Morgunblaðið - 16.06.2002, Síða 37
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. JÚNÍ 2002 37
Blómastofa Friðfinns,
Suðurlandsbraut 10,
sími 553 1099, fax 568 4499.
Opið til kl. 19 öll kvöld
Kransar • Krossar • Kistuskreytingar
Legsteinar
Vönduð íslensk framleiðsla
Fáið sendan myndalista
Hamarshöfði 4, 110 Reykjavík
sími: 587 1960, fax: 587 1986
MOSAIK
Marmari
Granít
Blágrýti
Gabbró
Líparít
✝ Dagfríður Pét-ursdóttir fæddist
í Garðsenda í Eyrar-
sveit 18. júní 1922.
Hún lést á heimili
sínu í Reykjavík 7.
júní síðastliðinn. For-
eldrar hennar voru
hjónin Jens Pétur Jó-
hannesson, f. á
Hjarðarbóli í Eyrar-
sveit 2. október 1893,
d. 29. apríl 1942, og
Jóhanna Kristín Guð-
mundsdóttir, f. í
Nýjubúð í Eyrarsveit
16. apríl 1897, d. 11.
mars 1958. Systkini Dagfríðar eru
átta: Guðrún Hallfríður, f. 4. okt.
1916, látin, Jóhannes Páll, f. 6.
júní 1920, látinn, Hallgrímur, f.
23. júlí 1924, látinn, Jens, f. 30.
mars 1927, látinn, Áslaug, f. 26.
maí 1930, Jóhannes Páll, f. 25.
febrúar 1935, látinn, Jón, f. 19. júlí
1936, og Vilhjálmur, f. 9. júlí 1938.
Eiginmaður Dagfríðar var Sveinn
Þormóðsson fréttaljósmyndari, f.
28. júní 1926, d. 26. mars síðastlið-
inn. Börn Dagfríðar eru: 1) Alda
Sigurðardóttir húsmóðir, f. 30.
apríl 1942, gift Böðvari Árnasyni
húsasmíðameistara; 2) Sveiney
Sveinsdóttir, húsmóðir og sjúkra-
liði í Stokkhólmi, f. 8. ágúst 1943,
gift Karli Jóhannssyni markaðs-
og kerfisfræðingi; 3) Þormóður
Sveinsson, tækja-
stjóri í Tucson í Ari-
zona, f. 5. ágúst
1946, kvæntur Sue
Sveinsson húsmóð-
ur; 4) Bragi Rúnar
Sveinsson trésmiður
í Reykjavík, f. 13.
mars 1948, sambýlis-
kona hans er Kristín
Guðnadóttir; 5)
Kristín Sveinsdóttir
Strickland, spila-
stjóri í Elco í Ne-
vada, f. 21. júní 1952,
gift Tom Strickland
námamanni; 6) Sig-
ríður Sveinsdóttir Early, kennari í
Boonville í New York, f. 13. ágúst
1955; 7) Theodóra Sveinsdóttir
Todd, tölvufræðingur í Eddy í
Texas, f. 12. mars 1958, gift Ro-
bert Todd tölvufræðingi; 8) Hörð-
ur Ingi Sveinsson iðnverkamaður
í Reykjavík, f. 28. júlí 1960. Barna-
börnin eru 24 og barnabarnabörn-
in 15.
Dagfríður fluttist til Reykjavík-
ur 16 ára og var vinnukona á
heimilum og síðar hjá Sláturfélagi
Suðurlands. Nítján ára kynntist
hún Sveini og þau hófu sambúð og
giftust 26. ágúst 1953.
Útför Dagfríðar verður gerð
frá Bústaðakirkju þriðjudaginn
18. júní og hefst athöfnin klukkan
13.30.
Nú er hún elsku mamma mín
farin frá mér. Svo ótímabært. Ég
og hún sem höfðum gert áætlanir
um framtíðina. Hún ætlaði að
heimsækja börnin og barnabörnin
sín í Bandaríkjunum og koma hing-
að til mín í Stokkhólm sem svo oft
áður og sitja úti á litla stigapall-
inum sem við höfðum tileinkað
henni og kölluðum „Litla Brekku-
kotið“. Þar sat hún og naut sól-
arinnar sem hún elskaði. Okkur
hjónum var hún sannkallað sól-
skinsbarn. Þar gat hún setið tím-
unum saman þögul og hlédræg, en
athugul einsog hún var alltaf, og
fylgdist með börnum sem léku sér
fyrir utan. Litla feimna mamma
mín sem aldrei krafðist eða heimt-
aði neitt og var svo ánægð með það
litla sem við gátum gert fyrir hana.
