Morgunblaðið - 16.06.2002, Síða 16
HM 2002
16 SUNNUDAGUR 16. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK
OLIVER Kahn, markvörður Þjóð-
verja, átti 33 ára afmæli í gær, daginn
sem Þjóðverjar léku við Paragvæ.
„Það hefði verið algjörlega út í bláinn
að tapa leik á afmælisdaginn,“ sagði
Kahn í léttum dúr eftir leikinn, en
hann er fyrirliði þýska landsliðsins.
KAHN sagði að afar lítil stemning
hefði verið á meðal þeirra 25.000
áhorfenda sem fylgdust með leik
Þjóðverja og Paragvæ. „Andrúms-
loftið minnti einna helst á vináttuleik
í þýsku þorpi,“ sagði Kahn og vonast
hann til að meira líf verði á meðal
áhorfenda á næsta leik Þýskalands
sem verður gegn Mexíkó eða Banda-
ríkjunum á föstudaginn.
CESARE Maldini, þjálfari Para-
gvæ, sagði að hann væri hættur þjálf-
un landsliðsins. Maldini, sem er rúm-
lega 70 ára, mun taka að sér að skoða
efnilega leikmenn fyrir ítalska liðið
AC Milan, en hann tók við Paragvæ í
desember á sl. ári og gerði þá sex
mánaða samning.
JAPÖNSKU landsliðsmennirnir í
knattspyrnu ættu að eiga fyrir brýn-
ustu nauðþurftum á næstunni því
hver þeirra hefur fengið að jafnvirði
um 5,5 milljóna króna í greiðslur fyrir
árangur japanska landsliðsins til
þessa á HM. Enn mun bætast við þá
upphæð takist Japönum að leggja
Tyrki í 16-liða úrslitum á þriðjudag-
inn.
BOBBY Robson, knattspyrnustjóri
Newcastle og fyrrverandi landsliðs-
þjálfari Englendinga, var í gær aðlað-
ur af bresku drottningunni og ber því
nafnið Sir Bobby Robson framvegis.
ROBBIE Fowler lék sinn fyrsta
leik á HM að þessu sinni þegar hann
kom inn á sem varamaður í byrjun
síðari hálfleiks í stað Michaels
Owens.
TEDDY Sheringham lék sinn 50.
landsleik fyrir England gegn Dönum
í gær. Sheringham kom inn á sem
varamaður fyrir Emile Heskey á 67.
mínútu.
Þetta er í annað sinn sem Para-gvæ fær á sig mark á lokamín-
útum í 16-liða úrslitum á HM. Árið
1998 skoraði Laurent Blanc fyrirliði
Frakka gullmark í framlengingu
sem tryggði Frökkum áframhald-
andi þátttöku í keppninni – en
Frakkar stóðu uppi sem heimsmeist-
arar í þeirri keppni.
Neuville sagði að hann hefði trúað
því í síðari hálfleik að ísinn myndi
brotna fyrr eða síðar.
„Paragvæ var aðeins að leika uppá
jafntefli, framlengingu og víta-
spyrnukeppni. Ég vissi að við mynd-
um skora fyrr eða síðar og það gekk
eftir,“ sagði Neuville, sem leikur
með Bayer Leverkusen.
Fyrrum félagi Neuvilles, Michael
Ballack, sem er á leið til Bayern
München, sagði að leikurinn yrði
ekki eftirminnilegur.
„Auðvitað hefði verið betra að
skora fyrr í leiknum. Við vorum hins-
vegar betra liðið, fengum betri tæki-
færi og unnum sanngjarnan sigur.
Við sýndum styrk okkar í 90 mínútur
og vörnin var okkar sterkasta hlið í
leiknum.
„Leikurinn var jafn allt þar til að
við fengum markið á okkur. Það var
ekki mikið um færi í leiknum, miðju-
þófið var allsráðandi, en það má aldr-
ei sofna á verðinum á þessu stigi
keppninnar. Það gerðum við eitt
augnablik,“ sagði Cesar Maldini,
sem stýrði landsliði Paragvæ í síð-
asta sinn í leiknum.
