Morgunblaðið - 16.06.2002, Síða 6

Morgunblaðið - 16.06.2002, Síða 6
FRÉTTIR 6 SUNNUDAGUR 16. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ VIKAN 2/6 – 8/6 ERLENT INNLENT  FJÖLMARGIR Íslend- ingar mótmæltu mann- réttindabrotum í Kína í tilefni af opinberri heim- sókn Jiang Zemin forseta Kína hingað. Á föstudag var efnt til mótmæla- fundar á Austurvelli sem ungliðahreyfingar stjórnmálaflokkanna og námsmannahreyfingar stóðu að. Samkvæmt mati lögreglu tóku um 2.000 manns þátt í honum og mótmælagöngu sem farin var að kínverska sendi- ráðinu við Víðimel.  Um 20 Falun Gong- iðkendur hófu á fimmtu- dagskvöld hungurverkfall á deGaulle-flugvelli í Par- ís, eftir að hafa verið meinað að halda til Ís- lands.  FORSÆTISRÁÐ- HERRA veitti í vikunni forstöðumanni Þjóðmenn- ingarhúss, Guðmundi Magnússyni, lausn frá embætti að fullu.  VÍSITALA neysluverðs hækkaði um 0,45% frá fyrra mánuði. Sagði Finn- ur Ingólfsson bankastjóri Seðlabankans hækkunina meiri en búist hafi verið við. Þeir liðir sem mestu máli skipti séu hækkun á matvöru, flugfargjöldum og bensíni.  HITAMET var slegið í Reykjavík á þriðjudag þegar hitinn fór upp í 22,4 stig. Er það mestur hiti sem mælst hefur í Reykja- vík í júnímánuði frá því að nútímamælingar hófust.  Útboð hófst á föstudag á 20% hlut ríkissjóðs í Landsbanka Íslands. Forseti Kína í opinberri heimsókn JIANG Zemin, forseti Kína, kom í op- inbera heimsókn í boði Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, á fimmtudag, en kínverski forsetinn heldur af landi brott í dag. Í fylgd- arliði forsetans voru um 130 manns. Á föstudag hitti Kínaforseti Ólaf Ragn- ar Grímsson að Bessastöðum, hann átti fund með Davíð Oddssyni for- sætisráðherra og Halldóri Ásgríms- syni utanríkisráðherra í Þjóðmenn- ingarhúsinu og um kvöldið var hátíðarkvöldverður forseta Íslands til heiðurs forseta Kína í Perlunni. Fjöldi Falun Gong- iðkenda á Íslandi ÁÆTLAÐ er að um 150–200 Falun Gong-liðar hafi komið til landins, vegna heimsóknar Jiang Zemin, en að minnsta kosti hátt í 200 iðkendum var ekki hleypt í vélar Flugleiða í Banda- ríkjunum og Evrópu. Forsvarsmenn Falun Gong sögðu að með komu sinni vildu þeir benda á ofsóknir kín- verskra stjórnvalda gegn Falun Gong-liðum í Kína. Fram á miðviku- dagskvöld var fjölda þeirra haldið í Leifsstöð og Njarðvíkurskóla. Þá ákváðu íslensk stjórnvöld að heimila þeim landgöngu, gegn því að þeir undirrituðu yfirlýsingu um að virða öryggissvæði og fara að fyrirmælum. Stjórnarformaður og forstjóri hætta VALGERÐUR Sverrisdóttir iðnað- arráðherra veitti Theodóri A. Bjarna- syni lausn frá störfum sem forstjóri Byggðastofnunar frá 21. júní nk. að hans ósk, og verður gerður tveggja ára starfslokasamningur við Theodór. Þá tilkynnti Kristinn H. Gunnarsson stjórnarformaður Byggðastofnunar að hann gefi ekki kost á sér áfram. Minni spenna á landamærum VÍSBENDINGAR voru um það í lok vikunnar að spenna færi minnkandi í samskiptum Indverja og Pakistana þótt enn væri alls um milljón hermanna á landamærum ríkjanna. Á föstudag féllu hins vegar 11 manns í sprengju- tilræði við sendiskrifstofu Bandaríkj- anna í Karachi í Pakistan. George W. Bush Bandaríkjaforseti hét Pakistön- um þegar aðstoð við að hafa uppi á ódæðismönnunum. Donald H. Rumsfeld, varnarmála- ráðherra Bandaríkjanna, fór í tveggja daga ferð til beggja þjóðanna í vikunni og reyndi að ýta undir að þær tækju upp viðræður. Bæði Indverjar og Pak- istanar ráða yfir kjarnorkuvopnum. Rumsfeld sagði fyrr í vikunni að vís- bendingar væru um að liðsmenn hermdarverkasamtakanna al-Qaeda, sem verið hefðu í Afganistan, væru nú í Kasmír í grennd við markalínuna milli yfirráðasvæða Indverja og Pakistana. Síðar dró hann ummælin þó að mestu til baka og sagði að aðeins væri um að ræða óljósar fullyrðingar og vangavelt- ur heimildarmanna um ferðir al-Qaeda manna. Kanna samsæri um geislasprengju Yfirvöld dómsmála í Bandaríkjunum skýrðu frá því á mánudag að handtek- inn hefði verið í byrjun maí ungur Bandaríkjamaður, Jose Padilla, er nú kallar sig Abdullah al Muhajir, í Chi- cago og væri hann grunaður um að hafa ætlað að sprengja svonefnda geisla- sprengju, öðru nafni „skítuga sprengju“, í Washington. Um er að ræða hefðbundna sprengju en í henni er einnig geislavirkur úrgangur, sem getur valdið mikilli mengun. Al Muhajir, sem er múslími, var sagður hafa tengsl við al-Qaeda og hafa fengið þjálfun í Afganistan og Pakistan.  