Morgunblaðið - 16.06.2002, Page 41

Morgunblaðið - 16.06.2002, Page 41
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. JÚNÍ 2002 41 við Nýbýlaveg, Kópavogi ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR Stapahrauni 5, Hafnarfirði, sími 565 5892 www.utfararstofa.is ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Sjáum um alla þætti sem hafa ber í huga er andlát verður, í samráði við aðstandendur Sími 581 3300 Allan sólarhringinn — www.utforin.is Suðurhlíð 35, Fossvogi Sverrir Olsen útfararstjóri Sverrir Einarsson útfararstjóri Kistur Krossar Duftker Gestabók Legsteinar Sálmaskrá Blóm Fáni Erfidrykkja Tilk. í fjölmiðla Prestur Kirkja Kistulagning Tónlistarfólk Val á sálmum Legstaður Flutn. á kistu milli landa Landsbyggðarþjónusta. Áratuga reynsla. Bryndís Valbjarnardóttir útfararstjóri Elsku Hlynur. Ég vil varla trúa því að þú sért farinn úr þessum heimi og munir ekki koma aftur. Þó að við höfum ekki verið sam- an í langan tíma, höfum við verið mjög góðir vinir í nokkuð langan tíma. Þú hefur alltaf verið yndislegur, skemmtilegur og góður við mig. Þú áttir mjög marga og góða vini og varst alls staðar hrókur alls fagnaðar. Ég vona að þér líði vel hvar sem þú ert núna, ég mun alltaf muna eftir þér. Guð veri með þér og styrki aðstandendur á erfiðum tím- um. Þín Arna Björk. Þegar síminn hringdi á miðviku- daginn 5. júní óraði mig ekki fyrir þeim hörmulegu fregnum að vinur minn hann Hlynur væri farinn. Ég hugsaði með mér, hvernig svona ungur hraustur og góður drengur gæti verið farinn svo skyndilega sem raun bar vitni. En lífið getur verið svo óréttlátt stundum. Því þú, Hlyn- ur, varst einn af þessum góðu. Í huga mér þjóta nú margar af þeim fjölmörgu yndislegu minningum sem ég á um okkur saman. Þá dettur mér helst í hug þegar við vorum guttar, stoltir á svip spólandi og spænandi, svo mörgum þótti nóg um, hlið við hlið á tunnuhjólinu góða sem okkur langaði alltaf í og loksins eignuðumst. Og svo þegar við hitt- umst aftur eftir þónokkurt hlé, ekk- ert fyrir löngu síðan, urðu fagnaðar- fundir eins og svo oft áður fyrr þegar ég kom í fjörðinn. Þú sagðir mér að þú værir fluttur í Keflavík og upp frá því hittumst við meira und- anfarið.Við eyddum góðum stundum saman á Siglufirði um páskana sem og oft áður, og fyrir það mun ég ætíð verða þakklátur. Ég kveð þig nú í hinsta sinn, elsku vinur, með sorg og söknuð í hjarta og ég veit að það munu verða fagn- aðar- fundir eins og svo oft áður þeg- ar við munum hittast á ný. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir hveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. (V. Briem) Þinn vinur, Sigurjón Veigar Þórðarson. Þegar mér bárust þær fregnir að þú, Hlynur, værir ekki lengur meðal okkar þá trúði ég því bara alls ekki. Hvernig getur lífið verið svona grimmt? Ég bjóst bara við að koma heim og hitta þig eins og maður gerði alltaf. En nú verður maður að sættast við staðreyndir. Ég á marg- ar góðar minningar um okkur eins og þegar við fórum að fíflast í tækj- unum hjá pabba og drekka gos af lagernum hjá honum. Þú, Hlynur, geislaðir af lífsgleði, hamingju og krafti. Og þegar maður hitti þig vissi maður að nú væru góðar stundir framundan. Þó ég viti nú að þú ert farinn í langa ferðalagið, elsku vinur, þá mun minning þín ávallt lifa mér í hjarta sem og mörgum öðrum. Elsku Magga, Bjarni og fjöl- skylda, Guð gefi ykkur styrk til að HLYNUR BJARNASON ✝ Hlynur Bjarna-son fæddist í Siglufirði 14. mars 1983. Hann lést af slysförum 5. júní síð- astliðinn og var útför hans gerð frá Siglu- fjarðarkirkju 14. júní. takast á við þann mikla missi og sorg sem að ykkur sækir. Hugur okkar er hjá ykkur. Þinn vinur, Gunnar Rafn Sigurðsson. Það eru ellefu ár síð- an ég kom fyrst á Siglufjörð í þeim til- gangi að standsetja litla íbúð sem skyldi þjóna hlutverki sum- arbústaðar fyrir mína fjölskyldu. Íbúðin sem er staðsett á Hávegi 9 hefur alla tíð verið kölluð sælureiturinn okkar. Íbúðin, og fólk- ið