Morgunblaðið - 16.06.2002, Side 33

Morgunblaðið - 16.06.2002, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. JÚNÍ 2002 33 stækkunina á langinn. Því fylgi einnig sú hætta að gagnrýnendum Evrópusambandsins í löndunum, sem vilja ganga í það, vaxi fiskur um hrygg og þeir geti sagt að nú sé komið í ljós það, sem alltaf hafi verið vitað, að Evrópu- sambandið hafi engan áhuga á þessum ríkjum, vilji bara fá markaðina þeirra. „Það yrði ekki aðeins litið á allar tafir af pólitískum ástæðum sem svik,“ segir hann. „Það myndi eyðileggja vonir þessara landa.“ Verheugen er þess fullviss að það sé út í hött að ætla að stækkun ESB muni leiða til þess að innflytjendur flæði yfir Vestur-Evr- ópu. Ein ástæðan fyrir því sé sú að bein erlend fjárfesting í nýju aðildarríkjunum myndi aukast verulega eftir að þau gengju í Evrópu- sambandið. Sameiginlegir staðlar og grund- völlur reglugerða ásamt opnum landamærum fyrir viðskipti á markaði með 500 milljónum neytenda muni verða fjárfestum hvatning til að horfa austur á bóginn á komandi árum. Hann heldur því fram að með því að loka dyr- unum á stækkun myndu líkurnar á því aukast að af stað færu stjórnlausir fólksflutningar. Óttinn við innflytjendur hefur þegar haft áhrif á stækkunarferlið. Þjóðverjar og Austurrík- ismenn þrýstu mjög á að takmarkanir yrðu lagðar við frjálsu flæði vinnuafls eftir stækk- un. Vegna þessa þrýstings lagði framkvæmda- stjórnin fram tillögu um að takmarka megi frjálst flæði vinnuafls í allt að fimm ár eftir inngöngu og í fyrra samþykktu aðildarríkin hana. Þýsk stjórnvöld voru meðal annars að horfa til þess hvaða áhrif óttinn við bylgju inn- flytjenda í kjölfar stækkunarinnar myndi hafa á kjósendur í kosningunum, sem haldnar verða í september, þegar þrýst var á um þessar tak- markanir. Pólitísk sinnaskipti í Evrópu koma ekki að- eins fram í því að öfgamenn hafi fengið aukinn byr undanfarið. Hægri sveifla er greinileg í álfunni, hvort sem litið er á árangur hægri manna undir forystu Jacques Chiracs í Frakk- landi eða Berlusconis á Ítalíu. Þá er staða Ger- hards Schröders, kanslara Þýskalands, alls ekki örugg og gæti vel farið svo að hann tap- aði í kosningunum eftir rúma þrjá mánuði. Schröder hefur reyndar talsvert forskot á Ed- mund Stäuber, kanslaraefni kristilegu flokk- anna, þegar spurt er í skoðanakönnunum hver eigi að verða kanslari, en sósíaldemókratar, flokkur Schröders, hafa minna fylgi en kristi- legu flokkarnir CDU og CSU, ef marka má könnun, sem var gerð dagana 10. til 13. júní og birtist á heimasíðu vikuritsins Der Spiegel. Samkvæmt könnuninni gætu sósíaldemókratar og græningjar, sem nú eru við völd, ekki myndað meirihluta, en það yrði frjálsum demókrötum og kristilegu flokkunum hins vegar kleift. Það er því ekki óhugsandi, án þess að um það sé hægt að fullyrða, að í haust verði Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, orðinn frekar einmana fulltrúi vinstri vængj- arins í hópi Evrópuleiðtoga. Ráðleysið á miðjunni veitir öfgaöflunum sóknarfæri Það er hins vegar greinilegt að kjós- endur í Evrópu eru ekki sáttir við það hvernig vinstri flokk- arnir, sem fyrir nokkrum árum virt- ust hafa hrifsað til sín frumkvæðið með því að færa sig til hægri, hafa staðið sig. Ein ástæðan fyrir þessu er sú að meðal almennings fer sú tilfinning vaxandi að stjórnvöld ráði ekki við ástandið, sem versni jafnt og þétt. Innflytj- endur flæði yfir Evrópu án þess að lagast að þeirri menningu, sem fyrir er. Þetta fólk taki bæði vinnu frá þeim, sem fyrir eru, en myndi einnig nýja undirstétt, sem þrífist á glæpum og leggist á velferðarkerfið. Í forsetakosning- unum í Frakklandi var umræðan um glæpi mjög ofarlega á baugi og veittist Chirac ítrek- að að Lionel Jospin, andstæðingi sínum, fyrir að hafa sem forsætisráðherra ekki ráðið við glæpaölduna, sem gengið hefði yfir Frakkland. Undirliggjandi var ávallt forsenda þess að glæpir væru að færast í vöxt: útlendingarnir. Þessi málflutningur hefur án efa spilað upp í hendurnar