Morgunblaðið - 16.06.2002, Page 53

Morgunblaðið - 16.06.2002, Page 53
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. JÚNÍ 2002 53 Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is Heimsferðir opna þér leiðina til Ítalíu í sumar á hreint ótrúlegum kjörum og einstakt tækifæri til að kynnast þessu stórkostlega landi á verði sem hefur aldrei sést fyrr á Íslandi. Vikuleg flug alla fimmtudaga til Verona, einnar fegurstu borgar Ítalíu, þar sem þú getur notið ótrúlegrar fegurðar hennar og sögu eða dvalið við Gardavatn í magnaðri náttúrufegurð. Verona er í hjarta Ítalíu, frábærlega staðsett og héðan er örstutt til allra átta og þú velur úr glæsi- legustu verslunum heimsins og listasöfnum og nýtur lífsins í þessu menningarhjarta Evrópu. Aðeins 50 sæti á sértilboði Beint flug alla fimmtudaga Brottför frá Keflavík kl. 17.30. Flug heim á þriðjudagsmorgnum Verð kr. 24.265 Gildir 11 eða 18. júlí til Verona. Flugsæti með sköttum, m.v. hjón með 2 börn, 2–11 ára. Verð kr. 29.950 Flugsæti fyrir fullorðinn, fargjald A. Aðeins 40 sæti í boði. Skattar innifaldir. Kynntu þér Ítalíubækling Heimsferða Verona 11. og 18. júlí frá kr. 24.265 SÖLVHÓLSGÖTU 7 • 150 REYKJAVÍK SÍMI 545 7500 • FAX 562 6383 NETFANG postur@fjs.is VEFFANG www.fjs.is Fjársýsla ríkisins var stofnuð með lögum nr. 95 - 15. maí 2002. Stofnunin tekur yfir starfsemi Ríkisbókhalds og embætti Ríkisféhirðis. Fjársýsla ríkisins Nýtt símanúmer Fjársýslu ríkisins Númer bréfasíma eru óbreytt. 545 7500 Í laxleysi gerist það gjarnan að öllu er tjaldað til að fá þá fáu fiska sem láta á sér kræla til að taka fluguna. Í veiðibúðunum fara að sjást ýmis furðufyrirbæri. Gamall draugur gekk aftur í glerborðinu í Vesturröst fyrir skemmstu. Það er engin önnur en „flugan“ Black Eyed Prawn, eða svarteygða rækjan, sem þarna var komin, en hún hefur varla sést í verslunum lengi. Aftur á móti hefur sjaldan vantað hennar helsta afkvæmi sem er ekkert annað en hin alræmda og stórhættulega Frances. Eins og sjá má af myndunum er Black Eyed Prawn, eða B.E.P. eins og margur kýs að skammstafa hana í sömu meginlitum og Frances, þ.e. rauð, svört, græn og gul. Sá sem hnýtir er Jón Sigurðsson, þaulvanur veiðimaður. B.E.P. var hönnuð af breska hnýtaranum Peter Dean og fyrstu eintökin hnýtt af stúlku að nafni Frances sem vann hjá honum. Þaðan er Frances nafnið komið. Sú gamla loðnari B.E.P. var fyrst reynd hér á landi, líklega í Norðurá og reyndist af- burðavel. Eins og sjá má er hún með augum, en frumgerðirnar voru raun- ar mun loðnari heldur en þær sem hér eru komnar. Fljótlega fóru menn að stytta vinnslutímann á hverri flugu, hún varð „snöggklipptari“ og augunum var sleppt. Það bar sama góða árangurinn og þróaða flugan var skýrð Frances. Nokkrir veiðimenn, m.a. Guðlaug- ur Bergmann, hafa þó ævinlega haldið tryggð við gömlu frumgerðina og veitt vel á B.E.P. Svarteygða rækjan gengur aftur Morgunblaðið/Golli Hér er B.E.P. í öllum helstu litunum. Hún er ófrýnileg, svarteygða rækjan. ERU ÞEIR AÐ FÁ’ANN? TÓMAS Ingi Olrich mennta- málaráðherra afhenti í vikunni 15 styrki úr sjóðnum Þekking stúd- enta í þágu þjóðar, til nemenda í Háskóla Íslands. Sjóðurinn er til- raunaverkefni til eins árs og markmið hans er að auka rann- sóknarstarf á landsbyggðinni og vekja athygli stúdenta á rann- sóknartækifærum og aðstöðu til rannsókna á landsbyggðinni. Þátttaka í ár var mjög góð, alls bárust 47 umsóknir um styrki, en styrkir voru veittir hvort sem um lokaverkefni eða önnur verkefni var að ræða. Fullur styrkur var 500 þúsund krónur og miðast við 15 eininga verkefni en smærri verkefni fengu úthlutun í hlutfalli við einingafjölda. Umsóknirnar voru metnar með hliðsjón af gildi þeirra fyrir viðkomandi sveitar- félög og staðbundnum aðstæðum, svo sem atvinnulífi, byggðaþróun og fleiri þáttum. Styrkirnir í ár runnu til verk- efna í 10 sveitarfélögum. Sjóð- urinn er samstarfsverkefni Stúd- entaráðs, Byggðastofnunar, Rannsóknaþjónustu Háskólans, Sambands íslenskra sveitarfélaga og nokkurra sveitarfélaga. Stúd- entaráð Háskóla Íslands átti frumkvæði að stofnun sjóðsins sem byggist á 3 milljón króna framlagi Byggðastofnunar og 200 þúsund króna framlagi 10 sveit- arfélaga, eða alls 5 milljónum króna. Morgunblaðið/Jim Smart Tómas Ingi Olrich afhendir hér Berglindi Steinu Ingvarsdóttur styrk úr sjóðnum, en hann hlaut hún fyrir verkefnið Bjargdúfur, sem snýst um að kanna meinta tilurð villtra bjargdúfa í Fjarðarbyggð. Styrkir veittir til stúdenta

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.