Stigapallurinn hennar verður alltaf
kallaður „Litla Brekkukotið hennar
mömmu“.
Hún var ekki gefin fyrir að masa
og tala. Hún var alltaf svo hljóð. Þó
voru undantekningar þegar hún
var viss um að enginn heyrði, að
það væri bara hún og ég sem töl-
uðumst við í einrúmi. Þá gat losnað
um málbeinið. Hversu naut ég ekki
þess að heyra hana tala og segja
mér alla mögulega hversdagslega
hluti. Og þau voru mörg gullkornin
og vísdómsorðin sem hrukku alveg
óvænt af vörum hennar.
Alltaf lifnaði hún við þegar ég
spurði hvort hún vildi ekki koma í
búðir með mér. Þann munað að
geta keypt sér þau föt sem hana
langaði í gat hún loksins látið eftir
sér. Nokkuð sem hún hafði þurft að
neita sér um fram á miðjan aldur.
Þegar ég gekk með henni milli
búðahillnanna var svo mikill sprett-
urinn á henni að ég var í vandræð-
um með að týna henni ekki. Þegar
hún sá einhverja fallega flík varð
hún ung öðru sinni og augun ljóm-
uðu sem hjá ungri blómarós.
Ég var alltaf pabbastelpan svo
athygli hennar beindist fyrri árin
mikið að yngri systkinunum. Ég
tók það sem sjálfsagðan hlut og
sárnaði sjaldan. Alltaf þótti mér
óskaplega vænt um mömmu og
fann svo vel hversu mikils hún mat
seinni árin það litla sem ég gat
gert fyrir hana.
Sorgin hjá okkur systkinum þeg-
ar hún er farin frá okkur að lokum
er næstum óbærileg. Að ganga um
Ásgarðinn, heimilið okkar gamla og
snerta alla muni sem hún og pabbi
hafa farið höndum um fyrir svo
stuttu bera tilfinningarnar okkur
ofurliði.
Aldrei kemur hún aftur svo ég
geti faðmað hana og sagt henni
hversu vænt mér þykir um hana.
En í vöku og draumi mun ég alltaf
finna fyrir henni svo lengi sem ég
dreg andann. Ég veit að ég mun
alltaf hafa hana og pabba mér við
hlið til styrks og halds í mótlæti og
til að samgleðjast mér í meðlæti.
Guð blessi minningu elsku
mömmu minnar. Fari hún heil með
kveðjur frá okkur öllum systkinun-
um þegar hún hittir pabba aftur.
Þeirra er sárt saknað en minning-
arnar hlýja okkur um hjartarætur
hvar í heiminum sem við erum og
þegar við sjáum sólina, þá vitum
við systkinin að elsku sólskins-
manna situr þar uppi og horfir nið-
ur til okkar.
Sveiney Sveinsdóttir.
Nú er mín kæra tengdamamma
dáin. En hún lifir svo sannarlega í
minningunni þessi hægláta, þraut-
seiga kona sem sjaldan æðraðist í
erfiðleikum eða mótlæti. Það er
ekki að bera í bakkafullan lækinn
að segja að hún hafi tekist á við líf-
ið með því jafnaðargeði, kjarki og
hugrekki sem fáum er eiginlegt.
Fríða, eða Dæja, eins og hún var
kölluð í sinni sveit, var fædd og
uppalin í Grundarfirði, þar sem
hún varð snemma matvinnungur.
Lífsbaráttan var hörð á þessum
tímum og matargötin mörg í stórri
fjölskyldu og lærði Fríða snemma
að bjarga sér sjálf. Fór hún þegar
á barnsaldri milli bæja til að vinna
ýmis viðvik og fékk mat í sig að
launum. Lítið fór fyrir skólagöng-
unni sem náði ekki 2 árum.
Fyrir ekki löngu spjölluðum við
hjónin við hana um þá gömlu daga
þegar hún var í kaupamennsku.
Minntist hún þess hversu misjafnir
húsbændurnir gátu verið. Á einum
bænum fékk hún sumarkaupið
greitt með gamalli kápu af heima-
sætunni. Því gleymdi hún aldrei.
En hún gleymdi heldur aldrei þeim
sem höfðu gert vel við hana, þó
ekki væri annað en að hún hefði
fengið vel að borða.