Hinn litríki markvörður Paragvæ
Jose Luis Chilavert fékk eitt tæki-
færi til þess að láta ljós sitt skína
sem aukaspyrnusérfræðingur liðsins
en þrumaði knettinum himinhátt yfir
markið. Hann fær ekki fleiri tæki-
færi að þessu sinni í tilraun sinni til
þess að verða fyrsti markvörðurinn
til að skora mark í lokakeppni HM.
„Við föllum úr leik sem hetjur.
Þjóðverjar áttu í erfiðleikum gegn
okkur, við vorum jafnokar þeirra en
náðum ekki að halda hreinu og skora
mark líkt og þeir. Við getum snúið
heim á leið og borið höfuðið hátt,“
sagði Chilavert.
Rauða spjaldið fór á loft undir lok
leiksins er Roberto Acuna, Paragvæ,
var sendur í bað eftir að hafa gefið
Ballack olnbogaskot í andlitið.
FRÁ árinu 1954 hafa Þjóðverjar ávallt tryggt sér sæti í 8-liða úrslit-
um á HM í knattspyrnu og í keppninni í ár varð engin breyting þar á.
Oliver Neuville tryggði Þjóðverjum 1:0 sigur gegn Paragvæ í fyrsta
leik 16-liða úrslitanna í gær en allt virtist stefna í framlengingu því
markið kom ekki fyrr en á 88. mínútu. Þjóðverjar hafa verið þekktir
fyrir að skora mörk undir lok leikja og vilja sumir meina að „þýska
vélin“ sé farin að hitna verulega en Þjóðverjar mæta Bandaríkjunum
eða Mexíkó í átta liða úrslitunum nk. föstudag í Ulsan í Suður-Kóreu.
Þýska „vélin“
er að hitna
Öll mörkin voru skoruð í fyrrihálfleik. Rio Ferdinand skoraði
strax á 4. mínútu eftir mistök Thom-
as Sörensens í marki Dana, Michael
Owen komst loks á blað á 22. mínútu
og félagi hans frá Liverpool, Emile
Heskey, gerði slíkt hið sama á 44.
mínútu er hann bætti þriðja markinu
við. Markið sem Ferdinand skoraði
var afar slysalegt þar sem Sörensen
varði skalla hans en missti knöttinn
inn fyrir marklínuna. Þetta var
fyrsta mark Ferdinands en markið
gæti verið flokkað sem sjálfsmark
Sörensens.
David Beckham lagði upp tvö
mörk í leiknum.
Þetta er í fyrsta sinn sem enska
liðið kemst í 8-liða úrslit síðan 1990,
þá undir stjórn Bobby Robson, á
Ítalíu. Þar lagði liðið Kamerún, 3:2,
en tapaði í vítaspyrnukeppni gegn
Þjóðverjum í 8-liða úrslitum.
Englendingar búast flestir við því
að mæta Brasilíu í næstu umferð en
Brasilía og Belgía leika á mánudag í
16-liða úrslitum.
Sven Göran Eriksson, þjálfari
enska liðsins, sagði að allt væri nú
opið á HM og að næstu sex dagar
yrðu notaðir til þess að undirbúa
næstu skref og að Michael Owen hafi
verið hvíldur í síðari hálfleik þar sem
hann fann til í nára, en meiðslin væru
ekki alvarleg. „Kannski var 3:0 of
stór sigur miðað við gang leiksins, en
hvað um það, við unnum og erum
komnir áfram. Við vörðumst vel í síð-
ari hálfleik, danska liðið var með
knöttinn megnið af leiknum, en náði
ekki að skapa sér marktækifæri,“
sagði Svíinn. Morten Olsen, þjálfari
danska landsliðsins, var upplitsdjarf-
ur í viðtali við danska ríkissjónvarpið
og sagði að danska liðið hefði stýrt
leiknum frá upphafi til enda.
„Úrslit leiksins segja ekki alla sög-
una. Upphaf leiksins var okkur ekki í
hag og þrátt fyrir að England hafi
skorað þrjú mörk, fannst mér danska
liðið leika vel í dag,“ sagði Olsen.
Draumur Dana
á HM er á enda
Reuters
David Beckham, Rio Ferdinand og Michael Owen fagna marki þess síðastnefnda í 3:0 sigri Eng-
lands gegn Dönum á HM. Ferdinand skoraði fyrsta markið en Beckham lagði upp tvö markanna.