PASTÚNINN Hamid Karzai var á fimmtudag kjörinn þjóðhöfðingi Afg- anistans á þingi lands- manna, Loya Jirga, í Ka- búl. Hann hlaut mikinn meirihluta atkvæða, en alls voru um 1.600 manns með atkvæðisrétt, þar af var meirihlutinn kosinn í héruðum landsins.  FRAKKAR urðu fyrir miklum vonbrigðum með landslið sitt í knattspyrnu á þriðjudag er því mis- tókst að komast í 16-liða úrslit í HM í Japan og Kóreu. Frakkar eru sem stendur bæði heimsmeist- arar og Evrópumeistarar í knattspyrnu.  ÍSRAELSHER handtók tugi manna í Ramallah í vikunni en drógu síðan lið sitt frá borginni á miðvikudag. Sama dag sneri Ariel Sharon, for- sætisráðherra Ísraels, heim úr ferð sinni til Washington þar sem hann var sagður hafa fengið stuðning George W. Bush forseta við stefnu sína gagnvart Pal- estínumönnum.  Tony Blair, forsætis- ráðherra Bretlands, sagði á mánudag að vatnaskil þyrftu að verða í við- horfum fólks til velferð- armála. Ekki væri hægt að atvinnulausir fengju styrki jafnvel þótt þeir höfnuðu boðum um starf. Hann sagði það hneyksli að 2,7 milljónir Breta hefðu verið „skildir eftir“ á orkubótum og velferð- arkerfið þannig afskrifað þá. HÉR fer á eftir ávarp Ólafs Ragn- ars Grímssonar, forseta Íslands, er hann hélt í hátíðarkvöldverði til heiðurs forseta Kína, Jiang Zemin, og frú Wang Yeping í Perlunni á föstudagskvöld: „Virðulegi forseti Kína Jiang Zemin og frú Wang Yeping. Við upphaf nýrrar aldar er heimsókn yðar til Íslands vitnis- burður um áherslur í sambúð þjóða, hvernig fjölmenn ríki og fá- menn eiga þrátt fyrir fjarlægð og ólíkar aðstæður samleið í þeirri viðleitni að tryggja frið og öryggi, hagsæld og velferð allra jarðar- búa. Við Íslendingar metum mikils þá virðingu og vináttu sem þér sýnið þjóð okkar og vonum að heim- sóknin færi yður nokkra vitneskju um hvernig fámennri þjóð bænda og fiskimanna, sem um aldir bjó við erlenda áþján, tókst að öðlast frelsi og sjálfstæði og komast hvað velmegun, menntun, heilbrigðis- þjónustu og tæknistig snertir í fremstu röð meðal þjóða heims. Samskipti Íslands og Kína hafa aukist jafnt og þétt á undan- förnum áratugum og heimsókn yð- ar nú, fyrsta opinbera heimsókn forseta Kína til Íslands, er áhrifa- rík staðfesting á þeim vilja að efla þau og styrkja enn frekar í fram- tíðinni. Við okkur blasa heillandi verkefni á fjölmörgum sviðum. Samvinna í sjávarútvegi, vinnsla afurða og viðskipti, skipasmíðar og framleiðsla tæknivara og hug- búnaðar; rannsóknir á jarðhita og nýting orkunnar til húshitunar; landgræðsla og umhverfisvernd; framfarir í heilbrigðismálum og læknavísindum; aukinn straumur ferðamanna eru aðeins nokkur dæmi um samvinnusvið sem væn- leg eru til árangurs. Heimsóknir listamanna, tón- leikar, kvikmyndir, sýningar mál- ara, dansara og leikara, útgáfa ljóða og annarra bókmennta, fornra og nýrra, þurfa einnig að verða ríkur þáttur í samvinnu okk- ar á komandi árum svo að þjóðir okkar kynnist betur menningu og sköpunarkrafti hvor annarrar, skynji fegurðina sem listin færir okkur. Sú samkennd birtist skýrt í nýlegri þýðingu eftir eitt af fremstu skáldum okkar Matthías Johannessen á ljóði sem þér, herra forseti, ortuð fyrir rösku ári eftir göngu yðar á Huangshan-fjöllin. Hallandi að Fagnaðar furunni horfi ég á Himnaborgar tindinn í fjar- lægð, horfi einnig á