Morgunblaðið - 16.06.2002, Síða 30

Morgunblaðið - 16.06.2002, Síða 30
LISTIR 30 SUNNUDAGUR 16. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ LISTASUMAR á Akureyri verður sett í 10. sinn næstkomandi fimmtu- dag, 20. júní. Menntamálaráðherra, Tómas Ingi Olrich, mun setja Lista- sumar formlega við athöfn í Ket- ilhúsinu. Samtímis hefst þriggja daga leiklistarhátíð sem fengið hef- ur heitið Jónsmessuleikur 2002. Dagskrá þessa 10. Listasumars var kynnt um leið og skrifað var undir samninga við aðalstyrkveit- endur þess, KEA, Eimskip, Flytj- anda og Útgerðarfélag Akureyr- inga, en samtals leggja þessi félög fram um 2 milljónir króna til Lista- sumars í ár. Akureyrarbær styrkir Listasumar einnig með myndarlegu framlagi. Benedikt Sigurðarson, stjórnar- formaður KEA, sagði félagið hafa metnað til að leggja rækt við listir og menningu. Þá væri saga félagsins samofin sögu Gilsins, en starfsemin hefði á árum áður að mestu leyti far- ið þar fram. Benedikt Elísson, for- stöðumaður Eimskips á Norður- landi, sagði félagið styrkja menningarstarfsemi af ýmsu tagi og litu forsvarsmenn þess svo á að sem burðarásar í atvinnulífi bæri þeim að leggja þessum málaflokki lið. Styrkirnir gjörbreyta stöðunni Guðmundur Árnason, formaður Gilfélagsins sem stendur að Lista- sumri, sagði styrkina gjörbreyta stöðunni, enda yrði í sumar boðið upp á óvenju veglega og metnaðar- fulla dagskrá. Alls yrðu í boði 64 við- burðir en Listasumar stendur yfir í 10 vikur. „Við erum stolt af okkar dagskrá og væntum þess að bæj- arbúar og gestir okkar munu vel njóta,“ sagði Guðmundur en hann taldi einnig líklegt að margir af þeim viðburðum sem í boði verða muni draga að sér gesti til bæjarins. Valdís Viðarsdóttir, fram- kvæmdastjóri Gilfélagsins, kynnti helstu atriði sem í boði verða í sum- ar, en sem áður sagði verður leiklist- arhátíðin Jónsmessuleikur 2002 sett við opnun Listasumars. Um er að ræða ráðstefnu um samspil áhuga- leikfélaga og atvinnuleikhúsa og þá verða í það minnsta 7 leiksýningar af ýmsum toga í boði. Þátttakendur eru frá Færeyjum og Finnlandi auk Íslands og meðal sýninga má nefna Evu, Grimm, Happy days og brúðu- leikhús auk þess sem efnt verður til sýningar í Kjarnaskógi. Samfelldar sýningar í 10 vikur Myndlistasýningar verða óslitið til ágústloka í Deiglunni og Ketil- húsinu, alls 12 sýningar. Ferðafurða stendur nú yfir í Ketilhúsinu og sýn- ing sem ber yfirskriftina 170xhring- inn verður opnuð innan skamms í Deiglunni. Af myndlistarmönnum sem við sögu koma á Listasumri má nefna Korpúlfsstaðakonur, Megas, Joris Rademaker, Ilana Halperin, Adal Putman, Erling Valgarðsson, Aðalstein Svan, Bryndísi Kondrup, Benedikt Lafleur og 10 danska myndbandslistamenn. Myndlistar- sýningar sem tengjast Listasumri verða einnig í Listasafninu á Ak- ureyri, Samlaginu-Listhúsi, Svart- fugli, Punktinum, Safnasafninu og Karólínu. Þá verða viðburðir á Minjasafninu á Akureyri. Djassinn dunar vikulega Djass verður að venju í boði á fimmtudagskvöldum, en í sumar troða upp m.a. Jazz Dukes frá Stokkhólmi, Soul Band, Kvartett Ómars Guðjónssonar, Tríó Andrés- ar Þórs Gunnlaugssonar, Andrea Gylfa og Robin Nolan Tríó, en í ágúst verður sérstök Django- djasshátíð haldin. Einn af stærri viðburðum Listasumars hvað tónlist varðar eru tónleikar Jóhanns Frið- geirs Valdimarssonar tenórs, Ólafs Kjartans Sigurðssonar bassa og Jónasar Ingimundarsonar píanó, en þeir verða haldnir 13. júlí. Þá mun Megas koma fram á tónleikum 20. júlí. Bókmenntaunnendur fá einnig sinn skerf á Listasumri. Ýmsum skáldum verður gert hátt undir höfði, ekki síst ungum skáldum