Morgunblaðið - 16.06.2002, Qupperneq 27
húsnæði þurfti að handreikna vexti
og uppgjör. Þessari svonefndu ára-
mótavinnu fylgdi því mikið álag á
starfsfólk, en byrjað var að reikna
vexti strax í október ár hvert og var
iðulega verið að fram á kvöld og jókst
vinnan jafnt og þétt eftir því sem nær
dró áramótum. Uppgjörið varð að
vera tilbúið í byrjun nýs árs og kom
oft fyrir að vinna þurfti við vaxtaút-
reikninga fram eftir gamlársdegi og
jafnvel á nýársdag.
Starfsemi peningastofnana tók ör-
um breytingum á níunda og tíunda
áratug nýliðinnar aldar með tilkomu
frelsis í gjaldeyrismálum, vaxtafrelsi,
tölvuvæðingu og beinlínuvinnslu og
þá jókst samkeppni milli banka, fjár-
festingafélaga, lífeyrissjóða og verð-
bréfafyrirtækja. Á þessum tíma stór-
jókst þjónusta við einstaklinga, félög
og fyrirtæki varðandi fjármálaráð-
gjöf. Þessi þróun kallaði á mun víð-
tækari þekkingu og þjálfun starfs-
fólks en áður var. Afgreiðslusölum
var í kjölfar þessa einnig breytt, en
áður hafði vinnusvæði starfsfólks
verið aðskilið frá viðskiptavinum með
afgreiðsluborði sem öll viðskipti fóru
um. Nú varð salurinn opinn og rými
aukið fyrir einstaklings- og fyrir-
tækjaþjónustu og þar til gerð af-
greiðsluborð heyrðu sögunni til nema
hvað gjaldkerana varðar.
Bankinn hefur um áratugaskeið
rekið afgreiðslu í hverfum bæjarins,
fyrst í Glerárhverfi frá 1969 til 1975
en það ár var opnuð Brekku-
afgreiðsla í verslunarmiðstöðinni í
Kaupangi. Ekki fékkst leyfi frá
Seðlabanka til að reka tvær af-
greiðslur þannig að lokað var í Gler-
árhverfi. Um tíma rak bankinn einnig
afgreiðslu á Svalbarðseyri. Um árabil
var einnig rekin afgreiðsla á Raufar-
höfn en á síðasta ári var sú afgreiðsla
sameinuð afgreiðslunni á Kópaskeri
og þær báðar settar undir útibúið á
Húsavík.
Jón G. Sólnes lét af störfum árið
1976, Magnús Gíslason tók við í lok
þess árs, en um skamma hríð hafði
Halldór Helgason verið settur úti-
bússtjóri. Helgi Jónsson tók við af
Magnúsi árið 1985 og gegndi stöð-
unni til ársins 1996 þegar Eiríkur S.
Jóhannsson tók við starfinu. Hann
hvarf til annarra starfa árið 1998 og
tók Sigurður Sigurgeirsson þá við
starfinu og gegnir því enn.
Þjóna svæði frá Skagaströnd til
Breiðdalsvíkur
Stjórnskipulag bankans hefur
einnig tekið breytingum. Árið 1992
var útibúið á Akureyri gert að svæð-
isútibúi og á síðasta ári var umdæmið
stækkað með sameiningu Norður- og
Austursvæða bankans í eitt svæði.
Útibúið á Akureyri þjónar því svæði
allt frá Skagaströnd í vestri til Breið-
dalsvíkur í austri. Á þessu svæði eru
17 útibú og afgreiðslustaðir, þar af 10
á Austurlandi, og stöðugildi í fjár-
málaþjónustu eru alls um 110. Svæðið
stendur fyrir um 16% innlána og 15%
útlána í Landsbankasamstæðunni.
Markaðshlutdeild í einstaklings-
viðskiptum á Akureyri er ríflega 1/3,
en þegar litið er til inn- og útlána er
hlutdeild bankans töluvert hærri eða
yfir 40%.
Merki Landsbankans frá 1924-
1986 en skipt var um merki á
100 ára afmæli bankans 1986.
Þetta merki Landsbankans hef-
ur að líkindum verið fengið frá
Danmörku um aldamótin 1900
og var það notað til 1924.
Merki sem var á fyrsta víxl-
inum sem gefin var út í Lands-
bankanum en ekki er vitað um
uppruna þess.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. JÚNÍ 2002 27
Í TENGSLUM við 100 ára afmæli
útibús Landsbankans á Akureyri
verður gestum boðið upp á veg-
lega afmælisdagskrá á þriðjudag,
18. júní. Hún hefst með því að fán-
ar verða dregnir að hún við útibú-
in í Strandgötu og Kaupangi undir
lúðrablæstri Blásarasveitar Tón-
listarskólans. Öllum leikskóla-
börnum í bænum verður síðan
boðið á sýningu með Gunna og
Felix í Íþróttahöllinni og að henni
lokinni verður börnunum boðið
upp á veitingar. Gunni og Felix
verða einnig með söngskemmtun
á Ráðhústorgi kl. 16 og þar verða
grillaðar pylsur og boðið upp á
safa.
Á afgreiðslutíma útibúanna
verður boðið upp á afmælistertu
og söngdagskrá verður í Strand-
götu. Óskar Pétursson bæjarlista-
maður syngur, barnakór Tón-
listarskólans tekur lagið og
strengjasveit frá skólanum spilar
einnig létt lög fyrir afmælisgesti
auk þess sem boðið verður upp á
harmonikku- og píanóleik.
Hátíðarfundur bankaráðs hefst
síðdegis á afmælisdaginn og um
kvöldið býður bankaráð starfs-
fólki sínu á Akureyri ásamt gest-
um til hátíðarkvöldverðar.
Morgunblaðið/Kristján
Landsbankinn stóð fyrir sportdegi
á Akureyri laugardaginn 8. júní sl.,
þar sem boðið var upp á fjölbreytta
dagskrá fyrir yngra fólkið og veit-
ingar sem voru vel þegnar.
Afmælisdagskrá
P &
Ó
Mátti beisla þennan kraft?
Velkomin á nýja sýningu í Ljósafossstöð við Sog.
Opið alla eftirmiðdaga í sumar.
Aflið í Soginu
Sérblað alla
sunnudag