MARGIR knattspyrnáhugamenn hafa beðið eftir því að enska lands-
liðið misstigi sig í keppni bestu landsliða heims sem nú fer fram í
Japan og Suður Kóreu. Englendingar hafa hinsvegar hrist af sér all-
ar hrakspár til þessa og sýndu mátt sinn í gær er liðið gjörsigraði
Dani, 3:0, í 16-liða úrslitum keppninnar.
KNATTSPYRNA
HM í Japan og Suður-Kóreu
16-liða úrslit
Þýskaland – Paragvæ 1:0
Mark Þýskalands: Oliver Neuville 88.
Markskot: Þýskaland 20 – Paragvæ 9.
Horn: Þýskaland 5 – Paragvæ 1.
Rangstaða: Þýskaland 1 – Paragvæ 7.
Gul spjöld: Bernd Schneider, Þýskalandi
35., Frank Baumann, Þýskalandi 71.,
Michael Ballack, Þýskalandi 90., Roberto
Acuna, Paragvæ 26., Jose Cardoso, Para-
gvæ 50.
Rautt spjald: Roberto Acuna, Paragvæ 90.
Áhorfendur: 25.176.
Dómari: Carlos Batres, Guatemala
Lið Þýskalands: Oliver Kahn, Torsten
Frings, Marko Rehmer (Sebastian Kehl,
46.), Christoph Metzelder (Frank Bau-
mann, 60.), Thomas Linke, Bernd Schnei-
der, Marco Bode, Jens Jeremies, Michael
Ballack, Oliver Neuville (Gerald Asam-
oah, 90.), Miroslav Klose.
Lið Paragvæ: Jose Luis Chilavert, Franc-
isco Arce, Carlos Gamarra, Celso Ayala,
Julio Cesar Caceres, Denis Caniza,
Estanislao Struway (Nelson Cuevas 90.),
Roberto Acuna, Carlos Bonet (Diego
Gavilan, 84), Roque Santa Cruz (Jorge
Campos, 29), Jose Cardoso.
Þýskaland mætir Bandaríkjunum eða
Mexíkó í átta liða úrslitum í Ulsan í Suður-
Kóreu á laugardaginn kl. 11.30.
Danmörk – England 0:3
Mörk Englands: Rio Ferdinand 5., Mich-
ael Owen 22., Emile Heskey 44.
Markskot: Danmörk 21 – England 17.
Horn: Danmörk 8 – England 3.
Rangstaða: Danmörk 2 – England 3.
Gult spjald: Stig Töfting, Danmörku, 24.,
og Danny Mills, Englandi, 50.
Rautt spjald: Enginn.
Áhorfendur: 40.582.
Dómari: Markus Merk, Þýskalandi.
Lið Danmerkur: Thomas Sörensen; Stig
Töfting (Claus Jensen 58.), Rene Henrik-
sen, Martin Laursen, Thomas Helveg
(Kasper Bogelund 7.), Thomas Gravesen,
Jesper Gronkjær, Jon Dahl Tomasson,
Ebbe Sand, Niclas Jensen, Dennis
Rommedahl.
Lið Englands: David Seaman, Danny
Mills, Ashley Cole, Trevor Sinclair, Rio
Ferdinand, Sol Campbell, David Beck-
ham, Paul Scholes (Kieron Dyer 49.),
Michael Owen (Robbie Fowler), Emile
Heskey (Teddy Sheringham, 69.), Nicky
Butt.
England mætir Brasilíu eða Belgíu í 8-
liða úrslitum í >Shizouka í Japan á föstu-
daginn kl. 6.30.
Næstu leikir:
Sunnudagur 16. júní:
Svíþjóð – Senegal ..................................6.30
Spánn - Írland .....................................11.30
Mánudagur 17. júní:
Mexíkó – Bandaríkin ............................6.30
Brasilía – Belgía..................................11.30
Þriðjudagur 18. júní:
Japan – Tyrkland ..................................6.30
Suður Kórea – Ítalía ...........................11.30
Eftir að keppni í 16-liða úrslitum lýkur á
þriðjudag verður ekkert leikið í keppninni
fyrr en á föstudag þegar 8-liða úrslitin
hefjast með tveimur leikjum. Daginn eftir
verða síðari tveir leikirnir háðir. Eftir það
verður tveggja dag hlé fyrir undanúrslit-
in.
ÚRSLIT