sem eru að stíga sín fyrstu skref. Söng- dagskrá með sögulegu ívafi um Mar- lene Dietrich verður 27. júlí en Sif Ragnhildardóttir söngkona, Arthur Björgvin Bollason heimspekingur og Tómas R. Einarsson tónlistar- maður hafa umsjá með dagskránni. Listasumri lýkur með uppskeru- hátíð laugardaginn 31. ágúst en um verður að ræða þrefalda hátíð þar sem Listasumar, Akureyrarbær sem á afmæli 29. ágúst og Miðbæj- arsamtökin efna til menningarveislu undir samnefnaranum Menningar- nótt. „Við erum stolt af þeirri dagskrá sem við bjóðum upp á í sumar og ég er þess fullviss að hún mun vekja at- hygli og áhuga meðal bæjarbúa og landsmanna raunar allra,“ sagði Valdís. Listasumar á Akureyri haldið í 10. sinn Óvenju vegleg og metnaðar- full dagskrá Morgunblaðið/Kristján Benedikt Sigurðarson, stjórnarformaður KEA, Guðmundur Árnason, formaður Gilfélagsins, og Benedikt Elísson, forstöðumaður Eimskips á Norðurlandi, undirrita styrktarsamninginn. NÚ stendur yfir í Galleríi Reykjavík stuttsýning Bjarna Björgvinssonar. Verkin sem hann sýnir nefnir hann Óþrykkt grafík. Bjarni lauk námi frá myndlist- ardeild með sérnám í grafík frá Listaháskóla Íslands árið 2000. Auk nokkurra einkasýninga hefur Bjarni tekið þátt í fjölda samsýn- inga hérlendis og erlendis. Sýning Bjarna stendur til 19. júní. Á sama stað er sýningin Nordic Network, á skúlptúrverkum ungra norrænna leirlistamanna. Nordic Network samanstendur af átta ungum norrænum leirlista- mönnum; Anders Ruhwald frá Dan- mörku, Carolyn Linda Jeans og Helgu Birgisdóttur frá Íslandi, Heidi Graungaard frá Noregi, Heidi Sachmann og Inu Sander Nielsen frá Danmörku, Ingelu Jonasson frá Svíþjóð og Ruth Moen frá Noregi. Sýningin stendur til 26. júní. Galleríið er opið virka daga frá 12 til 18, laugardaga frá 11 til 16. Lok- að er á sunnudögum. Stuttsýning og norrænir leirlistamenn Í SUMAR verða haldin örnámskeið í tálgun og tóvinnu í Árbæjarsafni og verður fyrsta námskeiðið í tóvinnu næstkomandi miðvikudag, hinn 19. júní. Daginn eftir, fimmtudaginn 20. júní, verður síðan námskeið í tálgun. Hvert námskeið er 3 klst., hefst kl. 13 og lýkur um kl. 16. Námskeiðin eru tilvalin fyrir foreldra og börn eða jafnvel afa/ömmu og barnabörnin. Ætlast er til að börn komi í fylgd með fullorðnum. Námskeið í tálg- un og tóvinnu KVENNAKÓR Reykjavíkur tók á dögunum þátt í kórakeppninni Festi- val of Songs sem haldin var í Olomouc í Tékklandi í byrjun júní. Árangur kórsins var með ágætum og hlaut hann silfurverðlaun í tveimur flokk- um, í þjóðlagasöng og almennum kvennakórsöng. Stjórnandi kórsins er Sigrún Þorgeirsdóttir. Yfir 200 kórar tóku þátt „Sú ákvörðun var tekin fyrir nokkru innan kórsins að það væri ástæða fyrir okkur að vita hvar við stæðum gagnvart öðrum kórum og í hinum alþjóðlega kóraheimi. Íslensk- ir kórar hafa í auknum mæli tekið þátt í slíkum keppnum erlendis,“ seg- ir Sigrún í samtali við Morgunblaðið. Alþjóðlega kórakeppnin Festival of Songs sem haldin er í Olomouc í Tékklandi varð fyrir valinu hjá Kvennakórnum. Hún er haldin árlega og fór nú fram í 30. skipti. Alls tóku tæplega 200 kórar sem komu frá ýmsum löndum þátt í keppninni. „Þarna voru alls kyns kórar, allt frá barnakórum upp í fullorðinskóra, af öllum stærðum og gerðum, blandaðir kórar sem eingöngu karla- og kvennakórar,“ útskýrir Sigrún. „Við vorum eini kórinn frá norðanverðri Evrópu, en annars var þjóðerni kór- anna mjög fjölbreytilegt. Kórinn sem var lengst að kominn var frá Filipps- eyjum og var í raun stjarna þessa móts. Hann hefur fengið á þriðja tug viðurkenninga um allan heim, á mót- um sem Íslendingar þekkja vel, til dæmis í Langollen í Wales. Það var ekki síður skemmtilegur hluti af því að fara í keppnina að heyra og sjá hvað aðrir kórar víðsvegar að eru að gera.