Leikfélagið á helming í á móti veit-
ingaaðilum, er hins vegar enn í fullu
gildi.
Leikfélag Íslands var lýst gjald-
þrota um síðustu mánaðamót og var
Páll Arnór Pálsson hrl. settur skipta-
stjóri. Frestur til að lýsa kröfum í bú-
ið er til 24. júlí næstkomandi og verð-
ur skiptafundur haldinn 21. ágúst.
Hallur Helgason, stjórnarformað-
ur Leikfélags Íslands, sagði í samtali
við Morgunblaðið í síðustu viku að
ástæðan fyrir erfiðleikum félagsins
væri fjölþætt. Í hnotskurn mætti lýsa
vandanum þannig að samhliða því að
ákveðið var að auka hlutafé félagsins í
ársbyrjun 2000 hefði verið óskað eftir
þríhliða samningi félagsins, ríkisins
og Reykjavíkurborgar. Borgin hefði
fallist á slíkan samning en mennta-
málaráðuneytið ekki. Þá sagði Hallur
að á svipuðum tíma hefði hlutabréfa-
markaðurinn hrunið og hið aukna
hlutafé því ekki skilað sér auk þess
sem opinberir aðilar hefðu ekki styrkt
félagið.
Hallur sagði í síðustu viku ljóst að
um 60 milljónir króna myndu falla á
16 af 18 hluthöfum félagsins sem
gengist hefðu í ábyrgð fyrir það.
Samningi rift við Leikfélag Íslands
Nauðasamning-
ar ólíklegir
MIÐSTÖÐ Falun Gong í New
York ásakar kínversk stjórn-
völd í yfirlýsingu í fyrradag um
að setja á svartan lista nöfn Fal-
un Gong-iðkenda, þeirra á með-
al grunlausa íbúa í Evrópu og
Ameríku. Segir í yfirlýsingu
miðstöðvarinnar að tilvist slíks
lista hafi verið staðfest með
þeirri aðgerð íslenskra stjórn-
valda að hindra för Falun Gong-
fólks til Íslands meðan á heim-
sókn Jiang Zemin, forseta Kína,
stæði.
Þá segir í yfirlýsingu frá mið-
stöðinni að nokkur hundruð
manns frá Austurríki, Bret-
landi, Kanada, Frakklandi,
Bandaríkjunum hefði verið
meinað að fara um borð í flug-
vélar Flugleiða á leið til Íslands
í síðustu viku. Hefði mörgum
verið sagt að þeir væru á svört-
um lista yfir Falun Gong-iðk-
endur sem kínversk stjórnvöld
hefðu greinilega sent þeim ís-
lensku fyrir heimsókn forseta
Kína.
Haft er eftir talsmanni Falun
Gong-miðstöðvar í New York,
Gail Rachlin, í frétt AFP-frétta-
stofunnar í fyrradag að tilvist
listans vekti upp spurningar um
hvernig hann væri til kominn og
hver hefði sett hann saman. „Er
hann aðeins bundinn við Falun
Gong-iðkendur eða eru líka á
honum áhangendur annarra
trúarbragða?“ spurði hún.
Miðstöð Falun
Gong í New York
Telur til-
vist svarta
listans
staðfesta
DR. ÍVAR Jónsson hefur verið skip-
aður prófessor við viðskiptadeild
Viðskiptaháskólans á Bifröst. Meg-
inkennslu- og rannsóknarsvið Ívars
Jónssonar eru nýsköpun og frum-
kvöðlafræði og aðferðafræði við-
skiptafræða.
Ívar hóf störf sem dósent við Við-
skiptaháskólann á Bifröst sl. haust
en hann hefur áður stundað kennslu
og rannsóknarstörf við íslenska og
norræna háskóla. Hann starfaði m.a.
sem dósent við Háskólann í Luleå í
Svíþjóð og lektor við Háskóla Græn-
lands. Einnig hefur hann kennt við
Viðskiptaháskólann í Kaupmanna-
höfn, Háskólann á Akureyri og Há-
skóla Íslands. Ívar Jónsson hefur
birt fjölda ritverka á rannsóknasviði
sínu bæði hérlendis og erlendis. Við-
skiptaháskólinn í Kaupmannahöfn
gaf út bók eftir hann um nýsköpun-
arkerfi og Vestur-Norðurlönd fyrir
nokkrum árum. Ívar er kvæntur dr.
Lilju Mósesdóttur hagfræðingi og
eiga þau saman einn son.
Viðskiptaháskólinn á Bifröst
Fyrsti prófess-
orinn skipaður