Morgunblaðið - 16.06.2002, Page 39

Morgunblaðið - 16.06.2002, Page 39
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. JÚNÍ 2002 39 Útfararþjónustan ehf. Stofnuð 1990 Rúnar Geirmundsson útfararstjóri Önnumst allt er lýtur að útför. Hvítar kistur - furukistur - eikarkistur. Áratuga reynsla. Símar 567 9110 & 893 8638 utfarir.is Davíð Osvaldsson útfararstjóri Sími 551 3485 • Fax 568 1129 Áratuga reynsla í umsjón útfara Önnumst alla þætti Vaktsími allan sólarhringinn 896 8284                                                  !  "#   $   %  &          %          !!" #! !$%"!!&      !!" '()  $*&!&      !& +,-$  !!"    .$ )!& " - -/- ✝ Victoría Vé-freyja Guð- mundsdóttir Blöndal var fædd í Helga- fellsprestakalli í Snæfellssýslu 15. sept. 1910. Hún and- aðist að Elliheim- ilinu Grund 9. júní síðastliðinn. Foreldr- ar hennar voru Guð- mundur Jónsson, verzlunarmaður og verkstjóri í Stykkis- hólmi, f. í Akureyj- um í Helgafellssveit 4. okt. 1858, og kona hans Ólöf Helgadóttir, f. á Kvía- bryggju í Eyrarsveit í Snæfells- sýslu 1877. Systkini Victoríu voru Her- borg Theodóra, f. 6.2. 1900, gift Ingi- mari Brynjólfssyni stórkaupmanni, þau áttu þrjá syni, og Guðmundur klæð- skeri, f. 13.2. 1905. Victoría giftist Jóni Blöndal hagfræð- ingi, f. 6. október 1907, d. 30 okt. 1947. Útför Victoríu verður gerð frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 18. júní og hefst at- höfnin klukkan 10.30. Victoría heitin kom til Reykjavík- ur 16 ára til að aðstoða systur sína við heimilisstörf og fleira. Þegar Victoría var 18 ára var hún stórhuga mjög, en þá ríkti kreppa í heiminum og atvinnuleysi og lítið var um peninga. Þá tók hún sig upp og sigldi til Kaupmannahafnar, en þangað sóttu mest námsmenn á þeim tíma. Hún var svo lánsöm að kynnast skólastýru íslenskri, sem tók hana upp á arma sína og kom henni í sam- band við íslenzk hjón í Höfn, þau Steinunni og Þórð tollvörð, sem þekkt voru fyrir að rétta landanum og námsmönnum hjálparhönd. Victoría var búsett í Danmörku í um það bil átta ár og á þessum árum kynntist hún manni sínum, sem þá var við nám við Hafnarháskóla í hag- fræði, Jóni Blöndal hagfræðingi. Eftir að hann kom heim frá námi starfaði hann mikið fyrir hið opin- bera, svo sem Tryggingastofnun rík- isins og varð síðar forstjóri þar í apríl 1938. Victoría missti mann sinn 30 okt. 1947, eftir aðeins 11 ára samveru. Sorgin var djúp og sár, sem þeir þekkja er tekist hafa á við hana. Þegar frá leið og alvara lífsins tók við, fann hún sér vinnu og vann hjá Rafmagnsveitu Reykjavíkur alla tíð, þar til hún lét af störfum sakir ald- urs. Nú á skilnaðarstundu vil ég þakka frænku minni alla hennar vináttu og trygglyndi í minn garð og minnar fjölskyldu. Ég minnist allra gleði- stunda á heimili hennar, á ferðalög- um og hjá okkur. Við Kirsten kveðjum Victoríu með virðingu, söknuði og þakklæti. Blesssuð sé minning hennar. Gunnar. Eitt af einkennum Victoríu var frásagnargáfa hennar og í minning- unni sé ég hana fyrir mér í hlýlega eldhúsinu eða kannski í fallegu stof- unni heima hjá henni á Vesturgöt- unni, þar sem við ræddum allt milli himins og jarðar yfir tebolla og ein- hverju góðgæti. Oft spurði ég hana út í gamla tíma, svo sem bræður afa míns og fjölskyldu sem hún þekkti einna best eftirlifenda auk þess sem æsku hennar bar oft á góma. Þannig komst ég að því að nafnið hennar hafði komið til með þeim hætti að faðir hennar réð því að hún skyldi heita Victoría, í höfuðið á sjálfri Eng- landsdrottningu. Vjefreyjunafnið valdi móðir hennar og sagði Victoría að það hefði verið í höfuð á skáld- sagnapersónu úr bók sem var mikið lesin á þeim tíma. Hún stóð líka svo sannarlega undir þessu virðulega nafni sem foreldrarnir höfðu valið henni. Sem barn að aldri og síðar á fullorðinsaldri dáðist ég að þessari konu sem var ekki bara falleg, glæsi- leg og vel