Morgunblaðið - 16.06.2002, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 16.06.2002, Qupperneq 31
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. JÚNÍ 2002 31 Ísland Frískandi freiðivítamín EINSTÖK KOLAGRILL Þrískipta snúningsgrillið • Úr áli - ryðgar ekki • Maturinn brennur ekki • 2 stærðir Bíldshöfða 12 • 110 Reykjavík • Sími: 577 1515 Verð kr. 29.900.- og 49.900.- BANDARÍSKAR unglingamynd- ir dagsins einkennast af gríðarlegri ofgnótt alls þess sem á að vera eft- irsóknarvert í lífi vestrænna ung- linga, og snýst kannski fyrst og fremst um kynlíf, útlitið og kæru- leysislegar skemmtanir. Þetta á mjög sterklega við um gamanmynd- ina 40 Days and 40 Nights, en hún lýsir raunum ungs manns sem tekur þá ákvörðun að fasta á allt sem tengist kynlífi í fjörutíu daga (og nætur). Myndin hefur allt til að bera sem þarf til að laða að unga bíógesti með buddurnar sínar, snið- uga fléttu sem fellur vel að þeim stöðluðu hugmyndum um kynlíf sem mótaðir og ómótaðir unglingar þurfa að glíma við. Sætur leikari í aðalhlutverki og heill hellingur af sætum og fyrirsætulöguðum stelp- um sem meira að segja þurfa að koma naktar fram fyrir myndavél- ina til að þjóna sögufléttunni. Að- alpersónan myndarlega, (öðru nafni Matt) er sem sagt dæmigerður heil- brigður ungur maður sem reynir að stríða gegn lögmálum náttúrunnar með því að neita sér um kynlíf. Sterk eðlishyggjusjónarmið liggja fléttunni til grundvallar og hrista stelpurnar í myndinni góðlátlega hausinn yfir því hversu erfitt þetta verkefni reynist nú stráknum. Sem gamanmynd er 40 Days and 40 Nights reyndar ekkert alslæm, atburðarásin er skemmtilega manísk á köflum, og er vel hægt að skella upp úr yfir hinum ýktu við- brögðum aðalsöguhetjunnar við raunum sínum. Ég gat hins vegar ekki betur séð en að eldraunin hafi endað með því að Matt greyinu var nauðgað, án þess að nokkur gæfi því atviki nán- ari gaum, hvað þá þolandinn sjálfur. Það er líklega í þessu undarlega og asnalega atviki í lok myndarinnar, sem hin takmörkuðu viðhorf mynd- arinnar til kynlífs birtast hvað skýr- ast, en sú hugsun virðist ekki hafa rúmað möguleikann á því að ungur karlmaður tæki því öðru vísi en feg- ins hendi að vera misnotaður kyn- ferðislega af konu. KVIKMYNDIR Laugarásbíó, Sambíóin Álfabakka Leikstjóri: Michael Lehmann. Handrit: Rob Perez. Aðalhlutverk: Josh Hartnett, Shannyn Sossamon, Vinessa Shaw, Paulo Costanzo. Sýningartími: 94. Bandaríkin. Miramax Films, 2002. 40 DAYS AND 40 NIGHTS (40 DAGAR OG NÆTUR) Hrapal- leg örlög Heiða Jóhannsdóttir REKTOR Listaháskóla Íslands hefur ráðið Guðmund Odd Magn- ússon, grafískan hönn- uð, í starf prófessors í grafískri hönnun við hönnunardeild skól- ans. Tveir umsækj- endur voru um starfið og voru báðir dæmdir hæfir til að gegna starfinu að mati sér- skipaðrar dómnefnd- ar. Guðmundur Oddur stundaði listnám við nýlistadeild Myndlista- og handíðaskóla Ís- lands 1976–80 og lauk Diploma in Graphic Design við Emily Carr Col- lege of Art and Design í Vancouver 1989. Síðan 1992 hefur