Morgunblaðið - 16.06.2002, Page 32

Morgunblaðið - 16.06.2002, Page 32
32 SUNNUDAGUR 16. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ 16. júní 1992: „Síðastliðinn föstudag skýrði forstjóri ferðaskrifstofunnar Flug- ferða-Sólarflugs samgöngu- ráðuneytinu frá því, að fyr- irtækið gæti ekki staðið við skuldbindingar gagnvart far- þegum og hefði hætt starf- semi frá og með þeim degi. Sama dag afturkallaði ráðu- neytið ferðaskrifstofuleyfi fyrirtækisins. Þessar fréttir komu eins og reiðarslag yfir mörg hundruð viðskiptavini fyrirtækisins.“ . . . . . . . . . . 16. júní 1982: „Herlið Argent- ínumanna, sem lagði Falk- landseyjar undir sig 2. apríl, gafst upp fyrir breska land- gönguliðinu í Port Stanley á miðnætti aðfaranótt 15. júní að íslenskum tíma. Bretar unnu því sigur á Falklands- eyjum og luku þar með ein- hverri frækilegustu herför, sem farin hefur verið á síðari tímum. Frá upphafi hefur breska ríkisstjórnin haldið því fram, að í þessari deilu væri ekki aðeins sjálfsákvörð- unarréttur Falklendinga í húfi heldur það grundvall- aratriði, að innrás í annað land og töku þess með her- valdi verði að svara með her- valdi, ef allt annað þrýtur. Árásaraðilinn hefur nú tapað á vígvellinum. Herför Breta hefur sýnt, að þeir búa yfir miklu afli, og þeir geta beitt því með árangursríkum hætti við hinar erfiðustu aðstæður.“ 16. júní 1972: „Stúdenta- blaðið hefur komið út um hálfrar aldar skeið. Á þessum tíma hefur það verið vett- vangur margvíslegra og at- hyglisverðra skoðanaskipta um málefni stúdenta, Háskól- ans og þjóðarinnar í heild. Eins og gengur hefur þetta framlag verið mismunandi á þessum tíma, – stundum hef- ur verið bryddað þar á merki- legum nýjungum, sem til framfara hafa horft, stundum hefur vegur blaðsins verið minni. Vafalaust er þó, að lengst af hafa a.m.k. þeir, sem að útgáfu Stúdentablaðs- ins hafa staðið, reynt að haga henni þannig, að hún mætti verða stúdentum til nokkurs sóma.“ Fory s tugre inar Morgunb laðs ins Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. S ígaunar eiga sér sennilega um 500 ára sögu í Evrópu og er almennt talið að þeir hafi komið þangað frá Indlandi á fjórtándu öld. Kúgun og of- sóknir fylgdu í kjölfarið og í Rúmeníu bjuggu þeir við þrældóm fram á nítjándu öld. Annars staðar í Evrópu sættu þeir ofsóknum og voru gerðir brottrækir. Í heimsstyrjöldinni síðari gerðu nasistar markvissa atlögu að sí- gaunum og er talið að rúmlega hálf milljón sí- gauna hafi látið lífið í útrýmingarherferðinni á hendur þeim. Tilraunum til að útrýma sígaun- um linnti eftir að stríðinu lauk, en þegar kommúnistastjórnir tóku völdin í Austur- og Mið-Evrópu eftir 1945 var hafist handa við að þurrka út sérkenni þeirra og laga þá að hinu viðtekna þjóðfélagsmynstri. Kapp var lagt á að binda enda á flakk sígauna og uppræta hug- myndir um þjóðareinkenni. Sígaunar voru neyddir til að hætta flökkulífi og setjast að, en einnig var gripið til annarra ráða, sem báru því vitni að litið var á sígauna sem úrkynjaðan þjóðflokk. Þeir voru látnir ganga í sérstaka skóla og konur úr þeirra röðum voru gerðar ófrjóar. Í Slóvakíu, Tékklandi og Ungverja- landi eru sígaunabörn enn send í „sérskóla“ fyrir „þroskaheft“ börn og fá því aðeins ann- ars flokks menntun. Í borginni Ostrava í Tékklandi eru sígaunabörn til dæmis helm- ingur nemenda í sérskólum þótt þau séu að- eins fimm af hundraði barna á skólaaldri í borginni. Um 75 af hundraði sígaunabarna í Tékklandi eru send í sérskóla. Í Tékklandi er sígaunum