máli farin. Hún var heims- kona sem fór víða og lét sig flest varða sem viðkom þjóðmálunum. Hún lá heldur ekki á stjórnmála- skoðunum sínum, enda voru þær skýrar. Hún studdi Alþýðuflokkinn eins og eiginmaður hennar og afa- bróðir minn, Jón Blöndal, sem var við nám í hagfræði við Kaupmanna- hafnarháskóla er þau Victoría kynnt- ust. Var það nokkru eftir að hún tók sig til árið 1929, sigldi út með Gull- fossi í ævintýraleit og hugðist finna sér vinnu. Hún var ein á ferð og lýsir það sjálfstæði hennar og persónu- leika að hún skyldi leggja í slík æv- intýr upp á eigin spýtur sem var væntanlega ekki svo algengt á þeim tíma, en viss var hún um að bjarga sér. Einhverntímann spurði ég hana út í þetta ferðalag og gaf hún lítið fyrir hvort það hefði ekki verið áhættusamt, hún hefði jú verið ung og hraust, en bætti því reyndar við að eftir á að hyggja mundi hún nú ekki ráðleggja ungum stúlkum að fara út í óvissuna svona hjálparlaust, hafandi hvorki vist né vinnu. Ferðin tók nokkra daga og svo vildi til að hún hitti fyrir í skipinu konu nokkra að nafni Björg C. Þorláksson, fyrr- verandi eiginkonu Sigfúsar Blöndal, móðurbróður eiginmanns hennar verðandi. Björg mun þá hafa verið á ferð til Parísar með viðkomu í Kaup- mannahöfn og fór svo að hún tók ekki annað í mál en að útvega Victo- ríu vist hjá íslenskum hjónum þar í borg. Þessi ráðahagur hafði enn meiri áhrif á líf Victoríu en séð varð fyrir í fyrstu því að í gegnum þetta fólk kynntist hún Jóni. Bjuggu þau í Kaupmannahöfn um nokkurt skeið þar sem þau giftu sig og bera myndir þess vitni að vissulega voru þau glæsileg ungu hjónin sem lífið virtist blasa við. En eins og svo margir hafði Jón smitast af berklum og eftir að hafa strítt við þann sjúkdóm árum saman lést hann árið 1947, aðeins fertugur að aldri. Höfðu þau Victoría þá búið í tíu ár á Íslandi. Victoría og Jón voru ákaflega samrýnd og aðspurð sagði hún mér eitt sinn að henni hefði aldrei nokk- urn tíman dottið í hug að gifta sig aft- ur, hún hefði verið og mundi alltaf vera gift honum Jóni sínum. Ekki eins og hún hafi verið að velta sér upp úr því, svona leit hún bara á mál- ið. Þetta þótti mér athyglisverð stað- hæfing í ljósi þeirra tíma sem við lif- um á nú. En svona var hún Victoría, trygg sínu fólki og það kom m.a. fram í því að hún hélt ávallt nánu sambandi og góðri vináttu við fjöl- skyldu Jóns í öll þessi ár sem liðu frá því að hann lést. Langt fram eftir aldri kom hún a.m.k. árlega í heim- sókn í sveitina og dvaldist hjá ömmu minni Jórunni og Birni afa og síðar hjá foreldrum mínum, oftast í nokkra daga. Hún hafði líka sterkar taugar til Stykkishólms, þar sem hún ólst upp, og er mér minnisstætt er við fórum eitt sinn saman á þessar æskuslóðir hennar. „Ég vil nú ekki vera að prala Ella mín,“ sagði hún stundum af hógværð sinni, „en hvergi hef ég nú komið þar sem er fallegra en í Stykkishólmi.“ Hún þakkaði líka einstaklega góða heilsu sína góðum aðbúnaði í æsku og heilsusamlegu líferni og minntist sérstaklega á að köld sjóböð sem barn hefðu örugglega gert sér gott. Ég man satt best að segja aldrei eftir að hafa heyrt um það að henni hafi orðið misdægurt fyrr en eftir áttrætt en þá lenti hún fyrst í því að fara á spítala. Var það eftir slæmt slys þar sem keyrt var á hana úti á götu, en Victoría gekk flestra sinna ferða, þar á meðal í sjálfboðavinnuna sem hún vann í verslun Rauða krossins á Landakoti og á Thorvaldsenbasarn- um. Eftir það hrakaði heilsu hennar og síðustu árin þurfti hún aðstoðar við. Í huga mínum er samt áfram minningin um glæsilegu konuna sem var svo hjartahlý og gerði líf okkar sem þekktu hana betra og litríkara. Blessuð sé minning hennar. Elín Blöndal. Hin langa þraut er liðin, nú loksins hlauztu friðinn, og allt er orðið rótt, nú sæll er sigur unninn, og sólin björt upp runnin á bak við dimma dauðans nótt. (Valdimar