á staðnum, hefur alltaf fullkom- lega staðið undir þessari nafngift, þ.e. að vera sælureitur. Hlynur var einn af þeim sem til- heyrði okkar veruleika á Siglufirði. Hann var ekki nema átta ára þegar við kynntumst honum fyrst, aðeins hálfu ári yngri en dóttirin, sem kom með okkur og naut strax félagsskap- ar stráksins á efri hæðinni. Það var ekki lítis virði að sælureitnum á Siglufirði fylgdi fullkominn leik- félagi. Drengur sem var kurteis en kátur og einfaldlega það sem maður kallar ljúfur og góður drengur. Þessi drengur breyttist síðan í myndarleg- an herramann. Síðast þegar dóttir mín og Hlynur hittust þá stóð hann algjörlega undir öllu framansögðu. Hann tók hana með sér á rúntinn, kynnti hana fyrir vinum sínum og sá til þess að hún væri ekki ein og af- skipt. Hann lagði sitt af mörkum til að gera henni heimsóknina gleði- legri. Þegar ég hugsa til Hlyns, og hans eiginleika, þá kemur mér líka í hug orðið greiðvikni. Það eru ekki nema þrjár vikur síðan við töluðum síðast saman. En þá var hann að gera vinkonu sinni greiða með því að spyrja hvort hún gæti tímabundið leigt af okkur sælureitinn. Í þau skipti sem ég bað hann um greiða þá var það alltaf sjálfsagt af hans hálfu. Nú þegar sorgin knýr dyra á sælu- reitnum okkar þá detta mér í hug orð Kahlil Gibran; „Þegar þú ert sorgmæddur, skoðaðu þá aftur huga þinn og þú munt sjá, að þú grætur vegna þess, sem var gleði þín.“ Já, ég græt, því mér finnst mikill missir að þessum unga og efnilega Siglfirðingi sem kveður okkur svo allt of fljótt. Ég sem foreldri og systkini get bara ímyndað mér sárs- aukann sem fylgir því að standa nú í þeirra sporum. En sem ég geri það og finn hversu sárt og hversu vont það er þá finn ég líka hvað gráturinn er góður. Því: „Sorgin er gríma gleð- innar. Og lindin, sem er uppspretta gleðinnar var oft full af tárum. Og hvernig ætti það öðruvísi að vera? Þeim mun dýpra sem sorgin grefur sig í hjarta manns, þeim mun meiri gleði getur það rúmað.“ Okkar dýpstu samúðarkveðjur sendum við foreldrum, bræðrum, unnustu og öðrum aðstandendum. Kristín Helga, Jón Pétur, Ólöf Hugrún, Gunnar og Guðmundur. Kynni okkar Hlyns hófust haustið 1992 þegar ég hóf störf við Grunn- skóla Siglufjarðar. Hlynur var in- dæll drengur og átti auðvelt með nám. Hann var skapgóður og ljúfur í allri umgengni og seinþreyttur til vandræða. Það var heldur ekki slæmt að vera nágrannakona Hlyns því á stundum barði hann að dyrum og færði mér nýbakaða skúffuköku. Árin liðu, ég flutti frá Siglufirði og missti að mestu sjónar af fyrrum nemendum mínum. Síðasta sumar var ég stödd á Sigló og hnippir þá í mig ungur, hávaxinn, myndarlegur maður sem ég kannaðist við, en kom ekki alveg fyrir mig. Þarna var þá kominn Hlynur, ásamt fleiri bekkj- arfélögum og mikið fannst mér ég vera orðin gömul þegar ég sá þessa hálffullorðnu menn sem fyrir svo stuttu voru „litlu drengirnir mínir“. Hlynur sagði mér frá þeim áformum sínum að halda áfram námi og fram- undan var allt svo bjart og skemmti- legt. Nú, tæpu ári síðar, er Hlynur far- inn frá okkur – hann býr annars staðar núna. Ég þakka honum ánægjulega samfylgd og ég sendi fjölskyldu hans mínar innilegustu samúðar- kveðjur. Hrafnhildur Theodórsdóttir.                                         !" # ! " $% &!" '(  ) #  '  '(  *  " + '' !"'  '(  ,   -    '(  !% &"   . .%  . . .%                                          !  "#$               ! "!  %& $ '( !( )* (( ( +* * $ '( !( &  & $,  (+ +* - & '( +* ! (( $ !+* !( " ( "(!&" ( " ( "($                                                       !"!                                            !"   # #  $  %    !" #$ %&#" ' #& "  #! !'                                                  !                 #  $                                                             !     "    !" #  $%# & # ' !" !"  '! (&  $)#                                 !  ! "# $%"  $%&& " '%"$ %  "# (" &  $%" ! )

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.