einnig iðulega mismunað á öðrum sviðum og neitað um húsnæði, vinnu, aðgang að veitingastöðum og knæpum og meira að segja heilsugæslu. Talið er að sígaunar fái þyngri refsingar en aðrir í löndum Austur- og Mið-Evrópu, en erfitt er að fá opinberar tölur um refsingar, ekki síst vegna þess að sígaunar eru sjálfir andvígir því að vera skráðir eftir uppruna, minnugir þess að slíkar skrár hafa fyrr á tímum verið notaðar til að ofsækja þá. Talið er að sígaunar í Evrópu séu um þessar mundir á milli átta og tíu milljónir og þeir eru stærsti minnihlutahópur í Evrópu. Í íslensku er orðið sígauni notað, en sjálfir kalla þeir sig róma eða rómana og er það heiti dregið af orð- inu rom, sem eru úr sanskrít og merkir maður. Réttarstaða þeirra hefur verið að breytast til batnaðar á undanförnum áratug, en fordómar eru enn allsráðandi. Vissulega eru sígaunar þekktir fyrir að vera miklir dansarar og tónlist sína, sem Íslendingar fengu að heyra þegar hljómsveitin Taraf de Haidouks lék hér á Listahátíð. Það er hins vegar mun útbreiddara viðhorf að þeir séu lygarar, þjófar og svika- hrappar. James A. Goldston, aðstoðarstjórn- andi stofnunar, sem tengist réttindamiðstöð sí- gauna í Evrópu, fjallaði nýlega um stöðu sígauna í grein þar sem hann heldur því fram að í Evrópu samtímans séu neikvæðar ímyndir af sígaunum allsráðandi. Þær gagnsýri sögur, sem sagðar eru börnum og um þá gangi hvers kyns flökkusögur. Fólk hiki ekki við að láta fordóma sína gegn sígaunum í ljósi í almenn- um samræðum og segi setningar á borð við „þeim er ekki treystandi“ og „ég kann ekki við þá“ án þess að blikna. Goldston er þeirrar hyggju að hin neikvæða ímynd sé svo rótgróin að meira að segja mannréttindafrömuðir hafi tilhneigingu til að draga úr umfangi ofsókna á hendur sígaunum og segi að þeir beri sjálfir sök á vandamálum sínum. „Allir [sígaun- ar] ættu að vera settir í fangelsi“ Þótt réttindi sígauna hafi víða verið bætt í fyrrverandi komm- únistaríkjum Austur- og Mið-Evrópu, ekki síst vegna þess að þau þurfa að bæta sig í þessum efnum til að laga sig að siðum Evrópusambandsins og greiða fyrir inngöngu, fara viðhorfin ekkert á milli mála. Goldston rekur í grein sinni ýmis dæmi um það og bendir á að þau séu ekki eingöngu tekin af út- jaðri stjórnmálanna. Rúmenski þingmaðurinn Vadim Tudor, sem fékk rúmlega fjórðung at- kvæða í forsetakosningunum árið 2000, dró ekki undan þegar hann sagði: „Við höfum ekki áhuga á því, sem sígaunar vilja. Allir [sígaun- ar] ættu að vera settir í fangelsi. Það er engin önnur lausn.“ Aðlögunarferlið að Evrópusambandinu hef- ur einnig gert það að verkum að sígaunar eru gerðir að blórabögglum í ríkjum Austur- og Mið-Evrópu, meðal annars vegna þess að sígaunar hafa verið að sækja um hæli í Vestur- Evrópu og gagnrýni frá Evrópusambandinu vegna stöðu þeirra. Fyrir tveimur árum kvart- aði þáverandi utanríkisráðherra Rúmeníu und- an því að „nokkur þúsund sígaunar…kæmu í veg fyrir að landið kæmist af svarta lista Evr- ópusambandsins“. Árið 2000 sótti hópur sígauna frá þorpinu Zamoly í Ungverjalandi um hæli í Frakklandi og sagði þá ungverskur embættismaður að þeir hefðu „farið úr landi til að koma óorði á Ungverjaland“. Bæjarstjóri nágrannabæjar var beinskeyttari: „Sígaunarn- ir frá Zamoly eiga ekki heima meðal manna. Rétt eins og í dýraríkinu þarf að úthýsa afæt- um.