Morgunblaðið - 16.06.2002, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 16.06.2002, Qupperneq 12
12 SUNNUDAGUR 16. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ PÓLITÍSKAR hræringar í Vestur- Evrópu kunna að hafa í för með sér að töf verði á að fyrrum kommún- istaríki í álfunni miðri og austan- verðri bætist í hóp aðildarþjóða Evrópusambandsins (ESB). Þetta kemur fram í nýjasta hefti breska vikuritsins The Economist. Þá hef- ur blossað upp erfið deila milli ESB og umsóknarríkjanna um hversu langt skuli ganga í styrkja- greiðslum til bænda og svæða þar sem efnahagsástand er bágborið er nýju ríkin ganga í sambandið. Aðildarríki Evrópusambandsins eru nú 15 en mörkuð hefur verið sú stefna að veita skuli fyrrum komm- únistaríkjum í Mið- og Austur-Evr- ópu aðild að þessu samstarfi. Slíkt sé í raun óhjákvæmilegt því þannig megi á ný sameina Evrópu. Stefnt hefur verið að því að gengið verði frá samningum við 10 ný aðildarríki á leiðtogafundi ESB í Kaupmanna- höfn í desembermánuði. Hefur þá verið miðað við að ríkin tíu gætu fengið fulla aðild að ESB árið 2004. The Economist greinir frá því að efa sé nú tekið að gæta um að takast muni að framfylgja þessari áætlun. Günter Verheugen, sem fer með stækkunarmálin innan fram- kvæmdastjórnar Evrópusambands- ins, hefur lýst yfir áhyggjum sínum og orðað þær svo að „tækifærið“ kunni að vera við að ganga mönnum úr greipum. Það er einkum þrennt sem skap- að hefur þessa nýju stöðu. Í fyrsta lagi hefur aðildarríkjum ESB og umsóknarríkjunum ekki tekist að setja niður deilur um fjár- hagslegar hliðar stækkunarinnar en þar ræðir einkum um þá milljarða evra sem ESB lætur frá sér á ári hverju í formi styrkja til bænda og fátækra svæða innan sambandsins. Í öðru lagi hefur „hið pólitíska andrúmsloft“, svo aftur sé vitnað til Verheugens, breyst í Evrópu á und- anliðnum mánuðum. Þar er einkum verið að vísa til uppgangs flokka víða í álfunni vestanverðri sem leggjast gegn þeirri stefnu er stjórnvöld hafa fylgt varðandi inn- flytjendur. Í þriðja lagi kann svo að fara að Írar felli á ný Nice-samning Evr- ópusambandsins í þjóðaratkvæða- greiðslu. Sá samningur er talinn til lykilatriða þegar stækkunarferlið er annars vegar. Breska tímaritið segir að ekkert eitt þessara atriða kunni að leiða til þess að horfið verði frá þeim metn- aðarfullu áformum um stækkun sem ESB hafði sett sér. Saman geti þessi þrjú atriði hins vegar orðið til þess að stefna þeim í hættu. Sligandi styrkjakerfi Um 80% fjárlaga Evrópusam- bandsins renna til bænda og fátæk- ari svæða í aðildarríkjunum. Sökum þessa hefur lengi legið fyrir að stækkun til austurs myndi reyna mjög á þetta kerfi þar sem ljóst er að nýju aðildarríkin myndu flest hver falla undir þessa skilgreiningu um styrki og þróunargreiðslur. Framkvæmdastjórnin hefur lagt til að bændur í umsóknarríkjunum fái í fyrstu um fjórðung þess stuðnings sem starfsbræður þeirra í aðildar- ríkjunum njóta nú. Staða bænda í álfunni verði síðan jöfnuð á tíu ár- um. Stjórnvöld í umsóknarríkjunum segja þetta fyrirkomulag ósann- gjarnt og að ótækt sé með öllu að bændur í ríkjum þeirra keppi við ríkari bændur í álfunni vestanverðri á þessum forsendum. Aðildarríkin meta stöðu mála á annan veg. Þar ræðir einkum um stjórnvöld í Bretlandi, Þýskalandi, Svíþjóð og Hollandi, sem lengst vilja ganga í breytingum á hinni sameiginlegu landbúnaðarstefnu Evrópusambandsins. Þau óttast þann óheyrilega kostnað sem það muni hafa í för með sér öðlist bænd- ur í nýju ríkjunum á tíu árum sama rétt til