Dagfríður fluttist til Reykjavíkur
ung að árum í atvinnuleit. Skömmu
seinna kynntist hún Sveini Þor-
móðssyni, tengdaföður mínum, og
giftust þau eftir ríflega tíu ára
sambúð eða 26. ágúst 1953. Hjóna-
band þeirra varði ævilangt. Fyrstu
árin voru erfið og lífsbaráttan hörð
og börnin urðu mörg. Húsakynnin
sem þau urðu að sætta sig við
myndu trauðla teljast nothæf sem
útihús miðað við kröfur nútímans.
Þau urðu eins og fjöldi annarra,
sem þá var að byrja sinn búskap
eða var nýfluttur á mölina á tímum
mikilla umbyltinga á Íslandi, að
búa í ýmsum braggahverfum.
En þessi þrautseigu og einbeittu
hjón voru fastákveðin, þrátt fyrir
knöpp kjör, að sjá til að börnin eld-
ust upp í mannsæmandi húsnæði.
Eftir fleiri ára bið og margar ferðir
til tveggja borgarstjóra uppfylltist
draumurinn. Sveinn fékk viðtal við
Geir Hallgrímsson, fljótlega eftir
að Geir varð borgarstjóri, og lofaði
Geir þeim hjónum nýjum verka-
mannabústað og það loforð stóðst
með sóma. Fluttust þau hjónin þá í
nýja raðhúsið sitt í Ásgarði 7, sem
var bara fokhelt og gengu þau frá
því sjálf. Þar bjuggu þau síðan svo
lengi sem þeim entist aldur.
Ásgarðurinn er á þrem hæðum
og því erfiður eldra fólki vegna
þröngra og brattra stiga. Við
nefndum einhverju sinni við Fríðu
eftir að Sveinn var látinn, hvort
hún myndi ekki vilja fá íbúð á einni
hæð. En ekki var við það komandi.
Fann ég fljótt að þetta var hennar
óðal og virki, sem var bundið henni
þeim tilfinningaböndum sem hún
gat ekki hugsað sér að slíta. Var
því ekki rætt um það aftur. Hún
sat fastákveðin við sinn keip. Þetta
lýsti persónuleika hennar vel. Hún
var trygg sínu og sínum, og hélt
sínu striki hvað sem á bjátaði.
Dagfríður var nokkuð dökk á
brún og brá og var hrifin af litrík-
um klæðum og skartgripum. Gönt-
uðust bæði kona mín og tengdafað-
ir stundum við hana að hún væri
örugglega komin af fransmönnum
sem hefðu komið við á höfnum fyr-
ir vestan, eða jafnvel sígaunum.
Þegar ég lít til baka er mér ljóst að
hún var hreinræktaður víkingur
sem stóð óhrædd í stafni lífs síns
og horfði á móti stormi, öldu og
óveðri án þess að láta bilbug á sér
finna.
Dagfríður var hæglát og að öllu
jöfnu dul með tilfinningar sínar.
Hún var hlý með afbrigðum gagn-
vart þeim sem henni þótti vænt
um, en það tók langan tíma að
kynnast henni. Að líkindum hafa
erfiðleikar og ýmis vonbrigði æsku-
áranna merkt hana og kennt henni
að búast ekki við of miklu, hvorki
af fólki né lífinu sjálfu. Hún gerði
ekki miklar kröfur til annarra,
mestar kröfur gerði hún til sjálfrar
sín.
Fyrir utan að hafa í og á börnin
var umhugsunin um eiginmanninn
alltaf efst á blaði. Enda voru þau
með afbrigðum samrýnd. Oft þurfti
Sveinn að fara í myndatökur um
miðja nótt og taldi Fríða ekki eftir
sér að fara upp honum til samlætis
og aðstoðar. Vakti hún jafnvel eftir
honum þangað til hann kom heim
til að gefa þreyttum eiginmanni te-
bolla og brauðsneið. Þegar Fríða
fór að vinna utan heimilisins komin
á sextugsaldur, fékk hún vinnu í
frystihúsinu Granda. Sveinn keyrði
hana í vinnuna á hverjum morgni,
kom til hennar með heitan mat á
hverjum degi í hádeginu og sótti
hana á hverju kvöldi. Í hádeginu
sátu þau saman í bílnum meðan
hún borðaði, spjölluðu eða bara
nutu þess að vera í návist hvort
annars. Uppbót á sína stuttu skóla-
göngu fékk hún þegar hún sótti
nám í Háskóla Íslands og fékk við-
urkenningu sem háskólalærður
fiskitæknir.