“ Því má bæta við að Frakkar hafa veitt rúmlega tuttugu sígaunanna frá Zamoly hæli. Andúð á sígaunum er ekki aðeins að finna í þeim ríkjum, sem nú vilja komast inn í Evr- ópusambandið. Evrópusambandsríkin hafa einnig þurft að glíma við fordóma í garð þeirra og hefur verið bent á mismunun á Ítalíu, Grikklandi, Þýskalandi, Spáni og Írlandi, svo eitthvað sé nefnt. Undanfarnar vikur hefur verið nokkur straumur sígauna frá Rúmeníu, Búlgaríu og Slóvakíu til Norðurlandanna. Í maí komu til dæmis 500 sígaunar til Svíþjóðar og 200 sí- gaunar til Finnlands og sóttu þar um hæli. Ís- land hefur ekki farið varhluta af þessum straumi. Síðari hluta maí kom hingað sautján manna hópur frá Rúmeníu og sótti um póli- tískt hæli, en dró síðan umsókn sína til baka. Að sögn lögreglu hætti fólkið við þar sem það vildi ekki hætta á að verða neitað um hæli og þar með vísað úr landi vegna þess að það gæti leitt til endurkomubanns, sem gilti á öllu Schengen-svæðinu. Það er ekki sjálfgefið að veita eigi sígaunum hæli og í nágrannaríkj- unum er stíf fyrirstaða. „Líkurnar á því að þeir fái hæli í Svíþjóð eru nánast engar,“ sagði sænskur embættismaður þegar sígaunarnir komu þangað í maí. Á hinn bóginn fer ekki á milli mála að í ríkjum Austur- og Mið-Evrópu búa sígaunar við mismunun og jafnvel ofsóknir og við það verður ekki unað. Innflytjendur og stækkun Evrópusam- bandsins Málefni sígauna eru hluti af mun stærra máli, sem nú virðist vera að valda ákveðnum straum- hvörfum í evrópskum stjórnmálum og gæti leitt til þess að eimreið Evrópustækkunar- innar missi kraft. Eins og fram kemur í frétta- skýringu í þessu tölublaði Morgunblaðsins er einkum þrennt, sem skapar óvissu um stækk- un Evrópusambandsins í austur. Þar má í fyrsta lagi taka að aðildarríkjum ESB og um- sóknarríkjunum hefur ekki tekist að úkljá deil- ur um fjárhagslegar hliðar stækkunarinnar og er þar einkum átt við þeir gríðarlegu fjár- hæðir, sem ESB veitir í formi styrkja til bænda og fátækra svæða innan sambandsins. Í öðru lagi er um að ræða breytta pólitíska stöðu, sem meðal annars enduspeglast í upp- gangi flokka í Vestur-Evrópu, sem eru andvíg- ir núverandi stefnu í málefnum innflytjenda. Þriðja atriðið er hvaða staða muni koma upp felli Írar Nice-samninginn öðru sinni. Um þessi mál hefur verið fjallað bæði í vikuritinu The Economist og dagblaðinu Financial Times upp á síðkastið. Günter Verheugen, sem fer með stækkunarmálin innan framkvæmda- stjórnar Evrópusambandsins, hefur sagt að hann geri sér grein fyrir því að stækkunarferl- ið geti verið í vanda og vofa þjóðernishyggj- unnar eigi þar hlut að máli. Öfgahreyfingar hafa átt nokkurri velgengni að fagna upp á síðkastið. Mesta athygli vakti árangur Jean Marie Le Pens, sem komst í aðra umferð for- setakosninganna í Frakklandi, en einnig má nefna flokk Pims Fortuyns í Hollandi, Jörg Haider í Austurríki og Umberto Bossi á Ítalíu. Meðal þeirra er það sjónarmið viðtekið að það sé of dýrt að stækka Evrópusambandið og að auki muni það leiða til aukins straums innflytj- enda þegar nær væri að stöðva hann. Le Pen hefur á stefnuskrá sinni að segja Frakkland úr Evrópusambandinu. Í umsóknar- ríkjunum yrði litið á tafir sem svik „Það væri hryllilega rangt að greina mál- ið þannig að fyrst hreyfingar lýðskrum- ara í Evrópu hafi notað stækkun ESB sem tæki til að skapa ótta og óöryggi eigi að stöðva hana,“ segir Verheugen í Financial Times. Hann bætir við að það geti haft „hræðilegar“ afleiðingar að höfða til öfgasjónarmiða með því að draga ÞJÓÐHÁTÍÐ Fyrir rúmum 100 árum vorualdamótaskáldin ekki hræddvið að hefja landið sjálft, þjóðina, sögu hennar, tungu og menningararfleifð til vegs í ljóðum