styrkja og starfsbræður þeirra í aðildarríkjunum njóta nú. Slíkt muni að auki hafa í för með sér að nánast ógerlegt verði að breyta hinni sameiginlegu landbúnaðar- stefnu aðildarríkjanna, sem löngu er talið tímabært. Ákvörðun frestað Utanríkisráðherrar aðildarríkja ESB komu saman til fundar með fulltrúum 12 umsóknarríkja í Lúx- emborg á mánudag. Fundarmenn náðu ekki að setja niður deiluna um styrkina og var ákveðið að fresta ákvörðun fram til loka októbermán- aðar, að sögn Associated Press- fréttastofunnar. Fulltrúar umsókn- arríkjanna hörmuðu þessa niður- stöðu í samtölum við fjölmiðla og nokkrir þeirra sögðu að þau tíma- mörk sem sett hefðu verið varðandi aðildarviðræðurnar væru nú í hættu. Þar ræðir um leiðtogafund- inn í Kaupmannahöfn í desember sem minnst var á hér að framan. Kristina Ojulkand, utanríkisráð- herra Eistlands, sagði að frestunin kynni að hafa í för með sér að ekki gæfist nægur tími til að leysa svo flókið mál. „Það væri vissulega hryggilegt ef ekki tækist að nýta það sögulega tækifæri sem skapast hefur til stækkunar,“ sagði hún. The Economist segir að unnt hefði verið undir öllum venjulegum kringumstæðum að leysa vandann varðandi þróunarstyrki til fátækari svæða og bænda. Hins vegar hafi pólitísk umskipti í álfunni austan- verðri í för með sér að slíkt sé nú erfiðara en áður. Vísar tímaritið til uppgangs stjórnmálamanna á borð við Jean-Marie Le Pen í Frakk- landi, Jörg Haider í Austurríki, Pim heitinn Fortuyn í Hollandi og Um- berto Bossi á Ítalíu. Árangur þess- ara manna og raunar annarra flokka í álfunni í kosningum að und- anförnu sýni að hreyfingar lýð- skrumara og þjóðernissinna séu í sókn í Evrópu. Af þessum sökum verði erfiðara en ella fyrir ríkjandi valdhafa að ganga frá „rausnarleg- um samningum“ við nýju aðildar- ríkin. Það sama gildi um þann frjálsa flutning vinnuafls frá austri til vesturs sem stækkunin hefði í för með sér. Horft til Írlands Í grein blaðsins segir að almennt sé enn ekki talið pólitískt gerlegt í Vestur-Evrópu að leggjast opinber- lega gegn stækkun Evrópusam- bandsins. Andstæðingar stækkunar og efasemdarmenn þurfi því á tæki- færi að halda til að stöðva þessi áform. Það tækifæri kunni að skap- ast á Írlandi. Stjórnarskrá Írlands kveður á um að bera þurfi sérhverja breytingu á henni undir þjóðarat- kvæði. Þetta á við um Nice-samn- inginn svonefnda sem Írar hafa þegar fellt einu sinni. Sá samningur kveður m.a. á um ýmsar breytingar á stofnunum Evrópusambandsins í ljósi stækkunar þess. Flest bendir til þess að írsk stjórnvöld hyggist á ný bera samn- inginn undir þjóðina í ár. Og margt bendir til þess að Írar séu tilbúnir til að fella hann á ný. Günter Ver- heugen segir að sú niðurstaða myndi skapa „mjög alvarlegan vanda“ og kveðst ekki geta sagt til um hvernig Evrópusambandið gæti brugðist við þeirri niðurstöðu. The Economist segir að vera kunni að Evrópusambandið gæti með lagaflækjum leitt hjá sér þá niðurstöðu færi svo að Írar felldu Nice-samninginn aftur. Yrði niður- staða Íra aftur á móti sú væri það vísbending um breytt viðhorf í að- ildarríkjum Evrópusambandsins til stækkunarinnar. Því sé ekki að undra að Pólverjar, Tékkar, Ung- verjar og fleiri umsóknarþjóðir sem á sínum tíma lentu austan Járn- tjaldsins gerist nú áhyggjufullar. Stækkunarferli Evrópu- sambandsins stefnt í voða? Deilur um styrki og uppgangur þjóðernissinna í aðildarríkjum Evrópusambandsins skapar óvissu um stækkun þess til austurs Reuters Evrópskir bændur mótmæla áformum um breytingar á sameiginlegri landbúnaðarstefnu