Morgunblaðið - 16.06.2002, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 16.06.2002, Blaðsíða 43
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. JÚNÍ 2002 43 ÍÞRÓTTAFÉLAG Reykjavíkur, ÍR, hefur undir höndum þinglýst bréf frá oddvita Ölfushrepps, dagsett 2. ágúst árið 1939, um að félagið sé eig- andi landspildu á Hengilssvæðinu, þar sem nú er skíðasvæði ÍR-inga í Hamragili. Í bréfinu lítur oddvitinn svo á að um afsal sé að ræða. Eins og fram kom í Morgunblaðinu í gær telja ÍR-ingar að Orkuveita Reykja- víkur hafi ekki virt þessi eignarrétt- indi með framkvæmdum sínum á svæðinu vegna fyrirhugaðrar gufu- aflsvirkjunar. Bréfið er undirritað af Halldóri Gunnlaugssyni, þáverandi oddvita, og þinglýst af sýslumannsembættinu í Árnessýslu. Texti þess er eftirfar- andi: „Samkvæmt fundargerðarbók Ölfushrepps, var á almennum hreppsfundi, sem haldinn var í Hveragerði 15. nóvember 1938, sam- þykt að gefa Íþróttafélagi Reykja- víkur landsspildu þá er félagið hefur haft til afnota til skíðaiðkana und- anfarið og það hafði falað til kaups. Landamerki eru greind í fundar- gerðarbók hreppsins 10. apríl 1938 og eru sem hér segir: Úr hæsta tindi Reykjafells í vörðu á Skarðsmýrar- fjalli merktri með hæðartölunni 570 m. Þaðan í Sleggju. (470m.) Sýslu- nefnd Árnessýslu hefur á fundi sín- um 8. apríl þ.á. samþykt eftirfarandi og tilkynnt oss: Sýslunefndin heim- ilar Ölfushreppi að gefa (Íþrótta- félagi Reykjavíkur) landsspildu í af- réttarlandi hreppsins fyrir ofan Kolviðarhól, þó þannig að landa- merki séu glögglega ákveðin. Land þetta er því nú orðið lögmæt eign Íþróttafélags Reykjavíkur, og á þetta bréf að skoðast sem afsal fyrir landinu. Væntum vér að gjöf þessi sé félaginu kærtkomin og verði fjölda manna til gagns og gleði. Hveragerði 2. ágúst 1939. (Sign) Halldór Gunnlaugsson.“ Aðstoð við sundlaugar- byggingu endurgoldin Þorbergur Eysteinsson, fram- kvæmdastjóri ÍR, segir það óskilj- anlegt að Orkuveita Reykjavíkur dragi í efa eignarréttindi félagsins á svæðinu, miðað við innihald þessa bréfs, sem óumdeilanlega sé hægt að líta á sem afsal. Eins og fram kemur í bréfi oddvitans höfðu ÍR-ingar fal- ast eftir landinu til kaups en Ölfus- ingar töldu sig ekki geta selt það þar sem um afrétt var að ræða. Samkvæmt upplýsingum Morgun- blaðsins var gjöf hreppsins að nokkru leyti komin til af því að sum- arið 1938 aðstoðuðu ÍR-ingar við smíði búningsklefa við sundlaugina í Hveragerði. Mættu þeir óumbeðnir austur á bílum, hlöðnum timbri, og reistu klefana á skömmum tíma. Vildu Hvergerðingar því endur- gjalda þessa aðstoð með því að gefa ÍR umrætt landssvæði en skíðadeild félagsins var þá farin að standa fyrir námskeiðum við Kolviðarhól. Þinglýst bréf frá árinu 1939 til ÍR-inga vegna lands á Hengilssvæðinu                                                                      „Væntum vér að gjöf þessi sé félaginu kærtkomin“ EINKAHLUTAFÉLAGIÐ Lamp- inn er nú í viðræðum við Landspít- ala – háskólasjúkrahús um að taka að sér tímabundinn rekstur deildar á Landakoti í sumar fyrir hvíld- arinnlagnir aldraðra. Fram- kvæmdastjóri og eigandi Lampans er Anna Soffía Guðmundsdóttir hjúkrunarfræðingur en hún stofn- aði félagið árið 2000 ásamt Gerði Baldursdóttur hjúkrunarfræðingi um rekstur 22 rúma öldrunardeild- ar. Hins vegar er þetta fimmta sumarið sem Anna Soffía tekur að sér umsjón með hvíldarinnlögnum