sínum. Þau ljóð voru þjóðinni inn- blástur á lokastigum sjálfstæðis- baráttunnar og langt fram eftir 20. öldinni. Í brjósti þeirra Íslendinga, sem voru saman komnir á Þingvöll- um 17. júní 1944, var sterk þjóðern- iskennd. Í ítrekuðum átökum við Breta um yfirráð yfir fiskveiðilög- sögunni frá 1952 til 1975, eða í tæp- an aldarfjórðung, birtist þessi sama þjóðerniskennd með sterkum hætti. Hún var einnig til staðar, þegar 60- menningarnir svonefndu mótmæltu útbreiðslu bandarísks sjónvarps á Íslandi á Viðreisnaráratugnum. Eftir að allir sigrar höfðu verið unnir í sjálfstæðisbaráttu íslenzku þjóðarinnar á seinni hluta 19. aldar og fram á síðari hluta 20. aldar fór að bera á þeirri skoðun, að þjóðern- iskennd væri vond og neikvæð. Því var jafnvel haldið fram, að þjóðrík- ið væri að hverfa. Fólk í hinum ein- stöku Evrópulöndum t.d. mundi líta á sig sem Evrópubúa, ekki Frakka, Þjóðverja, Spánverja o.s.frv. Að einhverju leyti á viss andúð á þjóðerniskennd á síðustu áratugum rætur að rekja til öfgahreyfinga í stjórnmálum, sem hafa notfært sér hana og afskræmt á alla vegu, gefið henni neikvæða merkingu, notað hana til niðurrifs en ekki uppbygg- ingar. Að öðru leyti hefur aukin þekk- ing Íslendinga á öðrum þjóðum orðið til þess að draga úr eða milda þjóðerniskenndina í brjósti okkar. Stórir hópar ungs fólks hafa stund- að nám í öðrum löndum og búið þar um árabil. Þetta unga fólk hefur kynnzt því, að aðrar þjóðir eiga sér ekki síður merkilega sögu, tungu og menningu en við. Þessi aukna þekking hefur orðið til þess að draga úr þeim neikvæðu þáttum þjóðerniskenndar að eigin þjóð sé betri og merkilegri en önnur. Þessi viðhorfsbreyting er af hinu góða. Það er áreiðanlega mikið til í þeim kenningum Guðmundar Hálf- dánarsonar, að þjóðarvitund Ís- lendinga tengist nú meir landinu sjálfu og náttúru þess en sögu okk- ar og menningararfleifð. Kannski er réttara að orða það á þann veg, að meira jafnvægi sé á milli tilfinn- inga fólks til landsins annars vegar og sögulegrar arfleifðar okkar hins vegar. Sveiflur í sjónarmiðum og skoð- unum af þessu tagi leita alltaf jafn- vægis á nýjan leik. Það á líka við um afstöðu fólks til þjóðernis- kenndar. Jákvæð og uppbyggileg þjóðern- iskennd, sem byggist á sterkri til- finningu fyrir landinu sjálfu, sögu þjóðar okkar, stolti yfir menningar- arfleifð okkar og bjartsýni um að okkur muni takast að varðveita sér- stæða tungu okkar og menningu er af hinu góða. Þá jákvæðu kennd eigum við að rækta með börnum okkar og barnabörnum. Hún mun auðvelda Íslendingum að tryggja sjálfstæði þjóðarinnar og sérstöðu á tímum mikilla umbreytinga. Fyrir viku birtist athyglisvert viðtal hér í blaðinu við þýzkan þingmann á Evrópuþinginu. Hann sagðist ekki líta á sig sem Þjóð- verja heldur Bæjara. Um alla Evr- ópu eru einstök þjóðarbrot að und- irstrika sérstöðu sína og séreinkenni. Í því felst ekki þjóð- rembingur af neinu tagi heldur stuðlar það að fjölbreytileika álf- unnar. Það hefur engin breyting orðið á þeim veruleika, nema síður sé, að við Íslendingar þurfum á öllu að halda til þess að varðveita tungu okkar og menningu frammi fyrir holskeflum alþjóðlegra menningar- áhrifa. Í þeim efnum skerum við okkur ekki úr heldur erum við að leggja áherzlu á það sama og allar Evrópuþjóðir og einstök þjóðarbrot innan Evrópu leggja einna mest upp úr nú um stundir. Morgunblaðið flytur lesendum sínum árnaðaróskir í tilefni af þjóðhátíðardeginum, 17. júní, á morgun.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.