Morgunblaðið - 16.06.2002, Page 26

Morgunblaðið - 16.06.2002, Page 26
26 SUNNUDAGUR 16. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ HUNDRAÐ ár eru nú lið-in frá því útibú Lands-banka Íslands á Akur-eyri hóf starfsemi, enþað er elsta útibú bank- ans, opnað 18. júní árið 1902. Útibú Landsbankans á Akureyri er jafn- framt elsta peningastofnun sem enn starfar á Akureyri. Útibúið hefur jafnan verið eitt stærsta útibú Lands- bankans og hefur starfsemin vaxið jafnt og þétt á þeim 100 árum sem lið- in eru frá stofnun þess. Útibúið var til húsa í Hafnarstræti 2 fyrstu tvö starfsárin og voru starfs- mennirnir tveir, Júlíus Sigurðsson amts- og sýsluskrifari, sem ráðinn var útibússtjóri, og Stephán Steph- ensen gjaldkeri. Starfsemin var flutt í Hafnarstræti 107 við Ráðhústorg ár- ið 1904 og varð í kjölfarið miðsvæðis í nýjum miðbæ Akureyrar sem var að taka á sig mynd um þetta leyti. Júlíus var útibússtjóri til ársins 1931 en þá tók Ólafur Thorarensen við. Það ár var starfsemin flutt enn á ný og nú að Ráðhústorgi 7. Flutt í eigið húsnæði við Strandgötu 1 Á þessum árum jukust umsvifin enn og svo kom að húsnæðið rúmaði ekki alla þá starfsemi sem fram fór á vegum útibúsins. Ólafur mun þá hafa farið að huga að lóð fyrir bankann og árið 1949 fékkst lóð við Strandgötu 1. Guðjón Samúelsson gerði fyrstu til- löguuppdrætti að húsinu, en lést er framkvæmdir voru að hefjast, þannig að Bárður Ísleifsson arkitekt tók við og annaðist uppdrætti og hafði aðal- eftirlit með byggingunni. Lokið var við smíði hússins árið 1954 og hefur starfsemi bankans verið þar allar göt- ur síðan. Bankabyggingin er alls þrjár hæðir ásamt kjallara auk þess sem allhátt portbyggt ris er á húsinu. Fyrstu árin nýtti bankinn einungis fyrstu hæð hússins, þar sem var af- greiðslusalur, skrifstofur, snyrtingar og fatageymslur, en í kjallara voru fjárhirslur bankans, seðlageymsla Seðlabankans, geymsluhólf og geymslur. Aðrar hæðir hússins voru leigðar út. Í kjölfar þess að flutt var í glænýtt húsnæði batnaði aðbúnaður starfsfólks til mikilla muna sem og aðstaða viðskiptavina. Vélvæðing hóf innreið sína í útibúið um svipað leyti og flutt var í nýtt eigið húsnæði. Áður höfðu allar færslur verið handfærðar í bækur, en sú bylt- ing varð í vinnubrögðum í hinu nýja útibúi að færslur í sparisjóðsbækur og tékkareikninga voru vélfærðar og nokkru síðar komu gjaldkeravélar í bankann. Þótti mönnum mikið til hinnar nýju tækni koma, en eflaust hefur breytingin sem þarna varð ver- ið engu minni en sú sem starfsmenn upplifðu síðar þegar tölvur komu til. Þá var einnig tekin upp sú nýbreytni að viðskiptamönnum bauðst að leigja öryggishólf til að geyma fjármuni sína og fyrirtæki í bænum fengu að- gang að næturhólfum. Um mitt ár 1961 lét Ólafur af störf- um útibússtjóra og við tók Jón G. Sól- nes, en hann hafði starfað við útibúið frá árinu 1926. Í vikublaðinu Íslend- ingi sem gefið var út á Akureyri segir um útibússtjóraskiptin að hinn nýi bankastjóri njóti almennra vinsælda og þekki manna best til viðskipta á Norðurlandi. Á sjöunda áratugnum óx umfang útibúsins hröðum skrefum þannig að undir lokin, eða árið 1969, var önnur hæð hússins tekin undir starfsemina og nokkru síðar sú þriðja. Þá kom einnig að því að af- greiðslusalurinn á jarðhæðinni varð of lítill. Hagkvæmt þótti að stækka salinn með viðbyggingu til norðurs og var hún tekin í notkun árið 1975. Mikið álag á starfsfólki í lok árs Þó svo að færsluvélar hafi verið teknar í notkun þegar flutt var í nýtt Útibú Landsbankans á Akureyri 100 ára Viðskiptavinirnir hafa ávallt forgang Morgunblaðið/Silli Tveir af starfsmönnum Landsbankans á Akureyri við vinnu sína 1954, Halldór Helgason, síðar útibússtjóri, og Guðrún Þeng- ilsdóttir. Starfsfólk Landsbankans á Akureyri árið 1929. Efri röð f.v. Jón Finnbogason, Böðvar Bjarkan, Júlíus Sigurðsson og Vigfús Einarsson. Fremri f.v. Jón G. Sól- nes, Valgerður Björnsdóttir, Már Benediktsson og Þorvaldur Vestmann. Morgunblaðið/Silli Sigríður