hann starf- að sjálfstætt sem grafískur hönn- uður auk þess að sinna kennslu- og stjórnunarstörfum á sviði hönn- unar við Myndlistarskólann á Ak- ureyri og Myndlista- og handíða- skóla Íslands. Guðmundur hefur starfað sem umsjónarkennari graf- ískrar hönnunar við Listaháskóla Íslands frá stofnun hans 1999. „Guðmundur Oddur hefur verið mik- ilvirkur á sviði mynd- listar og hönnunar um langt skeið, unnið að fjölbreyttum verk- efnum fyrir mikils- virtar menning- arstofnanir og birt eigin verk í yfirlits- ritum um grafíska hönnun, auk þess að hafa tekið þátt í sam- sýningum og haldið einkasýningar á myndlist sinni. Hann hefur stundað rann- sóknir á sínu sviði og birt niðurstöður þeirra í greinum um hönnun og myndlist á opinber- um vettvangi. Í álitsgerð dóm- nefndar er sérstaklega tekið fram að hann hafi sýnt ótvíræða hæfi- leika til að miðla þekkingu sinni á grafískri hönnun og hönnunarsögu, jafnt til fagfólks og almennings. Þá hefur Guðmundur Oddur komið að stofnun og rekstri ýmissa menning- armiðstöðva og setið í stjórnum listastofnana og félaga,“ segir í frétt frá Listaháskólanum. Guðmundur Oddur Magnússon Ráðinn prófessor í grafískri hönnun Hafnarborg: Kvartett Kára Árna- sonar heldur tónleika. Dagskráin er tileinkuð fjórum íslenskum jazz- tónskáldum, þeim Tómasi R. Ein- arssyni, Sigurði Flosasyni, Pétri Grétarssyni og Andrési Þór Gunn- laugssyni. Kvartettinn skipa: Sigurður Flosa- son (saxófón), Ómar Guðjónsson (raf- gítar), Þorgrímur Jónsson (kontra- bassi) og Kári Árnason (trommur). Tónleikarnir hefjast kl. 20.30 í aðal- sal Hafnarborgar. Aðgangur kostar 800 kr. en elli- og örorkulífeyrisþegar fá helmings afslátt. Salur FÍH: Hornleikarafélag Íslands heldur tónleika kl. 15. Þar munu leika ýmsir hópar hornleikara, stórir og smáir, atvinnumenn og nemend- ur. Að venju verður efnt til fjölda- samleiks í lok tónleikanna. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill. Þeim sem vilja taka þátt í samblæstri í lokin er boðið að koma kl. 14 til æf- inga og upphitunar. Íþróttahúsið Reykjahlíð: Hátíðar- tónleikar Menningarhátíðar Mý- vatnssveitar verða kl. 16. Fram koma Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, 80 manna kór úr Þingeyjarsýslu ásamt Kammerkór Norðurlands. Einnig Ásgeir H. Steingrímsson trompet- leikari, Margrét Bóasdóttir sópran, Sigrún Arngrímsdóttir mezzosópran, Óskar Pétursson tenór og Benedikt Ingólfsson bassi. Stjórnandi er Guð- mundur Óli Gunnarsson. Nýlistasafnið: Tumi Magnússon, myndlistarmaður, veitir leiðsögn um sýningu Aernout Miks sem stendur yfir um þessar mundir. Leiðsögnin hefst kl. 14 og er sýn- ingin, samkvæmt fréttatilkynningu, æði sérstæð og Mik einn af þekkt- ustu myndlistarmönnum samtímans. Nýlistasafnið er opið miðvikud.– sunnud. frá kl. 13–17 og er aðgangur ókeypis. Í DAG Á þjóðlagahátíðinni á Siglufirði 1.