Morgunblaðið - 16.06.2002, Síða 8

Morgunblaðið - 16.06.2002, Síða 8
FRÉTTIR 8 SUNNUDAGUR 16. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ • Kl. 11.00 Víðavangshlaup á Gamla grasvellinum fyrir krakka fædda 1988 og yngri. • Kl. 15.00 Hátíðardagskrá á Gamla grasvellinum – Fánahylling. Guðný Kjærbo flytur ávarp fjallkonu. Guðmundur G. Haraldsson aðstoðarháskólarektor flytur þjóðhátíðarræðu. Mystery Boy. Verðlaun fyrir víðavangshlaup. Möguleikhúsið sýnir atriði úr Prumpuhólnum eftir Þorvald Þorsteinsson. Hljómsveitin Þotuliðið. Stoppleikhópurinn sýnir ,,Ævintýri Kuggs og Málfríðar” eftir Sigrúnu Eldjárn. Fótboltaleikir: Bæjarstjórn gegn leikskólastarfsmönnum. Meistaraflokkur í knattspyrnu gegn yngri flokkum. Naglaboðhlaup: Smiðir gegn Von. Lions gegn 9. bekk Grunnskólans. Pokaboðhlaup: Ráðaformenn gegn skólaliðum. Kennarar gegn 10. gekk Grunnskólans. Kynnir er Bergný Jóna Sævarsdóttir. • Kl. 16:00 Glæsilegt kaffihlaðborð frá Vitanum hefst í Grunnskólanum. • Kl. 18:00 Kveikt verður upp í grillinu og boðið upp á pyslur og svaladrykk. • Kl. 19.00 Kvölddagskrá í Skýjaborg. Unglingadeildin Von með kvöldskemmtun. • Kl. 19:00-20:30 fyrir 10 ára og yngri. • Kl. 20:30-22:00 fyrir 11-13 ára. • Kl. 22:00-24:00 fyrir 14 ára og eldri. Þjóðhátíðarnefnd Sandgerðisbæjar. 17. júní 2002 dagskrá í Sandgerði Málstofa um heilsu barna í Evrópu Lýðheilsa barna rædd Miðstöð heilsu-verndar barna ogHéraðslæknirinn í Reykjavík bjóða til mál- stofu um heilsu barna mið- vikudaginn 19. júní milli 9 og 12 í Hlíðarsmára 8, Kópavogi. Geir Gunn- laugsson, yfirlæknir Mið- stöðvar heilsuverndar barna, segir okkur nánar frá málstofunni. Hvaða fyrirlesarar verða á málstofunni og um hvað fjalla þeir? „Fjórir erlendir gesta- fyrirlesarar koma og flytja erindi í málstofunni. Verk- efnisstjóri CHILD, Mich- ael Rigby frá skipulags- deild heilbrigðismála við Keele-háskólann í Eng- landi, kynnir CHILD- verkefnið. Markmið þess er að skilgreina áhrifaþætti á heilsu barna sem hægt er að nota til að gera marktækan samanburð á heilsu og aðstæðum barna milli aðildarlanda Evrópusambands- ins, auk Noregs og Íslands. Pró- fessor Lennart Köhler, frv. rekt- or Norræna heilsuháskólans í Gautaborg í Svíþjóð, mun fjalla um þroska barna og velta fyrir sér á hvern hátt hægt sé að meta hann. Giorgio Tamburlini frá Trieste á Ítalíu við Burlo Garo- folo-stofnunina, en þar er unnið að rannsóknum á heilsu barna, mun fjalla um umhverfisþætti sem hafa áhrif á heilsu barna og á hvern hátt hægt sé að fylgjast með framkvæmd stefnumótunar stjórnvalda um þætti er varða heilsu þeirra. Englendingurinn Aidan Macfarlane er formaður Evrópusamtaka barnalækna um heilsu barna og mun fjalla um heilbrigðisskrár barna sem eru geymdar af foreldrunum sjálfum í stað þess að vera í geymslu á heil- brigðisstofnunum. Að lokum mun ég fjalla um á hvern hátt CHILD- verkefnið geti nýst í starfi okkar að heilsuvernd barna hér á Ís- landi. Auk þessa verða síðan um- ræður um erindi málstofunnar.“ Hver er saga þróunarverkefn- isins CHILD? „Þessi skemmtilega skamm- stöfun á heiti verkefnisins CHILD – Child Health Indica- tors for Life and Development – finnst mér ná anda og markmið- um þess mjög vel. CHILD er hluti af stærra verkefni innan Evrópusambandsins og EES um sameiginlegar skilgreiningar á heilsubreytum í aðildarlöndunum. Þetta er mikilvægt fyrir lýðheilsu þar sem án slíkra skilgreininga er erfitt að meta heilbrigðisástandið í eigin landi í samanburði við önn- ur aðildarlönd og leggja grunn að markvissri heilbrigðisstefnu. Það þótti mikilvægt að huga sérstak- lega að heilsu barna þar sem ekki var heppilegt að nota í öllum til- vikum sömu heilsubreytur fyrir þau og fullorðna. Einnig var til staðar jákvæð reynsla af slíkum samanburði á Norðurlöndunum, en prófessor Lennart Köhler hefur verið einn forgangsmanna í þeirri vinnu sl. tvo ára- tugi. CHILD-verkefni Evrópusambandsins hófst síðan formlega haustið 2000 og fyrsta áfanga þess lýkur nú í september nk. Koma þessara er- lendu gesta er því í tengslum við vinnufund CHILD sem verður haldinn hér á landi þ. 20.–21. júní nk.