aldraðra í samstarfi við Landspít- alann. Fyrstu þrjú sumrin vann hún í samstarfi við aðra hjúkr- unarfræðinga. Anna Soffía segist í samtali við Morgunblaðið hafa mjög góða reynslu af því starfi sem Lampinn hafi unnið innan Landspítalans. Hún segir mjög brýna þörf vera á hjúkrunarúrræðum fyrir aldraða og til marks um það nefnir hún að um 50 beiðnir liggi fyrir hjá Lamp- anum um hvíldarinnlögn í sumar en hún hafi aðeins 20 rúm til ráð- stöfunar. Um er að ræða aldraða sem eru í umönnun aðstandenda sinna. Reiknað er með að félagið ráði til sín 15–20 starfsmenn á Landakoti í sumar. Haustið 2000 samdi Lampinn við Landspítalann til sextán mánaða um rekstur öldrunardeildar og leigði félagið einn gang á geðdeild spítalans undir þá starfsemi og keypti fæði og læknisþjónustu af spítalanum. Um var að ræða þjón- ustu við aldraða einstaklinga sem biðu eftir vistun á hjúkrunarheimili og rann samningurinn við Lamp- ann út um það leyti sem Sóltún tók til starfa. Úrræðin á eftir áætlun Anna Soffía segir að það hafi verið ný reynsla fyrir sig að hugsa um launaútreikninga og önnur fjár- mál. Starf Lampans hafi samt gengið vel en við öldrunardeildina voru 15 stöðugildi sjúkraliða og 5 stöðugildi hjúkrunarfræðinga, auk starfsfólks við ræstingu. Á þessum 16 mán- uðum annaðist Lampinn 65 ein- staklinga. Hún segir starfsfólkið hafa búið yfir langri reynslu og þjónusta þess verið vel þegin af öldruðum og aðstandendum þeirra. Anna Soffía segir samstarfið við Landspítalann sömuleiðis hafa gengið mjög vel en hún hefur starf- að þar í 20 ár, lengst af á lyflækn- ingasviði. „Umönnun aldraðra virðist vera vaxandi vandamál. Öldruðum fjölg- ar en úrræðin eru alltaf á eftir áætlun. Bið er löng í flestum til- vikum, allt upp undir tvö ár. Á meðan ekki er betra flæði inn á hjúkrunarheimilin þá verður Land- spítalinn að hafa aðra möguleika en rými á bráðadeildum, sem eru dýr í rekstri,“ segir Anna Soffía. Morgunblaðið/Þorkell Lampinn rak hjúkrunardeild fyrir aldraða sjúklinga á Landspítalanum. Myndin er tekin við opunun deildarinnar. Anna Soffía Guðmundsdóttir og Gerður Baldursdóttir ræða við Sigurástu Ásmundsdóttur. Góð reynsla af rekstri öldrunardeildar Framkvæmdastjóri einkahlutafélagsins Lampans NÝ alhliða ráðgjöf fyrir ungt fólk sem á í tímabundnum vanda hefur verið sett á laggirnar, en að sögn Björns Vilhjálmssonar, verkefna- stjóra í Hinu húsinu, nefnist nýja þjónustan Tótalráðgjöf og mun starfsemin hafa aðsetur í Hinu húsinu. Björn segir forsögu Tótal- ráðgjafarinnar vera þá að Hitt húsið hafi um árabil stýrt átaks- verkefnum fyrir ungt, atvinnulaust fólk og þá hafi komið í ljós að ým- iss konar vandi steðjaði að þessu fólki, vandamál sem tengdust með- al annars fjárhag, náms- og starfs- vali og einkalífi einstaklinganna. „Við þekkjum til í kerfinu og vorum í því að hjálpa fólki að kom- ast í samband við rétta ráðgjafa á réttum tíma. Ég upplifði það þá að þessu unga fólki fannst oft langur aðdragandi frá því að það fann hjá sér þörf til að leita aðstoðar, þar til hún fékkst. Einnig kom í ljós að fólk sem leitar sér aðstoðar út af einu sviði í lífinu þarf oft hjálp á fleiri sviðum,“ segir Björn. Björn segist telja að ungu fólki liggi oft meira á en þeim sem eldri eru að fá aðstoð eftir að það hefur sóst eftir henni, ekki mega líða of lang- ur tími áður en hún býðst. Yngra fólk hafi minni þolinmæði