–7. júlí held- ur Ása Ketilsdóttir á Laugalandi við Djúp ásamt Sigríði Pálma- dóttur lektor við KHÍ tvö tveggja daga nám- skeið í barnagælum og þulum. Ása ólst upp á Ytra- Fjalli í Aðaldal í S- Þingeyjarsýslu og kynntist þar miklu ríki- dæmi tónlistar. Hún er afar minnug á lög og kvæði. Fyrir fáum ár- um kvað hún barnagæl- ur og þulur inn á bönd fyrir Stofnun Árna Magnússonar og telur það efni rúmar sex klukku- stundir. Þær stöllur Ása og Sigríður héldu samskonar nám- skeið á Þjóðlagahátíð- inni á Siglufirði sumar- ið 2000 og sóttu það um 20 nemendur víðs veg- ar að af landinu. Nám- skeiðið hentar einkum grunnskólakennurum, leikskólakennurum og ekki síst foreldrum. Sigríður Pálmadóttir hefur skráð lögin sem Ása hefur geymt í minni sér og byggist námskeiðið á þeirri vinnu. Þulurnar einkennast af mikilli orðkynngi og slyngu rími, þar koma jafnt riddarar sem ókindur við sögu og gamanið er sjaldnast langt undan. Námskeið í barna- gælum og þulum Ása Ketilsdóttir HAFNAR eru fornleifarannsóknir á Þingvöllum á vegum Fornleifastofn- unar Íslands. Um er að ræða for- könnun, en hún er liður í umfangs- miklum rannsóknum á þingsvæðinu á Þingvöllum og á völdum vorþings- töðum víðs vegar um landið. Frum- rannsóknum lýkur í júnímánuði á þessu ári, en heildarrannsóknin mun taka 5–6 ár. Upplýsingar um þing- haldið og sögu Þingvalla hafa til þessa verið að mestu leyti byggðar á rituðum heimildum. Skipulagður uppgröftur hefur ekki farið fram á þingstöðum til þessa, en nú verður látið reyna á hvaða fróðleik megi lesa úr sjálfum minjunum um þinghald til forna Mælt og kortlagt Markmið rannsóknanna er að leita svara við nokkrum grundvallar- spurningum varðandi þinghaldið, t.d. um skipulag þingstaða, gerð og lögun þingbúða og annarra mann- virkja, aldur þeirra o.s.frv. Á næstu árum verða allir vorþingstaðir mældir upp og kortlagðir. Þegar nið- urstöður yfirborðsathugana liggja fyrir verða nokkrir vorþingstaðir valdir til frekari rannsókna með upp- greftri. Verkefninu stjórna Adolf Friðriksson forstöðumaður Forn- leifastofnunar og Sigurður Líndal prófessor. Verkið er unnið í sam- starfi við Þingvallanefnd, Þjóðminja- safn, Háskóla Íslands, Bradford-- háskóla og Hið íslenska bók- menntafélag. Verkefnið er styrkt af Kristnihá- tíðarsjóði. Fornleifa- rannsóknir á Þing- völlum ÁSTRALINN Francis Firebrace mun halda námskeið undir heitinu Framandi heimur – stefnumót við frumbyggja í samvinnu við Kram- húsið. Námskeiðin eru ætluð börn- um á aldrinum 5 til 10 ára og verða haldin 18. til 20. júní. Francis Firebrace hefur farið vítt og breitt um heiminn sl. 16 ár og kynnt menningu frumbyggja Ástral- íu. Á ferðum sínum hefur hann vakið athygli fyrir myndlist sína og sagna- list en ekki síst fyrir starf sitt með börnum víðsvegar um heiminn. Francis mun leiða börnin inn í heim frumbyggjanna í formi myndlistar, tónlistar, sagnalistar og dans. Tónlistarmaðurinn Buzby aðstoð- ar Francis á námskeiðinu og kennir börnunum m.a. að búa til sitt eigið didgeridoo og leika á það. Did- geridoo er hið þekkta blásturshljóð- færi sem er orðið tákn fyrir menn- ingu frumbyggja Ástralíu. Námskeið fyrir börn um frumbyggja Ástralíu
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.