Briem.) Að lifa sjálfan sig hlýtur að vera hræðilegt, varð Victoríu oft að orði, ef talið barst að Alzheimer-sjúk- dómnum. Reyndin varð, að það fékk hún sjálf að reyna. Eftir erfitt tímabil á Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund, undir einstakri umönnun starfsfólks þar, laut hún í lægra haldi einmitt fyrir þessum sjúkdómi. Til Reykjavíkur kom Victoría 15 ára gömul og bjó hjá systur sinni, sem var gift kona í bænum. Aðstoð- aði Victoría hana við heimilisstörfin og barnapössun. Við átján ára aldur tók Victoría sig upp og fór ein síns liðs til Danmerk- ur, sem var talið nokkuð djarft í þá daga. Hún kynntist íslenskum sóma- hjónum, sem reyndust henni alveg einstök. Í Danmörku kynntist hún manns- efninu sínu, Jóni Blöndal, sem var við nám í hagfræði. Að námi loknu fluttu þau aftur til Íslands og voru þá búin að gifta sig. Eftir aðeins ellefu ára hjónaband varð Victoría ekkja, þá aðeins 36 ára gömul. Sorg hennar var næstum óbærileg, einnig í ljósi þess að hjónabandið var barnlaust. Eftir nokkurn tíma fór hún að vinna hjá Rafmagnsveitu Reykjavík- ur og hélt hún því starfi til eftirlauna- aldurs. Victoría var að eðlisfari félagslynd og starfaði hjá ýmsum félögum, t.d. Rauða krossi Íslands, Dýraverndun- arfélaginu og Thorvaldsensfélaginu, en þar var hún gerð að heiðursfélaga. Hún var smekkvís svo af bar. Móð- urmálið var henni mjög kært og henni sárnaði þegar illa var með það farið. Okkur systkinunum reyndist hún afar góð frænka og kveðjum við hana með þessum línum: Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Briem.) Ása Rakel Gunnarsdóttir. Elsku Victoría mín, nú hefur þú kvatt þetta líf og vil ég þakka þér fyr- ir það sem þú gafst mér. Stundirnar sem við áttum saman eru mér dýr- mætar og ógleymanlegar og þær geymi ég í minningunni. Dýrmætust er þó í minningunni vel heppnuð ferð okkar saman fyrir nokkrum árum til Stykkishólms og Breiðafjarðareyja, á æskuslóðir þínar. Miklu þakklæti vil ég koma til þín frá fjölskyldunni í Stafholtsey fyrir þitt einstaka trygglyndi og hlýju. Með þessu ljóði kveð ég þig, Vic- toría mín. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Guð blessi þig og hvíl í friði. Hanna. Okkar kæra Victoría Blöndal, heiðursfélagi Thorvaldsensfélagsins, er nú kvödd. Victoría gekk í félagið fyrir tæplega 42 árum og vann félag- inu sínu vel. Hún var kosin til ýmissa trúnaðarstarfa sem hún sinnti af al- úð. Fljótlega eftir að hún gekk í fé- lagið var hafist handa við að byggja Vöggustofu Thorvaldsensfélagsins. Þá söfnuðu félagskonur miklum pen- ingum á fáum árum með ýmsum hætti. Árlega voru happdrætti, bingó og kökusala fyrir utan sölu jóla- merkjanna, afgreiðslu minningar- kortanna og rekstur Thorvaldsens- bazarsins. Þar lagði Victoría ötullega sitt af mörkum með öðrum fé- lagskonum. Í verslun félagsins Thorvaldsens- bazar, þar sem félagskonur vinna sjálfboðastörf, kynnast þær vel og þar kynntist ég Victoríu. Hún var fáguð í framkomu, hreinskilin og ákveðin, og það var gaman að vera með henni. Oft sagði hún frá hvernig umhorfs var áður fyrr og lýsti mönn- um og málefnum á einstaklega sjón- rænan hátt. Victoríu var mjög um- hugað um Bazarinn og leit þar iðulega inn er hún átti leið hjá. Thorvaldsensfélagið á Victoríu mikið að þakka og við félagskonur kveðjum nú trausta og góða vinkonu með þakklæti og virðingu og biðjum henni Guðs blessunar. F.h. Thorvaldsensfélagsins, Guðlaug Jónína Aðalsteinsdóttir, form. VICTORÍA BLÖNDAL                                                    !  !" # $ % & '   (  ' (  )# ! # $ % & ' * %  # $ % & '   +&' *)   # $ % ' % +)$) # $ % & ' (&  +&' &  , # $ % & ' *)# - ) ' .% # $ % ' #" / ) )& ' # # $ % & ' 0 , 0 )' 1/ % # # $ % & ' ) #&' $) )$% #)#%--$%                                                    !     

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.