Flest börn Sveins og Fríðu nú
eru búsett erlendis, fjögur í Banda-
ríkjunum og eitt í Svíþjóð. Meðan
heilsan leyfði var það yndi þeirra
hjóna að fara í heimsókn til
barnanna og var ekkert til sparað
nú þegar fjárhagurinn loksins var
rýmri á efri árum. Til okkar í
Stokkhólmi komu þau mest síðustu
árin því heilsan leyfði ekki lengri
og erfiðari ferðir. Ekki voru kröf-
urnar miklar eða ónæðið, þótt
þröngt væri búið í litla kotinu okk-
ar.
Skammt er nú stórra högga á
milli þegar þau hjónin bæði eru
horfin með stuttu millibili og sorgin
er yfirþyrmandi í fjölskyldu Sveins
og Fríðu. Öll vonuðumst við eftir
að Fríða ætti eftir að lifa mörg góð
ár í viðbót, njóta lífsins og heim-
sækja okkur öll sem búum í útlönd-
um.
Það er tómarúm í borginni
Reykjavík eftir að Sveinn Þor-
móðsson er horfinn af sjónarsvið-
inu. Það er tómarúm í Ásgarði 7,
borg fjölskyldu Sveins og Fríðu, nú
þegar hún hverfur til eilífrar sam-
veru hjá eiginmanninum og sínum
trygga vini.
Fríða var sú persóna sem marg-
ur í dagsins ys og hamagangi eftir
lífsgæðum og auði, mætti taka sér
til fyrirmyndar. Nú er þessi hóf-
sama og hægláta móðir þolinmæð-
innar farin til betri vistar.
Mér er efst í huga að færa Guði
þakkir fyrir að hafa fengið að njóta
lærdómsríkra kynna og hlýrra
samvista í þessu lífi við mína elsku-
legu tengdamóður.
Minningin um Dagfríði Péturs-
dóttur mun aldrei gleymast, hvorki
mér né öðrum sem fengum að
kynnast henni náið.
Karl Jóhannsson.
Ég trúði vart mínum eigin eyr-
um þegar fyrrverandi sambýlis-
maður minn tilkynnti mér að
mamma hans væri dáin, aðeins
tveimur mánuðum eftir fráfall föð-
ur hans. Þetta bar mjög snöggt að.
Ég vissi ekki hvernig ég átti að
segja Sigurði syni okkar þetta en
honum þótti afar vænt um ömmu
sína og afa heitinn. Dagfríður hélt
mikið upp á Sigurð og var mjög
ömmuleg í sér.
Hún bauð okkur oft í mat og
hafði oftast íslenska rétti frá gamla
tímanum, kjötsúpu, saltkjöt og
baunir. Sigurður borðaði mikið hjá
ömmu sinni og var það hans uppá-
haldsmatur. Dagfríður var mjög
elskuleg við manninn sinn, Svein
heitin, og gerði allt fyrir hann sem
hún gat. Í garðyrkjunni undi hún
sér mjög vel og ber garðurinn þess
glögg merki. Hún var mikill sól-
dýrkandi og þeir sem vissu ekki
betur hefðu getað dregið þá álykt-
un að hún væri búsett á Spáni.
Hún var nýkomin frá Svíþjóð þegar
hún lést, en þar dvaldi hún hjá
dóttur og tengdasyni í mánuð og
hafði gott af. Ég var nýbúin að
heyra í henni í síma og virtist hún
vera hress og sátt við að Sveinn
hafði fengið hvíldina eftir erfið
veikindi. Þau þurftu ekki að vera
lengi aðskilin; nú munu þau hittast
á öðru tilverustigi.
Ég votta börnum Dagfríðar,
barnabörnum og öðrum aðstand-
endum innilega samúð.
Hjálmfríður Þ. Auðunsdóttir.
DAGFRÍÐUR
PÉTURSDÓTTIR
!
"
#$ #%%&
! "## $% & '&
&
& "## ( )"* && '&
+',"!
& '&
!
& '&
$ !&
& '& ( #& !& "##
( #&
& "##
#- & ',
#- &
!
& "## .
*' '
& "## ' '/# '
0%! &
& '&
/ & /%& ' / & / & /%&1
!
"
#
$ ! %%&
!" ! # $% !
&' # (
!" $&## )'$% !(
&( &*