á öfgamanninum Le Pen, en kom Chirac vitaskuld einnig til góða. Fylgið við öfgahreyfingar lýðskrumara má fyrst og fremst rekja til þess að hinir hefð- bundnu flokkar hafa staðið ráðlausir frammi fyrir þeim vanda, sem hefur verið að hlaðast upp vegna innflytjenda. Margir hafa bent á að þótt lausnir öfgamannanna séu óviðunandi fari ekki á milli mála að þeir séu að fjalla um vandamál, sem brenni á almenningi. Á meðan hefðbundnu flokkarnir séu ófærir um að taka á þeim muni lýðskrumararnir geta gert sér mat úr því. Balkanskaginn er besta dæmið um það hversu langt lýðskrumarar geta náð með því að kynda undir öfgum og hatri. Slík hætta er vitaskuld ekki fyrir hendi í Vestur-Evrópu. Á seinni hluta síðustu aldar komu fram reglu- bundnar öfgasveiflur, sem ávallt hjöðnuðu. Hins vegar er ákveðin hætta fólgin í því að hinir hefðbundnu flokkar grípi til þess ráðs að tileinka sér málflutning lýðskrumaranna að einhverju leyti til þess að ná til þeirra kjós- enda, sem annars kynnu að kjósa öfgarnar. Það er að mörgu leyti eðlilegt að nýjar hug- myndir síist inn á miðju stjórnmálanna af jaðr- inum. Málstaður umhverfissinna þótti til dæm- is lengi vel bera öfgum vitni, en nú þykja þau sjónarmið sjálfsögð, sem áður þóttu fráleit. En það er ekkert sjálfsagt við það að sjónarmið fordóma og öfga eigi greiða leið inn á miðjuna og eitri þannig umræðuna og heilu samfélögin. Það er of snemmt að segja til um hvaða áhrif þetta muni hafa á stækkunarferli Evr- ópusambandsins. Ýmsir þykjast hins vegar hafa tekið eftir því að óvenju hljótt sé um stuðning við stækkun í málflutningi stjórn- málamanna í aðildarríkjunum. Pat Cox, forseti Evrópuþingsins, segir í Financial Times að lít- ið heyrist til stuðnings stækkunar um þessar mundir: „Það eru miklar áhyggjur vegna fjöl- miðlaþagnarinnar og hins algera skorts á sýni- leika stjórnmálamanna í aðildarríkjunum 15. Nú er tíminn til að taka erfiðar pólitískar ákvarðanir, en nánast ekkert aðildarríkjanna hefur gert neitt til að undirbúa almenning.“ Það er margt til í þeirri fullyrðingu Verheu- gens að þegar til lengri tíma er litið myndi innflytjendavandinn aðeins færast í aukana ef ríki Austur- og Mið-Evrópu kæmust ekki inn í Evrópusambandið. Ef horft er á hið sögulega samhengi má segja að þessi ríki hafi verið skil- in eftir þegar járntjaldið var dregið þvert í gegnum Evrópu eftir heimsstyrjöldina síðari og þau urðu eftir á áhrifasvæði Sovétríkjanna sálugu. Á meðan Vestur-Evrópa dafnaði drabbaðist allt niður austan járntjaldsins. Það væri kaldhæðnislegt þegar járntjaldið er kom- ið á ruslahauga sögunnar ef reist yrði ný víg- girðing, sem fyrst og fremst myndi þjóna þeim tilgangi að vernda hina ríku fyrir hinum fá- tæku. Það gefur auga leið að fljótlegasta leiðin til að skapa þessum ríkjum sömu skilyrði og ríkjum vestar í Evrópu er að þau fái aðild að ESB. Vestur-Evrópa fékk á sínum tíma Mar- shall-aðstoðina frá Bandaríkjunum, en framlag Sovétríkjanna til Austur-Evrópu myndi seint flokkast undir aðstoð. Með því að hleypa þess- um ríkjum inn myndi Evrópusambandið renna stoðum undir heilbrigða lýðræðisþróun í Aust- ur- og Mið-Evrópu, en með því að loka á þau væri verið að hella vatni á myllu þeirra afla, sem síst skyldi. Afla öfga, fordóma og forpok- unar. Nú fara áhugaverðir tímar í hönd í evr- ópskum stjórnmálum og það hvernig haldið verður á spöðunum á næstu mánuðum og misserum mun geta haft afgerandi áhrif á mörgum sviðum, þar á meðal hvaða stefnu þróun Evrópusambandsins mun taka. Morgunblaðið/Ómar Á Rauðasandi Hins vegar er ákveðin hætta fólgin í því að hinir hefð- bundnu flokkar grípi til þess ráðs að tileinka sér mál- flutning lýðskrum- aranna að einhverju leyti til þess að ná til þeirra kjósenda, sem annars kynnu að kjósa öfgarnar …En það er ekkert sjálfsagt við það að sjónarmið fordóma og öfga eigi greiða leið inn á miðjuna og eitri þannig um- ræðuna og heilu samfélögin. Laugardagur 15. júní

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.