“ Hver er gagnsemi málstofu af þessu tagi, að þínu mati? „Aðstæður og heilsa barna þurfa sérstaka athygli þar sem börn eru framtíð hvers lands. Ég tel komu þessara gesta og mál- stofuna sjálfa einstakt tækifæri fyrir okkur til að fylgjast með því sem er að gerast í Evrópu, heilsu barna á Íslandi til framdráttar. Einnig er mikilvægt fyrir CHILD og markmið þess að ná út til fólks sem starfar við verk- efni tengd lýðheilsu barna og bjóða til skoðanaskipta.“ Hvernig er heilsu barna háttað á Íslandi miðað við önnur lönd? „Við Íslendingar erum með réttu stoltir yfir þeim góða ár- angri sem hefur náðst á mörgum sviðum hvað varðar heilsu barna hér á landi. Ungbarnadauðinn á Íslandi er m.a. með því lægsta sem þekkist. Félagslegar fram- farir ásamt betri efnahag og auk- inni þekkingu og menntun for- eldra hafa stuðlað að þessum jákvæða árangri, auk öflugrar þjónustu ung- og smábarna- verndar. Samtímis sem líkam- legri heilsu barna hefur almennt farið fram er vaxandi fjöldi barna greindur með annars konar vandamál, t.d. hvað varðar vits- munaþroska og hegðun. Hér höf- um við mikið verk að vinna sem krefst lausna sem ná út fyrir ramma hefðbundinnar heilbrigð- isþjónustu. Í þessu ljósi er starf CHILD mikilvægt því það hjálp- ar okkur að greina betur en nú hvar skóinn kreppi.“ Hverjum er málstofan ætluð – er hún öllum opin? Málstofan er opin öllu áhugafólki um lýð- heilsu barna. Það er mjög æskilegt að aðrir sem vinna með börn, ekki bara heilbrigðis- starfsfólk, komi og taki þátt því heilsa barna verður ekki bætt án þverfaglegs átaks. Þátttaka er öllum að kostnað- arlausu, en til að auðvelda und- irbúning er æskilegt, þótt það sé ekki nauðsynlegt, að tilkynna þátttöku í síma 585 1350 á Mið- stöð heilsuverndar barna eða senda netbréf til barnapostur- @hr.is.“ Geir Gunnlaugsson  Geir Gunnlaugsson fæddist 24. maí 1951 í Gautaborg í Svíþjóð. Að loknu læknaprófi frá Háskóla Íslands 1978 stundaði hann fram- haldsnám og störf í barnalækn- ingum við barnaspítala Karol- inska/St Göran í Stokkhólmi á árunum 1985 til 1993 og lauk þaðan doktorsprófi. Á árunum 1982–1985 og 1993–1998 starfaði hann í Gíneu-Bissá í Vestur- Afríku. Hann er yfirlæknir Mið- stöðvar heilsuverndar barna og formaður Félags um lýðheilsu. Geir er kvæntur Jónínu Ein- arsdóttur mannfræðingi og eiga þau þrjá syni. Málstofan er opin öllu áhugafólki Ég sendi þig bara í athvarfið tossinn þinn ef þú getur ekki fengið það í hausinn hvernig á að reikna kálf í kú. ÓLAFUR B. Thors var sæmdur Orðu hinnar rísandi sólar með gylltum geislum og hálsborða, við hátíðlega athöfn í Súlnasal sl. fimmtudag. Honum var sýndur þessi heiður í virðingar- og þakklætisskyni fyrir að hafa í 20 ár gegnt starfi aðalræðismanns Japans á Ís- landi. „Framlag Ólafs B. Thors við að efla tengsl Íslands og Japans á viðskiptasviðinu, í stjórnmálum og í menning- armálum er ómetanlegt. Hann hefur einnig lagt sig fram um að bæta hag Japana hér á landi og sinnt starfi sínu af meiri alúð og áhuga en almennt er hægt að krefjast af aðalræðismönnum,“ segir í fréttatilkynn- ingu frá japanska sendiráðinu. Morgunblaðið/Arnaldur Japanski sendiherrann á Íslandi, hr. Masao Kawai, afhendir Ólafi B. Thors Orðu hinnar rísandi sólar. Heiðraður af Japanskeisara FASTEIGNAMAT ríkisins vinnur nú jafnt og þétt að úrvinnslu at- hugasemda fasteignaeigenda við nýtt fasteigna- og brunabótamat. Nýja matið var birt í júní í fyrra, en eigendur gátu sent inn athugasemd- ir fram til 15. september 2001. Að sögn Hauks Ingibergssonar, forstjóra Fasteignamats ríkisins, hafa þegar verið afgreiddar um 5000 athugasemdir af alls 13000. Hann sagði afgreiðsluna ganga bærilega vel, en hvert mál tæki óhjákvæmilega sinn tíma við gagna- söfnun og úrvinnslu. „Við höfum unnið hörðum höndum að farsælli úrlausn mála, og höfum leyst úr rúmlega þriðjungi athugasemd- anna,“ sagði Haukur. Flestar at- hugasemdir bárust um nýtt bruna- bótamat, en mun færri um nýtt fasteignamat. Ekki liggja fyrir tölur um í hve mörgum tilvikum athugasemdir leiddu til breytinga á mati, en að sögn Hauks hafa langflestir unað vel við úrskurðinn. Vegna nýja matsins, og athuga- semda fasteignaeigenda, liggja nú fyrir mun nákvæmari og ítarlegri upplýsingar í landskrá fasteigna um ýmsar húseignir, enda nokkur tími síðan landskráin var uppfærð á jafn heildstæðan hátt. Fasteignamatið Búið að af- greiða 5000 athugasemdir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.