Evróusambandsins. Deila um styrki til bænda í nýj- um aðildarríkjum ESB kann, ásamt breyttum pólitískum viðhorfum í álfunni vestanverðri, að spilla fyrir stækkun sambandsins til austurs. ’ Erfiðara verði en ella að ganga frá rausnarlegum samningum ‘ Á ÞEIM sjö mánuðum sem liðnir eru síðan sett voru í Bandaríkj- unum umfangsmikil lög til að auð- velda baráttuna gegn hryðjuverk- um hefur beiðnum lögregluyfir- valda til fyrirtækja á sviði Netsins og fjarskipta um að fá að fylgjast með því hvað viðskiptavinir fyrir- tækjanna eru að gera snarfjölgað. Þeir sem beita sér fyrir per- sónuvernd óttast að aukin völd lögreglunnar, samkvæmt Föður- landsvinalögunum svonefndu og vegna minna eftirlits og aukins samstarfs yfirvalda og einkarek- inna síma- og netþjónustufyr- irtækja, kunni að koma niður á réttindum almennra borgara. Nýju lögin ná ekki bara til hryðjuverka, heldur einnig ann- arra glæpa. „Fram til 11. sept- ember var tilhneigingin sú að auka persónuverndina, fleiri var- úðarráðstafanir, gegnsærra ferli og lengri fresti,“ segir Al Gidari, lögmaður í Seattle sem sérhæfir sig í persónuverndarlögum og vinnur fyrir Net- og fjarskiptafyr- irtæki. „Núna er þetta allt komið ofan í kassa og upp í hillu þar sem það er gleymt.“ Lögreglumenn segjast verða að auka eftirlit með rafrænum boð- skiptum til þess að geta haldið í við háþróaða glæpamenn, og leggja áherslu á að slíkar rann- sóknir séu ætíð afmarkaðar – þeir séu ekki að fylgjast með öllum net- þjónum í leit að tölvuskeytum þar sem Osama bin Laden sé nefndur á nafn. Þeir sem beita sér fyrir aukinni persónuvernd eru sammála því að nauðsynlegt sé að hefta útbreiðslu hryðjuverka, en óttast að eftirlitið sé of víðfeðmt, og nái í raun til upplýsinga frá saklausum borg- urum. „Menn hafa áhyggjur af því að verið sé að búa til kerfi sem safnar gífurlegu magni af upplýs- ingum um fólk og þær kunni í framtíðinni að verða notaðar í öðrum tilgangi en þeim sem upp- haflega var ætlunin,“ sagði Alan Davidson, aðstoðarframkvæmda- stjóri Lýðræðis- og tæknirann- sóknarmiðstöðvarinnar. Saksóknarar leggja áherslu á að allar leitarbeiðnir þurfi að hljóta blessun dómara, og segja að mikið af þeim breytingum sem gerðar hafi verið á lögum og reglum miði einungis að því að auka skilvirkni kerfis sem hafði veitt glæpamönn- um yfirhöndina í netheimum. Kröfum um upplýsingar hefur fjölgað fimmfalt á við það sem þær voru fyrir 11. september, segir Gidari, en meðal þeirra fyrirtækja sem hann vinnur fyrir eru netfyr- irtækið America Online og síma- fyrirtækið AT&T. Hjá netþjón- ustufyrirtækinu Quantum Computer Services í Louisiana hafa beiðnir lögregluyfirvalda tvö- faldast eftir hryðjuverkin. Í flestum tilvikum biðja yfirvöld um upplýsingar um notendur til- tekinna netfanga, sem þau vilja fylgjast með. Nicholas Graham, talsmaður America Online, segir að beiðnum hafi fjölgað mikið eftir hryðjuverkin, en núorðið séu þær orðnar álíka margar og var fyrir þau. Samstarf netfyrirtækja og lög- regluyfirvalda var farið að aukast talsvert fyrir 11. september, segir Gidari, og var það mikil breyting frá því á upphafsárum netiðnaðar- ins. Fyrirtækin séu „ekki lengur síðasta vígið sem verndar neyt- endur fyrir atlögum yfirvalda að einkamálum þeirra. Núna er mun meiri samkennd og hjálpfýsi.“ Stóraukið sam- starf og eftirlit AP Lögmaðurinn Al Gidari á skrifstofu sinni í Seattle. San Jose í Kaliforníu. AP. Bandarísk yfirvöld sækjast eftir upplýsingum um notendur Netsins
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.