Ólafsdóttir og Sigurður Ringsted í afgreiðslu- sal bankans árið 1954. En það ár var lokið við byggingu bankahússins við Strandgötu 1. Morgunblaðið/Kristján Konur eru í miklum meirihluta í starfsliði Landsbankans á Akureyri og hér sést hópur kvenna sem starfar á jarðhæð útibúsins við Strandgötu. SIGURÐUR Sigurgeirsson,útibússtjóri Landsbank-ans á Akureyri og svæð-isstjóri bankans á Norð-ur- og Austurlandi, segir að markmið bankans sé að veita viðskiptavinum sínum bestu fjár- málaþjónustu sem völ er á og sýna þannig fram á að Landsbankinn sé enn í fullu fjöri og standi fyllilega fyrir sínu á 100 ára afmælinu. Alls starfa um 65 manns hjá bankanum á Akureyri en stöðu- gildin eru 50 talsins. „Starfsemi fjármálastofnana hefur tekið mikl- um breytingum á síðustu árum. Þjónustan verður sífellt flóknari þannig að kröfur til starfsfólks hafa aukist. Nú eru gerðar mun meiri kröfur til starfsmanna bæði hvað menntun og hæfni varðar en áður var,“ sagði Sigurður. Lánsöm að hafa gott starfsfólk Hann sagði Landsbankann á Akureyri einkar heppinn með starfsfólk, en margir úr hópi starfsmanna eiga að baki langan starfsaldur hjá bankanum. „Meðalstarfsaldurinn er hár, sem sýnir að fólk heldur tryggð við starf sitt í bankanum. Það er mik- ið um að fólk færi sig til innan bankans, taki við öðru starfi frem- ur en að það hætti störfum. Við teljum okkur lánsöm að því leyti að stöður hér eru mannaðar góðu og hæfileikaríku fólki,“ sagði Sigurður. Kröfur til starfsfólks hafi aukist, enda séu þau störf sem nú eru innt af hendi í bönkum fjölbreytileg og verði sífellt flókn- ari. „Fólk þarf að kunna skil á fjölmörgum atriðum, því nútíma- samfélag verður sífellt flóknara,“ sagði Sigurður. Þá nefndi hann að starfsumhverfið hefði einnig breyst að því leyti að álag á starfsfólk hefur aukist, því gerðar séu ríkar kröfur um árangur í starfi. Í anda altækrar árangurs- stjórnunar sé árangur hvers starfsmanns metinn og allir vinna eftir fyrir- fram ákveðnum mark- miðum. Aukin áhersla sé nú lögð á sölustarfsemi af margvíslegu tagi, en meðal verkefna starfs- fólks bankans sé sala lífeyrissparnaðar, sala líf- og sjúkdóma- trygginga, sölu- og markaðsstarf í klúbb- um á vegum bankans og þá sé áhersla einn- ig lögð á gæðamál, endurmenntun starfs- manna og starfsþróun. „Góð þjónusta við viðskiptavini bankans er þó alltaf forgangsverkefni starfsfólks Landsbankans,“ sagði Sigurður. Í útibúi Landsbankans á Akur- eyri er rekin Viðskiptastofa þar sem starfa fimm starfsmenn. Þeir sinna m.a. verðbréfa- viðskiptum og sér- hæfðri þjónustu við stærri viðskiptavini. Sigurður sagði það einstakt að rekin væri viðskiptastofa í útibúi, en á Akureyri hefði verið lögð áhersla á slíka starf- semi. „Flest af stærstu fyrirtækjum og stofnunum í bæn- um eru í hópi við- skiptavina okkar og forsvarsmenn þeirra kunna að meta það að hafa þessa þjón- ustu á staðnum,“ sagði Sigurður. Viðskipti að færast í auknum mæli yfir á Netið Síðustu ár hefur þjónustuver verið rekið í bankanum, þar starfa átta starfsmenn og sinna þeir símaþjónustu við landsmenn alla. Segir Sigurður vaxandi starfsemi á þessu sviði, margir nýti sér símaþjónustu. Einnig er mikil aukning í viðskiptum á Netinu. „Sjálfvirkni í bankaviðskiptum hefur aukist umtalsvert, viðskipti færast í æ ríkari mæli yfir á Net- ið, í hraðbanka og símaþjónustu,“ sagði Sigurður og taldi einsýnt að þróunin myndi áfram vera á þann veg. Þó taldi hann að menn hefðu að nokkru ofmetið hraða breytinga yfir í sjálfsafgreiðslu og netvæð- ingu. „Ég tel að þessi þróun hafi verið hægari en menn ætluðu. Eldra fólk sem ekki hefur vanist þeim lífsmáta sem tölvunum fylgir vill greinilega eiga hin mannlegu samskipti sem almennri banka- starfsemi fylgir. Það vill koma í bankann og reka sín erindi og ræða við starfsfólkið. Yngra fólk hugsar á annan hátt og það er tilbúnara að nýta sér nýja tækni.“ Bankinn í fullu fjöri á 100 ára afmælinu Sigurður Sigurgeirsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.