“ Hlutu silfur í tveimur flokkum Kvennakór Reykjavíkur keppti í tveimur flokkum, almennum kvenna- kóraflokki og þjóðlagaflokki, og hlaut silfurverðlaun í báðum. Í þessari keppni er ekki keppt um sæti, heldur um stig, þannig að margir geta hlotið sömu verðlaunin. Kórinn hlaut hæst- an stigafjölda í kvennakóraflokknum. „Þessi aðferð er mjög skemmtileg vegna þess að þá skiptir ekki máli hversu margir keppa í hverjum flokki. Kvennakórahefðin er almennt ekki mjög sterk enn, þannig að það er erfiðara fyrir okkur að finna keppni með kvennakórum eingöngu. Auk þess finnst mér meira virði að fá stig þar sem viðmiðunin er sú sama í öll- um flokkum. Þannig fáum við raun- hæfara mat á okkur sem kór,“ segir Sigrún. Íslensk sem erlend lög Kórinn hafði eingöngu íslensk verk á efnisskrá sinni fyrir keppnina í al- mennum kvennakórsöng. „Verkin voru allt frá íslenska þjóðlaginu Gefðu að móðurmálið mitt til lags sem Bára Grímsdóttir samdi fyrir okkur um jólin, Da pacem domine. Auk þess sungum við Haustvísur til Máríu eftir Atla Heimi Sveinsson og Spinna minni eftir Mist Þorkelsdóttur,“ út- skýrir Sigrún. Í þjóðlagaflokknum voru lögin sem kórinn söng hinsvegar frá ýmsum löndum, auk tveggja ís- lenskra þjóðlaga. „Það var skilyrði að hver kór í þjóðlagakeppninni syngi að minnsta kosti eitt þjóðlag frá sínu landi. Við sungum tvö íslensk lög, auk þess að syngja eitt þýskt, eitt sænskt og eitt tékkneskt lag. Við fengum ábyggilega nokkur stig fyrir að leggja út í tékkneskuna,“ segir Sigrún sposk. „Það var mjög skemmtilegt að fá tækifæri til að syngja á svona mörgum tungumálum. Þannig gátum við sýnt meiri breidd í efnisskránni.“ Keppt snemma morguns Ferðalag kórsins hófst í Prag, þar sem haldnir voru tónleikar í St. Niku- lásarkirkju. „Þetta er yndisleg kirkja, skemmtilegur hljómur og hreinlega heiður að fá að syngja í slíkum kirkjum. Þær eru listaverk,“ segir Sigrún. Auk þess hélt kórinn tónleika sem haldnir voru á vegum keppninn- ar, föstudaginn fyrir sjálfan keppn- isdaginn. „Liðið var vakið snemma á keppnisdeginum því við áttum að keppa í fyrri flokknum klukkan tutt- ugu mínútur yfir níu. Það var því rok- ið út í göngutúr klukkan sex um morguninn,“ segir Sigrún og skelli- hlær. „Úrslitin voru svo kunngjörð klukkan fjögur og andrúmsloftið var rafmagnað þar sem um 7.000 manns komu saman í íþróttahöll. Það var af- ar sérstök tilfinning að standa þar á gólfinu og taka við verðlaunum fyrir hönd kórsins.“ Kvennakór Reykjavíkur meðal þátttakenda í kórakeppni í Tékklandi Hlutu silfur- verðlaun í tveim- ur flokkum Kvennakór Reykjavíkur á tónleikunum í Olomouc í Tékklandi. UM langt árabil hefur verið sam- starf milli nemenda Listaháskóla Íslands (áður Myndlista- og hand- íðaskóla Íslands) og Búnaðar- bankans við Hlemm. Nemar í Listaháskólanum hafa sýnt verk sín í útstillingarglugga bankans sem snýr að Rauðarár- stíg og eru verk hvers nemanda til sýnis hverju sinni í tvær vikur. Árlega, í sérstöku hófi í bank- anum, eru styrktir tveir lista- menn og þeir valdir með út- drætti. Fyrir skömmu var þetta hóf haldið og voru vinningshafar í ár báðir að útskrifast með BA- gráðu frá myndlistardeild Listaháskóla Íslands, Anna Guð- mundsdóttir og Rósa E.R. Helga- dóttir. Búnaðar- bankinn styrkir listnema Þorsteinn Ólafs, útibússtjóri Búnaðarbankans við Hlemm, og listakon- urnar tvær, Rósa E. R. Helgadóttir og Anna Guðmundsdóttir. ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.