og sé auk þess reynsluminna og því virð- ist lausn vandamálanna meira að- kallandi en eldra fólki. Vandinn sé ekki sá að þjónusta fáist ekki í samfélaginu en fólk þurfi þó að ganga í gegnum ákveðið ferli áður en það hittir ráðgjafa. Þess vegna byggist Tótalráðgjöfin á tveimur meginhugmyndum sem séu hrað- virkni og heildræn sýn á vandamál fólks. „Til að hafa sem sem víðast aðgengi að þjónustunni var farið af stað og leitað að samstarfsaðilum, en sýnt þótti að ákveðið kjarna- teymi þyrfti að vera til staðar, svo sem félagsráðgjafi, sálfræðingur, fjármálaráðgjöf, ráðgjafi í kynlífi og barneignum, ráðgjafi fyrir fatl- aða og náms- og starfsráðgjafi. Svo höfum við verið úti í stofn- unum þar sem þessi þjónusta er veitt og höfum búið til tengslanet við þær og áhersla er lögð á að teymið fái tíma til að funda og ræða saman svo auðveldara verði að taka heildrænt á vandamálun- um,“ segir Björn. Að sögn Björns getur fólk sóst eftir ráðgjöfinni með því að hringja, skrá sig á Net- inu, koma í Hitt húsið eða senda bréf. Auk þess verði ráðgjafarnir til staðar í Hinu húsinu á ákveðnum tímum svo fólk geti þá komið beint þangað og hitt ráð- gjafana, en þessi þjónusta verður ókeypis. Spurður um helsta markhóp ráðgjafarinnar segir Björn að ver- ið sé að reyna að brúa bilið milli vandamálaráðgjafar og upplýs- ingaveitu. „Ungt fólk á að geta komið til okkar, hvort sem það er að leita sér að vinnu, húsnæði eða námi, eða á í tímabundnum vandræðum með eitthvað í lífi sínu. Hópur sem núna gæti átt í erfiðleikum er það unga fólk sem ekki hefur fengið atvinnu í sumar en um mánaða- mótin vorum við um 800 manns á skrá og þetta er hópur sem getur hrapað hratt í sjálfsvirðingunni. Helsti veikleiki þjónustunnar er þó sá að fólk þarf sjálft að sýna frum- kvæði til að geta nýtt sér hana,“ segir Björn. Þeir sem standa að Tótalráð- gjöfinni eru Hitt húsið, Fé- lagsþjónustan í Reykjavík, Lands- bankinn, FKB, fræðslusamtök um kynlíf og barneignir, SÁÁ og Jafn- ingjafræðsla Hins hússins, auk þess sem leitað verður til annarra sérfræðinga eftir þörfum. Þörf á hraðvirkri og heildrænni þjónustu Ný alhliða ráðgjöf fyrir ungt fólk hefur verið sett á stofn í Hinu húsinu í Reykjavík DAGSKRÁ 17. júní á Hrafnseyri við Arnarfjörð hefst klukkan 14 með guðsþjónustu í Minningarkapellu Jóns Sigurðssonar. Séra Stína Gísla- dóttir í Holti, þjónandi sóknar- prestur, messar. Kirkjukór Þingeyr- arkirkju syngur. Organisti Sigurður G. Daníelsson. Kl. 15.00 hefst hátíðarsamkoma. Halldór Ásgrímsson utanríkis- ráðherra flytur ræðu dagsins. Hrólf- ur Sæmundsson óperusöngvari syngur einsöng. Þessi atriði fara fram í Bælisbrekku ef veður leyfir. Öllum gestum verður boðið upp á veislukaffi á vegum Hrafnseyrar- nefndar og verður það borið fram á pallinum við Burstabæ Jóns Sigurðs- sonar ef veður verður hagstætt. Opnuð verður samsýning þriggja listamanna af vestfirskum ættum í burstabænum. Auður Vésteinsdóttir sýnir listvefnað, Elísabet Haralds- dóttir leirlist og Þórður Hall sýnir málverk. Verða verk þeirra sýnd í bænum í allt sumar. Safn Jóns Sig- urðssonar verður opnað formlega 17. júní og verður það opið til 1. september að vanda. Veitingasala með heimilissniði verður í Burstabæ Jóns Sigurðs- sonar í sumar eins og verið hefur. Utanríkis- ráðherra flytur ræðu 17. júní á Hrafnseyri
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.