Lótusblómið og tinda Byrj- andi trausts sem virðast hafa flogið hingað frá stjörn- um. Leyfið mér að taka draumpensilinn í hönd, að ég geti dregið upp mikilleik víðátt- unnar meðal sólin brýzt gegnum skýjaöldur og sólrisið roðar ljómandi víðáttur fimm þús- und kílómetra. Ég vona að íslensk náttúra, Þingvellir, Gullfoss og Geysir, sem þér heimsækið á morgun, muni hrífa yður á svipaðan hátt. Íslensk skáld hafa lofsungið þessa staði í ljóðum sem okkur eru kær og kannski vitjar skáldagyðjan yðar einnig á þessum íslensku töfra- stöðum. Þingvellir eru vagga lýðræðis í landi okkar, heimkynni þings sem þar kom saman fyrir rúmum þús- und árum, miðstöð stjórnskipunar sem setti lög og rétt í öndvegi. Það er táknrænt að á þeim stað komi meginlönd Ameríku og Evró- asíu saman og Ísland sé þannig brú bæði landfræðilega og hug- myndalega, varðveiti í sögu sinni þau manngildi og lýðréttindi sem vonandi verða leiðarljós öllum þjóðum. Við þökkum yður, virðulegi for- seti, fyrir vináttu og hlýhug sem þér sýnið íslenskri þjóð, bæði með heimsókninni nú og í margvís- legum verkum yðar og ummælum á undanförnum árum. Við gleym- um því ekki hvernig þér persónu- lega hjálpuðuð langveikri íslenskri stúlku að njóta kunnáttu kínversks læknis því í slíkri aðstoð felst oft sterkari boðskapur en í háfleygum ræðum. Ég vona að heimsókn yðar muni veita yður ánægju og fróðleik og leggja grundvöll að enn nánari samvinnu þjóða okkar á nýrri öld. Kínverjar og Íslendingar, fjöl- mennasta þjóð heims og ein sú fá- mennasta, geta þannig sýnt í verki hvernig allir jarðarbúar eiga sam- leið, hvernig farsæl framtíð mann- kyns er háð því að allar þjóðir virði hver aðra. Árangur okkar getur orðið öðrum hvatning og vísbending um hvernig hægt er að skapa öllum betri heim. Ég bið góða gesti að rísa á fæt- ur og lyfta glösum til heiðurs Ji- ang Zemin forseta Kína og frú Wang Yeping og til heilla vináttu Kínverja og Íslendinga.“ Morgunblaðið/Sverrir Matthías Johannessen skáld heilsar forseta Kína, Jiang Zemin, og forseta Íslands, Ólafi Ragnari Grímssyni, við upphaf hátíðarkvöldverðar til heiðurs forseta Kína. Matthías þýddi ljóð Jiang Zemin, sem forseti vitnaði í. Ávarp forseta Íslands í hátíðarkvöldverði Í Perlunni til heiðurs forseta Kína Heimsóknin staðfesting á vilja til að efla samskiptin HEILDARKJÖRSÓKN í nýliðnum sveitarstjórnarkosningum var 83%, samkvæmt samantekt félagsmála- ráðuneytisins, sem fengið hefur stað- festar tölur frá öllum kjörstjórnum. Á landinu öllu voru 203.119 manns á kjörskrá og fjöldi þeirra sem greiddi atkvæði var 168.657, sem er 83% kjörsókn. Til samanburðar var kjörsóknin í kosningunum fyrir fjór- um árum 82,3%. Nú voru auð og ógild atkvæði 3.500 eða 1,7% af kjör- skrá. Miðast þessar tölur við 98 sveitarfélög en ekki þau sjö þar sem sjálfkjörið var. Eins og fram hefur komið var mest kjörsókn í Mjóafjarðarhreppi, eða 100%. Þar voru 25 manns á kjör- skrá og kusu allir, þar af einn utan kjörfundar, en kosningin var óbund- in. Minnst var kjörsóknin í Borgar- fjarðarhreppi, eða 59,2%. Næst- minnsta kjörsóknin var í Skilmanna- hreppi eða 63,4%. Þar á eftir kemur Þórshafnarhreppur með 63,8% kjör- sókn. Af þeim sveitarfélögum þar sem listakosning fór fram var minnst kjörsókn á Seltjarnarnesi eða 75,6% og mest í Kjósarhreppi, 95,1%. Kjör- sókn var 90% eða meiri í 16 sveit- arfélögum. Sá elsti á 74. aldursári Samkvæmt upplýsingum frá fé- lagsmálaráðuneytinu er meðalaldur nýkjörinna sveitarstjórnarmanna 45 ár. Sá elsti verður 74 ára í ágúst, Bjarni Vilmundarson í Skorradals- hreppi í Borgarfirði, og sá yngsti rétt að verða 21 árs, Þorsteinn Loftsson í Hrunamannahreppi. Í Reykjavík er meðalaldur borgarfulltrúa 44 ár þar sem sá elsti er 58 ára og sá yngsti þrítugur. Nýliðnar sveitarstjórnarkosningar Heildarkjörsókn var 83%

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.