Morgunblaðið - 16.06.2002, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 16.06.2002, Qupperneq 10
10 SUNNUDAGUR 16. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ MARKMIÐ átaksinser að vekja athygli áþeim atvinnutæki-færum, sem í boðieru við störf við umönnun og þjónustu við aldraða og jafnframt að stuðla að breyttu við- horfi til starfa í öldrunarþjónustu. Anna Birna Jónsdóttir, hjúkrunar- forstjóri í Sóltúni og formaður átakshópsins, segir að reikna megi með einu stöðugildi fyrir hvert rými á hjúkrunarheimili. Eins og fram hefur komið eru eldri borgarar um 32 þúsund og þar af búa rúmlega 60% á höfuðborgarsvæðinu. „Það má segja sem svo að eina stöðu þurfi fyrir hvert hjúkrunar- rými eða hvern einstakling,“ sagði Anna Birna. „Þar fyrir utan er búist við talsverðri aukningu í heimaþjón- ustunni, en þar er ekki gert ráð fyrir einu stöðugildi á einstakling. Í þeirri þjónustu er því um helmingi færra starfsfólk að ræða. Ef við reiknum með tíu til tólf nýjum heimilum á næstu árum fyrir um hundrað manns hvert er hér um að ræða mörg hundruð störf. Þar fyrir utan er gífurleg aukning í þjónustu við hressa eldri borgara, sem búa við til- tölulega góða heilsu. Bæði við að sinna forvörnum og styðja við þenn- an hóp þó svo hann flokkist ekki undir að vera sjúkur. Við þessu verður að bregðast.“ Átakinu er einnig ætlað að stuðla að viðhorfsbreytingu til starfa í öldr- unarþjónustu og bæta ímynd aldrað- ra í þjóðfélaginu. Á vegum átaksins hefur verið opnað veftorg www.elli- smellur.is. Þar má finna upplýsingar um hjúkrunarheimili, menntun sem boðið er upp á, auk umsóknareyðu- blaða fyrir störf í öldrunarþjónustu. Átak um breytta ímynd í öldrunarþjónustu - Athygli vakin á nýjum atvinnutækifærum í öldrunarþjónustu Heilbrigðisráðuneytið og sveitarfélögin hafa hrint af stað átaki, þar sem athygli er vakin á atvinnutæki- færum við umönnun og þjónustu við aldraða, en gert er ráð fyrir einu stöðugildi fyrir hvert rými á hjúkrunarheimilum. Kristín Gunnarsdóttir kynnti sér átakið og ræddi við nokkra starfsmenn öldrunarþjónustunnar um reynslu þeirra í starfi. Morgunblaðið/ Ásdís Eldri borgarar eru nú um 32 þúsund og þar af búa rúmlega 60% á höfuðborgarsvæðinu. Þjónusta við þennan hóp hefur aukist umtalsvert hin síðari ár, ekki hvað síst við hressa eldri borgara sem búa við tiltölulega góða heilsu. Anna Birna Jónsdóttir Eitt stöðugildi fyrir hvert hjúkrunarrými Morgunblaðið/Þorkell „ÉG er mjög ánægð með að hafa val- ið þann starfsvettvang innan fé- lagsráðgjafarinnar að vinna að mál- efnum aldraðra,“ sagði Jóna Eggertsdóttir félagsráðgjafi á Landakoti. Jóna lauk námi í fé- lagsráðgjöf fyrir um 20 árum og fór þá fljótlega að vinna fyrir aldraða. Fyrst hjá Félagsþjónustu Reykja- víkurborgar, síðan á öldrunarlækn- ingadeild á Borgarspítalanum og loks á Landakoti. Gefandi samskipti „Mér hafa alltaf fundist samskipt- in við aldraða gefandi en það sem endanlega varð til þess að ég tók ákvörðun um að vinna með öldruð- um var í verklegu námi á öldrunar- lækningadeild Landspítalans í Há- túni,“ sagði hún. „Þar kynntist ég mjög góðum vinnubrögðum varð- andi félagsráðgjöf á öldrunarlækn- ingardeild hjá Sigurveigu H. Sigurð- ardóttur félagsráðgjafa. Mér fannst strax áhugavert hve mikil áhersla var lögð á þverfaglega vinnu á öldr- unarlækningadeildum. Í teymis- vinnu er unnið á jafnréttisgrundvelli að því að leysa úr erfiðum málum, þar sem sérþekking hverrar stéttar nýtist. Í teyminu taka þátt læknar, hjúkrunarfræðingar, sjúkraþjálfar- ar, iðjuþjálfarar og félagsráðgjafar en auk þess koma oft fleiri stéttir inn í teymið.“ Jóna sagði að félagsráðgjafar ynnu einnig mikið með fjölskyldum sjúklinganna, veittu þeim upplýsing- ar og stuðning. Mikið samstarf er við hjúkrunarheimilin, félagsþjón- ustu sveitarfélaganna og aðra sem veita öldrunarþjónustu. Innan öldr- unarsviðs Landspítala – háskóla- sjúkrahúss á Landakoti, í Fossvogi og á Hringbraut vinna tíu félagsráð- gjafar og sagði Jóna að starfsað- staða á Landakoti væri mjög góð. „Síðan ég byrjaði að vinna á þess- um vettvangi hefur ýmislegt breyst,“ sagði Jóna. „Mér finnst aldraðir vera betur upplýstir um réttindamál sín en áður var. Ég tel að þáttur í því sé aukin fræðsla frá Tryggingastofnun ríkisins til þessa hóps. Einnig bjóða ýmis félagasam- tök og fyrirtæki starfsmönnum sín- um upp á námskeið um starfslok, þar sem meðal annars er veitt fræðsla um réttindamál. Úrræðum varðandi þjónustu hefur einnig fjölgað. Má þar nefna hjúkrunar- heimili, dagvistunarstofnanir, þjón- ustuíbúðir og mikil þróun hefur orð- ið á þjónustu fyrir heilabilaða.“ Menntuðu starfsfólki hefur fjölgað Á Landakoti hefur verið byggður upp spítali fyrir aldraða. Þar eru deildir með mismunandi þjónustu fyrir aldraða eftir að þangað var flutt starfsemi sem hafði verið á nokkrum öðrum stöðum í Reykjavík. Jóna sagði að vel menntuðu starfsfólki úr öllum stéttum hefði fjölgað á þessum starfsvettvangi á undanförnum árum. „Samt sem áður eru enn svipuð vandamál og þegar ég byrjaði að starfa,“ sagði hún. „Hjúkrunarrýmin eru of fá, ekki er nægileg heimaþjónusta, skortur er á skipulögðum skammtímainnlögnum og aldraðir sjúklingar þurfa að bíða of lengi á spítölum eftir varanlegri vistun svo eitthvað sé nefnt. Ég tel samt sem áður að margt hafi verið gert til fyrirmyndar varðandi öldr- unarmálin í Reykjavík, en mjög brýnt er að byggja upp áframhald- andi þjónustu á ýmsum stigum. Þó að oft sé tekist á við flókin verkefni í félagsráðgjafastarfi með öldruðum finnst mér það forréttindi að hafa fengið tækifæri til að starfa með þeim þessi ár, en auk þess hef ég kynnst og unnið með mörgu ágæt- isfólki innan öldrunarþjónustunn- ar.“ Teymisvinna á jafnréttisgrunni Morgunblaðið/Kristinn Jóna Eggertsdóttir félagsráðgjafi á Landakoti.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.